Morgunblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1976
Sigurður Guðmundsson
Selfossi — Minning
Fædd 26. nóvember 1878.
Dáin 22. maí 1976.
Hinn 22. þ.m. andaóist Sigurður
Guðmundsson, frv. bankaritari á
Selfossi. 97 V< árs.
Með honum er gengínn einhver
besti og hugljúfasti heiðursmað-
ur. sem ég hefi kynnst á langri
ævi. Og þau kynni spanna meira
en hálfa öld. Sigurður var i blóma
aldurs sins þegar ég gerðist
barnakennari á E.vrabakka haust-
ið 1920. Þar vann ég svo nær
áratug. Sigurður var þá mikils
metinn borgari staðarins, átti allt-
af börn i skólanum og var stund-
um í skólanefnd. Hann var þvi
einn þeirra sem ég kynntist fyrst
á hinum nýja stað.
Það vita allir kunnugir, að við
barnakennararnir á Eyrabakka
vorum að brölta við að koma á
ýmsum nýjungum í skólastarfinu,
sem við töldum vera til góðs. Nýj-
ungar þessar vöktu athygli og
andmæli, eins og eðlilegt er um
allt nýtt og óþekkt Má þar til-
nefna félagsskap meðal barn-
anna. ferðalög, skemmtanahald,
,,litlu jölin", sýningar á vinnu
barnanna á vorin o.fl. Allt þetta
þ.vkir sjálfsagt nú, en var litt eða
ekki þekkt fyrir hálfri öld. En því
nefni ég þetta hér, að Sigurður
Guðmundsson var svo víðsýnn og
frjálslyndur. að hann skildi þessa
viðleitni okkar kennaranna og
studdí hana með ráðum og dáð.
Sama var að segja um hina elsku-
legu konu hans. Börn þeirra voru
líka hinir bestu skölaþegnar, sem
tóku þátt í starfinu af lífi og sál.
Þessi fjölskylda var okkur kenn-
urunum ómetanleg og ögleyman-
leg stoð í erfiðu starfi. Mér þvkir
v;ent um að segja þetta hér og
þakka hinum látna heiðursmanni
og fjölskyldu hans þessi löngu
liðnu ár, fyrir mína hönd og fé-
laga minna, enda þótt þau séu nú
horfin yfir móðuna miklu.
Vegna þessara gömlu kynna er
mér þvi Ijúft að verða við þeirri
ósk að minnast Sigurðar Guð-
mundssonar með nokkrum orðum
nú að honum látnum enda þótt ég
finni vanmátt minn til þess.
Minnugur er ég og þess, að vin-
áttu tengsl voru mikil milli
tengdafólks míns og fjölskyldunn-
ar í Stighúsi, tengdaforeldra Sig-
urðar, svo og konu minnar og
Stíghússystra. Voru þær allar
meðal hennar kærustu vina.
Sigurður Guðmundsson var
fæddur á Eyrarbakka 26. nóvem-
ber 1878. Foreldrar hans voru
Guðmundur bóksali, Guðmunds-
son, bókbindara Péturssonar að
Minna-Hofi á Rangárvöllum og
konu hans Ingigerðar Olafsdöttur
frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöll-
um. Mé>ðir Sigurðar og fyrri kona
Guðmundar bóksala var Ast-
riður Guðmundsdóttir bónda á
Sámsstöðum í Fljótshlíð Steins-
sonar.
Um Guðmund bóksala segir svo
í Isl. æviskrám: ,,Var skrifari hjá
Hermanni sýslumanni Jónssyni á
Velli 1874 — 79, barnakennari á
Eyrarbakka, síðan bókhaldari í
verslun Lefoliis þar og jafnframt
böksali. Vel að sér og hagmæltur.
Var riðinn við flest menningar-
mál á Eyrarbakka á sínum tíma,"
Astriður, móðir Sigurðar, var
og mikils metin kona, sem tók
þátt í menningarmálum staðarins
ásamt manni sínum. Hún andaðist
1904, sextug að aldri. Stofnaður
var sjóður til minningar um hana.
sem ber nafnið Ástriðarminning.
Alsystkini Sigurðar voru: (iuð-
mundur kaupmaður á Selfossi,
Asta, Halldóra, Ástmundur og
Hans. Þau eru nú öll látin. Hálf-
bræður Sigurðar eru Sveinn for-
stjóri í Héðni og Ástmundur full-
trúi hjá Stálsmiðjunni. Móðir
þeirra og siðari kona Guðmundar
bóksala var Snjólaug Sveinsdóttir
bónda í Bjarnastaðahlíð i Skaga-
firði.
Sigurður hlaut ágætt uppeldi
hjá ástrikum foreldrum. Hann
nam fyrst í barnaskóla Eyrar-
bakka en síðan hóf hann nám í
Lærða skólanum i Reykjavík
ásamt yngri bróður sinum, Hans
Bogöe. En hvíti dauðinn herjaði
þá í algleymingi á æskulýð ís-
lands og hjó stórt skarð í þessa
fjölskyldu. Þeir bræður veiktust
báðir áður en námi var lokið.
Yngsti bróðirinn, Ástmundur, tók
einnig veikina og andaðist árið
1900, tæplega 16 ára, Hans dó
1902 tæplega tvítugur, en Sigurð-
ur var sendur á heilsuhæli í Dan-
mörk. Þar dvaldi hann alllengi og
náði sæmilegri heilsu með því að
halda stranglega þær reglur, sem
slíkum sjúklingum voru settar.
En Sigurður hafði bæði vit og
viljaþrek til að halda þær reglur
og þess vegna gat hann von bráð-
ur hafið störf á ný. En nú snéri
hann sér að verslunarstörfum.
Hann mun hafa tekið við bóksölu
og póstafgreiðslustörfum af föður
sínum en aðalstarf Sigurðar varð
við Sparisjóð Arnessýslu, er þá
starfaði á Eyrabakka. Sá sjóður
sameinaðist útibúi Landsbankans
á Selfossi 1929 Eftir það gegndi
Sigurður bank aritarastarfi á Sel-
fossi fram yfir sjötugt.
Sigurður i'væntist 16. júní 1905
ungri og fallegri stúlku. Sigriði,
elstu dóttur Ólafs trésmiðs
Bjarnasonar i Stíghúsi á Eyrar-
bakka og konu hans Ingibjargar
+
Systir mín,
AÐALHEIÐUR
HALLGRÍMSDÓTTIR
frá Hvammi,
lézt á Bispebjerg Hospital 26
april s I Jarðarförin hefur farið
fram
Fyrir hönd vandamanna,
Theodóra Hallgrimsdóttir.
+
INGIMUNDUR Þ
INGIMUNDARSSON
frá Hólmavík.
andaðíst i Landspítalanum 30.
mai Jarðarförin auglýst síðar
Bórnin
Pálsdóttur. Ólafur var Skaftfell-
ingur að ætt. Áttu þau hjón mörg
börn og myndarleg og heimili
þeirra í fremstu röð. Ég veit að
Sigurður mun hafa talið sitt
mesta gæfuspor, þegar hann
kvæntist Sigríði. Hjónaband
þeirra varð líka með afbrigðum
farsælt og stóð lengur en dæmi
eru til, þar sem þau gátu haldið
upp á 70 ára brúðkaupsafmæli
fyrir tæpu ári. Þau voru bæði
samhuga og samhent um uppeldi
barna sinna og um öll menningar-
mál er til heilla horfðu í þjóðfé-
laginu. Þau voru unnendur kirkju
og kristindóms, ágætir starfs-
menn Góðtemplarareglunnar og
studdu með ráðum og dáð uppeld-
ismál og hollan félagsskap ung-
menna, sem fyrr er sagt.
Þessi eru börn þeirra hjóna tal-
in í aldursröð:
Baldur, járnsmiður, f. 1906,
kvæntur Ingibjörgu Heiðdal. Guð-
mundur, járnsmiður, kvæntur
Ástu Hjálmtýsdóttur. Ástríður,
gift Lúðvík Guðnasyni, kaup-
manni, sem nú er látinn. Hlíf, gift
Guðmundi Böðvarssyni, kaup-
manni. Ólafur matreiðslumaður,
fyrr kvæntur Soffíu Þorkelsdótt-
ur. Páll, verslunarmaður, kvænt-
ur Ingigerði Þorsteinsdóttur.
Geirmundur, járnsmiður, kvænt-
ur Fanneyju Ófeigsdóttur. Garð-
ar, rafvirki, kvæntur Ingu Bene-
diktsdóttur. Ingibjörg, gift Guð-
jóni Karlssyni bílstjóra. Sólrún, f.
1926, gift Sigurði Ásbjörnssyni,
kaupmanni.
Dæturnaf eru búsettar á Sel-
fossi, nema Ingibjörg. Hún og
bræðurnir allir eru búsett i
Reykjavik. Barnabörn eru 30 allt
og í þriðja lið eru komin 29 börn,
alls 69 afkomendur. Allt er þetta
hraust fólk og myndarlegt. Það
vekur eftirtekt, að allir afkom-
endur Sigurðar eru á lifi. Það
mun sjaldgæft að ættfaðirinn
sjálfur hnigi fyrstur í valinn, af
svo stórum hópi, nær tiræður að
aldri.
Það orkar ekki tvímælis, að
þjóðfélagið stendur í mikilli
þakkarskuld við umrædd hjón,
sem ala upp svona marga og
ágæta þegna og skapa fyrirmynd-
ar heimili, því að góð heimili, eru
jafnan traustustu stoðir hvers
þjóðfélags, hvað sem öllum nýjum
kenningum líður. En þegar heim-
ili þessara hjóna er nefnt veit ég
að fjölskyldan vill ekki að gleymt
sé Ásu yngri, systur Sigríðar
sem alla tið hefir dvalið á heimil-
inu og verið önnur hönd systur
sinnar, elskuð og virt af allri fjöl-
skyldunni. Og nú veitir hún heim-
ilinu forstöðu þrátt fyrir háan
aldur.
Sigurður var mjög vel gefinn
maður, viljasterkur, virðulegur
og háttprúður i allri framgöngu,
vinsæll og vel metinn, eins og sagt
var um föður hans. Félagslyndur
var hann og komst þvi ekki hjá að
vera i forystu i sveit sinni, þó hér
verði ekki allt talið. Hann var
lengi í stjórn Sparisjóðs Árnes-
sýslu, i skólanefnd, hreppsnefnd
o.fl. o.fl. Póstafgreiðslumaður var
hann á Eyrarbakka frá þvi í byrj-
un aldarinnar og þar til póstur og
sími voru sameinaðir árið 1942.
Smáverslun hafði hann og nokkur
ár. Heimili þeirra hjóna var á
+
Hjartkær sonur okkur og bróðlr
RAGNAR FRANKLÍN
GUÐMUNDSSON
lézt af slysförum, föstudaginn
28 ma!
Guðmundur Frankllnsson
EIFsabet Kristófersdóttir
GuSný Helga Órvar.
Bróðir okkar + GUÐNI ÓLAFSSON
apótekari
Lynghaga 6, Reykjavik
lézt að heimih sinu sunnudaginrr 30 mai s I Systkinin
+
Eigmmaður mmn. faðir okkar. tengdafaðir og afi
ALFREÐ GÍSLASON
fyrrv. bæjarfógeti i Keflavík
andaðist 30 þ m
Vigdís Jakobsdóttir
Gisli Alfreðsson Anna Jóhanna Alfreðsdóttir
Guðný Árdal Finnur Björgvinsson
Elfa Gisladóttir
+ Móðir okkar. tengdamóðir og amma
INGIBJORG JÓNSDÓTTIR
Grettisgötu 94,
verður jarðsungm frá Fríkirkjunm i Reykjavik i dag, þriðjudagmn 1 júni
kl 3
Guðlaugur Ólafsson Hrafnhildur Kristjánsdóttir
Jón K Ólafsson Hanna Bachmann
Þóra Runólfsdóttir og barnaböm.
Æt* * + ~
Hjartkær móðir okkar og stjúpmóðir
MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR, Þjórsárgötu 6, verður jarðsungin frá Dómkirkjunní í Reykjavík miðvikudaginn 2 júní kl 13 30e h
Ingibjörg Hjálmarsdóttir, GuSrún Hjálmarsdóttir Waage, Kristín Helga Hjálmarsdóttir, Egill Hjálmarsson, Ólöf Hjálmarsdóttir. Halldór Hjálmarsson, Hörður Hjálmarsson, Margrét Hjálmarsdótt'r, Þorsteinn Hjálmarsson,
Lokað í dag, þriðjudag
kl 14.30 — 16.30 vegna jarðarfarar Ingi-
bjargar Jónsdóttur
Gluggatjöld
Laugavegi 66.
Eyrarbakka þar til 1947, að þau
fluttust að Selfossi. Þar bjuggu
þau í sama húsi og Astriður dóttir
þeirra og hennar fjölskylda. Var
þeim það bæði til gagns og gleði
þar sem þau voru orðin aldur-
hnigin. Og ekkert er dýrmætara
öldruðu fólki en dvelja í skjóli
góðra barna.
En nú dregur að sögulokum. Eg
hygg að Sigurður hafi átt friðsæla
ellidaga, við hlið ástkærrar eigin-
konu og umvafinn ástúð annarra
ástvina. Hann hélt andlegu þreki
til hins síðasta.
Ég vil enda þessar línur með
því að senda frú Sigríði og ástvin-
um hennar öllum innilegar sam-
úðarkveðjur og þakka fyrir ævi-
langa vináttu og tryggð.
Sigurður Guðmundsson gleym-
ist aldrei þeim, er náðu að kynn-
ast honum.
Blessuð sé minning hans.
Ingimar H. Jóhannesson.
Að liðnum
meðgöngutíma
Það hefur löngum verið ljóst, að
sósíalistar eða hinn róttækari
armur þess, sem almenningur i
daglegu tali kallar kommúnista
hefur um áraraðir gengið með
vopnbeitingar hugmyndina og
nú er meðgöngutíminn liðinn
og stofnaður hefur verið
kommúnistaflokkur íslands með
það í huga að sameina verkamenn
og smábændur. Já og í þeim til-
gangi að gera byltingu með
vopnavaldi. Nú er að þeirra dómi
kominn tími til vopnaburðar að
mati þessara vina íslands, enda
víst ekki seinna vænna þar eð
vopnaburður á íslandi hefur ekki
að marki verið tíðkaður síðan á
Sturlungaöld. Já, vopnaburður á
íslandi. Skyldi ekki einhverjum
smábóndanum og verkamannin-
um þykja vá fyrir dyrum? Það er
ég alveg viss um, að þeir verða
stirðir í taumi að eiga að stunda
vopnaburð i hjáverkum. Því að
varla getur verið að hermennskan
verði aðalstarf svo að þetta hefur
verið eins og mér hefur alltaf
dottið í hug. En það er nú kannski
öðru máli að gegna hjá ykkur.
Þetta á sem sagt að framkvæmast
að Chilenskri fyrirmynd. Það
sennilega hentar vel hér á
islandi. Leyfist mér að spyrja
einnar spurningar. Er máistaður-
inn eða stefnan svo slæm að vopn
þurfi til að koma stefnumálum
flokksins fram. Það er næsta
furðulegt hvaða höfuðóra sumir
menn geta gengið með. Að ætla
sér að hervæða islenska alþýðu.
Nei, en slíkt gerist ekki hér á
islandi i dag. Alþýða þessa lands
mótmælir öllu vopnaskaki. Hún
mótmælir kommunistaflokknum.
Hún mótmælir öllum falsspá-
mönnum og kallar landvætti sér
til varnar. islensk alþýða ann
landi og þjóð en fordæmir land-
níðinga. Gjör rétt. Þol ei órétt.
Ólafur Vigfússon,
Hávallagötu 17
Reykjavlk.
útfarasKreytlngar
Groóurbusió v/Sigtun simi 36770
S. Helgason hf. STEINIOJA
llnholti 4 Slmar 24477 og 14254