Morgunblaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.09.1971, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1971 heimpka að fara að prúðbúa sig, áður en ég fœri til Melchiors, — þá kynni hann að hækka verðið — en ég var ákveðin i að láta hann ekki líta niður á mig, og ég yrði öruggari ef ég liti vel út. Venjulega hefði mér þótt gaman að því, en nú jók það mér bara hörku og ein- beittni. Meðan 1-am var að elta einhvern umbúðapappír um gólf ið klæddi ég mig í það bezta, sem Hue hafði gefið mér, og endaði á skrítnum hatti og loð- kápu. Þegar kisa sá mig taka upp hanzkana mína og veskið tók hún sér sína venjulegu stöðu við dyrnar, reiðubúin til að hlaupa út á ganginn og fara á eitthvert flakk. Enn hafði hún aldrei kom izt framhjá mér, en alltaf reyndi hún það. Meðan ég var að bregða fyrir hana fæti og snúa hurðarlásnum, tók ég mig allt í einu á, gekk aftur að skrif borðinu og náði í byssuna mína Vitanlega ætlaði ég ekki að nota hana, eða hleypa af henni, en það gat oiðið gagnlegt að veifa henni framan í Melchior, ef hann vildi ekki taka sönsum. Ég sá hann alveg í huga mínum, lafhræddan, rétta fram bréfið og sjálfa mig taka við því með hendinni, sem byssan var ekki í. Hvernig átti ég að vita, að með þessu væri ég að leggja mig í ennþá meiri hættu? Melchior átti heima í gömlu múrsteinshúsi við eina af gömlu stuttu götunum í Listamanna- hverfinu, þar sem annað hvert hús er ítölsk matsala. Það var næstum komið að ljósatíma, þennan þokudrungna dag, þegar ég kom að húsinu, og ég minnt- ist þess með viðbjóði, að mér hafði einu sinni fundizt þessi staður sá rómantískasti í heimi, og hafði meira að segja ort kvæði um hann, sem end- aði á „. . . og þig!“ Ja, svei! Útidyrnar voru opnar og ég gekk inn, án þess að hringja. Þarna var sami brúni vaxdúk- urinn í forstofunni og sama kalklyktin út frá lekri vatns- pípu í veggnum. Forstofan þefj aði af gömlum rykugum gólf- teppum. Ég veit ekki, hvers vegna ýmiss konar þefur getur fengið menn, öðru fremur til að minnast fortíðarinnar, en rétt sem snöggvast fylltist ég viðbjóði og varð eins og hálf- ringluð, og ég efaðist sem snöggvast um, að lappirnar á mér mundu geta borið mig upp einn stiga að íbúð Melchiors. En það gerðu þær nú samt, og ég stóð þarna við dyrnar og sagði við sjálfa mig, að þetta mundi nú verða afstaðið, innan stundar. — Ég fengi bréfið mitt og Hue mundi aldrei vita neitt af neinu, og ég þyrfti aldrei að hugsa um Melchior framar. Um leið og ég lyfti hendi til þess að berja að dyrum, heyrði ég mannamál inni fyrir og sá, að hurðin var ekki alveg aft- ur. Ég stóð kyrr og hlustaði: ......ég hef ekki til einskis þekkt þig öll þessi ár,“ öskraði karlmannsrödd. ,,Þú mundir piata hana ömmu þína. En bara ekki mig, svei því þá. Ég skal kæra þig fyrir yfirvöldunum." Nú var ég farin að leggja eyr að að rifunni. Melchior svaraði, kæruley'sis- lega og óðamála, eins og ég kannaðist svo vel við. — Mér þykir leitt, að þú skul ir snúast svona við þessu, Leon- ard. Ég ætla ekki að eyða tima i að útskýra fyrir þér, að ég var jafnilla staddur og þið hin- ir. En ég mundi i þínum sporum ekki fara að kæra það. Þú kann ast við þetta gamla máltæki, að potturinn getur varla kallað ket ilinn svartan. Nú varð einhver hreyfing þarna inni og maðurinn, sem kallaður var Leonard svaraði hásum rómi. — Þú, bölvaður fjárkúgarinn: Ég skal kreista úr þér líftóruna . . . Eitthvað datt um koll og svo heyrðist hvæs og síðan hryglu- hljóð. Ég greip í dyrastafinn og neglurnar gengu næstum gegn um hanzkana mína. Ætti ég að kalla á hjálp? Auðvitað ætti ég að gera það, en ég ætlaði bara ekki að gera það. Ef Melchior léti kyrkja sig, þá . . . Fn hvað gekk eiginlega að mér? Ég varð að kalla á hjálp. En áflogin hættu og Leonard sagði, og náði varla andanum: — Þetta getur gefið þér ein- hverja hugmynd um það. Taktu þig nú til í snatri og náðu í pen- ingana — hvern skítugan eyri. Og mér kæmi það ekki á óvart þó að „Þríhyrningurinn“ kæmi með sömu kröfu. Röddin í Melchior var vesæld Brleg. — Guð minn góður, Len . . . alveg held ég þú sért brjálaður — næstum búinn að drepa mig . . . og við sem höfum verið vin- ir árum saman. En svo varð hann aftur hortugur, eftir því sem hann fór að ná andan- um og vissi, að hann átti ekki að deyja strax. —- Ég skal gera það sem ég get, viðvíkjandi þess um peningum, en þú gengur óþarflega hart að mér. Aðrir menn taka töpum sínum . . . Nei, nei. Stilltu þig. Ég segi þér, að ég ætla að reyna. Gefðu mér svo sem viku frest. Ég á von á pen- ingum bráðlega. — Já, það væri þér líka holl- ara, kagði maðurinn, sem kallað- ur var Leonard. — Og nú engar hundakúnstir, annars held ég áfram því, sem ég var byrjaður á. -- Þetta verður allt í lagi, þvi lofa ég þér, Len . . . En þú seg- ir ekkert frá þessu. Komdu í kvöld með stelpurnar með þér, eins og við ætluðum. Ef við kom um ekki í samkvæmið hjá henni Flóru, þá verður hún vond, og vill vita, hvers vegna við kom- um ekki. Að minnsta kosti yrði hún Grace það. Og ef svo kæm- ist upp um þessar ófarir „Þrí- hyrningsins", hvernig ætti ég þá að geta drifið upp peninga? Leonaid snuggaði: — Ófarir, þó þó. En svo lofaði hann að koma með stelpurnar. — Vertu þá sæll, Len, sagöi Melchior, og röddin var næst- um viðkvæm, svo rajög létti hon um. — Ég sé þig þá í kvöld. Ég flýtti mér að þjóta niður stigann og út á tröppurnar. Ég vildi ekki láta Len eða neinn annan sjá mig þarna á næstu grösum við íbúð Thews. Það var nú orðið dimmt og mér mundi óhætt ef ég kæmist dálít- inn spöl niður eftir götunni áð- ur en hann kæmi út. Ég var komin niður tröppurnar um leið og hann opnaði dyrnar. Ég festi hælinn og ég greip í handriðið til þess að stöðva mig, og missti um leið veskið, sem datt niður tröppurnar. Það opnaðist og innihaldið fór í allar áttir. Mað urinn, sem kallaður var Leon- ard, horfði á. Veskið stanzaði á einni tröppubrúninni og gubb- aði um leið úr sér skammbyss- unni. Ég þaut til, en þessi Leónard munac m KNirnjRjg BRIUNÖ LISTMimiJPPBOÐ KNÚTUR BRUUN Þeir sem vilja selja málverk, gamlar bækur eða aðra listmuni hafi samband við skrif- stofu undirritaðs hið fyrsta. Fyrstu listmunauppboð eru ráðgerð í októ- bermánuði. Skrifstofan er opin frá kl. 13.00 til 17.00 daglega. u B GRETTISG. 8 • REYKJA VIK SÍMI 17840 • PÓSTHÓLF 1296 Hrúlurinn, 21. niarz — 19. apríL Smckkvísin borsar sic eins oe endramer. Nautið, 20. april — 20. maí. Geröu ráð fyrir því óvænta. Tviburarnir, 21. niaí — 20. júni. Skyndiákvarðanir trufia þie frá öfirum verksviðum, svo að þá slcalt huesa máiið vel. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. AJlt íelltir aftur í ijúfa löð eins oc þú liafðir vonað. Ljónið, 23. ji'ilí — 22. ágúst. Elrki cr allt gull sem glúir, það ættirðu að vera farinn að þekkja. Meyjar, 23. ágúst — 22. september. j.,i verður að fara að lestfja siðustu hönd á verk, sem heðið hef- ur. Vogin, 23. september — 22. október. I»á ga/.t notfært þér margt í gær, og svífur því skýjum ofar. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Reyndu að koma á samstarfi við fúlli sem fyrst. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Morgunstundin er drjúg eins og þú kannski mannst. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. I»á verður að finna jafnvægi milli innbyrðis úlgu og hversdags- lcikans út á við. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Dagurinn endar vel, þútt þú sért stiirfum hlaðiun. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Beittu slægð i breyting'iim. varð á undan mér, tíndi saman dótið og rétti mér jafnharðan. Andlitið sem var rjótt eftir við- ureignina við Melchior, var for- vitið á svipinn. Þegar hann rétti mér byssuna, glotti hann og sýndi um leið tanngarðinn. Ég tautaði einhverjar þakk- ir og flýtti mér niður tröppurn- ar. Meðan hann stæði þarna, gat ég ekki almennilega farið inn i húsið. Við næsta götuhorn stanz aði ég — en þvi miður undir götuljósi og leit til baka. Hann stóð enn á tröppunum og svip- aðist um. Þegar hann sá mig lita um öxl, var hann fljótur að yf- irgefa varðstöðu sína og koma á eftir mér. Einar þrjár húsalengdir elti þessi maður mig, og mig var tekið að verkja í fæturna, af því að flýta mér svona, án þess þó beinlinis að hlaupa. Loksins skaut ég mér inn í kaffistofu, og fór út þaðan aftur bakdyra- megin, sá hann hvergi, en komst eftir krókaleiðum að húsi Mel- chiors aftur. Ég var rétt komin að því, þegar mannskepnan skaut sér út úr skuggunum. Hann var ekki nema skammt frá mér og ég heyrði glaðlega kveðju hans, og eins hlaut hann að hafa heyrt bölvið i mér. Hann tók ofan hattinn og veif- aði honum til min og hélt hon- um hátt á loft. 1 þetta sinn gat ég ekki hrist hann af mér, svo að ég hætti við það og lofaði honum að hrekja mig inn í neðanjarðar- stöð, þar sem ég loksins losnaði við hann, með því að fara inn í vagn, sem var troðfullur af fólki og hurðirnar skullu í, rétt við nefið á honum. Vonsvikin og niðurdregin fór ég aftur til Brooklyn. Það var næstum kominn kvöldverðar- tími, og ef ég hugsaði til að hitta Melchior þann dag yfirleitt yrði ég að bíða fram yfir mat og fara svo aftur. Hann hlyti að verða heima, til þess að búa sig fyrir samkvæmið hennar Flóru. Þarna kom það! Samkvæmið hennar Flóru! Hvað sem Hue segði, skyldi ég fara til Linton- hjónanna, hitta Melchior og neyða hann til að afhenda mér bréfið. En ef nú Hue kæmist að því, að ég hefði farið? Hann mundi aldrei fyrirgefa mér það. Hann mundi verða sannfærður um, að ég hefði farið þangað til að drekka og ólmast með þess- um listamannaskríl, sem hann kallaði svo. Kannski væri betra að bíða morgundagsins. En þá mundi ég eftir því, að Melchior var meinilla við sunnudagana og eyddi þeim á tilgangslausu rangli milli kunningjanna og knæpanna. Það var vonlaust að hitta hann heima á sunnudegi. Kannski gæti ég líka farið þang að seinna í kvöld, komizt upp eftir brunastiganum og svo beð- ið þangað til hann kæmi aftur úr samkvæminu, og ég óskaði þess heitast, að aldrei þessu vant kæmi hann heim kven- mannslaus. Þarna sézt bezt, í hvaða vand ræðum ég var. Því lengur sem ég hugsaði um þetta, því sannfærðari varð ég um, að vænlegasta leiðin til að hitta hann, væri að fara í sam- kvæmið hjá Flóru. Það var of- mikM áhætta að fresta því til mánudags, þegar Hue yrði kom- inn aftur. Og hvers vegna þurfti Hue að komast að þvi þótt ég færi. Þá áhættu varð ég að taka. Undir eins og ég var komin heim til mín, þá var ég ekki einu sinni búin að taka af mér hatt- inn, þegar ég beit á jaxlinn og hringdi til Flóru. Hún var afskapiega vingjam leg. — Ég ætlaði að hringja til þín seinna, sagði hún með þessu dísæta, kverkmælta málrómi sín um. — Ekki að ég vilji koma þér i vandræði, en mér datt í hug, að hr. Breamer þyrfti ekki að komast að því. Það er alveg FLÓÐLJÓSIN (SJA ÍÞRÓTTASiÐU) A MELAVELLINUM * ERU FRA OKKUR JOHAN RÖNNING HF. umboðs- og heildverzlun SKIPHOLTI 15. SÍMI 25400.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.