Morgunblaðið - 26.09.1971, Blaðsíða 1
32 SIÐUR OG LESBOK
Þessa mynd tok Ijósmyndari Morgnnblaffsins, Kr. Ben., veslur á Ægisssíffu fyrir skömmu af
gömlum fiskhjalli.
Kínverjar:
Vara sendiráð
sín við stríði
Washington, 25. sept. NTB-AP
BANDARÍSKA útvarps- og sjón-
varpsstöðin CBS skýrði frá því í
dag að bandaríska leyniþjónust-
an hefði náð í leynileg skilaboð
ffrá Kína til allra skrifstofa og
sendiráða landsins eriendis, þar
sem starfsmönnum vaeri sagt að
vera viðbúnir stríði. Ekki hefur
verið útskýrt um hvers konar
stríð verður að ræða, en frétta-
ekýrendur hafa tekið eftir mikl-
um óróleika í Moskvu, fréttir
nm striðsaðvörunina hafa einn-
Sg borizt frá Japan.
festar fréttir herma að mikið iið
sé að safnast saman á landa-
mærunum að Sovétríkjunum.
Sérfræðingar í málefnum Kína,
telja þó liklegra að eiinhvers
konar vaidabarátta fari fram í
Kína, en að sé að draga til tíð-
inda með þeim og Sovétmönn-
um.
Skiptar skoðanir eru um hvort
Mao formaður sé lifs eða liðinn.
Opinberar kínverskar heimildir
segja hann við beztu heilsu, og
hafa sagt að skýring verði gef-
in á því innan skamms hvers
vegna hátíðahöldum á þjóðhátið
ardaginn 1. október, hafi verið
frestað.
Brezhnev fór
óvænt til
U ngverj alands
Belgrad, 25. septemiber. AP.
LEONID Brezhnev, fór óvænt
tii Cngverjalands í dag þegar
heimsókn hans til Júgóslavíu
Iauk. Óstaðfestar fréttir hermdu
að hann myndi einnig fara til
Búlgaríu. Upphaflega var áætl-
unin á þann veg að Brezhnev
sneri heim til Sovétríkjanna að
loknum viðræðum við Tító, en
talið er að hann hafi á síðustu
stirndu ák\Teðið þessa ferð, til að
útskýra fyrir þessum dyggustu
vinuni Sovétríkjanna, hvers
\egna hann heimsækti Júgó-
818140, sjáifstæðasta kommún-
istaríki í Evrópu.
Við brottförina frá Belgrad,
sögðu bæði Brezhnev og Titó, að
viðræður þeirra hefðu borið góð-
an árangur, og yrðu til þe.ss að
treysta vináttu og samsikipti ríkj
anna. Júgóslavia hefur löngum
verið Sovétrikjunum þymir í
augum, því að Titó hef-ur kosið
að fara sínar eigin leiðir og neitað
að láta Sovétríkin stjóma stefnu
sínni, hvort sem er í oi-tan- eða
innanrikismálum.
Tító hefur verið svo ákveðinn,
og hann nýtur svo mikils stuðn-
ings meðal landsmanna, að þýð-
ingarlaust hefur verið fyrir Sov-
étríkin að reyna að þvinga hann
til hlýðni, og þvi tók Brezhnev
þann kostinn að reyna að frið-
mælast.
Bíræfixm þjófur
BÍKÆFINN þjófur með ta«g
arnar í góðu lagi stal mál-
verki úr Buckinghamhöll í
gær og komst undan fyrir
framan nefið á lögregluþjón-
um. I>annig var mál með vextl
að verið var að opna málverka
sýningu í höllinni á málverk-
um í eigu drottningar og var
fjöldi manns við opnunina.
Lögreglan segir, að þjótfur-
inn hafi gert sér liítið fyrir og
skrúfað málver'kið úr ramman
um fyrir augunum á gestum
og lögregluþjónum, sem á
verði voru. Málverkið er eítir
hollenzka málarann Saftleven,
sem uppi var á 17. öld. Það er
metið á um 430 þúsund Isl.
kr. og var ekki vátryggt. Lög
reglan leitar nú þjófsins.
Krag:
Vill ekki 4
flokka stiórn
Kaupmannahöfn, 25. sept.
NTB.
JAFNAÐARMENN hafa hafnað
stjórnarsamstarfi við borgara-
flokkana á þeim forsendum að
kosningarnar á þriðjudaginn hafi
snúizt um önnur vandamál en
EBE, sem slík ríkisstjórn myndi
að mestu fjalla um. Hilmar
Baunsgaard forsætisráðherra
átti fund með leiðtogum jafnað-
armaima í morgun, sem stóð að-
eins í 15 mínútur.
Jens Otto Krag sagði við rétta-
menn að fundinum loknum að
forsætisráðherra hefði beðið um
fundíinn, en ljóst hefði verið fyrir
að ekki væri grundvöllur fyrir
slíku st j órn a rsams t a rf i. Krag
sagði að forsætisráðherra hefði
spurt hvort það s'kipti nokkru
máli hver yrði forsætisráðherra
í sliikri rikisstjóm og þeir hefðu
svarað þvi neitandi.
Baunsgaard hélt i morgun
fund með stjómarflokkunum og
skýrði frá afstöðu jafnaðar-
manna. Ekki er vitað hvenær
hann gengur aftur á fund kon-
ungs, en gert er róð fyrir að það
verði nú eftir heligina.
MIG-23
í Egypta
landi
Washington, 25. sept. AP.
B'ANDARÍKJASTJÓRN hef-
ur nú staðfest að rússneskix
flugmenn fljúgi orrustuþot-
um af gerðinni MIG-23, í Eg-
yptalandi. Þessi tegund er
’ nýjasta og fullkomnasta
orruistuþota í vopnasafni Sov-
étrikjanna og talin bezta ná-
vigisvél í heimi. Bandarískir
hernaðarsérfræðingar telja þó
að ef til bardaga kæmi yrðu
þær að láta í minni pokann
fyrir Phantom-vélum ísra-
elska flughersins, þar sem
ísraelsku flugmennirnir séu
mun hæfari.
William Rogers til íslands?
Tass, fréttastofan, sagði t.d. í
dag að kínverska stjórnin ætti
í miklum efnahags- og stjórn-
málavandræðum, og eins og
venjulega reyndi hún að leiða
hug fólksins frá þvi með haturs-
áróðri gegn Sovétríkjunum.
Það hefur nú fengizt staðfest
að öll leyfi kínverskra hermanna
hafa verið aíturköiluð, og óstað-
Einar Agústsson bauð Rogers
er þeir ræddust við í New York
í EINKASKEYTI lil Mbl. frá
AP í gær sagði, að Einar
Agústsson, utanríkisráðherra,
og William B. Rogers, utan-
ríkisráðherra Bandarikjanna,
hefðu átt fund saman í gær,
þar sem Einar Ágústsson
hefði skýrt Rogers frá því,
að íslenzka ríkisstjórnin væri
enn að kanna málavexti í
samhandi við varnarliðið í
Keflavík og niyndi ekki hafa
samband við Bandaríkja-
stjórn um málið fyrr en upp
úr janúarmánuði nk.
1 skeytinu segir að bandarísku
heimildirnar fyrir fréttinni hafi
látið að því liggja að sennilegt
Væri að nýja íslenzka ríkisstjórn 1
in myndi breyta fyrri ákvörðun
sinni um að herinn í Keflavík
yrði á brott innan 4 ára. Þá
sagði einnig í skeytinu að Einar
Ágústsson hefði boðið Rogers að
heimsækja ísland og að Rogers
hefði tekið vel í það, hugsanlega
í sambandi við einhvern NATO
fund í Evrópu.
Framhald á bls. 31.