Morgunblaðið - 03.04.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.04.1976, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3, APRlL 1976 ----------------------------——>—- Mikil íþróttahelgi Það verður mikið um að vera á íþróttasviðinu um helgina. Má þar nefna Norðurlandamót pilta í handknattleik, íslandsmeistaramótið í badminton á Akranesi, unglingameistaramótið á skíðum í nágrenni Reykjavíkur og auk þess ýmislegt annað. NORÐURLANDAMÓTIÐ Keppninni á Norðurlandamóti pilta, sem fram fer í Laugardalshöll- inni, verður fram haldið núna klukk- an 10, en keppnin hófst í gær- kvöldi Leikir mótsins um helgina verða sem hér segir Laugardagur kl 10 00 Noregur — Finnland ísland — Svíþjóð Laugardagur kl 15 00 Danmörk — Noregur ísland — Finnland Sunnudagur kl 10 00 , Danmörk — Finnland Svíþjóð — Noregur Sunnudagur kl 15 00 Finnland — Svíþjóð ísland — Danmörk Handknattleiksmenn aðrir en leik menn unglingalandsliðanna verða einnig á ferðinni um helgina Úrslit- in í 3 flokki kvenna og 4 og 5 flokki karla verða einnig um helgina Á sunnudaginn mætast Víkingur og Valur í undanúrslitum HSÍ Hefst sá leikur klukkan 21 00 í Laugardals- höllinni og má reikna með að þar verði barizt um rétt til að leika í Evrópukeppm bikarhafa næsta ár, því reikna verður með að íslands- meistarar FH komist í úrslitin, en þeir eiga að mæta KR í undanúrslit- unum Þá fer úrslitaleikurinn í ís- landsmóti 1 flokks fram á sunnu- daginn kl 20.00 í Laugardalshöll- inni og eigast þar við Valur og KR i «* * \<, Sigurður Haraldsson — tekst hon- um a8 ná islandsmeistaratitilinum frá Haraldi? BADMINTONFÓLK GISTIR AKRANES Á Akranesi hefst í dag kl 10 f.h. Islandsmótið í badminton og eru um 100 þátttakendur skráðir til leiks í mótinu að þessu smni, en aldrei áður hefur íslandsmót í badminton farið fram á Akranesi í dag fara fram leikir til undanúrslita, en á morgun fyrir hádegi fara undanúr- slitaleikirnir fram Klukkan 14.00 á morgun hefjast svo úrslitaleikirnir í hinum ýmsu flokkum Allir beztu badmintonmenn lands- ins eru meðal þátttakenda í mótinu og er líklegt að keppnin um verð- laun i a-fiokki muni helzt standa á milli þeirra TBR-mannanna Sigurðar Haraldssonar og Haraldar Kornelíus- sonar Erfitt er að segja fyrir um hvor þeirra sigrar, en síðast er þeir mættust — í Reykjavíkurmótinu — hreppti Sigurður sigurlaunin í tví- liðaleiknum koma fleiri til greina, t.d heimamennirnir Jóhannes Guð- jónsson og Hörður Ragnarsson. sem staðið hafa sig mjög vel í vetur Þess má geta í sambandi við Bad- mintonmeistaramótið að Badmin- tonráð Akraness hefur nýlega gefið út blað sem það kallar „Badminton- fréttir" Er það að miklu leyti helgað landsmótinu, en hefur einnig ýmsar fréttir og upplýsingar að færa Þá er i blaðinu ávarp frá Einari Mack for- manm BSÍ og Ríkharði Jónssyni formanni ÍA Rétt er að geta þess fyrir þá sem hug hafa á að fylgjast með íslands- mótinu í badminton að Akraborgin fer frá Reykjavík kl 10 i dag og síðasta ferð frá Akranesi í kvöld er klukkan 1 7 00 Á morgun fer Akra- borgin frá Reykjavík kl 10, en síðasta ferð verður klukkan 1 9 30 MEISTARAMÓT UNGL INGANNA Á SKÍÐUM Frá því var skýrt í blaðinu í gær að unglingameistaramót íslands á skíð- um færi fram í Bláfjöllum, Skálafelli, Hamragili og við Hveradali um helg- ina Verður keppt í hinum einstöku greinum sem hér segir: Laugardagur kl 13 00 í Skála- felli, stórsvig. Laugardagur kl 14.00 í Hveradöl- um, 5 km ganga 13—14 ára og 7 Vi km ganga 1 5— 1 6 ára Sunnudagur kl 1 3 00 í Bláfjöllum, svig Sunnudagur kl 14.00 i Bláfjöllum stökk Mánudagur kl 13 00 i Hamragili, flokkasvig Mánudagur kl 14 00 í Hvera- dölum, 3x5 km boðganga KNATTSPYRNUMÓT Reykjavíkurmótið í knattspyrnu hefst í dag á Melavellinum með leik Vals og Ármanns í meistaraflokki Byrjar leikurinn klukkan 14 00 Á mánudaginn kl 19 00 hefst svo leikur Fram og Þróttar á Melavellin- um Ný keppni knattspyrnumanna fer af stað í dag og nefnist hún „STÓRA BIKARKEPPNIN" Þátt í þeirri keppni taka Grótta, Selfoss, Stjarn- an, Víðir úr Garði og Þór frá Þorláks- höfn í dag leika Grótta — Stjarnan og Þór — Selfoss MIKIÐ BLAKAÐ ________UM HELGINA___________ Lokaleikir íslandsmótsins í 1 deild, úrslitaleikir í 2 deild, öld- ungamót og bikarkeppni eru meðal þess sem er á skrá hjá blakmönnum um helgina UMFL fær ÍS í heim- sókn austur á Laugarvatn í dag og hefst leikur þessara liða klukkan 14 00. Hafa Lauglælir ekki tapað leik á heimavelli og spurningin er hvort stórveldið ÍS kem&t ósigrað frá Laugarvatni í dag og þá um leið frá 1 deildarkeppninm í Hagaskólan- um hefst kl 1 4 leikur UMSE annað- hvort við Stíganda eða UBK, en þessi lið eru meðal úrslitaliðanna í 2 deild Á eftir þeim leik hefst öldungamótið og verður leikið til úrslita í a-riðli Á sunnudaginn hefst keppnin í Hagaskólanum á sama tima og verða síðustu leikirnir í 2 deild, Þróttur og Víkingur leika sinn síðasta leik í 1 deildinni í ár og loks mætast ÍS og UMSE í bikarkeppn inni Á Akureyri verða tveir leikir í 1 deildinni um helgina UMFB leikur við ÍMA í dag klukkan 16 og á morgun mætir ÍMA liði UMFL klukk an 1 5.30 Armenningar Árshátíð félagsins verður haldin á Hótel Sögu laugardaginn 10/4 og hefst með borðhaldi kl. 19:00 Skorað er á alla félagsmenn að mæta. Miðasala og borðapantanir í Brauðskálanum, Langholtsvegi 126, sími 37940 og í símum 30841 og 85649. BIKARMEISTARAR KR, aftari röð frá v: Guttormur Olafsson þjálf- ari, Björg Kristjánsdóttir, Sólveig Þórhallsdóttir, Salína Helgadóttir, Linda Jónsdóttir. Fremri röð frá v: Erna Jónsdóttir, Emilía Sigurðar- dóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Sólveig Sveinsdóttir og Jóna Kristjáns- dóttir. Fer Jón Sig. í alviiinunieiiiLskii SVO kann a5 fara að Jón Sigurðsson, körfuknatt- leiksmaðurinn snjalli úr Ármanni, haldi ! sumar til Englands og gerist leik- maður þar með liðinu Crystal Palace. Er lið þetta mjög sterkt og er t.d. komið í 8-liða úrslit I Evrópukeppni meistara- liða. í viðtali við Alþýðu- blaðið í gær segir Jón m.a. um þetta mál: „Ég hef tals- verðan áhuga á þessu boði og er nú verið að athuga fyrir mig með skóla, sem ég get stundað í Bretlandi samhliða æfingum." KR bikarmeistari kvenna KR-stúlkurnar urðu bikar- meistarar 1976. Þær léku gegn ÍR í úrslitaleik í fvrrakvöld, og sigruðu með 46 stigum gegn 42. Þetta var f 2. skipti sem Bikar- keppni kvenna er haldin, f fyrra sigraði Þór. IR hafði undirtökin í leiknum framan af, mesta forskot þeirra í fyrri hálfleik var 7 stig, en í hálf- leik 27:22. KR komst loks yfir um miðjan síðari hálfleik og þvi for- skoti hélt liðið það ser. i eftir var. Emilía Sigurðardóttir var stig- hæst hjá KR með 16 stig, Linda Jónsdóttir skoraði 11 stig og systir hennar Erna 7 stig. Hjá IR var Asta Garðarsdóttir stighæst með 25 stig, þar af 20 skoruð i fyrri hálfleik. En í síðari hálfleik tóku gömul meiðsli í baki sig upp og eftir það beitti hún sér litið. gk— Tvöfalt hjá Ármann i ÁRMENNINGAR urðu bikarmeistarar í körfuknattleik 1976, og þar með tókst þeim að sigra tvöfalt, þ.e. íslandsmót og bikarkeppni, en fram að þv! hafði slíkt aðeins gerzt einu sinni — KR 1974. Þar með lauk glæsilegasta keppnistimabili Ármanns í körfuboltanum, því auk þessa höfnuðu þeir ! 2. sæti i Reykjavíkurmótinu. Þetta var þvi glæsilegur endasprettur hjá „þremur gömlum" i liðinu, sem allir hætta nú að leika körfuknattleik með m.fl. Ármanns. Það eru þeir Birgir Birgirs, Hallgrimur Gunnarsson og Sigurður Ingólfsson, og voru þeir allir kvaddir með blómum af félögum sínum í leikslok bikarkeppninnar. En sigur Ármanns yfir UMFN í bikar- úrslitaleiknum í fyrrakvöld var langt frá þv! að vera auðsóttur Njarðvíkingarnir léku sinn langbezta leik á keppnistima- bilinu, ákveðnir i vörn og sókn, og það var ekki fyrr en á síðustu mínútum leiksins að Ármann hafði það af að tryggja sér sigurinn. Curtis Carter treður knettinum I körfuna I leik sfnum við Þóri Magnússon. Trukkurinn ósigrandi „TRUKKUR" Carter var í miklum ham á fjölum Laugar- dalshallarinnar í fyrrakvöld þegar síðustu leikirnir í Firma- keppni KKI voru leiknir. Þá lék hann tvo leiki, fyrst við Þóri Magnússon (Nýja Fasteignasal- an), sem sigraði í þessari keppni i fyrra, og í úrslitaleik við Stefán Bjarkarson, sem keppti fyrir Félagsheimilið Stapa. „Trukkurinn" sem keppti fyrir Körfuboltablaðið KÖRF- UNA sem er rit um körfu- bolta, gefið út af ungum áhugamönnum um körfuknatt- leik, var ekki í vandræðum með þessa mótherja sína. Hann nýtti hina miklu líkamsburði sína til fullnustu og það gaf honum sigur í keppninni, og verðlaunastyttu að auki sem hann tekur nú með sér heim til Kansas. gk- Það var Brynjar Slgmundsson, bak vörður UMFN, sem „gaf tóninn" strax í upphafi leiksins með tveimur langskot- um sem höfnuðu ! körfu Ármanns og þar með voru Njarðvíkingarnir komnir i gang Þeir léku fyrstu mfnútur leiksins alveg sérstaklega vel, og komu Ármenningum greinilega á óvart. Studdir áfram af fjölda áhorfenda sem komu í rútum sunnan úr Njarðvík kom- ust þeir sunnanmenn strax í 13:3 forustu og Ármenningar virtust ekki eiga svar, því hittni þeirra var afar slök ef Jimmy Rogers er undanskilinn. En þetta breyttist von bráðar og leikmenn Ármarins komu meira með I leikinn. Ármann hafði jafnað á 12 min og í hálfleik var staðan 43:42 fyrir UMFN Ármann komst síðan yfir i upphafi siðari hálfleiks, mest 7 stig, en um miðjan hálfleikinn leiddi þó UMFN 72:70 Þegar þrjár mín. voru til leiks- loka var jafnt 86 86, en þá kom vel i Ijós að Ármenningar eru vanari því að leika undir pressu eins og fylgdi þess- um leik, og þeir sigu örugglega fram- úr. Þeir nýttu færi sín og sóknir til fullnustu, á meðan Njarðvikingarnir æstu sig of mikið upp og skutu úr lélegum færum Lokatölur 98:89 fyrir Ármann, og glæsilegu keppnistimabili lokið Ef Jón Sigurðsson hefði leikið með UMFN i þessum leik hefði ekki þurftað spyrja að leikslokum. En þvi miður fyrir Njarðvikinga er Jón i Ármanni, og það var hann sem var maðurinn bak við sigur liðs síns. Jón var lengi í gang i þessum leik, en þegar hann var kom- inn af stað stóð ekkert fyrir honum Þá var Jimmy einnig mjög góður og hélt liðinu á floti lengi vel með sinni góðu hittni, auk þess sem hann hirti mikiðaf fráköstum. Auk þeirra má nefna Harald Hauksson og Birgi Örn, sem kvaddi með mjög þokkalegum leLk Þrátt fyrir ósigurinn var margt i þess- um leik hjá UMFN sem þeir geta glatt sig yfir Liðinu hefur greinilega farið mikið fram seinni hluta vetrar og þeir Njarðvikingar geta horft björtum aug- um fram til næsta keppnistimabils Lið með miðherja eins og Jónas Jóhannes- son sem er 2,03 m á hæð og hefur sýnt undraverðar framfarir i vetur, bak- verði eins og Kára og Brynjar, og þá Gunnar og Stefán er ekki á flæðiskeri statt í þessum leik var Jónas bestur þeirra þó ekki skoraði hann mikið, en hann var frábær i vörninni og gerði marga fallega hluti undir körfunum Brynjar byrjaði mjög vel en þegar hann fór að dala i siðari hálfleik tók Stefán Bjarkason við að skora og Kári stjórnaði spilinu vel. Ósigur er að visu alltaf ósigur, en þessi leikur var mjög góður hjá liðinu og áhorfendur fengu sannkallaðan bikarúrslítaleik. leik eins og úrslitaleikir eiga að vera Stighæstir hjá Ármanni: Jimmy Rogers 32, Jón Sig 30. Haraldur Hauksson 1 6. Björn Magnússon 8. Hjá UMFN: Stefán Bjarkason og Brynjar Sigmundsson 24 hvor, Gunnar Þorvarðarson 18, Kári Maris- son 10 Mjög góðir dómarar i þessum leik voru þeir Jón Otti Ólafsson og Hólm- steinn Sigurðsson. gk— Beztu leikmennirnir fá sérstök verðlaun Sú venja hefur verið rikjandi í sambandi við Norðurlandamót pilta í bandknattleik að verðlauna beztu leikmennina sérstaklega. Hafa blaða menn venjulega tilnefnt bezta sóknarmanninn, varnarmanninn og markvörðinn og svo verður einnig að þessu sinni. Verða verðlaun þessi afhen^ í lok Noðurlandamótsins i Laugardalshöllinni á sunnudaginn. Er Norðurlandamótið var haldið hér á landi árið 1971 var einn íslenumgur valinn bezti leikmaðurinn i sinni stöðu. markvörðurinn Guðjón Erlendsson úr Fram. Guðjón á nú orðið marga landsleiki að baki °g sömu sögu er að segja um þá leikmenn, sem fréttamenn völdu beztu sóknar- og varnarmennina i mótinu. Voru það Daninn Ole Eliassen, sem fékk varnarmannstitilinn enda vakti dugnaður hans og ósérhlífni verðskuldaða athygli. Siðan 1971 hefur þessi leikmaður leikið marga landsleiki og ávallt verið sami dugnaðarforkurinn. Sama er að segja um sænska piltinn Poul Peterson sem valinn var bezti sóknarmaðurinn. Hann hefur leikið nokkra landsleiki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.