Morgunblaðið - 17.07.1974, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.07.1974, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JULl 1974 IÞROTTAFRETTIR MORGUNBIABSINS Islenzku þjálfur- unum fjölgar um helming í 1. deild Duncan hættur með ÍBV og kominn til Skotlands Viktor Helgason mun þjálfa lið IBV næstu daga, eða þar til annar þjálfari fæst til að taka við liðinu. Duncan McDowell hætti sem þjálfari liðsins eftir leikinn gegn Val á föstudagirin og var hann ðánægður með árangur liðsins. Hver verður eftirmaður hans er ekki enn ákveðið, en forráða- menn IBV höfðu mikinn áhuga á að fá Viktor til að taka starfið alveg að sér. Það getur hann hins vegar ekki starfs sfns vegna. Eru miklar líkur á því, að annaðhvort Gísli Magnússon eða Aðalsteinn Sigurjónsson taki við liðinu. Báðir hafa þeir farið á knattspyrnuþjálfaranámskeið erlendis á vegum IBV og Gísli reyndar þjálfað á Isafirði með góðum árangri. Hvort annar hvor þeirra tekur við liðinu skýrist á næstu dögum, en Ijóst er, að íslenzku þjálfurunum í 1. deild- inni mun fjölga um helming. Jóhannes Atlason fær fslenzkan starfsbróður. Skoðanir voru mjög skiptar um störf Duncans I Eyjum og var það jafnt meðal bæjarbúa sem og leik- manna liðsins. Taldi Duncan, að fyrst hann nyti ekki hylli allra leikmanna liðs síns hefði hann ekki starfsgrundvöll. Þá mun Duncan einnig hafa sagt, er hann undirritaði samninga sína við IBV síðastliðið vor, að yrði Iiðið ekki I 1. eða 2. sæti eftir fyrri umferðina færi hann heim til Skotlands. Samningstími Duncans rennur ekki út fyrr en í Víðavangshlaup 16. víðavangshlaup Hafnar- fjarðar verður haldið sunnu- daginn 21. júlf nk„ þjóðhátíðar- dag Hafnfirðinga. Keppt verður í þremur aldursflokkum kvenna, 8 ára oe vngri. 9—12 ára og loks 13 ára og eldri. I karlaflokkum verður keppt í fjórum aldurs- flokkum, 8 ára og yngri, 9—13 ára, 14—16 ára og 17 ára og eldri. Veitt verða þrenn verðlaun í hverjum flokki, bikarar og verð- launapeningar. Væntanlegir þátt- takendur eru beðnir að skrá sig í Verzlun Valdemars Long fyrir laugardag. lok ágúst en þó Duncan kunni að skipta um skoðun og vilji koma aftur munu Vestmanneyingar ekki taka við honum aftur sem þjálfara að sögn Ólafs Jónssonar formanns Knattspyrnuráðs IBV. Við sögðum frá því í blaðinu f gær, að Duncan hefði hætt án þess að kveðja kóng eða prest. Þetta er ekki alveg rétt. Duncan kvaddi nokkurn hluta ieikmanna á föstudaginn áður en hann fór. Sömuleiðis sagði hann knatt- spyrnuráðsmönnum frá ákvörðun sinni, en að vísu tóku þeir hann ekki alvarlega, þar sem Duncan hefur oft áður sagzt vera hættur. Marteinn Geirsson, markaskorari Fram í leiknum í fyrrakvöld, f baráttu við markhæsta Víkinginn, Kára Kaaber. Framarar gátu ekki ann- að en unnið FYRSTI SIGUR LIÐSINS KOM GEGN VÍKINGUM Á MÁNUDAGLNN Texti: Agúst I. Jónsson Myndir: Ragnar Axelsson. FYRSTI sigur Framara f Islands- mótinu f knattspyrnu varð að veruleika á mánudaginn. Þá mættu Framarar liði Vfkings og úrslitin urðu 1:0, Fram f vil. Framarar gátu ekki annað en unnið þennan leik, Vfkingarnir voru tæplega með f leiknum og jafnvel þó að Framliðið hafi ekki leikið þennan leik af neinni snilld, voru þeir tvfmælalaust betri aðilinn f leiknum. Það mark, sem færði Frömur- um sigur f leiknum, skoraði Mar- teinn Geirsson á 39. mínútu. Dæmd var aukaspyrna á Víking við vítateigshornið við endamörk. Eggert sendi knöttinn fyrir mark- ið og Marteinn kom aðvífandi á fullri ferð og hamraði boltann f netið frá markteig. Það var at- hyglisvert, er Framarar fengu þessa aukaspyrnu, að Marteins var alls ekki gætt og Sigurbergs illa; eru þeir þó tveir beztu skalla- menn Framliðsins. Nokkuð var um tækifæri í þess- um leik, en meira fór þó fyrir spörkum andstæðinga á milli, og það var drjúgur tími, sem knött- urinn var utan vallar. Framliðið var mun meira með knöttinn í leiknum, en sem fyrr var fram- lína liðsins bitiaus. Afturkoma Elmars færði nokkuð líf í framlín- una, en Elmar er samt langt frá sínu bezta. I lok leiksins tók Elm- ar eina af sínum frægu rokum upp allan völl. Víkingar reyndu hvað þeir gátu til að stöðva hann, en tókst ekki fyrr en kom að markteignum. Vildu þá ýmsir meina að Vfkingar hefðu brotið ólöglega á Elmari. Eftir 10 mínútna leik komst Sig- urbergur óvænt í marktækifæri, en áttaði sig ekki nógu fljótt. Knötturinn hrökk þó af honum að marki Víkings, en Ögmundur var vel á verði og varði. Þetta tæki- færi kom eftir hornspyrnu Egg- erts og síðar í fyrri hálfleiknum tók Eggert aukaspyrnu, sem hrökk aftur fyrir varnarvegg Vík- inga. Guðgeir náði knettinum, en fast skot hans fór í hliðarnetið. Eins og sést á þessari upptalningu hér að framan, sköpuðust hættu- leg tækifæri Framara f fyrri hálfleiknum eftir horn eða auka- spyrnur. Tækifæri áttu Víkingar á fyrstu mínútu leiksins, en síðan ekki söguna meir allan fyrri hálf- leikinn. Síðari hálfleikurinn var jafnvel enn ómerkilegri en sá fyrri. Á fyrstu mínútunum komst Kári inn í sendingu, sem Ómar ætlaði Arna markverði. Ekki tókst Kára þó að skila knettinum I netið, enda í þröngri aðstöðu. Tæplega er ástæða til að telja upp fleiri tækifæri, þau voru ekki það hættuleg. Ásgeir Elfasson var sterkastur Framara í þessum leik og stóð sig nú betur en nokkru sinni fyrr á keppnistímabilinu. Marteinn var traustur í vörninni og skoraði auk þess hið dýrmæta mark Framara. Vörn Víkingsliðsins stóð sig I rauninni ekki illa í leiknum, en gerði heldur engar stórar rósir. Miðjuleikmennirnir sáust ekki í leiknum og framlínumennirnir voru óvenju daufir. Það er lítið eftir í Víkingsliðinu, þegar meira að segja baráttan er fyrir róða. Óskar Tómasson, unglingalands- liðsmaðurinn efnilegi, var sá eini, sem náði að ylja Víkingsaðdáend- um um hjartaræturnar í þessum leik. Hvað eftir annað prjónaði hann sig áfram á hægri kantinum, en allt kom fyrir ekki, samherjar hans voru langt frá sínu bezta og náðu aldrei að vinna úr því, sem Óskar byggði upp. Framarar eru nú komnir í hóp hinna liðanna í deildinni. Liðið er komið með sex stig og munar því aðeins fjórum stigum á Fram og liði númer 3. IA og IBK eru hins vegar nokkuð sér á báti og í raun- inni einu lið deildarinnar, sem sloppin eru úr allri fallhættu. Eft- ir síðustu leikjum 1. deildar að dæma eru Víkingur og KR með slökustu liðin, eins og það er nú ótrúlegt miðað við hina góðu byrj- un þessara Iiða. t stuttu máli: Islandsmótið 1. deild, Laugardals- völlur 15. júlí Víkingur — Fram 0:1 Mark Fram: Marteinn Geirsson á 39. mfnútu. Ahorfendur: 1484 Dómari: Guðmundur Haraldsson og var í sama gæðaflokki og leik- mennirnir, þó sennilega nær frammistöðu Víkinganna. Tíu bikarleikir í dag Það verður mikið um að vera f bikarkeppninni f dag. Tfu leikir verða háðir vfðs vegar um land. Mesta athygli vekja þeir leikir þar sem liðin f 2. deild eigast við. Þannig leika t.d. Haukar og FH f Hafnar- firðinum f kvöld og Þróttur leikur gegn Ármanni á Þróttar- vellinum. Ættu Þróttur og FH að vera sigurstranglegri f þess- um leikjum, en þó er aldrei að vita nema Haukarnir nái að velgja FH-ingum undir uggum. Fjögur önnur 2. deildarlið verða f sviðsljósinu f kvöld. Breiðablik leikur gegn Vfði f Kópavogi IBI á móti Stefni, Völsungur — KS og Selfoss gegn tR. Liðin úr 2. deild ættu að hafa öll tök f þessum leikj- um, en þó er rétt að minnast þess, að Selfyssingar máttu þakka fyrir sigur gegn Gróttu f 1. leik þeirra f keppninni. UMSB leikur gegn Vfking frá Ólafsvfk f Borgarnesi og kæmi það mjög á óvart næðu Borg- firðingar að sigra Vfkingana, sem eru búnir að gleyma þvf hvernig er að tapa eftir mikla sigurgöngu f allt sumar. I.eift- ur og UMSS leika á Olafsfirði, Höttur og Hugínn á Héraði og loks Leiknir og Þróttur á Fáskrúðsfirði. Sfðastnefndi leikurinn verður án efa mjög skemmtilegur og spennandi þvf á milli þessara liða andar köldu eftir fyrri leik þeirra f 3. deild- inni, en liðin berjast hat- rammri baráttu um það hvort þeirra kemst suður f úrslitin f 3. deildinni f haust. Allir leikirnir f bikarkeppn- inni hefjast klukkan 20.00. VlKINGUR: ögmundur Kristinsson 2, Magnús Þorvaldsson 2, Jón Ólafsson 2, Helgi Helgason 1, Gunnar Gunnarsson 1, Gunnar örn Kristjánsson 1, Þórhallur Jónasson 1, Kári Kaaber 1, Jóhannes Bárðarson 1, Óskar Tómasson 3, Hafliði Pétursson (Varam) 1. FRAM: Arni Stefánsson 2, Jón Pétursson 2, ómar Arason 1, Marteinn Geirsson 3, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Gunnar Guðmundsson 1, Guðgeír Leifsson 2, Asgeir Eifasson 3, Elmar Geirsson 2, Kristinn Jörundsson 1, Eggert Steingrfmsson 2. Súgfirðingar á grænu ljósi í þriðju deildinni Stefnir frá Súgandafirði sigraði lið HVI með fjórum mörkum gegn tveimur um síðustu helgi. Súgfirðingarnir hafa nú náð fimm stigum og má heita, að þeir séu öruggir f úrslitin í 3. deildinni. HVl er með 2 stig og á einn leik eftir. Bolvíkingar eru með 1 stig. en eiga tvo leiki eftir, geta þeir því náð Stefni að stigum, en ólík- legt er, að þeir nái jafn góðri markatölu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.