Morgunblaðið - 14.05.1971, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.05.1971, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 1971 Frá aðalfundi Félags íslenzkra rithöfunda; Fagna fyrirlesara í nútímabók- menntum við Háskóla íslands AÐALFUNDUR Félags ís- lenzkra rithöfunda var hald- inn í Tjarnarhúð 10. niaí sl. Formaður félagsins, Guð- mundur Daníelsson, setti fundinn og minntist nýlát- inna félagsmanna. En þeir voru Þorsteinn Jónsson (Þór- ir Bergsson), sem var heið- ursfélagi, Helgi Valtýsson, aldursforseti þess, og Þorgeir Sveinbjarnarson. Risu fund- armenn úr sætum sínum í virðingarskyni við hina látnu. Þá stakk formaður upp á, að Jóhann Hjálmarsson yrði fundarstjóri og Þóroddur Guðnmndsson ritari fundar- ins. Var hvort tveggja sam- þykkt. Úr stjórninni áttu að ganga; Guðmundur Daníelsson, formað- ur, en var einróma endurkjör- inn; Jóhann Hjálmarsson, ritari félagsins, er baðst eindregið und- an endurkosningu, og var Þ>ór- oddur Guðmundsson kosinn 5 hans stað; en Indriði G. Þor- steinsson var kjörinn meðstjórn- andi í staðinn fyrir Þórodd. I varastjórn voru endurkjörin Guðmundur G. Hagalín og Margrét Jónsdóttir. Helgi Sæm- undsson var endurkosinn full- trúi félagsins í stjórn Rithöf- undasjóðs Ríkisútvarpsins, Ing- ólfur Kristjánsson og Jakob Jónasson voru kosnir endurskoð- endur reikninga. Fyrir í stjórn Þjóðnýta Nýju Delhi, 13. maí, AP. STJÓRN Indiru Gandhi, for- sætisráðherra Indlands, sam- þýkkti í dag að taka í sínar hend ur yfirstjórn 42 erlendra og 64 indverskra tryggingafélaga í landinu. Var sagt, að þetta væri fyrsta skrefið til þess að þjóð- nýta tryggingafélögrn í landinu. Guðniiindur Daníelsson. félagsins voru Ármann Kr. Einarsson, féhirðir og Jón Björnsson, er sitja til næsta vors. Formaður flutti skýrslu um störf félagsins, og gjaldkeri las reikninga þess. Var við hvorugt nein athugasemd gerð. Siðan gerði Matthías Johannessen, formaður Rithöfundasambands Islands, rækilega grein fyrir störfum þess, er voru margþætt. Og taldi Matthías samningana við Ríkisútvarpið mikilvægasta af þeim. Átta rithöfundar gerðust með- limir. Heiðursfélagi F.I.R. var kjörinn í einu hljóði, eftir tillögu stjórnarinnar, danski rithöfund- urinn Poul P. M. Pedersen í virðingarskyni fyrir þýðingar ís- lenzkra ljóða á dönsku. Að loknum aðalfundarstörfum voru tekin fyrir önnur mál, sem fjölluðu aðallega um bókmenntir og félags- og hagsmunamál rit- höfunda. Eftirfarandi tillögur voru samþykktar: I. „Aðalfundur Félags ís- lenzkra rithöfunda, haldinn 10. maí 1970, þakkar menntamála- ráðherra fyrir að hafa komið til M R 1951 Munið fundinn í Bláa salnum að Hótel Sögu n.k. sunnudagskvöld kl. 20.30. Bekkjarráð. tnsPiLiri HIÍIIIIÍTIS Jesus Christ Superstar All Things Must Pass — George Harrison Aqualungs — Jethro Tull Pearl — Janis Joplin Bridge Over Troubled Water — Simon 8i Varfunkel If I Only Could Remeber My Name — David Crosby Emerson Lake and Palmer Deep Purple in Rock Hair — Ameríska útgáfan Tea for the Tilerman — Cat Stevens. FÁLKINN Hljómplötudeild Laugavegi 24, Suðurlandsbraut 8 móts við rithöfundasamtökin og ákveðið, að rithöfundur verði fenginn til fyrirlestrahalds við Háskóla íslands." II. „Aðalfundur Félags is- lenzkra rithöfunda, haldinn 10. maí, þakkar stjórn Rithöfunda sambandsins fyrir ötult starf i þágu islenzkra rithöfunda síðast- liðið ár, svo sem: 1. hagkvæma samninga við Ríkisútvarpið; 2. góðan árangur á vettvangi norrænnar þýðingamiðstöðv- ar; 3. farsæla lausn varðandi emb- bætti fyrirlesara við Háskóla íslands; 4. varðstöðu um réttlát og hag- kvæm höfundalög. III. „Aðalfundur Félags is- lenzkra rithöfunda lýsir yfir furðu sinni vegna fundarsam- þykktar í Rithöfundafélagi Is- lands, þar sem samþykkt var megn andúð á tveim rithöfund um, Jóhanni Hjálmarssyni og Indriða G. Þorsteinssyni, vegna skrifa þeirra um bókmennta- kennslu í Háskóla Islands og til- lögu Rithöfundaþings þar að lút andi. Telur félagið, að með þvi sé ráðizt á grundvöll frjálsrar sko.ðanamyndunar í landinu og leggur áherzlu á, að frelsi rit- höfunda til að segja skoðanir sínar óhindrað á opinberum vettvangi sé forsenda þess, að íslenzkir rithöfundar geti starf- að með eðlilegum hætti.“ (Frá Félagi ísl. rithöfunda) Könnun á dagvistarþörf HÓPUR kvenna í Kópavogi, sem starfar innan Rauðsokka- hreyfingarinnar, gekkst fyrir skoðanakönnun nú eftir áramót- in um þörf á dagvistunarstofn- unum fyrir börn í bænum. Könnun þessi var gerð með að- stoð Þorbjarnar Broddasonar félagsfræðings, og liggja niður- stöður nú fyrir. Mun hópurinn skýra frá þeim á opnum fundi í Félagsheimili Kópavogs, neðri sal, laugardaginn 5. maí næst- komandi kl. 4 e.h. Samkvæmt þessari könnun virðist þörfin á dagheimilum og leikskólum vera mjög mikil seg- ir í fréttatiikynningu starfshóps ins. Spurt var um útivinnu kvenna, og kemur þar meðal annars fram, hve margar konur vinna úti og hve margar hefðu hug á því, en komast ekki vegna barnanna. Einnig var spurt um menntun kvenna og nýtingu hennar í atvinnulífinu. Þá var spurt um hver áhrif börn á barnaskólaaldri hefðu á þátttöku kvenna í atvinnulíf- „Saltvik 71“ Trúbrot og fleiri standa fyrir hvítasunnuhátíð „SALTVÍK 71“ er hátíð fyrir ungt fólk, sem verður haldin í Saltvík á Kjalarnesi um hvíta- sunnuhelgina og frá því segir í fréttabréfi Æskulýðsráðs „Fréttir af æskulýðsstarfi". Það eru ungir hljómlistarmenn und- ir forystu hljómsveitarinnar Trúbrots, sem fyrir hátíðinni standa, en Æskulýðsráð Reykja- víkur leigir þessum aðilum Salt- vík og tekur einnig að sér fram- kvæmd ýmissa fyrirgreiðslu- þátta hátíðisdagana. Hátíðin hefst föstudaginn 28. maí kl. 20. í stórum dráttum verður dagskráin sett þannig saman, að á föstudagskvöldið verður dansleikur, á laugardag verður guðsþjónusta, sem hinar vinsælu hljómsveitir eiga hlut að, en eftir hádegi verða hljóm- leikar,- íþróttakeppni af léttara taginu og um kvöldið skemmti- atriði. Adfararnótt mánudags er dans leikur. Eftir hádegi á mánudag eru lokatónleikar hátíðarinnar og lýkur henni þá síðdegis. Diskótek verður í hlöðunni alla þá daga sem dansað er. í „Saltvík 71“ koma m.a. fram þessir hópar: Trúbrot, Ævintýri, Náttúra, Mánar, Trix, Þrjú á palli Júbó, Ábót, Rooftops, Tilvera, Helgi og Kristín, Haukar, Ingvi Steinn og Siggi Garðars. Unga fólkið, sem stendur að „Saltvík 71“ hefur hug á að sanna að ungt fólk á íslandi sé þesa megnugt að safnast saman í fjöl mennan hóp og skemmta sér án þess að glata sjálfstjórn sinni. Æskan í dag vill frið og sátt innbyrðis og við alla menn og „Saltvík 71“ mun sýna og þess- ar hugsjónir er hægt og hæfi- legt að sýna í verki um hvíta- sunnuna í stað óreglu og ófrið- ar við náungann. „Saltvík 71“ er miðuð við þarf ir ungs fólks, 14 ára og eldri. Gestir hátíðarinnar koma með tjöld og viðleguútbúnað, en tjaldborgir munu rísa á túnum Saltvíkur. Veitingar verða seld- ar á staðnum, en þrátt fyrir það 'eru gestir hvattir til að taka með sér matföng og njóta ánægj unnar af eigin búskap. Sæta- ferðir verða frá B.S.f. frá kl. 15 á föstudag. Ferðin hvora leið kostar 60 kr. en aðgöngumiði að hátíðinni 350 kr. Framkvæmda- stjórn hefur leitað fyrirgreiðslu og samvinnu við ýmsa aðila, svo sem sýslumanninn í Gullbringu- og Kjósarsýslu, lögreglustjórann í Reykj avík, æskulýðsf ulltrúa þjóðkirkjunnar, Samband bind- indisfélaga í skólum, skáta og ýmis skólafélög og hafa undir- tektir þessara aðila verið góðar. Framkvæmdastjóri „Saltvíkur 71“ er Hinrik Bjarnason. Skrif- stofa hans er að Fríkirkjuvegi 11. NYR VEGUR YFIR F J ARÐ ARHEIÐI Verkfræðingar skoða vegarstæðið Undanfarin ár hafa farið fram snjómælingar á Fjarðarheiði til að kanna snjóalög með hliðisjón af vegatiagningu. Á miðri Fjarð arheiði kom bæjarráð Seyðis- fjarðar til mó’ts við verkfræðing- ana og verkstjórtuia, til að fá að fylgjasit með athugunum þeirra og ók því Þorbjörn Arnoddsson á snjóbíl sinum, en hann er alllra manna kunnugasitur snjóalögum á Fjarðarheiði og hefur ekið snjó bí'l yfir hana frá því þeir byrj- uðu að ganga miffi SeyðisÆjarð- ar og Héraðs. Er það tiil mikils hagræðis fyrir vegagerðina að fá tillögur staðkunnra manna í svona m%lum, því frátt fyrir meei ingar og verkfræðilega útreikn- iniga miun áraiöng reynsia hald- bezt. Var ekið fram og aftur um heiðina og athuganir gerðar, en að þeim loknum bauð bæjar- stjórinn á Seyðisfirði öffilium til kaff idrykkj u í félagsheimilinu Herðubreið. Ekki voru að svo stöddu tekn- ar neinar ákvarðanir um það hvar vegurinn yrði lagður, en rannsókrJr þær sem gerðar voru munu fljótlega leiða það í ljós. Egilsstöðum, 13. maí. í AUSTURLANDSÁÆTLUN í vegamálum, sem framkvæmdir hefjast við í sumar, er áætlað að endurbyggja marga elztu vegina og byggja suma jafnvel alveg að nýju. Fjarðarheiði hefur orðið Seyðfirðiingúm og Vegagerðinni bæði erfið og dýr hvað snertir snjóýtur. En hún er mesta snjó- kista og ófær bílum nær allan veturimn. Hafin er bygging nýs vegar um Stafiin/a upp úr Seyðkfirði og næsta sumar á að byggja veg yfir Fjarðarheiði. Er mikið hags- munamál að sá vegur verði sem snjóléttastur. Komu þeir því austur Snæbjöm Jónasson, yfir- verkfræðingur Vegagerðarinnar, Jón Birgir Jónssoan, deildarverk- fræðingur, og Eyrnundur Run- ólfsson, verkfræðingur, sem hef- ur umsjón með öllum vegum á Austurlandi. Fóru þeir á anjó- bíl upp á Fjarðarheiði ásamt Agli Jónissyná, yfirverkstjóra, og Helga Gíslasyni, vegaverkstjóra, til að kanina hvort betra mundi að endurbæta gamla vegiran með hækikun og smábreytingum eða leggja hanin alveg að nýju á snjó léttari stað. liiil Vegagerðarmenn og bæjarráðsnienn atliuga vegarstæðið á Fjarðarheiði. m

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.