Morgunblaðið - 18.05.1971, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.05.1971, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐEÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl 1971 Kringlan er komin yfir 70 metra Glæsilegt heimsmet Jay Silvester BANDARÍKJAMAÐURINN Jay Silvester setti nýtt glæsilegrt heimsmet í kringlukasti á móti sem fram fór í Lancaster í Kali- — í»rjú mörk Framh. af bls. 1 Sá fyrmefndi var sívinnandi á miðjixnni, og gaf oft nákvæmar og ágætar sendingar á fram- herjana. In-gi Björn var mjög vakandi fyrir þeim möguleikum sem buðust, og skapaði jafnan hættu, þegar hann var með bolt- arm. Bezti maður Ármanns í leiknum var Kristinn miðvörður, erí horvum tókst algjörlega að halda Hermarmi Gunnarssyni niðri. Þá átti Jón Hermannsson emnig nokkuð góðan leik, en Ármarmsliðið er annars heldur jatfnt og fáir einstaklingar sem vekja eftirtekt. fomíu. Kastaði hann 70,38 metra og er þannig fyrsti maðurinn sem kastar kringlnnni yfir 70 metra. Bætti hann sitt eldra heimsmet um meira er lítið, þar sem það var 68,71 metri. Silvest- er þykir koma á óvænt í vor, þar sem lítið var talað um æf- ingar hans i vetnr. Hann hefur i áraraðir verið bezti kringhi- kastari heimsins, en hefur hins vegar ekld unnið gullverðlaun á Ólympínleikum, og þykir yfir- leitt heldur taugaóstyrkur í keppnum á stórmótum. Sem kunnugt er hafði sænski kringlukastarinn Ricky Bmch verið mjög að nálgast heimsmet Silvesters, og hafði hann gert sér vonir um að það mætti tak- ast í sumar. En nú verður hann heldur hetur að taka á honum stóra sínum, ef það á að heppn- ast. Þessi mynd var tekin af Jay Siivester í keppni á Ólympíuleik- unum í Mexíkó 1968, en þar tapaði hann óvænt fyrir landa sín- um A1 Oerter. Staðan í Reykjavíkur- mótinu ST AÐ AN í Reykj avíkurmótinu í knatt-spyrnu fyrir leik KR og Ármanns í gærkvöldi var þessi: Fram 3 3 0 0 8:0 6 Valur 4 3 0 1 10:3 6 KR 4 2 0 2 12:7 4 Víkingur 5 2 0 3 8:7 4 Þróttur 4 1 0 3 4:15 2 Ármann 4 1 0 3 3:13 2 Mörkin hafa skorað: Ingi Björn Albertsson, Val 4 Kristinn Jörundsson, Fram 4 Atli Héðinsson, KR 3 Baldvin Baldvinsson KR 3 Guðmundur Einarsson, KR 3 Hafliði Pétursson, Víkingi 3 Sigurður Leifsson, Ármanni 3 Ágúst Guðmundsson, Fram 2 Eiríkur Þorstainsson, Víkingi 2 Guðgeir Leifsson, Víkingi 2 Hermann Gunnarsson, Val 2 Sigurþór Jakoþsson, KR 2 Alexander Jóhannesson, Val 1 Árni Stþinsson, KR 1 Arnar Guðlaugsson, Fram 1 Bergsveinn Alfonsson, Val 1 Hjörtur Harrsson, Þrótti 1 Halldór Bragason, Þrótti 1 Hilmar Sverrisson, Þrótti 1 Jóhannes Tryggvason, Víkingi 1 Marteinn Geirsson, Fram 1 I Þórir Jónsson, Val 1 íslandsmeistarinn varð af 1. verðlaunum — í fyrstu „opnu“ golfkeppni sumarsins FYRSTA „opna golfmót sum arsins var háð á golfvelli Golfklúbbs Suðumesja á Hólmsvelli í Leiru á sunnu- daginn. Það voru Dunlop-fyrir tækið og forsvarsmenn þess hér, Austurbakki h.f., sem að mótinu stóðu ásamt G.S. — Keppt var um tvær veglegar styttur, aðra í flokki án for- gjafar, hina í flokki með for gjöf. Auk þess gaf Dunlop- fyrirtækið þrenn eignarverð- laun í hverjum fiokki. Verð- ur þetta „opna“ Dunlop-mót fastur liður í golfíþróttinni í framtíðinni. Yfir 90 manns tóku þátt í keppninni, sem varð vegna fjölda þátttakenda einskonar maraþonkeppni og stóð í um 11 klukkustundir. Margt skemmtilegt skeði í keppninni og sýndu ýmsir mjög góð tilþrif svo snemma sumars og við svo bágar að- stæður sem ísl. golfvellir ir geta veitt svo snemma árs, jafnvel þótt þeir séu vel hirt ir og gróður þeirra sé 2—3 vikum fyrr á ferð nú «n und- anfarin ár. Keppnin varð því hörð og skemmtileg. í forgjafarkeppn inni náði Henning Bjamason Golfkl. Keili langbeztum árangri, fór 18 holur í 83 höggum (þar af síðari hring inn í 38 eða 3 yfir par) en Henning hefur einnig háa for gjöf (23 högg) vegna þess að hann hefur ekki áður skarað fram úr og kom því út með Sigurlaun Dunlop. Annars vegar farandstyttur og hins vegar eignarverðlaun nú. 60 högg nettó. Hefur hann sýnt miklar framfarir. Úrslit í keppni með forgjöf urðu: 1. Henning Bjarnason GK 83 4-23: 60 högg 2. Gunnar Jónsson GS 954-30: 60 högg 3-5. Burt Hanson, GK 67 högg 3-5. Sveinn Gíslason GR 67 högg 3-5. Júlíus Júlíusson, GK 67 högg í keppni án forgjafar var keppnin tvisýnni, og það svo að leika þurfti aukakeppni í lokin til að útkljá hvar verð laun skyldu hafna. Eftir fyrri hring (9 holur) var Þorbjöm Kjærbo í farar broddi með 36 högg. Höfðu hann og Jóhann Benedikts- son GS, sem voru saman í riðli, fylgzt alveg að, en Þor- björn fór 9. holu á höggi und ir pari, en Jóhann á höggi yf ir pari og var því með 38 högg eftir hringinn. Hólmgeir Guðmundsson GS hafði líka komið á óvart og var með 37 högg eftir 9 holur og Júlíus Júlíusson Keili með 38 högg, en síðan nokkrir með 39 högg. I síðari hring jókst harkan, einkum milli Þorbjörns Kjær bo og Jóhanns Ben. Á 18. holu náði Jóhann að jafna höggafjölda við Kjærbo og má segja það einkennilega til viljun að úrslitin skyldu ráð- ast á þeirri braut, þeirri sömu og Þorbjörn hafði náð forskoti á í fyrri hring. Urðu þeir jafnir með 75 högg á 18 holur (5 yfir par) og háðu aukakeppni. Úrslit þar réðust á 1. braut í 3. hring. Þar þurfti Jóhann höggi minna en Kjærbo — og verðlaunin voru Jóhanns. Úrslit í keppni án forgjaf- ar: 1. Jóhann Benediktsson GS 38 37 75 2. Þorbjörn Kjærbo GS 36 39 75 3. Júlíus Júlíusson GK 38 38 76 Jóhann Benediktsson, kúlan hans og holan 4. Hólmgeir Guðmunds. GS 37 41 78 5. Pétur Antonsson GS 39 40 79 6. Högni Gunnlaugsson GS 39 41 80 7-8. Jóhann Eyjólfsson GR 39 42 81 7-8. Atli Aðalsteinsson GV 42 39 81 Það sem ég sá af keppn- inni fannst mér Þorbjörn Kjærbo spila af mestu ör- yggi. Hann var aldrei sérlega heppinn á fyrri hring en var þó með 36 högg (högg yfir par). Þá var Jóhann bæði heppinn og óheppinn. T.d. fór 10—12 m uppáskot hans á 6. braut í holu og byrjunar- högg hans á 7. braut lenti niður í stórgrýttri fjöm, en af einskærri tilviljun hopp- aði kúlan af steini og Vel upp á braut. Síðan átti Jóhann eft ir að glíma við kúlu í sand- gryfju o.fl. en gæfan var með honum þennan sunnu- dag. Sérstaka athygli vöktu upp hafsskot (drive) Björgvins Hólms. Þau voru stórkostleg sum hver en finlegu höggin hans voru ekki eins giæsi- leg. Það kom áþreifanlega í ljós að ótækt er að boða alla kbppendur á sama tíma og láta menn bíða klukkustund um saman í byrjun og síðar milli hringa. Það verður að skipta keppendum í hópa sem síðan „ljúka sér af“ til- tölulega biðlítið. Einnig þarf gaumgæfilega að athuga forgjöf manna og eins hvort „opið mót“ á að vera öllum opið eða aðeins kylfingum með forgjöf upp að einhverju ákveðnu marki. í Hafnarfirði mun nú bezti golfvöllur hér syðra og sum armglur teknar upp. Völlur- inn í Leiru er mjög vel hirt ur og auðsær vilji til að gera vel, en ber enn merki klaka og kulda ísl. veðráttu. Einnig gerðu traktorshjólför víða um völlinn (að vísu utan brauta) ýmsum grátt í geði. Á næstunni munum við fylgjast með kylfingum og golfvöllum hér í sérstökum þætti. — A. St.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.