Morgunblaðið - 24.10.1970, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.10.1970, Blaðsíða 3
MORiGUNBLAÖEÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1970 3 $ í dag verður opnuð í Boga- sal merk sýning á málverkum eftir Ásgrím Jónsson í tilefni þess, að um þessar mundir eru liðin 10 ár, síðan Ásgrimssafn var opnað. Vegna þessa afmæl is ákvað stjórnarnefnd safnsins að efna til þessarar sýningar á þeim verkum listamannsins, sem undanfarið hafa verið í \iðgerð og lu-einsim í Bíkislisfasafninu danska. Mjög fá þessara verka hafa áður komið fyrir almenn- ingssjónir. Það var um sama leyti og Ás- grímssafn var stofnað, að hafizt var handa um útgáfu listaverka korta, en sala þeirra síðan hef- ur staðið undir kostnaði af við- gerðum á þessum málverkum. Á biaðamannafundi i Bogasal nú rétt fyrir skömmu hittum við tvo úr safnstjórninni, þau Bjarn veigu Bjarnadóttur safnvörð og Hjörleif Sigurðsson listmálara, en hann hefur nú tekið sæti Yfirlitsmynd af sýningunni í Bogasal, sem Ól. K. M. tók. Verið var að taka kvikmynd fyrir sjónvarpið, þegar þessi mynd var tekin. Afmælissýning Ásgrímssafns í Bogasal Jóns Jónssonar bróður lista ■mannsins í stjórninni. Við báð- um frú Bjarnveigu að segja okkur frá tildrögum þessarar sýningar. Henni sagðist svo frá: „Eins og mörgum mun vera kunnugt, fundust gömul olíumál verk í lélegum kjallara í húsi Ásgríms Jónssonar að honum látnum. Mjmdir þessar skoðuðu listmálararnir Jón sálugi Þor- leifsson, Gunnlaugur Scheving og Jón, bróðir Ásgrims. Kom í ljós, að á meðal þessara mynda voru mörg öndvegisverk frá fyrri árum, en sum þeirra mjög illa farin. I kjallaranum var saggi, sem komizt hafði í mynd irnar. Nauðsynlegt var að senda þær til útlanda i viðgerð, og tók Ríkislistasafnið danska að sér þetta verk, sem nú hefur staðið yfir í rúman áratug. Sala listaverkakortanna hef- ur að öllu leyti staðið undir þessum viðgerðum og það er raunar mjög merkilegt mál. En hinu er ekki að leyna, að safn ið eignaðist strax mjög góða og traiusta viðskiptavini, sem íh'afa stutt að framgangi þessa máls með kaupum sLnum á kortunum. „Hvað mörg málverk hafa verið send út til viðgerðar „Á þessum 10 árum mun fjöldi þeirra vera um 100 tals- ins. Þau hafa verið iátin í lát- iausa, en trausta ramma, einn- ig blindramma. Árið 1966 var haidin hér í Bogasalnum sýn- ing sem þessi, en síðar við nán ari athugun, var það ljóst, að enn mátti reyna að bjarga enn fleiri málverkum og nokkur þeirra verka eru á þessari sýn ingu.“ „Hverjir annast þessar við- gerðir í Kaupmannahöfn, frú Bjarnveig?" „Steen Bjarnhof tók að sér þetta erfiða verk. Bjarnhof er hámenntaður sérfræðingur i við gerðum mynda, og er nýtekinn við deildinni þar, sem um þetta sér. Hins vegar hefur viðgerð og hreinsun vatnslitamynda ver ið í höndum Signe Rönne, en hún kann allt í þá veru, og hef ur starfað i áratugi hjá danska safninu. Nú þótti okkur í stjórn Ás- grímssafns viðeigandi að gefa almenningi kost á að sjá þess- ar myndir og ekki hvað sízt þeim, sem raunverulega hafa greitt þennan viðgerðarkostnað, með því að kaupa kortin. Þessi sýning stendur yfir í vikutima. Þegar frá er skilinn laugardag- urinn, þar sem einvörðungu koma boðsgestir, náin skyld- menni Ásgríms, vinir hans, lista menn og nokkrir aðrir gestir, KVENNADEILD Skagfirðingafé lagsins í Reykjavík byrjar vetr arstarfsemi sína með félagsfundi í Lindarbæ miðvikudagónn 28. þ.m. Þar mun meðal annars Elín Pálmadóttir verða með frásögn og myndasýningu. Starfsemi fé- lagsins hefur verið með ágætum undanfarin ár, það hafa verið haldin handavinmunámskeið í ýmsum greinum o.m.fl. gert til fróðleiks og skemmtunar. í haust afhenti félagið Sjúkra- þá verður sýningin opin frá og með sunnudegi frá kl. 2—10 til jafnlengdar næsta sunnudag, og það skal tekið fram, að aðgang ur er ókeypis, en hverjum er í sjálfsvald sett, hvort hann kaupir sýningarskrá, en með sölu hennar vonumst við til að hafa eitthvað upp í kostnað." Við gengum nú um Bogasal- inn, og þar gaf nú á að líta. Málverkin, sem á veggjunum hanga, eru stórkostleg, og má varla á milii sjá, hvert er öðru betra. Ásgrimur gaf þjóð sinni málverk sín, og nú er það þjóð arinnar að fjölmenna á sýningu þessa, sem opin er alla daga fram til næstu helgar, frá kl. 2—10, og vel að merkja: Að- gangur er ókeypis. — Fr. S. húsi Skagfirðingia á Sauðárkróki heyrnarprófunartæki að gjöf, sem safnað var fyrir með basar og kaffisölu 1. maí sl. f vetur er ætlunin að hafa handavinnu- kvöld þar sem félagskonur geta hittst,. til þess að vinna fyrir næsta basar, en starfsemin hefur alltaf miðazt við að láta heirna- byggðóna njóta hennar. (Frá Kvennadeild Skagfirðingafélagsin®) Skagfirzkar konur hef ja vetrarstarf TIZKUVERZLUN UNCA FOLKSINS ' , ■ ■>••.;•■■■: . . ■■'•ÁÍ. :■ ■ ■ . ■:- . y,. : - A ■ OPIÐ TIL KL. 4 I DAC - LAUCARDAC STAKSTtlMR Vanþekking Fyrir skömmu gerðist það I bæjarstjórn ísafjarðar, að elnn af bæjarfulltrúum meirihlutans greiddi atkvæði með bæjarfull- trúum minnihlutans. Mál þetta hefur dregið þann dilk á eftir sér, að samstarf bæjarfulltrúa Franisóknarflokksins, Alþýðíi- flokksins og Alþýðubandalags- ins um meirihluta í bæjar- stjórninni hefur rofnað. Vegna þessa atviks gerðu stjórn og full trúaráð Framsóknarfélags ísfirð inga svohljóðandi samþykkt: „Stjórn og fulltrúaráð Fram- sóknarfélags ísfirðinga harmar mjög og átelur harðlega þá máls meðferð Barða Ólafssonar, bæj- arfulltrúa, að greiða atkvæði á bæjarstjórnarfundi 14. okt. 1970 gegn yfirlýstum vilja og einróma samþykkt stjórnar og fulltrúa- ráðs Framsóknarfélagsins, og lít ur á þetta sem gróft brot á trún aði hans við félagið, og brot á samkomulagi við samstarfs- flokka Framsóknarflokksins uni bæjarmál Isafjarðar. Auk þess sem þessi málsmeðferð er ekki í saniræmi við lýðræðislegar venj-. ur og reglur.“ Morgunblaðið ætlar ekki að blanda sér í deilur framsóknar- nianna á ísafirði, en niðurlag þessarar samþykktar er með svo einstæðum hætti, að ekki verður komizt lijá því að gera það að umtalsefni. Að vísu er það venja að í bæjarstjórnum geri bæjar- fulltrúar með sér málefnasamn inga um myndun starfshæfs meirililuta, en hitt. er þó grund- vallarregla, að lýðkjörnir full- trúar geta komið fram svo sem samvizka þeirra býður hverju sinni. Enginn bæjarfulltrúi afsal ar sér þessum rétti, þó að hann geri málefnasamning við full- trúa annarra flokka. Málsmeð- ferð bæjarfulltrúans á Isafirði brýtur því engan veginn í bág við lýðræðislegar reglur eða venjur, heldur er hún í fyllsta samræmi við leikreglur lýðræðis. Að sínu leyti er þessi sam- þykkt stjórnar og fulltrúaráðs Framsóknarfélags ísfirðinga meinlasu, en seinasta setning hennar gefur þó til kynna, að fyrir hendi er alvarlegur þekk ingarskortur á þeim grundvall- arhugmyndum, sem liggja að baki því lýðræðislega stjórn- kerfi, sem við búum við. Þegar vanþekking af þessu tagi kemur þannig fram, verður æ augljós- ara, hversu brýnt það er að hefja almenna kennslu í stjórn- mála- og þjóðfélagsfræðum í skól um landsins. Aðdróttun Fréttaritari Bíkisútvarpsins í Noregi, Tryggvi Gíslason, greindi fyrir skömmu í frétta auka frá umsókn Norðmanna um aðikl að Efnahagsbandalagi Ev- rópu og notaði tækifærið til að fara með staðhæfiilausar aðdrótt anir um afstöðu ónafngreindra íslenzkra stjórnmálamanna. Tryggvi sagði m.a. þannig frá: „Enda sagði Stray, utanríkisráð herra, í ræðu sinni í Briissel á dögunum, að Norðmenn væru reiðubúnir að afsala sér nokkr- um hluta núverandi sjálfstæðis síns fyrir aðild að Efnahags- bandalagi Evrópu. Og við höf- um, Islendingar, heyrt ummæli þessu svipuð af vörum okkar eig in stjóriimálamanna." Ekki er til þess vitað, að nokk ur islenzkur stjórnmálamaður hafi lýst þeim skoðunum, sem Tryggvi Gíslason leggur ótil- greindum hópi þeirra í munn. Gera verður þær kröfur til þessa og annarra fréttaritara út varpsins, að getið sé lieimilda og Tryggvi nafngreini þá íslenzku stjórnmálamenn, sem hann hefur í lniga, þegar ummæli þessi eru sögð. Að öðrum kosti hljóta þau að teljast ómerk og dylgjur ein- ar. « .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.