Morgunblaðið - 24.07.1974, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.07.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JULI 1974 5 maður heims“ Reynir sýmr vioa um land Reynir Leósson hefur að undan- förnu verið á sýningarferð víða um land með kvikmynd sína „Sterkasti maður heims“. Hefur aðsókn hvarvetna verið mjög góð. Næstu sýningar Reynis verða á Vestfjörðum, þar sem hann mun sýna á nokkrum stöðum. Auk kvikmyndarinnar „Sterkasti maður heims“ sýnir Reynir myndir um öryggi á vinnustöðum o.fl. myndir. Nú er ákveðið, að Reynir fari með kvikmynd sína til Noregs í haust og verður hún sýnd þar. — Viðgerðir Framhald af bls. 4 illa farið, enda lftið haldið við. Eftir mikil mótmæli var horfið frá því að rffa húsið og Seðla- bankinn leitaði á aðrar slóðir, en virðist eiga erfitt með að halda sér frá viðkvæmum stöð- um borgarinnar. Húsið við Frí- kirkjuveg lét Thor Jensen byggja 1908 og er það fyrir marga hluti merkilegt. Vatnslögn var sett í húsið og var það algjört nýmæli í Reykjavík. Auk þess var sett raflögn í gólf og veggi og hafði það ekki þekkzt hér áður. I hús- inu er valinn sænskur viður, eru gólfin úr 2 þumlunga plægðum plönkum og súðin úr 5/4 þumlunga borðum. Borgar- sjóður veitti fé fyrir rúmlega einu og hálfu ári til viðgerðar hússins að utan og hefur sú viðgerð staðið yfir síðan. Böðv- ar S.T. Bjarnason og sonur hans Böðvar annast viðgerð hússins og má geta þess, að Böðvar lærði iðn sína hjá Þor- láki Ófeigssyni, sem lærði hjá Steingrími Guðmundssyni, en Steingrímur byggði húsið. Þorlákur annaðist viðhald húss- ins, en eftir að templarar eign- uðust það tók Böðvar við þvf verki. Má sjá á öllu handbragði við viðgerð hússins, að þar eru að verki menn, sem vel til þekkja og er vonandi, að sömu vandvirkni verði gætt ef húsið verður lagfært að innan, en um það hefur ennþá ekki verið tek- in ákvörðun. Húsið við Tjarnargötu 20 eignaðist borgarsjóður 1971 og mun viðgerð því bráðlega vera lokið. Þar fær Fræðslu- skrifstofa Reykjavfkur hús- næði til afnota og er þegar búið að taka efri hæðina í notkun. Vonandi halda borgaryfir- völd þeirri stefnu, sem tekin er, enda hlutverk þeirra að skapa gott fordæmi í þessum málum svo almenningi gefist kostur á að sjá og sannfærast um gildi þessara húsa og þau tengsl, sem þau skapa okkur við fortíðina. Attatíu hús grafin úr ösku í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjum 22. júlí frá Arna Johnsen Byrjað er að grafa upp hverfi með áttatiu húsum austan Helga- fellsbrautar í Vestmannaeyjum, en flest húsin þar hafa verið á kafi í ösku síðan í eldgosinu. Við- lagasjóður samþykkti fyrir skömmu að láta hreinsa gjallið á þessu svæði, en talið er, að það sé um hálf milljón rúmmetra. Búið er að hreinsa frá nokkrum hús- um, sem voru undir 6 metra gjall- lagi og eru þau mjög mikið skemmd, að lfkindum flest ónýt. Þó var kynlegt að sjá við eitt húsið, að vinnupallar, sem höfðu verið uppi fyrir gos, stóðu enn, er búið var að hreinsa öskuna af húsinu. Hreinsunin byrjaði fyrir fáum dögum og miðar mjög vel, en Istak, Bifreiðastöð Vestmanna- eyja og ámoksturstæki frá Bæjar- sjóði munu vinna að gjallhreins- uninni. Þegar búið verður að hreinsa þetta svæði, verður vænt- anlega hafizt handa við að byggja það upp, því að götur og lagnir í þeim eru óskemmdar, þótt flest húsin komi gjörónýt undan ösk- unni. Annars er mikill kraftur í einstaklingum í Vestmannaeyjum við uppbyggingu. W4S r>ca Simi-22900 Laugaveg 26 Sumarbústaðaeigendur \ Þessi vönduöu húsgögn / \ fara alstaöar vel / Bambushúsgögn fara vel á furugó/fum og með furuveggjum, njóta sín undir steinveggjum, veggjum úr Ijósum og dökkum viði og einnig með veggfóðri og málningu. Bambushúsgögn eru þar að auki þægileg og níðsterk. Létt og meðfæri/eg og þola mjög ve! ku/da og s/aga vetrarins. Bambushúsgögn eru þarað auki mjög viðráðanleg fjárfesting. Þér fáið mikið fyrir peninga yðar efþér kaupið bambushúsgögn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.