Morgunblaðið - 17.04.1973, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.04.1973, Blaðsíða 12
pí'Ot t * *'>«*»■ A. v r <iíf Th A f ‘n t » rír q ■ i <i(f rx A . 11 ^2 MOHGUNHLAÐIÐ, ÞRJfXHJDAGUR 17. APRliL 1973 Hvöt íslandsmeistari — taplaus í úrslitakeppninni tKSLITALKIKIR Islandsmóts- ins í blakl fóru fram á Akureyri, langardaginn 14. april kl. 15.00. Fjöldi áhorfenda fylgrdist með leikjunum og sannkölluð úrslita stemmning ríkti í Iþróttaskemm- unni. Fyrri leikurinn var á milli UM SE og ÍS. Yfirburðir stúdenta voru algerir 15:0, 15:3, en með þeim úrslitum urðu möguleikar Islandsmeistaranna IMA harla litlir til að verja titil sinn á móti Hvöt. Með því að vinna leikinn við Hvöt myndu þeir færa ÍS Is- landsmeistaratitilinn á silfur- bakka. En liðsmenn Hvatar, nem endur Menntaskólans að Laugar vatni, voru ekki komnir til Akur eyrar til að vera með neinn leik araskap. Með yfirveguðum leik og úthugsuðu spili í sókn og vörn tryggðu þeir „Blakmannin- um“, styttu þeirri, sem képpt er um, dvöl að Laugarvatni næsta ár og unnu leik sinni við ÍMA 2:1. IS — IJMSE 2:0 Báðar hrinurnar voru ákaflega lítið skemmlilegar á að horfa og alveg sérstaklega tilþrifalitlar. Lið Iþróttafélags stúdenta sýndi þó það blak, sem áhorfendum var gefinn kostur á að horfa. Þegar fyrri hrinunni lauk með sigri IS 15:0! fór að fara um liðs menn IMA á áhorfendabekkjun- um, því að mikið var í húfi fyrir þá, að UMSE næði að skora sem flest mörk móti IS. 1 síðari hrinunni upphófst sama martröðin fyrir UMSE, en þó þeim tækist að skora þrjú mörk í hrinunni, var það frekar fyrir klaufaskap ÍS heldur en frammistöðu UMSE. Reyndar vantaði UMSE tvo góða leikmenn í lið sitt, en þeirra var vissulega þörf. Ef 15:0 og 15:3 geta gefið ein- hverja lýsingu á leiknum, þá get ur það sýnt getumun liðanna. HVÖT — ÍMA 2:1 I þessum leik fengu áhorfend- ur að sjá blak. Fyrsta hrinan er æsispennandi. ÍMA byrjar með boltann og Ómar Ingvarsson, og Ólafur Thoroddsen eru framxni við netið, báðir ágætis smassar- ar, en Hjörtur Gíslason spilar sem uppspilari. Hjá Hvöt eru Páill Ólafsson, Gestur Bárðarson og Torfi Rún- ar Kristjánsson við netið, en Óii Þór Jóhannsson, Bjarni Þorkels- son og Már Tuliníus í vöm. Hvöt vinnur boltann og tekst að skora fyrsta markið en ÍMA jafnar 1:1. Leikurinn er ákaflega skemmtilegur, mikið um fín upp spil og smöss á báða bóga, en styrkleiki Hvatar kemur samt nokkuð skýrt í Ijós með skyn- samlegum leik þeirra og laumum meðfram hávörn iMA. Sýndi Ólafur Þór alveg sérstaklega fallegar laumur og er hann sér- fræðingur i þeirri tækni að Bjarna ólöstuðum. Hvöt leiðir alla hrinuna, en iMA tekur þó öðru hvoru fjörkippi og nær að jafna 4:4, 11:11. Virtist liðið eink um ná góðum tökum á leiknum, þegar Júlíus Birgir Kristinsson, Eiríkúr Stefánsson og Ólafur eru frammi við netið, enda eru þá hinir frábæru vamarleikmenn iMA, þeir Hjörtur og Ingvar Þóroddsson, sem hirða láumur og smöss Hvatarmanna, þá bolta, sem á annað borð eru möguleik ar á að verja. Þegar leikar standa 11:11 er spennan í há- marki, en Hvöt nær að halda jafnvægi sínu og iiðið skorar ör- ugglega fjögur næstu mörk og sigrar í fyrstu hrinunni 15:11. Liðsmenn ÍMA taka nú á öiiu sínu og árangurinn lætur ekki á sér standa 4:0. Júlíus á frábær smöss og lið Hvatar er í molum, þeir hreinlega hætta að beita há- vörn. Þessi leikkafli iMA-liðsins er það bezta/ sem þeir hafa sýnt í mótinu, og allt gengur eins og vel smurð vél. Júlíus smassar á þann veg, að manni dettur ósjálf rátt í hug Þór Sigþórsson úr liði ÍS, bezti smassari mótsins. Óm- ari tekst líka vel upp í smössum og Eiríkur og Ingvar spiia vel upp. Staðan breytist úr 1:4 í 1:8 fyrir IMA. En loks virðast þeir Gestur, Óli Þór og Bjami fara að átta sig og byrja að beita skipulegri hávöm og Már, Páll og Torfi Rúnar fylgja vel undir með lágvörn. Leikurinn jafnast 5:8, 6:9, en ÍMA á góðan kafla í lok hrinunnar og slgrar 15:8. Úrsli'tahrinain er einstefna af hálfu Hvatar og sannkallaður meistarabragur á spili þeirra. Þegar ieikar standa 4:3 fyrir Hvöt, er þætti Islandsmeistar- anna 1972 lokið, en kafli Isiands- meistaranna 1973 hafinn. ÖH mörk, sem skoruð eru i viðbót I hrinunni eru Hvatar, og íslands- meistaramir 1973, UMF Hvöt (nemendur Menntaskólans að Laugarvatni), innsigla sigur sinn í mótinu með glæsilegum sigri í hrinunni 15:3. ^ Leikinn dæmdi Þórður R. Magnússon og Páll Jónsson var meðdómari. Þórður skilaði sínu erfiða hlutverki vel, þrátt fyrir mikil pú á dóma hans frá aðdá- endum ÍMA á áhorfendabekkjun- um, sem beittu öllum ráðum til að hvetja lið sitt til dáða. Er það blakíþróttínni vissu iega mjö-g til framdráttar að eiga þegar nokkra fyrirtaks dómara og er Þórður þar framarlega í flokki. Að mótinu loknu flutti Guð- mundur Arnaldsson, varaformað ur Blaksambandsins stutt ávarp og rakti gang mótsins, en síðan fól hann Hermanni Sigtryggs- syni að slíta mótinu. Lýsti Her- mann úrslitum og afhenti siguT vegurunum „Blakmanninn" — verðlaunagrip Islandsmótsins. Lokastaðan Úrslit Islandsmeistaramótsins í blaki 1973: Stig Hrinur Mörk 1. UMF Hvöt 6:2 111:77 6 2. l.S. 4:2 82:51 5 3. t.M.A. 3:4 77:78 4 4. U..M.S.E. 1:6 39:103 3 Ingvar Þóroddsson og Júlíus Birgir Kristinsson horfa á eftir frábæru „smassi“, frá Eiriki Stefánssyni í gólfið hjá Hvöt. Það eru þeir Ólafur Þór og Páll Ólafsson sem eru í hávörn (til vinstri). íslandsmeistarar í blaki 1973. UMF Hvöt. Frá vinstri, efri röð, Páö Ólafsson, Finnur M. Finns- son, Gestur Bárðarson, Bjarni Þorkelsson, Ólafur Þór Jóhannsson. Fremri röð: Már Tuliníus, Torfi Itúnar Kristjánsson, fyrirliði, og Baidvin Kristjánsson. Á myndina vantar Rúnar Karlsson. Stórsvigskeppni Reykjavíkurmótsins Blikarnir báru sigurorð af í BK Stórsvigskeppni Reykjavíkur- mötsins á skiðum fór fram á sunnudaginn í Bláfjöllum. Eins og í svigkeppninni fékk Guðjón Ingi Sverrisson beztan saman- lagðan tíma, en hann keppir i b-flokki. Binda Reykvíkingar miklar vonir við Guðjón, ekki aðeins á landsmótinu sem fram Drengjahlaup Ármanns DRENGJAHLAUP Ármanns fer fram fyrsta sunnudag í sumri, að venju. Hefst hlaupið kl. 14.00. Þátttökutilkynningar þurfa að berast Jóhanni Jóhannessyni, Blönduhlið 12 fyrir n.k. fimmtu- dag. fer á Siglufirði nú um páskana, heldur einnig í framtíðinni. Ails voru keppendur 22 í þessu móti, fleiri voru þó skráð ir, en mæting var léleg. Hlið voru 50, falihæð 190 metrar óg brautina lagði Þorbergur Ey- steinsson. Úrslit urðu þessi: Kvennaflokkur: Áslaug Sigurðardóttir, Á 125.5 Hrafnhildur Helgad., Á 134,3 Auður Harðardóttir, Á 135,9 B-flokkur karla Guðjón Ingi Sverriss., Á 103.3 James Mayor, Á 104,7 Þorsteinn Geirharðss., Á 118.4 A-flokkur karla Jóhann Vilbergsson, KR 104,9 Amór Guðbjartsson, Á 105,5 Sigurður Guðmundss., Á 111.4 Einn leikur fðr fram í Litlu bikarkeppninni um síðustu helgi leikur Breiðabliks og ÍBK og fór hann fram í Keflavík. Lauk leiknum með sigri Blikanna og var þetta fyrsta tap Keflvík- inga á hinu nýbyrjaða keppnis- tímabili. Breiðabliksmenn sýndu nú sinn bezta leik í vor og náðu oft ágætum samleik, Keflvíkingar sýndu aítur á móti aldrei þá snerpu sem einkennt hefur leiki þeirra í vor. Breiðabliksmenn sóttu á móti vindi í fyrri hálfeiknum, en áttu þó lítið minna í hálfleiknum sem var marklaus. I síðari hálfleik skoraði Einar Þórhallsson strax á sjöttu minútu ágætt skalla- mark upp úr þvögu í vítateig iBK. Stuttu síðar var Hinrik bróðir Einars á ferðinni og kom Blikunum í 2:0. Steinar Jóhannsson hafði lít- ið sézt í ieiknum, en síðasta stundarfjórðunginn var hann mjög ógnandi. Á 30. mínútu skor aði Steinar mark, en það var dæmt af vegna þess að dömar- inn mun hafa verið búinn að dæma aukaspymu. En 5 mínút- um síðar fékk Steinar svo góða stungusendingu inn fyrir vöm Breiðabliks og skoraði örugg- lega. Ekki voru fleiri mörk skor uð í leiknum og lauk honum þvi 2:1 fyrir Breiðablik. Staðan í Litlu bikarkeppninnl er nú sú að Breiðablik og Hafnarfjörður hafa hlotið þrjú stig eftir þrjá leiki, en Akranes og Keflavik tvö stig eftir tvo leiki. » Svend-Áke Lundback sigraði í hinni árlegu skíðagrönBu, er nefn ist Nordenskjölsloppet, og fram fer í Svíþjöð. Tími hans var /5:33,26 klst. Annar varð landi hans Sören Burman á 2:36,09 klst., og þriðji varð Finninn Perti Tenrajárvi á 2:37,58 klst. m Noregnr sigraði Sviþ.iöð 4:3 í landskcppni f kraftlyftinffum sem fram fór um helKina. Möre met voru sett f Keppninni, en einna mesta athyeli vöktn afrek Olfs Morin frá Sviþjóð I þungra- rigrt, en hann l.vfti samtals 730 ke. m Staða efstn liðanna f ftölsku 1. deildar keppnlnni f knatt- spyrnn er nú þessi: Milan 32, Jnventns 30, Lazio 29, Inter 27, Fiorentfna 24.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.