Morgunblaðið - 13.11.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÖVEMBER 1976
31
— Minning
Sigríður
Framhald af bls. 19
stundum í lífi hennar hve einlæg
trúkona hún var. Hún var einnig
vel greind, ávallt glöð í viðmóti og
gædd miklu lffsfjöri. Eins var
henni auðvelt að tjá sig við hvern
sem var, og átti gott með að halda
uppi samræðum, enda hafði hún
frá mörgu að segja og lifði tímana
tvenna. Oftlega heyrði ég hana
taka málstað þeirra, sem stóðu
höllum fæti í lífsbaráttunni, og
gat hún þá verið ákveðin á
svipinn.
Árið 1936 ræðst Sigriður sem
ráðskona til Jens Kristjánssonar,
er þá hafði stofnað nýbýlið Vonar-
land, en það er byggt úr landi
Melgraseyrar.
Segja má að Vonarland hafi
verið hennar heimili upp frá því.
En eftir að Jens andaðist 1967
hefur Sigriður að langmestu leyti
dvalið á veturna hjá dótturdóttur
sinni Sigrúnu Guðmundsdóttur
og manni hennar Böðvari
Magnússyni. Hjá þeim leið henni
eins vel og best varð á kosið. En á
hverju sumri fór hún vestur að
Vonarlandi og þar naut hún þeirr-
ar náttúrufeguðar og kyrrðar,
sem umhverfið er svo rikt af.
Þau Sigríður og Jens tóku fimm
börn í fóstur um lengri eða
skemmri tima. Raunar má segja
að þau 'hafi verið fleiri, þvi að
heimilið á Vonarlandi var
mörgum börnum sólar- og sælu-
staður i fjölda mörg sumur.
Sigríður var ekki aðeins góð og
elskuleg amma börnum okkar,
heldur og öllum sfnum barna-
börnum, sem nutu þess að fá að
vera hjá henni.
Og sama var að segja um Jens,
hann var sérlega barngóður, og
minningar frá hans tíma ylja
manni ævinlega, þegar hugsað er
til Vonarlands.
Sigrfður var, að eigin sögn, svo
lánsöm að eiga sér góða og hjálp-
sama nágranna, og hún var þeim
mjög þakklát er hún leit yfir liðna
tíð.
Nú þegar tengdamóðir mín er
látin, er margs að minnast og
margt að þakka. Mér verður
löngum minnisstætt hve vel hún
tók mér og hlýlega, er ég sá hana í
fyrsta sinni. Og sá hlýhugur
hennar til mín og minnar fjöl-
skyldu fór heldur vaxandi allt til
lokadags.
Faðir lífs og ljóss
leiði hana og blessi.
Gísli Guðmundsson.
— Aðalfundur
Framhald af bls. 5
við kjallara hafnar. Þar munu
börn hússins fá ágæta leikaðstöðu
þegar þar að kemur. Ibúðarhæð-
unum verður síðan skipt niður i
einingar og er líklegt að þar geti
amk. 9—10 fjölskyldur dvalið
samtimis. Þá verða og skýrð fjöl-
mörg önnur mál sem stjórn FEF
hefur unnið að á starfsárinu.
Siðan verða lagðir fram og kynnt-
ir reikningar félagsins og kemur
fram i þeim að fjáröflun á árinu
mun hafa verið um þrjár milljón-
ir brúttó og hefur aldrei verið
meiri.
Að svo búnu fer fram kjör nýrr-
ar staórnar, en sýnt er að töluverð
endurnýjun og meiri en oft áður
verður á stjórn félagsins. Þegar
aðalfundarstörfum er lokið verða
jólakort félagsins afhent, en fél-
agsmenn hafa löngum sýnt dugn-
að við sölu þeirra. Að þessu sinni
eru fjórar nýjar gerðir, tvær með
barnateikningum og tvær með
teikningum eftir Þorbjörgu Hösk-
uldsdóttur listmálara.
— Fjarskiptum
mótmælt
Framhald af bls. 1.
hinu kröftuga senditæki Rússa sé
liður I rannsóknaráætlun og þau
hafa truflað útvarpsfjarskipti
milli Danmerkur og Grænlands
og skipa og lands.
Norðmenn og Svíar hafa einnig
skýrt frá þvf að þeir hafi átt við
fjarskiptaerfiðleíka að stríða á
undanförnum mánuðum vegna
sovézka senditækisins.
í Kaupmannahöfn er sagt að
útvarpshljóðmerkin hafi í raun og
veru stöðvað útvarpsfjarskipti á
hinu hernaðarlega mikilvæga
svæði milli Grænlands og Noregs
sem á strfðstlmum yrði vettvang-
ur tilrauna af hálfu NATO til að
stemma stigu við hvers konar
sókn sovézka flotans frá herstöðv-
unum á Kola-skaga.
Danska póst- og sfmamála-
stjórnin hefur fjórum sinnum
borið fram mótmæli við Rússa út
af málinu sfðan í ágúst en ekkert
svar hefur borizt.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins sagði í dag að mótmælin sem
sendiherrann mundi afhenda
væru einungis tæknilegs eðlis og
alls ekki pólitfsk. Gert er ráð fyrir
að þau verði afhent snemma f
næstu viku.
— Líbanon
Framhald af bls. 1.
Sýrlenzku friðargæzlusveitirn-
ar eiga að friða landið en að þvf er
bezt er vitað hafa þær enn ekki
skotið einu einasta skoti f þvf
skyni. Þær brugðust hins vegar
skjótt við þegar fjórum óvopnuð-
um hægri falangistum var rænt
og þeir myrtir í gær. Handtóku
þær um 300 múhameðstrúarmenn
f nálægu þorpi, en slepptu öllum
nema 19, sem dregnir verða fyrir
herdómstól. Hafa leiðtogar falan-
gista krafist dauðadóms yfir
þeim.
— Benn
Framhald af bls. 1.
deildarinnar, en f henni sitja að-
eins ókjörnir aðalsmenn og
Ihaldsmenn hafa alltaf haft þar
meirihluta. Var deildin stofnuð á
13. öld.
Lávarðarnir munu þó lfklega
halda áfram að tefja lagafrum-
vörp rfkisstjórnarinnar í næstu
viku enda eru lávarðar úr röðum
ihaldsmanna og frjálslyndra
hvattir til þess af leiðtogum þess-
ara flokka.
HÓTEL BORG
Okkar vinsæla
kalda borð
í hádeginu
í dag
'l 'TernpVCXLU -
V -Wo ‘é>\c\
Heimsókn
Cusack-hjónanna
Jim Cusack forstöðumaður endurhæfingarheimilisins
Veritas Villa heldur fyrirlestur í fundarsal að Hótel
Loftleiðum á morgun sunnudaginn 14. nóvember kl. 15
(kl. 3 s.d.) Umræðuefni: Disease Concept of Alcoholism
þ.e.a.s. skilgreining á sjúkdómnum alkóholisma. Allir
áhugamenn um málefnið eru velkomnir en það skal tekið
fram að fyrirlesturinn verður fluttur á ensku, og ekki
túlkaðurá íslensku.
Eftir fyrirlesturinn mun Jim Cusack svara fyrirspurnum
áheyrenda.
Freeportklúbburinn.
G]E]B)eiG]Q]QlE]E]G]E]BlE]^G]E]G]G]B]G]Qj
KdI
01
Bl
51
51
51
51
Sigtútl
Bingó kl. 3 í dag.
Aðalvinningur vöruúttekt fyrir 25.000.— kr.
51
51
51
51
51
51
51
E]G]G]G]E1E1E]E1E1E1E1E1E1E1E1G1G1G]G1EIG1
HVOLL
Þrumudansleikur
HAUKAR
með lög af nýju plötunni
Gestur kvöldsins Sven Arve
Sætaferðir B.S.Í. kl. 8.30, Selfoss, Hvera-
gerði, Laugavatni, og Þorlákshöfn.
Nefndin
Sji
S|S
ILEIKFELAG REYKJAVIKUR
KVENHTI
Eftir Agnar Þórðarson — Leikstjóri Sigríður Hagalín — Leikmynd Jón Þórisson,
Frumsýning í Austurbæjarbíói í kvöld kl. 21.
Aðgöngumiðasala í Austurbæjarbíói frá kl. 16. simi 11384.
HUSBYGGINGASJÓÐUR.