Morgunblaðið - 07.11.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.11.1976, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR TVÖ RLÖÐ 259. tbl. 63. árg. SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Israelsk árás á Suður-Líbanon friðurinn úti í Beirut Beirut 6. nóv. — Reuter. TALSMAÐUR Ifbanska Araba- hersins sagði f morgun, að mörg ísraelsk skip hefðu ráðizt á hafn- arborgina Sidon f Suður-Lfbanon en verið fiæmd burt. Þrjú önnur skip renndu upp að Zahrani- olfuhreinsunarstöðinni, sem er skammt frá Sidon. Setti eítt skip- anna út gúmfbáta að sögn tals- mannsins. Sagði hann, að Ifbansk- ir hermenn hefðu skotið á þá og sökkt einum bátnum en hinir hefðu komið honum til aðstoðar. Bardagar stóðu enn yfir um há- degi. Lfbanski Arabaherinn klauf sig út úr her Lfbanons eftir að borgarastrfðið hófst. Nokkuð dró úr tiltrú manna að að vopnahléið, sem staðið hefur í Líbanon f 17 daga, gæti haldizt eftir að mikil skothríð var gerð á ibúðarhverfi í Beirut og barizt var á götum í nótt. Sprengikúlum 889verkamenn skrifa Gierek Varsjá, 6. nóvember. Reuter. VERKAMENN f dráttarvélaverk- smiðju skammt frá Varsjá hafa skorað á Edvard Gierek flokks- leiðtoga að sjá til þess að þrfr vinnufélagar þeirra, sem voru reknir eftir mótmælaaðgerðir verkamanna f júnf, verði endur- ráðnir. 1 bréfi sem 889 verkamenn rita nöfn sín undir segir að missir þriggja reyndra vinnufélaga hafi valdið erfiðleikum i framleiðslu verksmiðjunnar. Rúmlega 200 verkamönnum var sagt upp eftir eins dags verkfall 26. júni þegar þúsundir manna lokuðu járn- brautarlínum suður og vestur af Varsjá til að mótmæla hækkuðu verði á matvælum. Efni bréfsins var kynnt vest- rænum fréttamönnum einum degi eftir að það var sent Gierek. Áður hafa pólskir stjórnarand- stæðingar í Varsjá og franskir Unesco: Fresta ákvöróun um frelsi blaða Nairobi 6. nóvember — Reuter. VESTRÆNUM rfkjum tókst f dag að fá afgreiðslu ályktunar um blaðafrelsi frestað f tvö ár, en ályktunin hefur verið heitasta málið, sem liggur fyrir ráðstefnu Unesco f Nairóbi. Dagskrárnefnd Unesco, samþykkti að senda ályktunina, sem runnin er undan rifjum Sovétrfkjanna og hvetur til yfirstjórnunar rfkisvalds á blöðum, til sérstakrar samninga- nefndar sem fjallar um viðkvæm mál. Heimildir á ráðstefnunni telja að samninganefndin muni ekki geta komið sér saman um ályktun- ina og þvf muni hún skjóta aftur upp koliinum á næstu allsherjar- ráðstefnu árið 1978. 78 greiddu atkvæði með ofangreindri af- greiðslu ályktuninnar, 15 voru á móti en sex sátu hjá. Vestrænir fulltrúar voru ánægðir með þessi málalok. Þeir Framhald á bls. 25 menntamenn í Parfs sent svipað- ar áskoranir. Framhald á bls. 25 var skotið inn á þéttbýi svæði frá báðum hliðum vfglínunnar sem skiptir borginni. Þá hafa borizt fréttir af hörðum götubardögum við þann eina stað, sem hægt er að komast á milli þeirra hluta Beirut, sem eru und- ir yfirráðum hægri og vinstri manna. Amshit-útvarpið, sem styður hægrimenn, sagði í morgun að meir en 150 sprengjum hefði ver- ið skotið inn f Austur-Beirut, sem er að höndum hægrisinna, en vinstrisinnaða Beirutútvarpið sagði að stanzlausri skothrfð hefði verið haldið uppi á vesturborgina sem vinstrimenn ráða. Vopnahléið, sem er það 55. sfðan borgarastrfðið byrjaði fyrir 18 mánuðum, gekk f gildi 21. október en hefur verið brotið næstum daglega. Þetta vopnahlé var liður í friðaráætlun, sem samþykkt var á toppfundi Arababandalagsins f sfðasta mánuði. ATTA manns hafa farizt og 10 er saknað f f lóðum, sem urðu á föstudagskvöld f borginni Trapani- á Sikiley. Flóðin urðu eftir miklar rigningar. Á laug- ardagsmorgun stytti upp, en sfðan tók að rigna á ný af mikl- um krafti. Ekki var hægt að komast um götur og miklar skemmdir hafa orðið á heimil- um og hjá fyrirtækjum. Þús- undir bifreiða eru á kafi f vatni. Á fimmtudag urðu einn- ig mikil flóð f Feneyjum, vegna háflæðis. Myndin sýnir Markúsatorgið og á þvf dóm- kirkjuna og klukkuturninn. Risaskip strandar London 6. nóvember — Reuter. BANDARÍSKT 133 þúsund lesta olíuflutningaskip, sem var á heimleið úr jómfrúarferð sinni til Arabaflóa, strandaði við Bahamaeyjar, samkvæmt upplýs- ingum Lloyds f London í dag. Skipið, sem heitir Maryland, strandaði í sundinu, sem er á milli Grand Bahamaeyju og Great Abacoeyju. Skipið var smfðað f ár og er með olíufarm frá Saudi- Arabíu. Funda um Rhódesíu Dar Es Salaam, 6. nóvember, Reuter LEIÐTOGAR fimm Afrfkulanda, sem liggja að Rhódesíu — Mozambique, Zambíu, Botswana, Angola og Tanzaníu — koma saman til fundar f höfuðborg Tanzaníu í dag til að ræða árásir Rhódesíumanna inn í Mozambique og Genfarráð- stefnuna um Rhódesfu þar sem þeir hafa áheyrnarfulltrúa. Flýr frá Bretlandi London 6. nóvember. Reuter. BREZKI hljómsveitarstjórinn Raymond Leppard ákvað f gær- kvöldi að flytjast frá Bretlandi og setjast að f Bandarfkjunum af pólitfskum ástæðum. „Ég sætti mig ekki við sósfalisma, einkum vaxandi völd verkalýðsfélaga," sagði Leppard. Hann ætlar að starfa sjálfstætt í New York. Leppard er aðalstjórnadi BBC Northern Orchestra, framkvæda- stjóri Ensku kammerhljómsveit- arinnar og einn kunnasti og vinsælasti hljómsveitarstjóri Breta. SPARRE við eitt af verkum sfnum f Norræna húsinu, mvndin var tekin er verið var að setja sýninguna upp. Málverkið heitir „Hver er fanginn" og sýnir Smirnov dómara, sem kvað upp dóminn yfir Sinjavski, og lýsir myndrænum hugmyndum listamannsins um það andrúm, sem verður til kringum þá kúgun, sem er tilefni myndarinnar. Samtal birtist f Morgunblaðinu 24. október. (Ljósm. Friðþjófur). Viktor Sparre fékk ekki að fara til Sovétríkjanna —Málið verður tekið upp í norska Stórþinginu, segir hann í viðtali við Morgunblaðið NORSKA listamanninum Viktor Sparre og þremur norskum þing- mönnum var f lok sfðasta mánað- ar synjað um fararleyfi til Sovét- rfkjanna. Höfðu þeir ætlað sér að fara þangað og kynnast af eigin raun aðbúnaði andófsmanna f sovézkum fangelsum og Iffi þess fólks, sem er f opinb^rri andstöðu við sovézk yfirvöldl' Ætluðu fjór- menningarnir að ferðast til Sovét- rfkjanna með almennri ferða- skrifstofu, en fengu ekki vega- bréfsáritun og var engin ástæða gefin fyrir synjuninni. Er þetta f fyrsta skipti sem norskum ferðamönnum er neitað um vegabréfsáritun til Sovét- rfkjanna og er mál þetta mikið hitamál f norskum fjölmiðlum. Hafa stórþingsmennirnir, sem eru frá Hægri flokknum og Mið- flokknum, skrifað sovézka sendi- ráðinu opið bréf þar sem skýringa er krafizt á þvf hvers vegna þeim var neitað um vega- bréfsáritun, þvf mótmælt og bent á Helsinki-sáttmálann, þar sem Sovétmenn meðal annars skrif- uðu undir að ferðir almennings á milli landa skyldu auðveldaðar. Um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum Viktors Sparre f Norræna húsinu, en sjálfur er hann kominn til síns heimalands. í viðtali við ritstjóra Morgun- blaðsins skömmu áður en hann hélt heimleiðis lét hann svo um mælt að hann myndi fara beint frá Islandí til Sovétríkjanna, með viðkomu f Noregi. — Ég ætla að hitta Sakharov i Moskvu og reyna að fá að sjá fangelsi á Sovét- ríkjunum, sagði Sparre; brosti svo og bætti við: — Ég læt heyra frá mér, ef ég lendi þá ekki í einhverju af þessum fangelsum. 1 símtali sagði Sparre við Morgunblaðið í gær að hann og stórþingsmennirnir hefðu allir fengið neitun án nokkurra út- skýringa, þegar þeir sóttu um Framhald á bls. 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.