Morgunblaðið - 24.07.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.07.1974, Blaðsíða 1
28 SIÐUR 131. tbl. 61. árg. MIÐVIKUDAGUR, 24. JÍJLÍ 1974 Prentsmiðja Morgunhlaðsins. Herforingjastjórnin í Grikklandi farin frá: Karamanlis kallaður heim til að mynda þjóðstjórn Aþenu, Parfs, 23. júlf, AP-NTB. 9 GEYSILEGUR fögnuður varð f Grikklandi f dag, þegar þær fregnir bárust, að sjö ára hernaðareínveldi þar væri lokið, hcrforingjastjórnin hefði ákveðið að segja af sér og koma að nýju á borgaralegri stjórn f landinu. Lfkja fréttamenn fagnaðarlátunum f Aþenu við þau, sem þar urðu f lok heimsstyrjaldarinnar sfðari, þegar fréttist að bandamenn hefðu frelsað Grikkland. • Þegar frá þvf var skýrt sfðar, að Konstantin Karamanlis fyrrver- andi forsætisráðherra landsins væri á leið til Grikklands, þusti mikill mannfjöldi út á flugvöll til að taka á móti honum — hrópandi „hann kemur, hann kemur." Hans var von þangað f kvöld með sérstakri flugvél, sem Valery Gisgard d’Estaing forseti Frakklands hafði boðið honum til afnota, eftir að forseti Grikklands, Phaedon Gizikis, hafði hringt til Karamanlis og boðið honum að koma heim og veita forystu þjóðstjórn, er skipuð væri leiðtogum hinna ýmsu stjórnmálaafla landsins. • Karamanlis hefur verið f útlegð f Parfs frá þvf hcrinn f Grikklandi gerði byltingu sfna f aprfl 1967. Hefur hann tfðum haldið uppi harðri gagnrýni á herforingjastjórnina, sfðast 16. júlf sl. birti hann yfirlýs- ingu, þar sem sagði, að byltingin gegn Makariosi á Kýpur væri þjóðarógæfa og gæti haft hörmulegar afleiðingar fyrir grfsku þjóðina bæði heima fyrir og erlendis. Skoraði hann þá á herforingjastjórnina að koma aftur á lýðræði f Grikklandi. Nýr forseti á Kýpur útvarpstæki sín. Andartaki sfðar færðist líf í tuskurnar, menn þustu út á göturnar, föðmuðust og kysstust, veifuðu handleggjunum og hrópuðu „eining, lýðræði”, bifreiðastjórar þeyttu bílflautur og í kaffihúsum var sungið. Löreglumenn kölluðu til fólks um gjallarhorn og skoruðu á það að sýna stillingu, minntu á, að ennþá væri hernaðarástand í landinu og f jöldafundir bannaðir. Tilkynning forsætisráðherra Grikklands, Adamantios And routsopoulosar, um að herfor- ingjastjórnin hefði sagt af sér og mundi fá völdin í hendur stjórn- málamönnum kom mjög á óvart sérstaklega þó sfðari hluti henn- ar. Orðrómur hafði verið uppi frá því í gær um, að bylting væri yfirvofandi eða a.m.k. breytingar á herforingjastjórninni. Kissinger utanrfkisráðherra Bandaríkjanna hafði gefið það f skyn, að sagt var, fyrir nokkrum dögum, og fréttir þess eðlis bárust frá Ankara f gær. En þær voru afdráttarlaust bornar til baka í Aþenu, m.a. kom talsmaður for- sætisráðherrans, Konstantin Kallis, fram f útvarpi í dag og sagði, að þessi orðrómur væri lygaþvættingur, runninn undan rifjum andstæðinga Grikklands. En ekki löngu seinna var haft eftir grfska stjórnmálamanninum Petros Yarousalias, að herfor- ingjastjórnin hefði sagt af sér. kvaðst hann hafa verið boðaður á fund stjórnarinnar ásamt sjö öðr- um stjórnmálaforingjum og sá fundur staðið í sex klukkustund- ir. Boðaði Yarousalias, að von væri á opinberri tilkynningu um klukkan átta í kvöld að staðar- tfma. Hennar var beðið með geysi- legri eftirvæntingu og var þá fámennt á götum Aþenu og hljótt í borginni meðan íbúðar biðu við Aþenubúar fagna fréttinni um afsögn herforingjast jórnarinnar. Eftir stjórnarbyltinguna á Kýp- ur, sem sérfræðingar þóttust vita, að hefði verið gerð að undirlagi herforingjastjórnarinnar í Aþenu, fóru þeir fljótlega að velta vöngum yfir þvf, hvað gerast mundi f herbúðunum þar, því að vitað var, að ekki voru þar allir á eitt sáttir um hvernig taka skyldi á Kýpurmálinu. I morgun var haft fyrir satt í Aþenu, að herforingjastjórnin leitaði sem óðast að reyndum manni til að senda til friðarvið- ræðnanna f Genf. Utanríkisráð- herrann Konstantin Kyperos, sem tók við því embætti fyrir tveimur vikum aðeins, er að mestu Framhald á bls. 16 Mynd þessi var tekin f Nikosiu um helgina, meðan átökin þar voru sem hörðust. Eru þarna grfskir þjóðvarðliðar að hlaupa f skjól undan kúlnahrfð tyrkneskra Kýpurbúa. Myndin var tekin við Ledra Palace gistihúsið. Flugvöllurinn í Nikosiu í höndum liðs S.Þ. Nikosiu, Ankara, London, 23. júlí AP—NTB. • NVR forseti tók við á Kýpur í dag af Nicholas Sampson, sem þjóðvarðliðið þar setti á forseta- stól eftir byltinguna gegn Makari- osi erkibiskupi. Nýi forsetinn er Glafcos Clerides, forseti þingsins á Kýpur og stuðningsmaður Makariosar um langan aldur. Hann hefur haft forystu f samn- ingaviðræðunum við tyrkneska minnihlutann f landinu og oft gegnt embætti forseta, þegar Makarios hefur verið erlendis. 0 Þegar sfðast fréttist frá Nikosiu f kvöld virtist lát hafa orðið á bardögum, en sfðdegis hafði kanadfsk sveit úr friðar- gæsluliði Sameinuðu þjóðanna orðið fyrir skotárásum af beggja hálfu, grfska þjóðvarðliðsins og tyrkneskra Kýpurbúa, og féllu þar nokkrir Kanadamenn. Fyrr f dag höfðu liðsmenn Sameinuðu þjóðanna yfirtekið flugvöllinn f Nikosiu eftir að bardagar höfðu staðið þar nokkra hrfð. Friðargæzluliðið á Kýpur verður tvöfaldað á næstu dögum, en það telur nú 2.300 manns. 0 Báðir aðilar rufu vopnahléð öðru hverju fram eftir degi f dag, eftir tiltölulega friðsamlega nótt, Framhald á bls. 13. Nýr forsætisráð- herra í Eþíópíu Addis Abeba, 23. júlí, AP-NTB. HAFT er eftir áreiðanlegum heimildum í Addis Abeba í kvöld, að herinn í Eþfópíu hafi hand- tekið Makonnen, sem sagði af sér embætti forsætisráðherra lands- ins í gær. Farið var hörðum orðum um hann f útvarpi í dag og sagt, að hann hefði tekið sér stöðu við hlið óvina þjóðarinnar. I embætti forsætisráðherra hefur nú verið skipaður Michael Imru náfrændi Haile Selassies keisara, sem varð 82 ára í dag. Imru er 44 ára að aldri, mennt- aður í Bretlandi og hefur m.a. gegnt embætti sendiherra lands síns í Moskvu. Hann var félags- og efnahagsmálaráðherra í stjórn Makonnens, tók við þvf embætti fyrir fjórum mánuðum, en hefur tvo síðustu mánuði verið í Genf, þar sem fjölskylda hans dvaldist. Er sagt, að hann hafi ætlað að sækja fjölskylduna til að setjast að í Addis Abeba.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.