Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 18
 18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1971 Stúlka óskast Starfsstúlka óskast strax i veitingastofuna Fjarkann, Austurstræti 4. Aldurstakmark 20—40 ára. Uppl. á staðnum í kvöld milli kl. 8 og 9. Á I i í Mámsstyrkur úr 'Ettarminningarsjóði Halldóru Ólafs. Styrkurinn veitist stúlku til verzlunarnáms í Verzlunarskóla slands eða erlendis. Jmsóknir ásamt upplýsingum um umsækjanda og nám, send- st Guðmundi Ólafs, Tjarnargötu 37, Reykjavík fyrir 4. mai nk. Bifvélavirkjar óskast strax Biireiðar & Landbúnaðarvélarhl. Suðurland>braut 14 • Bejkjavík - Sfmí 38600 Frysfihúsavinna Okkur vantar strax nokkrar stúlkur og karlmenn til starfa i frystihúsi okkar í Grindavík. Fæði og húsnæði á staðnum. Upplýsingar í sima 13850 i Reykjavik. Vélstjórar — Snðumesjum ARSHÁTÍÐ Véistjórafélags Kefiavíkur verður hakjin i Stapa, föstudaginn 30. aprfl (kvöldið fyrir 1. maí). Allir vélstjórar á Suðurnesjum velkomnir. Fjöhnennið og takið með ykkur gesti. Fjölbreytt skemmtiatriði, góð hljómsvert. Þátttakendur láti skrá sig fyrir 25. þessa mánaðar i síma 1758 — 2772 og 2695. SKEMMTINEFNDIN. Bufmugnsverkíræðingur — rnfmugnstæknifræðingur Fyrirtæki okkar óskar að ráða rafmagns- verkfræðing (sterkstraums) eða þýzk menntaðan rafmagnstæknifræðing, sem fyrst. Áhugi á tæknilegum viðskiptum og þýzkukunnáttu nauðsynleg. Æskilegur ald- ur 25—30 ár. Þeir, sem áhuga hafa á starfi þessu, eru beðnir að hafa samband við okkur skriflega og senda upplýsingar um menntun og fyrri störf fyirr 10. maí næstkomandi. SIEMENS-umboðið á íslandi: SMITH & NORLAND H/F, Suðurlandsbraut 4. Níræð í dag; Helga Finnsdóttir 90 ára er i dag Helga Finns- dóttir frá Borgarnesi, nú til heimilis að Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund í Reykjavík. Helga er fædd á Ferstiklu á Hvalf jarðarströnd 20. april 1881. Árið 1928 stofnaði hún heimili í Borgarnesi ásamt lífsförunaut sínum Olgeiri Friðfinnssyni. Þau eignuðust ein son, Ragnar, nú bónda á Oddsstöðum í Lundar reykjadal. Annan son hafðí Helga eignazt áður, Ársæl Jóhannsson, búsettan á Sel- fossi. Ekki er það ætlun mín að skrifa hér neina ættartölu né ævisögu. Til þess brestur mig kunnugleika. Þetta verða aðeins örfá þakklætisorð fyrir nokk- urra ára samleið. Nóg veit ég þó til þess að mega segja að ekki hefur ævi hennar alltaf verið dans á rósum. Enga manneskju hefi ég vit- að gera jafn litlar kröfur sjálfri sér til handa, eins og Helgu Finnsdóttur, og get ég ekki stillt mig um að nefna lítið dæmi. Það lýsir lifsviðhorfi hennar betur en mörg orð. Það var á Þorláksmessu síðustu jól- in, sem hún var heima, að hún fékk hjálp við að þvo hár sitt óg greiða. Eftir að hafa þakkað fyrir hjálpina, því að þakklætinu gleymdi hún aldrei, þó að minni hennar væri þá far- ið að sljóvgast, sagði hún: „Verst að það verður farið að aflagast á morgun." Það var engan veginn sjálfsagt, frá hennar bæjardyrum séð, að hún fengi aftur hjálp á aðfanga- daginn. Ég hygg, að Helga hafi aldrei verið svo fátæk, að hún hafi ekki á einhvern hátt getað launað greiða sem henni var gerður. Allir þeir sem minnimáttar eru, hvort heldur eru menn eða máileysingjar, eiga samúð henn ar í rikum mæli, og ekki myndi það verða ofmælt um Helgu, sem sagt var um einn áf merkis- mönnum þjóðar okkar, að: „Víst er það ef dýrin mættu mæla, þá myndi verða blessað nafnið þitt.“ Ekki átti Helga völ á skóla- göngu fram yfir venjulegan barnalærdóm þess tíma, en það ætla ég að bóknám hefði orðið henni auðsótt. Svo næm var hún, að ekki þurfti hún að heyra vísu nema einu sinni, til þess að læra hana og muna. Veit ég ekki til að vísnasafn- arar - hafi uppgötvað hvílikur hafsjór af fróðleik hún var i þeim efnum, en þar hafa þeir farið mikils á mis, því að nú er minni hennar tekið að bila. Ég veit að á þessum timamót- um i lífi Helgu Finnsdóttur, er henni efst í huga þakklæti til allra þeirra, sem rétt hafa henni hjálparhönd, eftir að hún hætti sjálf að geta þjónað öðrum. Hún hefur aldrei verið auðug á veraldarvisu, en lífsviðhorfi hennar verður ekki betur lýst en með þessum orðum skáldsins: „Gengi er valt, þar fé er falt, fagna skalt í hljóði, en hitt kom alltaf hundraðfait sem hjartað galt úr sjóði." Friður sé með þér Helga min. RYMINGAR- SALA .... VERZLUNIN FLYTUR. ....... ALLT Á AÐ SELJAST Notið tækifærið og gerið góð fatakaup. TERYLENE FRAKKAR á 1.995,00 og 2.180,00 krónur. KARLMANNAFÖT á 4.440,00 kr. Allar stærðir. STAKIR JAKKAR frá 975,00. DRENGJAJAKKAR á 500,00 kr. 1 / SPORTSKYRTUR á 395,00 kr. LEÐURLÍKISBLÚSSUR á 695,00 — Lítil númer. — Nærföt og margt, margt fleira á góðu verði. Föt fyrir hávaxna Iog granna 3.500,00 kr. Einhneppt, tvíhneppt. Ármúla 5.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.