Morgunblaðið - 03.10.1972, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.10.1972, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR OG 8 SÍÐUR ÍÞRÖTTIR 2:25. tbl. 59. árg. ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1972 Prentsmiðja Morguublaðsins DANMÖRK sagði JÁ Kaupmaninahöfn, 2. okt. — NTB/AP/ítitzau DANIR samþykktu með miklum meiri hluta aðild lands síns að Efnahagsbandalagi Evrópu. Var meiri hlutinn meiri en nokkur hafði spáð og kosningaþátttakan var meiri en nokkru sinni í sögu landsins. Frá því að fyrstu atkvæðatölur tóku að berast, voru „já“-atkvæðin í meiri hluta og þegar heildarniðurstöður atkvæðagreiðslunnar lágu fyrir, var það Ijóst, að Danir höfðu samþykkt aðildina með mun fleiri at- kvæðum en bjartsýnustu fylgismenn hennar höfðu vonað. Með aðild greiddu atkvæði 1.950.000 en 1.124.000 á móti. — Þetta þýddi, að 57% þeirra, sem á kjörskrá voru, höfðu greitt atkvæði með aðild en 32,8% á móti. Neitun Norðmanna við aöild að Efnahagsbandalagi Evr- ópu er talin hafa haft mun minni áhrif á danska kjósendur en fyrir fram hafði verið talið og ýmsir eru þeirrar skoðunar, að norska „neiið“ kunni að hafa fengið marga til þess að greiða atkvæði með aðild í Damnörku, sem voru óákveðnir í afstöðu sinni áður og kannski hefðu setið ellegar hjá í at- kvæðagreiðslunni. Stuðningsmenn aðildar Dan- merkur að EBE fögnuðu stórsigri í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær Niðurstöðurnar í þjóðarat- livæðagreiðslunni lágu fyrir kl. 23,35 að dönskum tima, ag sýndu að 57% höfðu greitt atkvæði með aðild að Efnahagsbandalag- inu, en 32,8% gegn. Kosningaþátt takan var 89,8% og er hin mesta í sögu dönstou þjóðarinnar. — Fjöidi þeirra sem greiddu at- kvæði með aðildinni vonu 1.955, 932 en á móti 1.124.196. Það svar ar til 63,5% já-atkvæða og 36,5% nei-atkvæði með tilliti til fjölda igreiddra atikvæða, þegar auðir seðilar og ógiiidir eru eikki taldir með. Mengaður fiskur á Harðangri Björgvin, 2. október, NTB. FISKUR á Harðangri hefur að geyma svo mikið magn af efninu kadmium að hann vei-ður að telja hættulegan til matar, að siign Bergens Tidende. Blýmagnið er líka ofan æskilegra marka. Þetta er niðurstaða ranmsóknar á málimimiemiguin í fidki á Suður- firði. Kadmium-magnið er meira en í fiski á úthafimiu en er þó mimma en búizt var við miðað við aðrar raninsókinir við strendur Noregs. Það var Pou'l Hartling, leið- togi Venstre, sem varð fyrstur til þess af stjórnmálaforingjun- um að þora að lýsa því yfir, að aðildin hefði verið samþykkt. — Gerðist það um kl. 22,30. Hilmar Baunsgaard, fyrrver- andi farsæitisráðhenra og E. Ninn Hansen, fyrrv. fjármálaráðherra fylgdi á eftir með sams konar spádóma. Þegar ráðherrafundi, sem hefj ast átti kl. 22,30, var af'lýst, var það ljóst, að forustumenn jafn- aðarmanma voru einnig sömti skoðunar varðandi úrslit at- kvæðagreiðslunnar. -— Þau vandamál, sem við ætl- uðum að ræða, getum við vel beðið með að ræða þar til á morg un, sagði Per Hækkerup. Erik Hofifim'eyer, bam'kasitjáil Þjóðbankans, dró fram raunhæfa niðurstöðu af úrslitunum. Hann lýsti því yfir, að gjaldeyrismark aðurinn yrði opmaður að nýju á morgun með óbreyttu gengi á dönskiu krónunni. SÖGULEG ÁKVÖRÐUN Jens Otto Krag, forsætisráð- herra, lýstá því yfir í kvöld að danska þjóðin hefði tekið sögu- lega ákvörðun, og liagði hann áherzlu á skyldur Danmerkur gagnvart Evrópu og Norður- löndum. Hanin gaf í skyn, að ef tii vill yrði fuindi fortsætisii’áð- herra Norðurlanda flýtt, en hann hafði verið fyrirhugaður i nóv- ember. Þá sagði Krag, að hamn mund'i hið bráðasta ræða við Franih. á bls. 10 Ivar Nörgaard markaðsmálaráðherra Danmerkur og Jens Otto Krag forsætisráðherra sjást hér brosandi í Kristjánsborgarhöll, eftir að ljóst varð, að aðildin að EBE hafði verið samþykkt með miklum meirihluta atkvæða. — V erkamannaf lokkur- inn sveigir í vinstri átt Kosninga krafizt fyrir áramót Blackpool, 2. október. AP. FI.OKKSÞING Verkamanna- flokksins í Blackpool hefur með samþykktum sem það liefur gert sveigt flokkinn í átt til eindregn ari vinstristefnu og fast er lagt að leiðtoguni flokksins að lilíta samþykktum meirihlutans. Formaður flokksins, Anthony Wedgewood Benn, lýsti því yfir við setningu þingsins að nýtt St.rax og kjörstaðir voru opnaðir, mynduðust langar raðir fólks, sem beið eftir því að komast að kjörklefanum. í f.vrsta sinn í sögu Danmerkur voru lögreglumenn látnir vera á verði við kjör- staði, þar se*n óttazt var, að efnt yrði til niótmælaaðgerða í kringum kjörstaði eða jafnvel, að til beinna skemmdarverka kæmi á þeim. tímabil væri runnið upp og að samkomulagspólitík heyrði til fyrri tíð. Hann krafðist þess að næsta stjórn Verkamannaflokks ins stokkaði upp skiptingu þjóð arteknanna og skiptingu valds- ins. Hann sagði að í uppsiglingu væri voldug hreyfing fyrir því að færa völdin í hendur verka- manna. Benn skoraði á alla Verka- mannaflokksmenn að knýja fi'am þingkosningar fyrir næstu ára- mót þegar Bretland á að ganga í Efnahagsbandalagið. Markaðs- málin eru aðalumræðuefnið og aðaldeiluefnið á flokksþinginu, og getur þjóðaratkvæðagreiðslan í Danmörku haft mikil áhi'if í því sambandi, einkum ef Danir hafna aðild eins og Norðmenn. Nókkur voldug verkalýðsfélög leggja fast að leiðtogum sínum að skuldbinda sig til þess að berjast gegn þeim skilmálum sem hafa fengizt í samningum við bandalagið og jafnvel þeim hugmyndum sem liggja að baki ákvörðunarinnar um að ganga í bandalagið. Samþykktir æðstu stjói'nar flokksins sýna hvexnig herskáir hópar hafa knúið fram eindi'egn ari vinstristefnu í utanríkismál- um: • Flokksleiðtogarnir sam- þykktu með naumum meirihiuta tillögu sem mundi skuldbinda næstu stjórn Verkamannaflokks ins til þess að stöðva greiðslur Bi’etlands til EBE og binda enda á þátttökuna í bandalaginu þang að til samið yrði um gerbreytta Framh. á bls. 23 SF vill 50 mílur Osló, 2. október, NTB. LANDSTJÓRN Sósialíska þjóðart'lokksins samþykkti á ftindi sintim í gær að Noregur færði út landhelgi sína úr 12 mílum í 50. í ályktunimni segir, að vernd fisikimiða geg.n rán'yrkju, eink- um stórra, erlendx'a togara- fiota, sé forsenda atvintnulífs íbúa st randhér aðaona. Þetta hafi verið einn helzti grund- völlu.r baráttuininar gegn aðild Noi’egs að Ef'nahagsbandalag- iimx. Við væmtum þess að ný stjórn, sem tekur við völdum, fylgi eftir synjun þjóðarinniar á EBE-aði d og sjái til þess að firamtíð íbxta strandhéraðanna verði tryggð með 50 málna landhelgi, segir í ályktuninni. L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.