Morgunblaðið - 17.07.1974, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.07.1974, Blaðsíða 28
sólargeislinn frá Florida Fékkst þú þer TRDPICANA ■ í morgun ? MIÐVIKUDAGUR 17. JULl 1974 Vegfarendur um Hafnarfjarðarveg tóku eftir því í gær, að Nesti var horfið af sínum gamla stað. Frú Sonja Helgason, sem rekið hefur verzlanirnar Nesti um árabil, tjáði Mbl. í gær, að ástæðan til þess að rifa húsið, sem verzlað hefur verið í um 17 ára skeið, væri sú að reisa ætti nýtt hús á sama stað. Kvaðst Sonja vilja óska þess, að viðskiptavinir hennar sýndu þolinmæði á meðan á þessu stæði og kvaðst vona, að ekki liði á löngu þar til unnt yrði að opna á ný. Myndin er tekin í gær, þar sem verið er að reisa nýtt Nesti. — Ljósm.: Ól. K. M. Heildarafli landsmanna alls 716 þúsund lestir Heildarafli landsmanna fyrstu sex mánuði ársins reyndist vera alls 716.228 lestir samkvæmt bráða- birgðatölum Fiskifélags íslands. Á sama tíma í fyrra var hann 686.268 lest- ir, eða 29.960 lestum minni. Munar hér mest um loðnu- aflann, sem var miklu meiri nú en í fyrra. Það athyglisverðasta við skýrslu Fiskifélagsins er, að þrátt fyrir mikla aukningu á sókn i þorskstofninn með fjölda skut- togara hefur þorskaflinn minnkað. Hann er nú 236.110 lest- ir, en var i fyrra 238.540 lestir. Bátaaflinn var nú 166.117 lestir, en var í fyrra 199.415 lestir. Togaraaflinn er nú 69.993 lestir, en var á sama tíma í fyrra 38.135 lestir. Munar hér mest um afla skuttogara, sem nú er 57.929 lest- ir á móti 21.022 lestum í fyrra. Síldaraflinn á þessu ári er orðinn 8.293 lestir á móti 5.431 lest fyrstu sex mánuði síðasta árs. öllum þessum afla hefur verið landað erlendis. Loðnuaflinn er nú 463.251 lest á móti 436.841 lest. Rækjuaflinn hefur minnkað nokkuð, er nú 3.320 lestir, en var 3.601 lest. Sömu sögu er að segja af hörpudisksafla, hann er nú 1.107 lestir, en fyrstu sex mánuði siðasta árs var hann 1.485 lestir. Afli humarbáta hefur sömuleiðis minnkað, úr 1.360 lestum í 929 lestir. Skattskrá um eða eftir helgi SKATTSKRA Reykvfkinga verður væntanlega tilbúin til dreifingar annaðhvort á föstu- dag eða mánudag. Samkvæmt upplýsingum frá skattstofunni f gær varð bilun f skýrsluvél- um f fyrrinótt, sem gerði það að verkum, að óvfst er hvorn daginn skráin verður til. Talsverð umferð- aróhöpp í gær TALSVERT var um árekstra í umferðinni í Stjórnarmyndunartilraun Geirs Hallgrímssonar: Formleg tilmæli um viðræður allra flokka Bréf sent formönnum stjórnmálaflokkanna í gær GEIR Hallgrímsson for- maður Sjálfstæðisflokks- ins sendi í gær formönnum stjórnmálaflokkanna bréf með ósk um viðræður milli fulltrúa þeirra um lausn efnahagsvandans. I bréf- inu segir Geir Hallgrfms- son, að markmið slfkra við- ræðna skuli vera tvíþætt: Q Könnun efnahagsvand- ans á grundvelli þeirra skýrslna sem nú liggja fyrir. □ Að fulltrúar þeirra stjórnmálaflokka, sem líta vandann lfkum augum, beri saman ráð sín og leiti samstöðu um aðgerðir í efna- hagsmálum. Morgunblaðið hefur fengið til birtingar afrit af bréfi Geirs Hallgrímssonar og fer það hér á eftir: BRÉF GEIRS HALL- GRÍMSSONAR Þar sem fullirúum allra stjórn- málaflokka hafa nú væntanlega borizt f hendur drög að yfirliti yfir stöðu efnahagsmála um mitt ár 1974, sem hagrannsóknadeild Framkvæmdastofnunar og Seðla- banki tslands hafa útbúið, vil ég fara þess á leit, að hafnar verði viðræður milli fulltrúa stjórn- málaflokkanna um lausn efna- hagsvandans. Tilgangur viðræðna þessara er að koma því til leiðar 1. að fulltrúar stjórnmálaflokk- anna kanni sameiginlega efna- hagsvandann ítarlega á grund- velli þeirra skýrslna, er fyrir liggja, og annarra upplýsinga, er þeir kunna að óska eftir, og gangi úr skugga um, að hve miklu leyti þeir eru sammála um vandann sjálfan, eðli hans og umfang. 2. að þeir fulltrúar stjórnmála- flokka, sem líta lfkt á vanda- málin, sem við blasa, beri sam- an ráð sín og leiti sem víðtæk- astrar samstöðu um aðgerðir í efnahagsmálum, en fáum mun blandast hugur um nauðsyn þessa. Þar sem hér er lagt til, að hafn- ar verði viðræður allra stjórn- málaflokka á jafnréttisgrundvelli um lausn efnahagsvandans, er ekki rétt að svo stöddu að bera fram sérstakar tillögur í þeim efnum, enda gæti slík málsmeð- ferð komið f veg fyrir þá víðtæki samstöðu, sem nauðsynleg er til að árangur náist. Framhald á bls. 16 Reykjavík í gærdag. Engin meiðsl urðu á mönnum í þessum árekstrum utan það, að ungur drengur, sem hjólaði utan í strætis- vagn hlaut smávægilegar skrámur. Árekstrar urðu margir harðir. T.d. valt ný bifreið á Ægisgötu í gær og skemmdist talsvert. Einnig varð harður árekstur á gatnamótum Vatnsstígs og Lindargötu, þar sem lítil fólksbifreið og stór vöru- bifreið skullu saman. Litla bifreiðin skemmdist mikið. Þá valt gærdag bifreið á Þrengslavegi. Þrennt meiddist eitthvað og var flutt í slysadeild Borgar- spítalans, en meiðsl fólks- ins munu ekki hafa verið alvarleg. Fjöldi sjúkrahússlækna hætt- ir um næstu mánaðamót Astæðan: Megn óánægja með launakjör MIKILL fjöldi lækna við sjúkra- hús hefur sagt störfum sfnum lausum og er frumástæðan megn óánægja með launakjör og kjara- dóm, sem kveðinn var upp fyrr á þessu ári. 1 hlut læknanna kom 3% grunnkaupshækkun á laun. Páll Þórðarson framkvæmda- stjóri Læknafélags Reykjavfkur sagði aðspurður, að hann hefði ekki hugmynd um, hversu marg- ar þessar uppsagnir væru, enda stæði Læknafélagið á engan hátt að uppsögnunum heldur væru þetta persónuleg mál hvers og eins. Uppsagnir læknanna munu flestar koma til framkvæmda nú f ágústmánuði. Þótt læknarnir hafi sagt störfum sfnum lausum kvað Páll þá myndu sinna öllum neyðar- og bráðatilfelluin, ef ósk umslfktkæmi frá yfirlæknum. Sjúkrahúsin hafa nýlega aug- lýst eftir 25 læknum til starfa við sjúkrahúsin. Stöður þessar eru ekki auglýstar í sambandi við uppsagnirnar, hefði þessi aug- lýsing verið birt hvort sem þær hefðu átt sér stað eða ekki. í sumum tilvikum mun vera um að ræða stöður, sem aðeins er ráðið f til eins eða tveggja ára. Ennfrem- ur speglar auglýsingin talsverða vöntun á læknum til starfa við sjúkrahúsin. Góða veðrið helzt eitthvað enn „Það sést nú f sunnan bliku f suðvesturátt, sem dregur hægt að landi. Þetta boðar venjulega að þykkna eigi upp, en ég hef ekki trú á, að það eigi eftir að rigna f Reykjavfk í dag,“ sagði Páll Bergþórsson veður- fræðingur, þegar blaðið ræddi við hann f gær. Páll sagði, að annars staðar á landinu væri einnig gott veður og ef eitthvað mætti um það segja þá færi það batnandi. Yfirleitt var bjart veður f gær sunnan- og vestanlands, en nokkuð var skýjað á Norður- og Norðausturlandi. Ekki þurftu landsmenn þó að kvarta yfir kuldanum. Sagði Páll, að kl. 15 f gær hefði hitinn mælzt mestur 18 stig á Kirkjubæjarklaustri, 16 á Akureyri og 15 á Egilsstöðum. Þá var kaldast á Galtarvita, 9 stig. Ekki vildi Páll neitt segja um, hvort góða veðrið héldist út vikuna, en sagði, að það gæti haldist eitthvað enn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.