Morgunblaðið - 09.06.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.06.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUK 9. JUNÍ 1976 Engar viðræður við útvarpsmenn Málið lagt fyrir kjaranefnd í dag ENGAR viðræður hafa farið fram milli fulltrúa Starfsmannafélags útvarpsins og fjármálaráðu- neytisins vegna sérkrafna starfs- Sauðárkrókur: Fundur for- sætisráðherra verður í kvöld GEIR Hallgrfmsson, forsætisráð- herra, efnir til fundar í félags- heimilinu Bifröst á Sauðárkróki f kvöld kl. 20.30 og er fundurinn öllum opinn. Mun forsætisráð- herra halda ræðu og svara fyrir- spurnum fundargesta. Þetta er fyrsti fundurinn af fjölmörgum, sem forsætisráðherra mun efna til með fbúum í hinum ýmsu kjör- dæmum landsins, en næsti fund- ur verður á Blönduósi annað kvöld, fimmtudagskvöld kl. 20.30. Á föstudag heldur forsætisráð- herra fund á Húsavík og á laugar- dag á Akureyri. fólks útvarpsins en að sögn Dóru Ingvadóttur, formanns Starfs- mannafélagsins, er nú af þeirra hálfu verið að undirbúa tiltekin gögn til að leggja fyrir kjara- nefnd. Yfirvinnubann útvarps- manna verður eftir sem áður f gildi og hafði það þau áhrif um hvftasunnuna að engar fréttir voru f útvarpinu hvorki á sunnu- Framhald á bls. 47. Þórólfur Gunnar Tryggvason 23 ára gamall maður drukknaði í Núpá Akureyri 8. júní. ÞÓRÓLFUR Gunnar Tryggvason, 23 ára, drukknaði í Núpá f Sölva- dal, aðfararnótt hvítasunnudags. Hann var einhleypur og til heim- ilis hjá foreldrum sfnum á Litla- Hamri f Öngulsstaðahreppi. Hann lætur eftir sig þriggja ára gamlan son. Átta menn fóru með fjárrekstur fram á afrétt á laugardagskvöld, og var Þórólfur meðal rekstrar- manna. Þeir voru á heimleið og komnir norður fyrir eyðibýlið Kerhól f austanverðum Sölvadal um klukkan 2,30 um nóttina þegar Þórólfur heitinn tók sig útúr hópnum og reið niður að ánni, þar sem venjulega er vað, beint á móti Draflastöðum, en á þeim bæ býr fólk, sem Þórólfur heitinn þekkti vel. Áin var í hrokavexti þessa nótt og á þessum slóðum fellur hún í þröngum gljúfrum með iðum og straumköstum. Þórólfur hafði tvo til reiðar og komst klakklaust út f miðja ána, en þar hreif straumur- inn hesta og mann og færði allt í kaf. Þeim skaut upp litlu neðar og þá hékk I Slfur enn í hestinum, en sökk svo aftur og hvarf. Hestarnir komust lifandi í land. Einn rekstrarmanna gerði til- raun til að ná Þórólfi neðar i ánni en það var vonlaust. Rekstrar- mennirnir hófu þegar leit og einnig voru Flugbjörgunarsveitin og hjálparsveit skáta á Akureyri fengnar til aðstoðar. Lík Þórólfs fannst svo um klukkan hálf niu á hvítasunnudagsmorgun, skammt frá Melgerði, þar sem Núpá fellur í Eyjafjarðará, um 9 km frá slys- staðnum. Sv. P. Landshappdrætti S j álf stæðisflokksins (Ljósm. Mbl.Ól.K.M.) Farþegar Sunnu sem fóru með flugvél Arnarflugs til Malaga á laugardag en nýstúdentar úr Verzlunar- skólanum voru þar f jölmennir. lM Ljósm.: Emilía. ÞESSI brúðhjón koma úr sitthvorri áttinni. Hann kemur frá Bandaríkjunum, en hún frá Danmörku. Þau k.vnntust á Islandi og gengu í heilagt hjóna- band í Mosfellskirkju laugardag fyrir hvítasunnu. Hún heitir Gitte Nielsen og er dóttir sendiherra Dana á tslandi, en hann heitir Richard Irving og er sonur fyrrum sendiherra Bandaríkjanna á tslandi. V-þýzkur togari var sviptur veiði- réttindum hér við land Yfir 60 erlend skip á veiðum YFIR 60 erlend fiskiskip voru hér við land f gær samkvæmt upp- lýsingum formælanda Land- helgisgæzlunnar. Þar á meðal voru 24 brezkir togarar og var 21 þeirra á veiðum úti af Vestfjörð- um á svæðinu frá Straumsnesi að Víkurál en þrír voru fyrir austan landið, þar af einn á siglingu. Varðskipsmenn hafa undan- farna daga farið um borð í mörg innlend og erlend fiskiskip og kannað veiðarfærabúnað þessara skipa. Ekkert athugavert hefur komið i ljós nema um borð í ein- um v-þýzkum togara — Bremer- haven — en sá reyndist vera með klæddan vörpupoka. Eftirlitsmað- ur frá þýzku aðstoðarskipi fór um borð í togarann og staðfesti hann mælingar varðskipsmanna. Verð- ur Bremerhaven þar með strikað- ur af skrá yfir þau skip sem hér við land mega veiða. Alls var í gær hér við land 21 v-þýzkur togari, vart varð Við einn belgískan togara og tvo færeyska auk þess sem allmargir færeyskir og norskir fiskibátar voru að veið- um hér við land. Þyrlur sóttu hrakta og sjúka útlendinga upp á hálendið SLYSAVARNAFÉLAGINU barst tvfvegis aðstoðarbeiðni um hvfta- sunnuna vegna erlendra ferða- langa f óbyggðum tslands, og voru þyrlur fengnar til að sækja fólkið f bæði skiptin. Að því er Hannes Hafstein, framkvæmdastjóri SVFl, tjáði Mbl. í gær, var það á laugardag að Slysavarnafélaginu barst beiðni um aðstoð um Hveravelli vegna fjögurra útlendinga sem lent höfðu í hrakningum þar ekki alls fjarri. Voru þetta Svisslendingur, Austurríkismaður og tveir Þjóð- verjar sem ætluðu fótgangandi norður Kjöl til Blönduóss. Þeir komu til Hveravalla á föstudag eftir erfióa göngu allt frá Sandá en héldu síðan sem leið liggur norður eftir. Gekk sú ferð greiðlega allt þar til þeir komu að Seyðisá. Var flóð í henni og straumur mikill en útlendingarn- ir freistuðu þess þó að fara yfir ána í bandi. Þegar til kom reynd- ist áin of straumþung svo að þeir fóru á bólakaf i ánni og náðu landi við illan leik, einn þeirra brákaður á mjöðm en annar með meiðsli á hné. Af hálfu SVFl var kannað hvort nokkur farartæki væru nægilega nærri til að sækja menn- ina en í ljós kom að það yrði of seinlegt, svo að varnarliðið var fengið til að senda þyrlu eftir mönnunum og flutti hún þá til borgarinnar. Á hvítasunnudag barst SVFÍ sfðan hjálparbeiðni frá langferða- bifreið frá Guðmundi Jónssyni, sem var uppi við Drekagil. I bíln- Framhald á bls. 47. DREGIÐ var hjá borgarfógeta f landshappdrætti Sjálfstæðis- flokksins 4. júnf s.I. Upp komu eftirtalin vinningsnúmer: Nr. 35291 Kanarfeyjaferðir Flugleiða fyrir 2. Nr. 74167 Kanaríeyjaferðir Flugleiða fyrir 2. Nr. 29133 Kanarleyjaferðir Flugleiða fyrir 2. Nr. 231 Til New York með Flugleiðum fyrir 2. Nr. 3505 Mallorkaferðir Urvals fyrir 2. Nr. 19440 Mallorkaferðir Urvals fyrir 2. Nr. 57877 Mallorkaferðir Urvals fyrir 2. Nr. 27804 Mallorkaferðir Urvals fyrir 2. Nr. 37841 Ibizaferðir Urvals fyrir 2. Nr. 74623 Ibizaferðir Urvals fyrir 2. Nr. 46867 Ibizaferðir Urvals fyrir 2. Nr. 50789 Ibizaferðir Urvals fyrir 2. Nr. 1676 Til Kaupmannahafnar með Flugieiðum fyrir 2. Nr. 74116 Til London með Flugleiðum fyrir 2. Eigendur ofantaldra vinningsmiða framvfsi þeim f skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Bolholti 7, Reykjavfk. (FróttatilkynningJ Arnarflug fór fyrstu ferð- ina fyrir Sunnu til Malaga NYJA flugfélagið — Arnarflug — flaug utan með fyrstu farþega sfna sl. laugardag. Var flogið til Malaga með farþega á vegum ferðaskrifstofunnar Sunnu. Að sögn Gunnars Þorvaldssonar hjá Arnarflugi eru fastar leigu- ferðir félagsins að hefjast um þessar mundir. Flugvél félagsins flytur t.d. reglulega sólarlanda- farþega Sunnu og Samvinnuferða en auk þess eru inn á milli leigu- ferðir með einstaka hópa. T.d. kemur flugvélin í næstu viku með farþegahóp frá Dusseldorf fyrir þýzka ferðaskrifstofu og er áætlað að þaðan verði reglulegar ferðir hingað til lands með ferða- mannahópa á hverjum laugardegi i sumar. Einnig eru í ráði ferðir með iþróttamannahópa og sitt- hvað fleira kvað Gunnar félagið vera með í takinu. Þegar flugvélin fór í sína fyrstu ferð var hún að koma beint úr skoðun og var þvi verki raunar ekki alveg lokið, þvi að enn er eftir að mála flugvélina algjör- lega og ganga frá merkingum. Verður lokið við það þegar vélin kemur heim aftur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.