Morgunblaðið - 30.07.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.07.1974, Blaðsíða 1
135. tbl. 61. árg. ÞRIÐJUDAGUR 30. JtJLl 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Frá hátfðarsvæðinu á Efrivöllum. Fangbrekkan er þéttsetin áheyrendum, sem fylgjast með hátfðardagskránni f sólskininu. Myndina tók ljósmyndari Morgunbiaðsíns Ólafur K. Magnússon. Milli 55 og 60 búsund íslendingar á bióðhátíð á Þingvöllum; Þjóðhátíðarhaldið á Þingvöllum heyrði beint undir Ólaf Jóhannes- son forsætisráðherra og Morgun- blaðið spurði hann í gær, hvernig honum hefði þótt til takast. „Ég er mjög ánægður með þjóðhátfðina á Þingvöllum,“ svaraði forsætisráðhera, „og ég held, að hún hefði ekki getað tekizt öllu betur. Auðvitað átti veðrið sinn ríka þátt, en fólkið virtist einig f góðri stemmingu og einhuga og ég gat ekki betur séð en öll framkoma þess væri til fyrirmyndar. Allir, sem unnu að þessari þjóðhátíð, mega vera ánægðir og ég vil gjarnan þakka þeim öllum.“ Formaður þjóðhátíðarnefndar, Matthías Johannessen, tók mjög í sama streng, þegar Mbl. ræddi við hann. „Ég sé ekki betur," sagði Matthías, „en að þjóðhátfðin hafi breytzt í þjóðargleði. Fyrir það erum við öll þakklát. Framkoma fólksins á Þingvöllum var f sam- ræmi við helgi staðarins. Allir, sem við mig hafa talað, hafa sagt: Þessi dagur er ógleymanlegur. Það er mikil birta yfir þjóðhátíð- arárinu og allt hefur lagzt á eitt um að gera það eftirminnilegt. Ég vona, að þessi birta eigi eftir að fylgja þjóðinni." Yfirunisjón með framkvæmd þjóðhátíðarhaldsins hvíldi ekki hvað sízt á herðum Indriða G. Þorsteinssonar framkvæmda- stjóra þjóðhátíðarnefndar. „Eftir að hátíðin var farin af stað gekk þetta eins og af sjálfu sér og mað- ur varð nánast áhorfandi," sagði Indriði og vildi gera sinn hlut sem minnstan. „En ég er þakklátur öllu þessu fólki, sem gerði það Skipulagning hátfðarinnar var tii fyrirmyndar. Starfsmenn og hátfðargestir lögðust á eitt um, að hvergi yrði misbrestur á. Lögregluþjónninn hér er að vfsa piltinum á hjólhúsið, þar sem börn, er týnt höfðu foreldrum sfnum, höfðu samastað. Þannig var einmitt komið fyrir tclpunni á háhestinum. Framkoma gesta þjóðarsómi” ÞJÓÐHAtIÐIN á Þingvöllum verður lengi f minnum höfð. Þennan sunnudag tókst 55—60 þúsund tslendingum — um fjórðungi fslenzku þjóðarinnar — að minnast 11 aida afmælis Islandsbyggðar með einhverri ánægulegustu útihátfð, sem hér hefur verið haldin. Hinir, sem heima sátu, gátu fylgzt með hátfðarhöldunum f beinum útsendingum útvarps og sjónvarps. Allt lagðist á eitt um að gera þessa þjóðhátfð eftirminnilega. Meira að segja veðurguðirnar brugðu út af venjunni frá fyrri Þingvallahátfðum og skörtuðu nú sfnu fegursta — glampandi sólskini og hlýjum andvara. Mannfjöldinn á Þingvöllum naut prýðilegrar skipulagningar og fyrirgreiðslu, hinir fjölmörgu starfsmenn hátfðarinnar lögðu sig fram um að greiða hvers manns götu og fólkið sjálft virtist ákveðið f að láta ekki smámuni skaprauna sér og spilla hátfðarskapinu. Af einstökum atburðum þjóðhátfðarinnar ber vafalaust hæst fund Sameinaðs alþingis á Lögbergi, þar sem það samþykkti samhljóða f ásjá þúsunda Islendinga að greiða að nokkru leyti skuld kynslóðanna við landið og verja 1000 milljónum króna til uppgræðslu lands og gróðurverndar. 1 annan stað eru það ekki minni tfðindi, að á svo f jölmennri hátfð skyldu ekki verða nein meiri háttar slys eða óhöpp og framkoma og umgengni hátfðargesta óaðfinnanleg. Eða svo að notuð séu orð sr. Eirfks J. Eirfkssonar þjóðgarðsvarðar: „Framkoma gesta var þjóðarsómi.** mögulegt, að svo vel tókst til með þjóðhátíðina, þakklátur öllum þeim þúsundum hátíðargesta, sem voru samhentir um að láta hátíðina fara vel fram. Sérstak- lega verð ég þó að þakka starfs- fólki mínu hjá þjóðhátíðarnefnd, við vorum nú aldrei fjölmenn — þeim Dóru Egilson og manni hennar, sem afgreiddu skrár og merki allan daginn, Guðnýju Magnúsdóttur einkaritara mín- um, sendlinum Pétri Gunnarssyni og Karli K. Karlssyni, sem öll voru störfum hlaðin þennan dag. Þá verð ég að þakka hinum ýmsu stofnunum — pósti og síma, lög- reglunni og fleiri aðilum. A Þing- völlum var búin til borg eða svæði með allri aðstöðu borgarinnar. Allt kom inn á réttum tíma og á því byggist svona mikil hátíð og að menn séu reiðubúnir að leysa hluti, sem jafnvel eru óleysanleg- ir.“ Bjarki Elíasson yfirlögreglu- þjónn sagði, að hátíðin hefði tek- izt betur en hinir bjartsýnustu hjá lögreglunni hefðu þorað að vona. „Það hjálpaðist allt að,“ sagði hann. „Gott veður, góð skipulagning, góð umgengni og framkoma fólks. Allir þeir, sem á Framhald á bls. 27.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.