Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975 13 UMSJÓN: Bergljót Haildórsdóttir, Björg Einarsdóttir, Erna Ragnarsdóttir, Lilja Ólafsdóttir. Börnln okkar og vlð UM síðustu helgi fór fram ráð- stefna um dagvistun barna og forskólafræðslu. Að henni stóðu Rauðsokkahreyfingin og Fóstrufélag Islands. Flutt voru mörg framsöguer- indi og unnið í starfshópum, sem skiluðu áliti i lokin. Margt var rætt, bæði innan starfshópanna og fyrir opnu húsi og var ráðstefnan vel heppnuð og lofsvert framtak þeirra, sem að henni stóðu. Á þessari ráðstefnu kom fram, að hér á landi eru menn ekki enn á einu máli um gildi dagheimila og leikskóla. í ná- grannalöndunum er umræða af því tagi að mestu leyti um garð gengin, og snýst nú aðal- lega um, hvernig gera skuli dagvistunarheimilin sem bezt úr garði. Tímamót urðu í dagvistunar- málum okkar, "þegar lög um hiutdeild rikisins í byggingu og rekstri dagvistunarheimila voru samþykkt á Alþingi árið 1973. Fyrsta grein þeirra laga hljóðar svo: „Markmið með starfssemi dagvistunarheimila er að gefa börnum kost á að njóta handleiðslu sérmenntaðs fólks i uppeldismálum og búa þeim þau uppeldisskilyrði, er efli persónulegan og félagsleg- an þroska þeirra.“ Með dagvistun er, skv. 4. gr. sömu laga, átt við dagheimili, skóladagheimili og leikskóla. Margt styður þá skoðun, að dagvistun sé nútima börnum mjög æskileg. Aukin sérhæf- ing atvinnulifsins og breyttir iifnaðarhættir hafa í för með sér m.a. að börn eru ekki i náinni snertingu við daglegt atvinnulíf og ná ekki að skynja samhengið í tilverunni. Yfir- sýn þeirra er þess vegna ekki sú sama og áður var. Á dagvistunarheimili sitja þarfir barnsins í fyrirrúmi, borð og stólar eru i réttri hæð og leikvellir eru búnir tilheyr- andi tækjum. Börnin fá tæki- færi til frjálsra leikja og ekki er amast við fingramálningu, sem slettist á veggi. Þau læra ógrynni af söngvum og þulum og hlusta á sögulestur, þau skoða stofnanir og staði, svo sem slökkvistöð og þjóðminja- safn, fara i réttir og berjaferð- ir — skoða í búðarglugga fyrir jólin. Ferðalag með fóstrunum í strætisvagni er fyrir mörgum börnum hreinasta ævintýri. Börn njóta leiðsagnar við fönd- ur og leiki, sem eru uppbyggð- ir með það fyrir augum að þroska þau og þjálfa. A þann hátt fléttast saman nám og leikur. Ráðstefnugestir lögðu áherzlu á að velferð barnsins væri ávallt höfð að leiðarijósi og yrði ekki slitin úr tengslum við velferð allrar f jölskyldunn- ar. Staðreyndin er sú, að konur fara í vaxandi mæli til starfa utan heimilisins, og verður þeirri þróun varla snúið við. Samkv. könnun framkvæmda- stofnunarinnar árið 1970, byggðri á skattframtölum, kom í ljós, að yfir 50% giftra kvenna hér á landi afla tekna utan heimilis. Þetta vekur þá spurningu, hvar börn þessara kvenna séu niðurkomin á með- an þær eru að heiman. Eins og nú háttar eru þessi mál eflaust leyst að hluta með aðstoð vina og kunningja eða einkadagvistun og að hluta með dagvistunarstofnunum, sem fyrir hendi eru, þótt þær fullnægi yfirleitt engan veginn eftirspurn. Núverandi ástand er að sjálf- sögðu engin frambúðarlausn og ber tvennt til. 1 fyrsta lagi er ávallt nokkur hópur barna, sem óhjákvæmilega þarf á dag- vistun að halda og í öðru lagi verður, eins og áður er að vik- ið, sókn kvenna til áhrifa í þjóðfélaginu vart stöðvuð og fer því sá hópur barna vax- andi, sem nauðsynlega þarf á dagvistun að halda i einhverri mynd. Hins vegar ber að líta á þá staðreynd, að fæðingum fer nú fækkandi, sbr. að 1960 voru 28 fæðingar pr. 1000 konur, en tæpum áratug síóar voru þær aðeins 20 á sama fjölda. Konur mennta sig í æ ríkara mæli til starfa og það skapar þeim fjöl- breyttara líf, sem telja má að leiði til jákvæðra uppeldis- áhrifa á börn þeirra og ber að fagna þvi. Rætt var um mikilvægi 19. gr. laganna um dagvistunar- heimili, þar sem kveðið er á um að skylt sé að skipuleggja tengsl milli foreldra barnanna og dagvistunarheimilanna i þvi skyni að efla samstarf þess- ara aðilja um veiferð barnsins. Rik áherzla var lögð á nauðsyn góðrar samvinnu og gagn- kvæms trausts milli foreldra, fóstra og skóla. I því sambandi kom fram sú skoðun að leggja bæri áherzlu á að fá foreldra í auknum mæli til samstarfs við dagvistunarstofnanir þar sem börn þeirra dvelja, t.d. varð- andi undirbúning fyrir for- eldrafundi, gerð lóóar og endurnýjun leikvallar o.fl. Hér á landi hefur litið verið gert af því að blanda saman aldurs- flokkum svo sem systkinahóp- um, en i nágrannalöndunum, einkum Svíþjóð, hefur reynsl- an verið mjög góð af sliku fyr- irkomulagi. Einkum virðast yngstu börnin, 6 mán. og 1 árs njóta góðs af. Eindregið var mælt meó að horfið væri frá einhliða „sjúkrahúsfyrirkomulagi" á vöggutofum og tekið væri mið af niðurstöðum rannsókna og reynslu margra aðilja, sem sýna að samneyti smábarna við ■ eldri börn þroskar þau ungu og leiðir jafnframt til aukins skilnings og ábyrgðartilfinn- ingar þeirra eldri. Athyglis- vert er einnig, hve vel hefur tekist að sameina dagdeild og leikskóladeild, þar sem slíkt hefur verið gert. Athugasemdir merks upp- eldisfrömuðar vöktu athygli á ráðstefnunni. Benti hún á nauðsyn þess að uppræta hin skörpu skil, sem eru á milli skólastiganna þ.e. leikskóla, forskóla og grunnskóla. Einnig taldi hún að sameina mætti 5, 6, 7 og 8 ára deildirnar með mun frjálslegra fyrirkomuiagi en almennt tíðkast hér á landi og taldi eðlilegt aó bæði fóstr- ur og kennarar hefðu kennslu þessa hóps með höndum. „Skólaþroskinn" svokallaða áleit hún varhugavert fyrir- brigði. Kvað hún meira um vert að skólinn hefði „þroska“ til að taka við barninu. Barnið er skólaþroska, að hennar áliti. Vel má vera að i augum ein- hverra sé það efnahagsleg and- stæða að byggja sérstök hús til dagvistunar fyrir börn, meðan heimili hinna útivinnandi for- eldra standa auð. 1 því sambandi má benda á, að hér er á vissan hátt um hluta af lögboðinni skólagöngu að ræða, að vinnuafl kvenna getur nýtzt betur til að stuðla að aukinni verðmætasköpun, okkur öllum til hagsb'óta, auk þess sem dagvistunarheimili veita okkur, hverjum einstakl- ingi, karli jafnt sem konu, auk- ið frelsi til að ákveða sjálf hvernig við viljum haga lífi okkar og barna okkar. ERR Máltfð á dagheimilinu. ÞAU mistök urðu 1 s.l. viku að nafn Lucy Stone, höfundar greinarinnar „Vonbrigði eru hlutskipti kvenna“, féll niður ( fyrirsögn. Margir hafa sent nöfn fslenskra kvenna i skoðana- könnuninni um kvennaárs frf- merki, en frestur tii að senda tillögur rennur út um þessi mánaðamót. Niðurstöður verða birtar hér laugardaginn 8. mars n.k. Anægjulegt er að margar hugmyndir hafa borist utan af landi. Það skai tekið fram, að könnun þessi er al- gjörlega á vegum okkar, sem höfum umsjón með „1 tilefni kvennaárs". Aukapersónan? — Ég nenni ekki í þennan mömmuleik, sagði drengurinn. Þú getur þá verið pabbinn, hann fer bara á morgnana og kemur aftur á kvöldin, sögðu hin börnin. Samhengisskortur? — Ég vil mjólk úr ískskap, en ekki úr kú, sagði Reykjavíkurbarnið, þegar þaó kom á sveitabæ. Dýrafræðin? — Eggjadýrin elta mig — hljóðaði telpan og hljóp á harðaspretti undan hænsnunum. Á FUNDI Húsmæðrafélags Reykjavíkur s.l. mánu- dagskvöld var staða húsmóðurinnar til umræöu og í framhaldi af því beindist athyglin að rénandi tengsl- um yngstu og elstu aldurshópa þjóðfélagsins. Nokkrir fundarmanna töldu sig vita um fólk, sem farið væri að reskjast, en hefði vilja og löngun til félagsstarfa, ekki síst ef í því fælist samneyti við börn í einhverri mynd, t.d. á dagvistunarstofnun- um. Við ákveðið aldurstakmark er það hlutskipti margra að verða að láta af sínu eiginlega ævistarfi og reynist þá oft örðugt að finna ný viðfangsefni. Væri hér ekki kjörinn vettvangur fyrir ellilíf- eyrisþega? L.Ó.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.