Morgunblaðið - 06.11.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.11.1976, Blaðsíða 1
258. tbl. 63. árg. LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Plains 5. nóv. — Reuter. NVKJÖRINN forseti Bandarfkj- anna, Jimmy Carter, ætlar að halda fjarlægð sinni gagnvart Washíngton þann tfma, sem er þangað til hann tekur við forseta- embættinu 20. janúar. Sagði hann á fyrsta blaðamannafundi sfnum sfðan hann var kjörinn, að hann ætlaði að halda sig að mestu f heímabæ sfnum, Plains, en fara aðeins skyndiferðir til Washing- ton. Hann sagði á blaðamannafund- ínum, að hann ætlaði að vera dug- legur við að efna kosningaloforð sfn. Kvað hann sigur sinn, þð tæp- ur hefði verið, sýna að hann nyti vfðtæks stuðníngs meðal banda- rlsku þjóðarinnar. Carter sagðist ætla að hafa nýj- an hátt á við val ráðherra stjórnar sinnar. Sagðist hann vilja að menn gæfu sig fram i æðstu störf- in, eins og störf utanríkisráðherra eða varnarmálaráðherra, og ynnu sfðan með helztu ráðgjöfum hans, svo að hann gæti kynnzt þeim áður en hann tæki lokaákvörðun um mannaval sitt. Um utanrfkismál sagði Carter að hann gæfi ekki út neinar yfir- lýsingar áður en hann hefði kann- að núverandi ástand utanríkis- mála Ford-stjórnarinnar. Sagðist hann vonast til að geta átt tveggja daga fund með sérfræðingum Fords f utanríkismálum innan fárra vikna. A þeim fundi væri viðeigandi fyrir sig að lýsa þvf yfir að utanrfkisstefna sfn yrði f samhengi við fyrri stefnu Banda- ríkjanna. Hann kvaðst gera sér það ljóst, að ýmsar erlendar rfkisstjórnir Kulakov biðlar til Kínverja nóvember. Moskvu, Reuter. FYODOR Kulakov, lfklegur arftaki Leonids Brezhnevs, sagði f dag á árlegum fundi til minningar um októberbylting- una, að það væri „óafsakanlegt og óeðlilegt“ að Rússar og Kín- verjar hefðu ekki haft vinsam- leg samskipti í 15 ár. I fyrsta skipti í 10 ár að talið er gengu Kínverjar ekki af slíkum fundi. Kínverskir diplómatar klöppuðu meira að segja þegar Kulakov hafði lok- ið máli sfnu. Fyrr í dag sendi Nikolaí Podgorny forseti Jimmy Cart- er, nýkjörnum forseta Banda- rfkjanna, skeyti þár sem hann lét í ljós von um að vinsamleg samskipti Rússa og Bandaríkja- manna mættu haldast. EBE semur víð Bandaríkin Bríissel, 5. nóvember. AP. BANDARÍKIN og Efnahags- bandalagið hefja viðræður á mánudag um undanþágur handa sjómönnum frá Vestur-Evrópu til veiða I bandarlskri fiskveiðilög- sögu eftir útfærslu hennar ( 200 mllur 1. marz. Formaður bandarfsku senda- nefndarinnar verður Robert Morris, annar æðsti maður bandarísku sendinefndarinnar PLO hafnar manni Sarkis Beirút, 5. nóvember. Reuter. FRELSISSAMTÖK Palestfnu (PLO) neituðu I dag að fallast á skipun Ahmed Al-Haj ofursta I stöðu yfirmanns öryggissveita Arabalandanna I Llbanon þar sem samtökin virðast óttast að hann verði ekki hlutlaus f átökun- um I landinu. Elias Sarkis forseti skipaði Al- Haj yfirmann sveitanna sem verð- Framhald á bls. 18. hjá EBE. Formaður sendinefndar EBE verður Eamon Gallagher, að- alráðunautur f utanrfkisdeiid Framhald á bls. 18. hefðu áhyggjur af utanrikis- stefnu Bandarfkjanna þann tíma, sem er til þess að hann tekur við embætti. Hann sagðist hafa beðið leyniþjónustuna, CIA, um skýrsl- ur um erlend viðbrögð við kosn- ingu sinni. Aðspurður um möguleikann á því að olfuframleiðsluríki hækk- uðu olfuverð, sagði hann að slfk hækkun yrði alvarleg fyrir oliu- innflutningslönd en hann lagði áherzlu á að Ford væri ábyrgur fyrir þvf hvort diplómatisk her- ferð yrði hafin til að reyna að koma í veg fyrir olíuhækkun en við henni er búizt á fundi sam- taka olfuútflutningslanda, OPEC, f desember. Hann var spurður um þau orð, Framhald á bls. 18. Jimmy Carter á fyrsta blaðamannafundi síntim slðan hann var kjörinn forseti. Callaghan þrauk- ar eftir ósigrana London, 5. nóvember Reuter JAMES Callaghan forsætisráð- herra lýsti yfir þeim ásetningi stjórnar sinnar I dag að þrauka þrátt fyrir slæma útreið, sem Verkamannaflokkurinn hefur fengið I þrennum aukakosning- um og hefur leitt til þess að hann hefur aðeins eins atkvæðis meiri- hluta I Neðri málstofunni. Breytingar hafa aldrei orðið eins miklar á fylgi flokka I auka- kosningu I 40 ár. Ihaldsflokkur- inn sigraði I þremur kjördæmum, sem hafa yfirleitt verið örugg Verkamannaflokkskjördæmi. Margaret Thatcher, leiðtogi Ihaldsflokksins var sigri hrós- andi, skálaði f kampavfni og sagði að stjórnin væri að falli komin og yrði að efna til þingkosninga hið fyrsta. Bollaleggingar eru þegar hafnar um nýjar kosningar og jafnvel talið að kosningar verði haldnar í febrúar eða mars. James Callaghan viðurkenndi f yfirlýsingu að hann væri von- svikinn en sagði að úrslitin mundu hvergi bifa þeim ásetningi stjórnarinnar að halda áfram viðreisnarstarfi sínu. Sjaldan eða aldrei hefur forsætisráðherra verið eins fljotur að gefa yfir- lýsingu vegna aukakosninga og það þykir sýna að stjórnin telji sig hafa orðið fyrir miklu áfalli og verða að fullvissa erlendar ríkis- stjórnir um að hún sé ennþá uppi- standandi. Mesta sigur sinn vann Ihalds- flokkurinn f kjördæmi John Stonehouse fyrrverandi ráðherra sem var dæmdur í sjö ára fangelsi í ágúst fyrir fjársvik — Walsall North á Mið Englandi. Þar fékk thaldsflokkurinn 43,3% atkvæða en Verkamannaflokkurinn 31,6% en innan við helmin.^ur kjósenda greiddi atkvæði. í Workington á Norður- Englandi hlaut thaldsflokkurinn 48,2% en Verkamannaflokkurinn 45.6% og þrir fjórðu kjósenda greiddu atkvæði. í Newcastle hélt Verkamanna- flokkurinn þingsæti sfnu og hlaut 47% atkvæða. thaldsflokkurinn hlaut aðeins 19% en vinsæll fram- Framhald á bls. 18. Sexbura- fæðing Naþoli, 5. nóvember. AP. 28 ARA gömul kona f Napoli, Pasqualina Chianese, ól sexbura i dag, fjórar stúlkur og tvo drengi, en þrjár stúlkn- anna Iétust tveimur tfmum eft- ir fæðingu. Móðurinni heilsast vel. Hún hafði tekið frjósemis- íyf Um 25 sexburafæðingar hafa verið skráðar á þessari öld. Aðeins einu sinni er vitað til þess, að allir sex hafi lifað. Það var þegar Susan Rosenkowitz ól þrjá drengi og þrjár stúlkur 11. janúar 1974 I Höfðaborg. Frú Margaret ThateKer, leiðtogi merki eftir sigur flokks slns I þingrofs og nýrra kosninga. brezka Ihaldsflokksins, gefur sigur- aukakosningunum. Nú krefst hún Haf na f relsi í Rhódesíu 1978 Genf, 5. nóvember. AP. Reuter. BLÖKKUMANNALEIÐTOGINN Joshua Nkomo hafnaði I dag til- lögu Breta um að Rhódesla fengi sjálfstæði I marz 1978, krafðist þess að meirhluti blökkumanna fengi völdin innan árs og sakaði Breta um að reyna að kaupa frið við stjórn hvfta minnihlut ans. Bandamaður Nkomos á ráð- stefnunni, Robert Mugabe, hótaði að hætta þátttöku sinni í ráðstefn- unni ef ákveðið yrði að Rhódesfa fengi sjálfstæði í marz 1978. Hinir blökkumannaleiðtogarnir á ráð- stefnunni, Abel Muzorewa biskup og séra Ndabaningi Sithole, vísuðu einnig tiilögunni á bug. Nkomo sagði að brezka tillagan gerði ráð fyrir töf sem gæti haft öngþveiti í för með sér. Hann sagði að blökkumenn í Rhódesíu „hefðu beðið i 86 ár eftir sjálf- stjórn. Við lifum i suðupotti i Rhódesiu og þrír mánuðir eru eins og þrjú ár.“ Hann sagði að Framhald á bls. 18. Carter sýnir gát í utanríkismálum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.