Morgunblaðið - 03.03.1971, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.03.1971, Blaðsíða 3
MORGUNBI.AÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3 MARZ 1971 3 Banka- stjóri enn óráðinn NÍU sóttu uim baokastj órastöð - wtrua hjá Aliþýðubankamuim. Her- mnanin Guðmiumdsson, stjámaírtfoir- miaður tjáði Mbt. í gær iað ekki væcri enm búið að ráða bainlkia- Btjórma. Þainma væri gott og imlikið maammavall oig bað setti stjónmima í vainda. En l'íklega yrði gengið fró miátimu í þessiari vilkiu, þvi áfortm etnu utm að opmia bamikiamin é föstiudaig. — Moskva Framhalð af bls. 1. APjfiréttaritarinn Peipert sagði eáðiar, að harnn hefði verið ákærð- ur fyrir að haifia lagt bát sínium ólögfeíga. S'kemmdimar á bitfreið starís.félaga hans, Leddimgtoms, voiru unmar þegar hann fór tiS byggingar hæstaréttar til að kanrna firéttir um að Gyðimgar hetfOu farið þangað til að etfna til setuverfcfaMs. Báðir þessir atburðir virðast standa í tengsl- am við baráttu sovézkra ytfir- vaQda gegn því að erflendlir Maða- mienn haifi samband við Rússa, sem haifia ekki opintoeirtega leyfi tifl þess að hitta úttandinga að máli. Loðnubátar með fullfermi í Vest mannaeyjum, en þar hatfa allar daga. — Ljösm. Sigurgeir. Loðna til Eyja og Austfjarða FRÉTTIR bárust nni góðan afla hjá loðnnbátnm i Meðallands- bugt í gær. í Vestmannaeyjum voru þrær orðnar fullar og bú- izt við að þar yrði aðeins hægt að taka við afla af heimabátiun. Vitað var um 3 báta á leið til Vestmannaeyja: Viðey með 180 lestir, Ólaf Sigurðsson með 220 lestir og Isleif 4. rneð fullfermi. Til Þorlákshafnar kom Gísli Árni i gær með 270 lestir af loðnu. Fjórir bátar komu til Norð- þrær verið að fyliast undanfarna íjarðar i gær með loðnu. Börk- ur með 280 lestir, Heiga Guð- mundsdóttir með 330 lestir, Súl- an með 400 lestir og Bjartur með 220 lestir. Fór aflinn ýmist i bræðslu eða frystingu. Jón Kjartansson kom til Eski- fjarðar i fyrradag með 330 lest- ir af loðnu og i gær kom Loft- ur Baldvinsson með 450 lestir, Seley með 200 lestir og von var á Bjarma II með 200 lestir og Héðni með 250 lestir af loðnu og 10 tonn af ýsu. Þangað var einn- ig von á Hólmatindi með 100 tonn af þorski til vinnslu i hraðfrysti- húsinu. Rösk milljón 1 geirfuglssöfnunina Lokaátakið í dag UM 9 leytið í gærkvöldi var áætl að að í geirfuglssöfnunina væri komið töluvert á aðra miUjón, en söfnun var í fullum gangi og menn ekki famir að skiia af sér. Var verið að taka á móti söfnunarfé í skólunum í Reykja vik, Seltjarnarnesi og Kópavogi og klúbbar að safna um allt land. Kl. 9 höfðu safnazt um 200 þústind krónur í skólunum I Keykjavík einni. Morgunblaðið bafði tekið á móti 18.894 kr. er skrifstofan lokaði kl. 5 siðdegis. 1 gær tilkynnti KEA, að fyrir- tækið gæfi 100 þúsund krónur í söfnunina og hjá mörgum fyrir- tækjum hefur starfsfólk safnað saman nokkrum upphæðum. Sagði framkvæmdastjóri söfnun arinnar í gærkvöldi að áhugi fólks væri ótrútaga mikill, og næði mjög til almennings. 1 dag er svo ioka&takið i söfn- * Datsun»umbo5i5 á Islandi: Seldi 50 bíla á tæpum mán. HEILDVERZLUN Inga Helga sonar, sem m.a. hefur verið með umboð fyrir Trabant- bifreiðir, hefur nú fengið umboð á íslandi fyrir jap- önsku Datsun-verksmiðjum- ar, og á þeim tæpa mánuði, sem iiðinn er síðan fyrir- tækið fékk umboðið, hefur það selt rúmlega fimmtíu bifreiðar til þriggja leign- bíiastöðva, Bæjarieiða, Hreyf ils og BSR. Tegund sú sem leigubíl- stjóramir hafa keypt heitir Datsun 2200, er sex manna ®g með dieselvél. Sumir þeirra hafa gripið til þess ráðs að gera samkaup, og hafa 35 bílar verið seldir með þeim hætti, en með svo stórri pöntun fæst töluverð lækkun. Ingi Helgason sagði Morg- unblaðinu að í næstu vijju yrði haldin sýning á Datsun- bílum í Háskólabíói og yrðu sýndar þar þrjár tegundir, Datsun 2200, 1600 og 1200. Númer 1600 er hraðkeyrslu- bíll, sem m.a. vann sér það til frægðar að eá fyrsta, öðru og fimmta sæti í sið- asta Afríku-kappakstri. Núm er 1200 er svo fimm manna fjölskyldubíll, og er ákveðið að aðeins De Luxe-gerðin verði seld hér á landi. Þá verður eitthvað byrjað að selja tveggja tonna vöru- bifreiðar, en þser eru með sama mótor og Datsun 2200, þannig að varahlutir verða ekki vandamál. Ingvar sagði að þeir ætluðu að fara hægt af stað, og þótt Datsun- verksmiðjurnar framleiði 70 mismunandi tegundir, verði ekki seldar nema þessar fyrr nefndu hér á landi, a.m.k. ekki fyrr en náðst hefur full komið skipulag á varahluta- þjónustu og öðru. Yrði þess vandtaga gætt að fara ekki of geyst í hlutima til að þjón- ustuhliðin drægist ekki aftur úr. Datsun-verksmiðjurnar eru stærsti bílaframleiðandi í Japan, og framleiða um 125 þúsund bíla á mánuði. Aðal- umboð fyrir Norðurlönd er í Danmörku, og þar er lager, bæði af bifreiðum og vara- hlutum. uninni, þvi á morgun, fimmtu- dag verður uppboðið í London, sem hefst kl. 11 og er búizt við að geirfuglinn verði boðinn upp laust eftir Id. 1. Hefur verið fenginn enskur sérfræðingur til að bjóða í fuglinn fyrir íslend- inga, en slíkt er sérstakt fag, sem þykir vandasamt. Viðstaddir uppboðið verða þeir dr. Finnur Guðmundsson og Valdimar Jó- hannsson, framkvæmdastjóri söfnunarinnar, en Flugfélag Is- lands bauð þeim farið út til að sækja gripinn, ef hann verður eign íslendinga. Ekki er áhuginn síztur hjá fólki í sjávarplássunum. Gamall Suðurnesjamaður sendi dr. Finni í gær þessa vísu: Danir bjóða upp dýrgripinn, duga krónur slyngar. Gefum okkur geirfuglinn góðir Islendingar. Vöru- skipta- íöfnuður — í janúar 1 janúarmánuði var vöruskipta jöfnuðurinn óhagstæður um 182 milljónir króna. Útflutningur nam 818,8 milljónum, en inn- flutningur 1.000,7 milljónum. 1 útflutningnum er ál og álmelmi fyrir 76,8 miOjónir, en í innflufn ingi mánaðarins er talinn inn- flutningur til Búrfellsvirkjunar fyirir 4,4 miilljónir og til ísl. ál- félagsins fyirir 129,7 milljónir. I sama mánuði i fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn hagstæð- ur um 65,9 milljónir. Þá var flutt út áimelmi fyrir 178,9 millj- ónir, en innflutningur til álfé- lagsins nam aðeins 29,6 milljón- tim, og tóB. BúrfólHisvirikjuiniar 2,6 miillllijónium. Tófa elt 1 á vélsleða J Bæ, Hofðaströnd, 2. marz. t lí DAG voxu hjónám í Bæ að/ | niota góða veðrið á véSsteða J / úti á Höfðavatoii. Varð þá fyr- J ir þekn aHivít tófa, vel spræk, Isem vintist þó eiga vont með tað forða sér undan vélstaðam- I um. Þau komiuæt aflveg að tóf- J unmi, em höfðu aðedms berar Ihendiur og gátti því ekki ráð- | ið miðurlögumi dýrsins, sem i Slapp út í Þórðariiöfða, / Borið hefur á dýrbiti á fé 1 hér um slóð'iir og einmdg miokk- I uð i FeflÐishreppi Sýnilegt er lað tætfa befiur teikið á gremja- /skyttur og líkflega komið utpp J yrðlimigum sL vor. Gott veður 1 er hér mú og jörð aðeimis bflett- íótt af snjó fyrir utam Hofsós, 7en næstum allauð jörð þar fyr J ir immiam. J Mjög Ifitiil rauðmagaveiðd er lennlþá og þvi flíitill björg úr i(sjó. — Björn. Athugasemd frá Ríkisútvarpinu Reykjavik, 3. marz, 1971. M ORGUNBLAÐINU hefur bor- izt eftirfarandi tilkynning frá Ríkisútrarpinu, unðirrituð af Gunnari Vagnssyni, yfirmanni fjármáladeildar þess: „1 tilefni af blaðafréttum um rannsókn á skilum fyrirtækisins Nesco h.f. á skýrslum til Ríkis- útvarpsins yfir seld sjónvarps- tæki, skal eftirfarandi tekið fram: 1 júní sl. óskaði Rikisútvarpíð eftir því að rannsókn yrði iát- in fara fram á skilum sölu- skýrslna. Hinn 9. sept sl. lét fyr- irtækið Rákisútvarpinu i té veru legt magn upplýsinga um sölur, er fram fóru á árunum 1969 og 1970, og siðan hefur það tilkynnt sölur sjónvarpstækja reglulega. Að gefnu tilefni skal tekið ímam, að í ‘kseriu Rikiisútvairpsiims fólust tilmæli um rannsókn á skilum fyrirtækisins á söluskýrsl um þeim er áður getur, og engu öðru, en söluskýrslur þessar veita, svo sem flestum mun kunn ugt, upplýsingar um hverjir gerzt hafi kaupendur sjónvarps- tækja og beri því að greiða af- notagjöld." STAKSTEINAR Miklir menn.... Miklir menn erum við, Hrólf- ur minn. „Undir forystu Al- þýðuflokksins, sem stjómað hef- ur útvarpsmálum á íslandi sl. áratug, hefur allur útvarpsrekst- ur tekið stökkbreytingum.. Alþýðuflokkurinn hefur uú for- ystu um að flytja róttækar breytingartillögur á útvarpslög- unum ....“ Þetta gort og sjálfs- hól birtist í forystugrein Alþýðu- blaðsins í gær. Um það verða ekki höfð mörg orð, þótt ýmsir mundu telja, að reynslan af stjóm Alþýðuflokksins á sumum stofnunum væri ekki slík, að hún gæfi tilefni til slíkrar lofgerðar. Hitt stendur eftir, að Alþýðu- blaðið bregst jafnan ókvæða við, ef varpað er fram hugmyndiun um nýjungar í starfsemi þeirra stofnana, sem Alþýðuflokkurinn „stjómar" — nema þegar um er að ræða fjölgun á bitlingnm. Indókín ver j ar! Hinn óviðjafnanlegi snillingur, sem ritar Austra-dálka Þjóðvilj- ans tekur þvi með eindæmum illa, að bent er á, að fleiri hafa gert innrás í Laos en Suður- Víetnamar. Raunar hafa Norður- Víetnamar ekki aðeins gert inm- rás í Suður-Víetnam og Laos, heldur einnig Kambodiu. En i augum ofangreinds höfundar eru þessar aðfarir Norður-Víetnama ekki „innrás'4 heldur barátta „Indókínverja" gegn „erlendri árás" ! Nú fara menn að skilja betur stuðning austra við innrás- ina í Tékkóslóvakíu 1968. Þar var auðvitað ekki um að ræða innrás í landið heldur vamarað- gerðir Slava gegn „erlendum" öflum! „Meðal“ ár Fyrir nokkrum missemm fundu Framsóknarmenn skyndilega upp á þvi að’isegja, að áföllin 1967 og 1968 hefðu engin áföll verið, heldur einungis „meðalár". Þessi fullyrðing hefur ekki sézt á síðum Tímans um langt skeið en gengur nú aftur Ijósum logum. f Tímanum sl. sunnudag sagði m. a,: „Þar sem ekki er unnt að kenna óbilgjömum kröfum verkalýðssamtakanna um verk- föllin, kunna kannski einhverjir að Ieita þeirra skýririga, að yfir ísland hafi á þessum ámm ðunið sérstök óhöpp af völdum afla- brests, markaðshruns eða stór- fellðs verðfalls erlendis. Sú skýring stenzt þó ekki, þegar blaðað er í hagskýrslum og það kemnr í ljós, að þetta er hag- stæðasti áratugurinn í sögu þjóðarinnar á þessari öld, þegar miðað er við aflabrögð og verzl- unarárferði út á við. Tvö óhag- stæðustu árin geta ekki talizt lakari en meðaiár, t. d. þegar miðað er við áratuginn 1959— 1959." Menn hafa þótzt sjá þess merki á undanfömum mánuðum, að Framsóknarmenn hafi viljað taka upp ábyrgari stefnu í þjóð- málum, væntanlega til þess a® eiga hugsanlega kost á aðild að ríkisstjóm að kosningum lokn- um. En hætt er við, að Fram- sóknarmenn falli á því prófi, ef þeir ætla að halda áfram að bera á borð fjarstæður eins og þá, sem hér hefur verið vitnað til. / >v v ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.