Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 6
MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1971 Áimi) IIEÍLLA Síðasti snjórinn Börnin nota síðasta snjóinn. 1 dag: er þriðjudagnrinn 20. apríl. Er það 110. dagur ársins 1971. Árdegisháflæði er klukkan 01.49. Eftir lifa 255 dagar. Drottinn, til himna nær miskunn þín, tU skýjanna trúfesti þín. (Sálm. 36,9.) Næturlæknir í Keflavík 20.4. Kjartan Ólafsson. 21.4. Arnbjörn Ólafsson. 22.4. Guðjón Klemenzson. 23., 24. og 25.4., Jón K. Jóhannss. 26.4. Kjartan Ólafsson. AA-samtökin Viðtalstími er í Tjamargötu 3c frá kl. 6- 7 eJi. Simi 16373. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 75, er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. MænusóttarbólusetnJng fyrir fullorðna fer fram í Heilsuvemd arstöð Reykjavikur á mánudög- um frá kl. 5—6. (Inngangur frá Barónsstíg yfir brúna). Ráðgjafaþjönusta Geðverndarféiagsins þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að Veltusundi 3, sími 12139. Þjón- ustan er ókeypis og öllum heim- U. Frá Ráðleggingastöð kirkjimnar Læknirinn verður fjarverandi um mánaðartima frá og með 29. marz. FORELDRAR Gleðjið börnin á komandi sumri með barnastultum (5 iitir). T résmíða verkstæðið, Heiöargerði 76, sími 35653. Opið fram eftir kvöldi. ÓSKUM EFTIR að kaupa eða leigja 4ra-—6 tonna trillubát i góðu lagi. Upplýsingar í síma 25717. IbOð óskast á leigu í Reykjavík. Sími 26636 eftir kl. 18.00. EKKJA MEÐ 3 STÁLPUÐ BÓRN óskar að taka á leigu 3ja— 4ra herbergja íbúð. Reglu- serrvi og örugg mánaðargr. Uppl. í síma 16686 og 20430. HALLÓ NEMENDUR Löngumýrarskólo veturinn '65—’66. Hringið í Elvu Björnsdótur í síma 18494, sem aifra fyrst. RIFFILL Vel með farinn Cal. 222 ósk- ast. Upplýsingar í síma 32908. 1—3 SKRIFSTOFUHERBERGI tii leigu. Tilboð sendist Morgunbl., merkt „7066." KEFLAVlK Stúlka óskast til afgreiðslu- starfa, helzt vön afgreiðslu. Upplýsingar f síma 1256. GERUM VIÐ ALLT TRÉVERK nýtt sem gamalt. Lita, lakka, pólera, spónlegg, lími og fl. Kem heim, ef óskað er. Sími 83829. Sigurður Blomsterberg. FRÍMERKI — FRlMERKI Islenzk frimerki til sölu. Titb. óskast sent til Morgunbl. fyrir 25. apríl 1971, merkt „Frímerki — Pálína 999 — 7368." ÓSKA EFTIR þriggja herbergja íbúð. — Reglusemi, örugg greiðsla. Upplýsingar í síma 20828 eftir kl. 5. SJÓMANN VANTAR á 70 lesta bát. Uppl. í síma 92-7063. 24 ARA GAMALL MAÐUR sem er sveinn í rafvirkjun óskar eftir atvinnu. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt „7371" fyrir 25. þ. m. ÞRIGGJA TIL FJÖGRA herbergja íbúð óskast í Kópavogi eða Reykjavtk. Upplýstngar í síma 42215. STOLKU vantar til Bergenfield, N. J., U.SA. 18—20 ára fyrir létta húshjálp. Tvö börn, 8 og 6 ára. Fri um helgar. Flugferðir borgaðar. Uppl. f s. 38437. ÁHEIT 0G GJAFIR Áheit og gjafir á Strandar- kirkju afh. Mbl. Þórunn 50, V. 100, G.I. 500, S.J. 3.500, F.G. 50, B.K. 100, Anna Guðmundsd. 100, J.J.L. 500, S.G. 200, Dúdda 500, G.G.G. 100, G.Þ. 100, Hanna 100, F.I. 100, N.N. 650, Ásgeir 300, Ó.I. 1.000, Fríða 100, Ö.Ó. 2000, Bjami Halldórsson, Hagamel 18 2.000, K.Þ. 100, G. 500, N.N. 300, R.J. Laugalandi 100. Bruninn Grettisgötu afh. MbL Akureyringur 100, Lauíey 300. Bruninn að Krossnesi afh. Mbl. NJST. 500, G.I. 500, I.Ó.I. 1.000, G.B. 700. Bruninn að Vatnshlíð G.B. 700. Guðm. góði afh. Mbl. G.H. 500, Margrét 100, gömul kona 100, G. 500. Hestarnir i snjónum. m m ► * Jn* , m ... ~ .... mHts* mm Þann 3. 4. voru gefin saman í hjónaband í Fríkirkjunni af séra Þorsteini Björnssyni ung- frú Hrafnhildur Valgarðsdóttir og Bjarni Vemharðsson. Heim- ili þeirra er að Kirkjuteig 13. Studíó Guðmundar, Gaxðastr. 2. Þann 27. 2. voru gefin saman í hjónaband í Háteigskirkju af séra Jóni Þorvarðssyni, ungfrú Rósa Ólafsdóttir og Jón Jó- hannesson. Heimili þeirra er að Vitastíg 17. Studio Guðmundar, Garðastr. 2. Þann 27. 3. voru gefin saman í hjónaband í Kópavogskirkju af séra Sigurði Hauki Guðjóns- syni, ungfrú Auður Jónsdóttir frá Vopnafirði og Ingvi Rúnar Grétarsson. Heimili þeirra er að Hlíðargerði 13. Stúdio Guðmundar Garðastr. 2. VISUKORN Ég er fangi fortíðar, frelsi á ekki samtiðar, finn ei fegurð framtíðar, né fjárplógsaðferð nútíðar. H.V. FRETTIR Hafnarf jarðarkirkja Altarisganga í kvöld kl. 8.30. Garðar Þorsteinsson. ÚR ÍSLENZKUM ÞJÓÐSÖGUM Ég á einn hálfvin Einu sinni voru feðgar að þræta um vináttuna. Sá yngri sagðist eiga 18 vini, og taldi hann þá alla trygga. Karl sagð ist aðeins eiga einn hálfvin. Nú vildu þeir reyna tryggð þeirra. Sá yngri slátraði kálfi og bjó um hann sem bezt hann mátti. Síðan heimsótti hann alla vini sína á náttarþeli með dauða kálfinn og bað þá ásjár. Kvaðst hann vera með mann, sem hann hefði verið svo óhamingjusamur að myrða, og bað þá að grafa hann fyrir sig. En þeir vísuðu honum allir frá sér með mestu fyrirlitningu. Loks fann hann hálfvin föður síns og bað hann í nafni föður síns að taka und- ir vandræði sín. Hann brást vel við og bað hyski sitt að fara burtu, meðan hann talaði við mann þennan. Síðan bjó hann sig til að rífa fjalir úr gólf- inu til að jarða þar líkið. Hinn sagði honum þá upp alla söguna enda voru hinir þá búnir að áikæra hann, svo við sjálft lá að hann væri hnepptur í varðhald. Sýndi hann þá kálfinn og slapp. Um þetta kvað gamli maðurinn: Átti ég margan alvininn, úlf í klæðum sauða, en hálfkunningi mætur minn mér var trúr til dauða. Sýnir Rannveigar í september 1878 var maður Rannveigar ekki heima, og svaf ég hjá henni í svefnherbergi hennar, er var i öðrum enda hússins. Þetta kvöld háttaði hún í fyrra lagi, því hún var ofurlít ið vesæl, en ég var eftir í dag- legu stofunni í hinum endan- um. Áður en ég fór að hátta, kraup ég á kné við legubekk- inn og bað kvöldbæn mína. Voru þá allir I húsinu, það ég til vissi háttaðir. Þegar ég kom inn til hennar, lá hún vakandi, en hálfsyfjuð. Sagði hún þá við mig, er ég kom: „Þú varst að biðjast fyrir á legubekknum fyr ir handan." Mér kom þetta óvart og illa, því bænin er einungis gjörð fyrir mann sjálfan, þegar maður velur einveru fyrir hana, og sagði ég því nokkuð stutt: „Hvaða uppáfynding er þetta fyrir þér?" Sagði hún þá og leit alvörugefin á mig um leið: „Er nokkuð ljótt í því að biðja? Og til vitnis um, að ég veit hvað ég segi, þá hóstaðirðu eða ræsktir þið ofurlítið fyrst.“ Þá mundi ég, að ég einmitt í þetta skipti hafði gjört það. Að hún í öðr- um enda hússine hefði heyrt svo lítið hljóð, sem ég naumelga fann, voru ekki tiltök. Að hún hefði verið nálæg, var líka ómögulegt, þar allar hurðirnar voru harðlæstar og stirðar I hjörunum. Að nokkur hafi getað sagt henni það, var þessu ótrú legast, þar allir voru háttaðir og þar að auki óvanir að koma inn til hennar svo seint. Spakmæli dagsins En sá réttláti, þótt hann deyi ungur, er hann samt í ró. Því æruverð elli er ekki langlif, og hún mælist ekki eftir áratölu, heldur er vísdómur mönnunum hærur og flekklaust líf elliald- ur. Af því að hann geðjaðist Guði og elskaðist (af honum) og lifði meðal syndara, yar hann burt fluttur. Hann var burt hrifinn, svo að vonzkan skyldi ekki aflaga hans skiln- ing eða tálið afvegaleiða hans sál. Því töfrar lastanna draga dul yfir það fagra, og svimi gimdarinnar fellir óspillt sinni. Fullnuma orðinn á stuttum tíma lifði hann langan tíma. Af því að sál hans var drottni þóknan leg, því hraðaði hún sér burt frá vonzkunni. — Speldnnar bók. (Biblíuþýðing 1859). Á BEIT 1 SÓLINNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.