Morgunblaðið - 29.10.1972, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.10.1972, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR, með Suimudagsblaði Sextíu fórust: Dyrhólaey. (Ljósm. Ól. K. M.) 8 björguðust í flugslysi Erfið Ieit í þykkum skógi 28. október. —* AP. H.JÁLPARSVEITIK ruddu sér Ieið í morgrun gegnum þ.vkkan skóg í Mið-Frakklandi til þess að komast að flaki skrúfuþotu af gerðinni Vickers Viscount, sem fórst í gærkvöld og með henni 60 af 68 sem i henni voru. Flugvélin rakst á skógivaxna hæð og sprakk í tætlur, en eng- inn ekiur kom upp og það virð- ist haía bjargað lifi þeirra átta sem komust af, en þeirra á með- al var fimm ára gamall dreng- ur. Fiugvélin var að koma inn MORGUNBLAÐIÐ, ásamt Summudagsblaði, er 56 síður í dag. Af efni þess má nefna m.a.: Suinnudagsihugvekia og bridge ................... 4 BJaðamaður Morgum- blaðsins lýsir kosninga- fuindi Edwards Kennedys og Georges McGoverns .. 8 Heimsókn til Gerðar Helgadóttur ............. 10 Rætt við Jóhann Péturs- soin, sem sagður er stærsti maður heims ............. 14 Reykjavíkurbréf, leiðari og skáJk ......... 16 og 17 Kvennasíða ............. 23 Bótonvenmtir og listir .... 24 og 25 Á ferð með „Elsie“ í Bang- kok. Eiín Pálmadóttir segir frá stonrnisveipmuim 33 Rætt við himn heimsfræga píanóleikiara Rudolf Serkin 35 Viðtal við barnalækninn heimsfræga Benjamín Spock, sem er í framboði við forsetakjör í Bamda- rikjumum ................ 38 Bragi Ásgeirsson s/krifar um hina umdeildu septem- bersýningu 1947 . . 44—45 'Sagán og Veivakandi . . 52 Dagisferá útvarps og sjóm- varps næstu viku . . 53—55 Sir Alec til Kína Glasgow, 28. oklt. AP. SIB Alec Dor.glas-Home, utan- ríkisráðherra Bretlands,' fór í nótt í vikuferð til Kína þar sem hann ræðir við kínverska ráða- menn um bætta sambúð og auk in viðskipti. Enginn annar brezkur utanrik isráðherra hefur farið til Kína síðan komimiúnistar tóku völdin þar. Hann ræðir meðal annars við Mao Tse-tuwg. Bretar viður- kenndu Pekingstjórnina fyrstir Vesturlaindaþjóða 1950. .Kínverjar hafa áhuga á við- skiptum við Breta og hafa keypt af þeim 12 Trident-þotur. Ot- fliutninigur Breta til Kina nam i fyrra 28 miMíjónum punda og inn fkitningur þeirra frá Kína nam 32 'milljónum pumda. til lendingar í Clermont þegar slysið varð. Vélin kom frá Lyon. Marcel Delcroix, einn þeirra sem koimust af, sagði: ,,Ég sat aftarlega. Ég hef oft farið þessa leið áður. Ég sagði við unga konu, sem sat hjá mér að ég fyndi á mér að vélin myndi far- ast, aí þvi mér fannst eitthvað vera að. Ég losaði beltið og * kastaðist út. Ég beið eftir hjálp í s-ex tíma. Talstöðin var ennþá í saimbamdi og ég heyrði sam- tölin. 2000 manns leituðu okkar en ég gat mig hvergi hrært." Fimm ára gamall drengur sem komst aif barðist við grátinn og sagði hvað eftir amnað: „Ég meiddi mig ekkert." AlMr sem voru í vélinni voru Frakkar. Vélin fannst ekki fyrr en sjö timum eftir að slysið vafð. Flak- ið var í þykkum skógi um fimm kílómetra frá næsta vegi-. Jarðýtur ruddu leiðina að flak- inu en sjúkrabifreiðar biðu á veginum. Enginn sem komst af er talinn i lífshættu. Öli áhöfn- in fórst. Vietnam: Lokaf undur um helgina ? Saigon, París og Washington, 28. október — AP-NTB THIEU forseti S-Víetnam skipaöi í dag öllu herliði S- Víetnam að vera viðbúið árásum, er kommúnistar hófu lokasókn, til að tryggja sér að því er virtist land- svæði áður en vopnahléið í landinu tekur gildi. Her- stjórnin í Saigon sagði að skæruliðar hefðu náð á sitt vald 10 þorpum á svæði, sem er 12—30 km frá Saigon. Skæruliðarnir sprengdu upp þrjá þjóðvegi, sem liggja að Saigon, í þeim tilgangi að reyna að einangra borgina. Útvarpsstöð Viet Cong skipaði í dag sikæruliðum að leggja nið- ur vopn, þegar er samikomulag um vopnahlé hefur verið undir- ritað. Útvarpið tilkynnti einnig að Viet Cong myndi að öllu leyti virða vopnahléið og skilmálana og hefja þegar eftir gildistöku þess viðræður við stjómina í Saigon. Útvarpið skoraði á Bandaríkjastjórn að standa við ioforð sitt um að undirrita samn- inginn nk. þriðjudag. Ekki er vitað hvenær loka- samningaviðræður Bandaríkja- manna og Norður-Vietnama hefj- ast, en heimildir í Washington hermdu að Kfesinger aðalráð- gjafi Nixons myndi halda til Parísar innan skamms, hugsan- lega um helgina. Ziegler, blaða- fulltrúi Nixons forseta vildi Framli. á bls. 31. Eru ekki lengur á lista FBI Washingtong, 28. okt. AP. BANDARfSKA alríkislögregl- an, FBI, játaði í fyrsta sinn i dag að hún hefði liaft þing- nienn á skrá hjá sér í 22 ár, en sagðist hafa liætt þvi i gær. Settur yfirmaður FBI, Pat- rick Gray, sagði að það væri ekki lengur nauðsynlegt og auk þess væri hægt að rang- túlika þetta. Þess vegna sagð- rst hann hafa ákveðið að hætta þessu Skrárnar um þingmennina hafa aðallega verið byggðar á blaðaúrklippum, að sögn FBI. Allende sendir skrið- dreka út á göturnar Hættir viðræðum við verkfallsmenn Santiago, 28. okt. AP. SALVADOR Allende, Chilefor- seti sendi skriðdreka út á göt- urnar í höfuðliorginni Santiago í gærkiöldi til þess að vara við niótmælaaðgerðmn vegna þess að hann liefur tilkynnt að hann hafi slitið viðræðum síiium við forystunienn verkalýðsfélaga sem hafa verið í verkfalii. Skriðdrekar hafa ekki verið notaðir á eins áberandi hátt sið- an verkföllin miklu byrjuðu fyr- ir átján dögum. Lögreglan hand- tók líika tugi mamna í átökum sem urðu á götunuim milli stuðn- ingsmanna og andstæðinga stjórnarinnar. Allende sagði i sjónvarpsræðu til þjóðarinnar að hann hefði slitið viðræðunum við verkíallis- menn vegna þess að kröfur þeirra væru pólitískar undirniðri og á það gæti hanm ekki fallizt. Hann sagðist vilja semja við vörubílstjóra, búðareigendur og aðra verkalýðshópa um kjara- mál en ekki stjómmál. Hann kallaði andstæðinga stjórnarinn- ar fasista og sakaði þá um að rugla málin og heimta tilslakan- ir „sem enginn stjórnárleiðtogi gæti gengið að.“ Allende kvaðst í aðalatriðum hafa samþykkt kröfur vörubil- stjóranna, en sagði að aðrir hóp- ar mættu alls ekki nota verk- fall þeirra til þess að knýja fram pólitiskar tilslakanir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.