Morgunblaðið - 18.05.1974, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.05.1974, Blaðsíða 30
I fÞRáTTAFRÍTTIR IfflCiBLADSK 3Q MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAl 1974 Keppnin í 1. deild hefst í dag: Hverjir verða arftakar Keflvíkinga? KEPPNIN f 1. deild Islandsmótsins í knattspyrnu hefst I dag og þennan fyrsta dag mótsins fara þar fram þrír leikir. Þær eru margar spurningarnar, sem knattspyrnuunnendur spyrja þessa dagana, fyrstu svörin verða ljós að leikjunum f dag loknum. Þau sfðustu ekki fyrr en eftir sfðasta leikinn, sem fram á að fara 20. september. Fyrstu leikirnir í 1. deild eru þessir: MELAVÖLLUR: laugardag kl. 14.00; Víkingur — IBV KEFLAVÍKURVÖLLUR: laugardag kl. 14.00; ÍBK — Fram AKRANESVÖLLUR: laugardag kl. 16.00; 1A — Valur MELAVÖLLUR: sunnudag kl. 16.00: KR — IBA Hér á eftir fer rabb um liðin f 1. deild. Ekki vfsindaleg úttekt á liðunum heldur aðeins nokkrir punktar um árangur þeirra það sem af er þessu keppnistfmabili, breytingar á ieikmönnum frá fyrra ári o. fl. ÍÞRÖTTABANDALAG KEFLAVlKUR: Keflvíkingar fóru ekki vel af stað í upphafi keppnistímabilsins og hlutu aðeins tvö stig í meist- arakeppninni. Siðan hefur leiðin legið upp á við. IBK leikur nú nokkuð öðru vísi knattspyrnu en siðastliðið sumarog meiri áherzla er lögð á samspilið. Meiðsli og veikindi hrjáðu Keflavíkurliðið til að byrja með, en leikmenn eru nú allir orðnir heilir heilsu nema fyrirliðinn Guðni Kjartansson, sem ekki mun geta leikið með í dag vegna meiðsla á handlegg. Jón Sveinsson varamarkvörður IBK síðastliðið sumar hefur geng- ið yfir til Selfyssinga og leikur því ekki með IBK í sumar. Þá hefur Hörður Ragnarsson að nýju hafið æfingar eftir eins árs hvíld. VALUR: Valsliðið er stórt spurningar- merki um þessar mundir. Liðið hefur ekki leikið vel í vor, en f leiknum gegn York á Melavell- inum á miðvikudaginn virtist svo sem Valsmenn væru að rétta úr kútnum. í hóp Valsmanna hafa bætzt tveir snjallir knattspyrnumenn frá því í fyrrasumar. Dýri Guð- mundsson kom frá FH og hafði tryggt sér sæti í liðinu, þegar hann varð fyrir meiðslum. Þór Hreiðarsson, sem kom frá Breiða- bliki, hefur hins vegar ekki fund- ið sig enn sem komið er, hvað sem síðar kann að verða. IÞRÓTTABANDALAG VESTMANNAEYJA: Aðstaða Vestmannaeyinga er gjörbreytt frá síðastliðnu sumri. Leikmenn liðsins eru nú allir komnir heim til Vestmannaeyja, nema þeir, sem stunda nám á fastalandinu, þeir Snorri Rútsson f Iþróttakennaraskólanum, Krist- ján Sigurgeirsson lögfræðinemi og unglingalandsliðsmaðurinn Viðar Eyjólfsson. Þá má ekki gleyma kempunni Val Andersen, sem æft hefur af kappi undan- farið. Að sögn er lið IBV komið í mjög góða æfingu um þessar mundir og til alls líklegt í Islandsmótinu. Eins og fram hefur komið í frétt- um dvöldust leikmenn IBV í Svi- þjóð síðustu daga aprílmánaðar og í byrjún maí, léku þeir þar þrjá leiki, unnu tvo og gerðu jafntefli, ’auk þess sem þeir æfðu við hinar ágætustu aðstæður. FRAM: Framarar koma til með að hafa talsverða sérstöðu í íslandsmót- inu, sem hefst í dag. Þeir eru einir liðanna í 1. deild með ís- lenzkan þjálfara, Jóhannes Atla- son fyrrum landslíðsfyrirliða. Framarar hafa yfir meiri mann- skap að ráða en mörg hinna lið- anna í 1. deildinni og þó að liðið virðist vera i öldudal um þessar mundir eftir sfðustu leikjum Reykjavíkurmótsins að dæma, er tæpast hægt að búast við því, að Framarar verði í fallhættu í sumar. Hitt er svo annað mál, hvort liðið hafnar í verðlaunasæti í mótinu. Árni Stefánsson, hinn snjalli markvörður frá Akureyri, hefur gerzt Framari og ekki er ólíklegt, að hann komi til með að verða aðalmarkvörður Framara í sumar. Að vísu hefur hann átt við meiðsli að stríða að undanförnu, en er sem óðast að ná sér. Þá hefur Kristinn Jörundsson á ný hafið að æfa og leika með Fram, en þeir Baldur Scheving og Er- lendur Magnússon hafa lagt skóna á hilluna. ÍÞRÓTTABANDALAG AKRANESS: Skagamenn eru lfklegir til af- reka í Islandsmótinu 1974. Liðið hefur yfir góðum einstaklingum að ráða og hefur verið í fremstu röð íslenzkra liða undanfarin ár. Einhvern herzlumun hefur þó skort á að liðið næði að sigra í Islandsmóti eða bikarkeppni þrjú síðustu ár. Ýmsir af þeim leikmönnum IA, sem lagt höfðu skóna á hilluna, hafa þurrkað af þeim rykið á nýj- an leik. Skal þar fræga telja Ey- leif Hafsteinsson og Benedikt Valtýsson. IÞRÖTTABANDALAG AKUREYRAR: Akureyringar hafa ekki leikið marga leiki á þessu ári, hafa unn- ið Völsunga tvívegis og svo tapað 0:3 á móti Fram. Hætt er við því, að Norðmenn séu eins og svo oft áður illa undir keppnistfmabilið búnir, þar sem þeir hafa leikið svo fáa leiki. Kann því byrjun mótsins að reynast Akureyr- ingum erfið. Akureyringum hefur bætzt góð- ur liðsauki, þar sem er Siglfirð- ingurinn Gunnar Blöndal og skor- aði hann sex mörk í öðrum leikj- anna gegn Völsungum. Þá hefur handknattleiksmaðurinn Árni Gunnarsson vakið mikla athygli í stöðu bakvarðar það sem af er sumrinu. Aðeins Árni Stefánsson markvörður hefur hætt hjá liði IBA frá því í fyrrasumar. KNATTSPYRNUFÉLAG REYKJAVlKUR: Telja verður ólíklegt, að KRing- ar verði í baráttunni á toppnum að þessu sinni. Þeir hafa undan- farin ár sloppið með fallskrekk- inn og líklegt verður að telja, að svo verði enn. Ef til vill er þó réttara að vera ekki með neinar hrakspár f garð KR-inga, en rétt að minna á, að liðið varð í öðru sæti í nýafstöðnu Reykjavíkur- móti. Einu mannabreytingarnar, sem orðið hafa hjá KR, eru þær, að Halldór Björnsson hefur gengið yfir til Ármanns. Mun hann bæði þjálfa Ármenninga og leika með þeim í 2. deild í sumar. VlKINGUR: Víkingar koma með pálmann f höndunum út úr Reykjavikurmót- inu og þeir eru margir Víking- arnir, sem álfta, að nú verði Vík- ingar Islandsmeistarar. Reyndar er fyllilega kominn tfmi til að svo verði, þvf að hálf öld er liðin frá þvf að Víkingur vann hinn eftirsótta titil. Skynsamlegra er KIRBY hefur tekið á með leik- mönnum IA og hlffir sér ekki þó að hann sé með Eyleif Hafsteins- son á bakinu. þó fyrir Víkinga að fara að öllu með gát og hugsa fyrst um að halda sér í deildinni. Fallsög- urnar frá 1970 og 1972 er óþarfi að endurtaka, liðið er of gott til að falla, en þar með er þó ekki sagt, að það sé bezta knattspyrnulið á Islandi. Þær breytingar hafa orðið á Víkingsliðinu frá því í fyrra að Kári Kaaber fyrrverandi ungl- ingalandsliðsmaður er byrjaður æfingar að nýju og hefur staðið sig mjög vel í leikjum vorsins. Hafliði Pétursson er aftur f fullu fjöri, unglingalandsliðsmaðurinn Óskar Tómasson er orðinn gjald- gengur í meistaraflokksliðið og síðast en ekki sfzt hefur fyrrver- andi Breiðabliksmaður, Helgi Helgason, gengið f Víking og styrkir óneitaniega vörn liðsins. FH-ingar skoruðu fyrsta mark Is- landsmótsins í knattspyrnu 1974 og var Ólafur Danivalsson þar að verki. Mark Ólafs færði FH-ing- um þó aðeins annað stigið í leik FH gegn Blikunum f Kaplakrika í fyrrakvöld. Landsliðskempa þeirra Breiðabliksmanna sá um að kvitta í síðari hálfleiknum. 1—1 jafntefli varð því uppi á ten- ingnum í þessum fyrsta leik Is- landsmótsins, sem um leið var einn af úrslitaleikjum 2. deildar, þvi að margir álíta, að FH og Breiðablik hafi sterkustu lið- unum á að skipa. Eins og svo oft áður verður þessi leiklýsing hálfgerð veður- frétt, hávaðarok var allan tímann og því margt auðveldara en að leika knattspyrnu. Liðin gerðu þó sitt bezta og barizt var af miklum krafti allan leiktímann. Það hefði verið ósanngjarnt ef annað liðið hefði farið með bæði stigin út úr þessari viðureign. Að vísu áttu FH-ingar heldur fleiri tækifæri, en það vó upp á móti, að mark þeirra kom fyrir hálfgerðan kiaufaskap Ómars markvarðar Breiðabliks. Það byrjar gæfulega þetta Is- Hörður 100 mörk I FRÁSÖGN Morgunblaðsins af markaskorun í 1. deildar keppninni í handknattleik í vetur var sú villa, að næst markhæsti leikmaður mótsins, Hörður Sigmarsson úr Hauk- um, var sagður hafa skorað 99 mörk, en hið rétta er, að hann skoraði 100 mörk, en aðeins Axel Axelsson og Einar Magnússon hafa skorað jafn- mörg mörk eða fleiri í Islands- mótinu síðan farið var að leika á stórum velli. Markametið á hins vegar Ingólfur Óskarsson, Fram, frá Hálogalandstím- unum. Villan stafaði af mistalningu marka í leik Hauka og Víkings, sem fram fór 15. marz sl., en þar var Hörður sagður hafa skorað átta mörk, en gerði niu, svo sem sjá mátti á töflu þeirri um gang leiksins, sem fylgdi með frásögn Morgunblaðsins. Er Hörður beðinn velvirðingar á þessum mistökum. Nýliðar Gróttu ráða þjálfara NYLIÐARNIR í 1. deild í handknattleiknum, lið Gróttu af Seltjarnarnesi, hafa nú ráð- ið þjálfara fyrir næsta keppn- istimabil. Gunnar Kjartansson, sem m.a. hefur þjálfað Ár- menninga og kom þeim á sín- um tíma upp i 1. deild, mun taka við liðinu, en Þórarinn Ragnarsson á heiðurinn af þvi að komaGróttu upp i 1. deild. Þorbergur meiddur — Arni í markið ÞORBERGUR Atlason mark- vörður Framara mun ekki leika með liði sínu í dag. Erfið meiðsli Þorbergs i hné hafa tekið sig upp og því verður það Akureyringurinn Arni Stefánsson, sem standa mun í markinu i dag gegn IBK í stað hans. landsmót hjá dómarastéttinni. Annar línuvörðurinn lét ekki sjá sig og varð því að fá einn af áhorfendunum til að hlaupa i skarðið. Gat leikurinn ekki hafizt fyrr en 20 mínútum eftir áætlun, ekki i fyrsta skipti, en vonandi í það síðasta. áij. Arsþing BLI ÁRSÞING Blaksambands Islands 1974 verður haldið að Hótel Loft- leiðum í dag, laugardaginn 18. maí, og hefst klukkan 13.30. Dag- skrá samkvæmt lögum sambands- ins. Hljómskálahlaup SlÐASTA Hljómskálahlaupið á þessu keppnistimabili fer fram á morgun, sunnudag, og hefst að venju kl. 14.00. Þjálfarar Vlkings og KR hafa undirbúið lið sín eins og þeir bezt hafa getað fyrir leiki helgarinnar og í gær slöppuðu þeir af I golfi vestur á Seltjarnarnesi. Sanders, þjálfari Vfkings, er nákvæmur I „púttinu" og Knapp þjálfari KR fylgist með. Jafnt hjá FH og UBK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.