Morgunblaðið - 18.05.1971, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1971
Tveir með
11 rétta
TVEIR sfðlar með II rétta komu
fram er starfsmenn Getrauna
fóru yfir seðla vikimnar. Má það
teljast hin ág'ætasta útkoma, þar
sem úrslit nokkurra leikja á get-
raunaseðlinum komu mjög á
óvænt, eins og t- d. sigur Þróttar
yfir Víkingum og sigur AB yfir
Köge. Þeir heppnu fá um 87
þúsund krónur hvor, en báðir
þessir miðar komu úr Reykjavík
og voru seldir af félögum í Val.
I»á komu fram 16 seðlar með 10
rétta, þannig að í annan vinning
kemur um 4500 kr. í hiut. Pott-
urinn hjá Getraunum hefur
minnkað mikið eftir að enska
knattspyrnunni lauk, en var þó
um 250 þúsimd krónur í síðustu
vikii.
Nú eru aðeins tveir getrauna-
seðlar eftir, unz sumarfríið byrj-
ar hjá Getraunum. Á næsta seðli
verður m. a. fyrsta umferð í 1.
deildar keppninni islenzku —
f jórir leikir.
LeiJcir 15. og 16. wiaí 1971 i X 2 1
írland — England1) z 0 - i
Wales — Skotland1) X o - o
Ármann — Valur2) z 0 •i 3
Víkíngur — I>róttur2) z / - 3
Hvldovre — Érem*) i / - 0
Vejle — K.B .*) i ¥ • z
Bronshöj — Álborg3) / ¥ - z
Bandera B-19098) / 3 - 1
KÓge — A.B.») z / - 3
Nœstved — Silkeborg 4) X o - 0
Horsens — Slagelse4) X 1 *• 1
Fuglebakken — Hoibek 4) i 3 - 1
Baráttugleði IÞróttar-
anna kom á óvart
- er þeir sigruðu Víking 3-1
í heldur lélegum leik
MARGUR hafði haldið að von-
Iítið væri að Þróttur hiyti stig
í Reykjavíkurmótinu að þessu
sinni, og miðaði þá við frammi
stöðU liðsins í fyrstu leikjum
þess, sem töpuðust með allt upp
í sjö marka mun, og einnig það
að leikmenn liðsins virtust flest
ir vera í lítilli þjálfun og leik
gleði þeirra þar af leiðandi
stundum ekki upp á marga
fiska. Allt þetta hafa Víkingar
Dauft fimmtudagsmót
- margir beztu íþróttamennirnir
fjarverandi
- Guðmundur Hermannsson vann
bezta afrekið.
Annað fimmtudagsmót
F.Í.R.R. fór fram á Melavellin-
um s.l. fimmtudag. Mótið var í
daufara lagi og nokkrir beztu
frjálsíþróttamennirnir létu sig
vanta til þátttöku. Fyrir því
munu hafa verið ýmsar orsak-
ir, m.ar. prófannir.
Athyglisverðasti áranguri'nn
sem náðist í þessu móti var kúlu
varp Guðmundar Hermannsson-
ar KR, en hann kastaði 17,05
metra og átti ógilt kast sem var
um 17.50 metrar. Sýnir þetta
að Guðmundur verður í góðu
formi í sumar, og allar likur á
því að hann kasti vel yfir 18
metra, fjórða árið í röð. Athygli
vafeti einnig unigur sonur Guð-
mundar, Grétar, sem varð ann-
ar í kúluvarpskeppninni og kast
Boltinn í netinu. Þróttarar hafa skorað sitt annað mark í leiknum við Víkinga, en í þessum leik kræktu þeir í sín fyrstu stig
í Reykjavíkurmótinu. Sigfús Guðmundsson, Víkingsmarkvörður, er að vonum niðurbrotinn, svo og Páll Björgvinsson, en úti á
veilinum er Helgi Þorvaldsson byrjaður að fagna markinu. —
ins, en þar var Þró.ttarvörnin
gránilega þéttust fyrir, og gaf
engin grið. Auðveldaði þesai
sóknaraðferð Víkinganna tengi
liðum Þróttar að byggja upp
sóknir og var Halldór Braga-
son, bezti leikmaður Þróttar, þar
oft furðulega drjúgur.
Fyrsta mark leiksins kom á
12. mínútu, en þá fengu Þróttar
ar aukaspyrnu rétt fyrir utan
vítateig Víkings. Vörn Víkinga
var ákaflega illa á verði og bolt
inn var sendur til Halldóra
Bragasonar sem var óvaldaður
við markteiginn og átti auð-
velt með að senda hann fram
hjá Sigfúsi Guðmundssyni í Vík
ingsmarkinu. Á 30. mín. tókst
svo Þrótti að auka forskot sitt
í tvö mörk og var þá Hilmar
Sverrisson að verki, eftir að Sig
fúsi höfðu orðið á mikil mistök
í markinu., Var staðan þannig í
hálfleik.
Fyrri hluti síðari hálfleiks var
ákaflega þófkenndur, og leiðin
legur. Víkingar sóttu meira, 'en
tókst aldrei að skapa sér veru-
ísga góð tækifæri. Gætti stund
um meira kapps en forsjár, og
virtist það vera trú Vikinganna
allt þar til að Þróttur skoraði
sitt þriðja mark, að þeir gætu
ekki tapað leiknum.
Skömmu eftir að Þróttur var
búinn að breyta stöðunni í 3:0
skoraði Jóhannes Tryggvason
mark Víkings með spyrnu af
mjög löngu færi, sem Þróttar-
markvörðurinn misreiknaði illa
og missti yfir sig. Svolítill fjör
kippur hljóp í leikinn eftir þetta
mark, en síðan lognaðist allt út
af í sama þófið og áður, og áhorf
endur og leikmenn biðu þes3
eins að dómarinn gæfi merki
um leikslok.
Sem fyrr segir var Halldór
Bragason bezti maður Þróttarliða
ins, en í heild stóð liðið sig til
mikilla muna betur en í fyrri
leikjum sínum í mótinu, og bar
áttuandinn var að þessu sinni í
lagi. Víkingar voru hins vegar
slappari en oftast áður, og er
tæpast hægt að nefna raeinn leik
mann sem stóð upp úr meðal-
mennskunni. — stjl.
aði 12.65 metra. Þar er mikið
efni á ferðinni.
1 100 metra hlaupinu signaði
Valbjörn Þorláksson, Á, á 11,7
sek., en hlaupið var i alknikl-
um mótvindi. Þótt Valbjörn sé
nú kominn vel á fertugsaldur-
inn standast ungu menraimir
honum ekki snúning enn. Virð-
ist Valbjörn nú í mun betri æf-
ingu en t.d. í fyrravor, bæði
ákveðnari og snarpari. Ekki er
ólíklegt að hann ná.i góðum af-
rekum í tugþraut í sumar.
Helztu úrslit í mótinu urðu
annars þessi:
100 METRA HLAUP
SEK.
1. Vabljörn Þorláksson, Á 11,7
2. Lárus Guðmundsson, USAH
Þessi mynd var tekin úr 400 metra hlaupinu sem fram fór í hálf
leik landsleiksins. Sigurvegarinn Sigurður Jónsson, er að
koma í mark, en á myndinni má einnig sjá Vilmund Vilhjálms-
son, KR, Ágúst Ásgeirsson, iR Borgþór Magnússon KR, Hall-
dór Guðbjörnsson KR og Trausta Sveinbjörnsson, UMSK. All-
ir náðu hlauparamir ágætum ti “
3. Marinó Einarsson, KR 12,0
800 METRA HLAUP
MÍN
1. Gunnar Snorrason, UMSK
2:09,1
3. Kristján Magnússon, Á 2:12,3
3. Bjarki Bjamas., UMSK 2:13,9
KÚLUVARP
METR.
1. Guðm. Hermannss. KR 17,05
2. Grétar Guðmundss KR 12,65
3. Vaibjörn Þorláksson Á 12,59
SPJÓTKAST
METR.
1. Elías Sveinsson, ÍR 51,16
2. Sfeúli Arnarson, ÍR 50,26
3. Stefán Jóhannsson, Á 48,82
HÁSTÖKK
METR.
1. Hafsteinn Jóhannesson, UBK
1,75
2. Bjarfei Bjarnas., UMSK 1,70
3. Stefán Jóhannsson, Á 1,65
100 METRA HLAUP KVENNA
sek.
1. Lilja Gunnarsdóttir, ÍR 15,3
2. Katrín ísleifsdóttir, iR 16,2
100 METRA HLAUP TELPNA
SEK.
1. Anna Haraldsdóttir, ÍR 16,6
2. Helga S. Alfreðsd. Á 16,9
800 METRA HLAUP
KVENNA
MÍN
1. Ragnhildur Pálsd, UMSK
2:41,2
2. Lilja Gunnarsdóttir, ÍR 2:55,9
3. Anna Haraldsdóttir, lR 2:57,0
vafalaust haft í huga er þeir
hlupu inn á völlinn til keppni
við Þrótt á sunnudagskvöldið.
En reynslan hefur oftsinnis sann
að að fátt er verra veganesti í
íþróttakappleik en að vera of
viss um sigurinn, Og á þessu
brenndu Víkingarnir sig. Þrótt
ur hafði frumkvæðið í leiknum
frá upphafi til enda og sigraði
mjög svo verðskuldað með þrem
ur mörkum gegn einu. Áttu þeir
sinn langbezta leik í mótinu til
þessa, og engin skyldi vanmeta
Þróttarana eftir þessa frammi-
stöðu. Þeir koma til með að vera
í baráttunni um efsta sætið í II
deild í sumar, ef þeim tekst að
viðhalda þeim neista sem tendr
aðist hjá þeim í þessum leik.
Engin ástæða er til þess að
hrópa húrra fyrir knattspyrn-
unni, sem liðin buðu upp á. Hún
var oftast á núllpunkti, en ein
staka sinnum brá þó fyrir
skemmtilegum tilþrifum, eink-
um hjá Þrótti og þá sérstaklega
■er þeir skoruðu sitt þriðja mark.
Það gerði miðherji liðsins, Hjört
ur Hansson, sem náði boltanum
á eigin vallarhelmingi, hljóp síð
an Pál Björgvinsson Víking af
sér og brunaði inn að vítateigi
Víkinga, og skaut þaðan sann
kölluðu hörkuskoti. Lenti bolt-
inn í Diðriki Ólafssyni í Víkings
markinu og þaðan út til Hjartar
aftur sem átti auðvelt með að
renna boltanum í netið. Skeði
þetta í síðari hluta síainni hálf-
leiks og mátti segja að með
marki þessu væri Þróttarsigur-
innsiglaður, þar sem þriggja
marka forskot var fengið. Síð-
asta orðið í leiknum áttu Vík
ingar hins vegar, og var það
hálfgerð gjöf frá markverði
Þróttar.
í leiknum gerðu Víkingar
þau regin mistök að reyna stöð
ugt að sækja upp miðju vallar
Breytt leikaðferð?
Vormót ÍR
VORMÓT ÍR fer fram á Mela-
vellinum n.k. fimmtudag og
hefst kl. 14,30, Keppnisgreinar
verða 100 metra hlaup, 800
metra hlaup og 3000 metra
hlaup, 100 metra hlaup pilta,
800 metra hlaup sveina, 200
metra hlaup kvenna, 1000 metra
hlaup kvenna og 3x800 metra
boðhlaup kvenna. Langstökk og
hástökk karla, langstökk kvenna
og kúluvarp, kringlukast, spjót
kast og sleggjukast karla.
Þátttökutilkynningar skulu
berast Guðmundi Þórarinssyni
fyrir hádegi n.k. miðvikudag.
— Við sigruðum Norðmenn
í landsleik á okkar heima-
velii í fyrra, og höfum fullan
hug á að því að sigra þá nú
á útivelli, sagði Hafsteinn
Guðmundsson, landsliðsein-
valdur, er hann tilkynnti val
Noregsfaranna í gær. Að
spurður um hvort íslenzka
Iandsliðið myndi leika svipað
og á móti Frökkum í leikn-
um í Noregi, þ.e. vamar-
„taktik“, sagði Hafsteinn:
— Við munum leika til sig
urs í þessum leik, og það
gefur auga leið, að við verð-
um að spila framar en síðast.
Af þessum orðum landsliðs
einvaldsins má marka, að ætl
unin sé að leggja meira upp
úr sóknarleiknum, heldur en
gert var í leiknum við
Frakka, og má því búast við
skemmtikgri leik í Noregi
en var á Laugardalsvellinum
sl. miðvikudag. Segja má, að
það sé skynsamlegt að reyna
sóknarleik á móti Norðmönn-
um, og þreifa þannig fyrir
sér, hverjir séu möguleikarn
ir í síðari leiknum við
Frakka, en sá leikur er liður
í undankeppni Olympíuleik-
anna. Nægir íslandi jafntafli
í þeim leik til að komast
áfram, þ.e.as. ef mörk verða
gerð í leiknum. Verði hins
vegar markalaust jafntefli
mun hlutkesti ráða hvort lið
anna kemst áfram.