Morgunblaðið - 30.11.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.11.1976, Blaðsíða 1
48 SlÐUR 278. tbl. 63. árg. ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 12fórustog 70 særðust Darajani, Kenya — 29. nóvember — Reuter. AÐ MINNSTA kosti 12 manns létu lífið og 70 meíddust þegar sjö járnbrautarvagnar fóru út af sporinu nálægt Darajani f dag. Lestin var á leið frá Mom- basa tii Nairobi þegar slysið varð, en það vildi þannig til, að brú brast undan lestinni. Svo virðist sem fióð hafi veikt undirstöður brúarinnar. Fremsti vagninn og sex aðrir runnu út af sporinu. Einn vagn- anna varð undir þeim fremsta og lagðist hann algjörlega sam- an. í þessum vagni voru flestar þeirra, sem fórust. Framhald á bls. 23 Símamynd AP Aðstoðarutanríkisráðherra Breta: Brezka stjórnin von- góð um samkomulag Húll, London, 29. nóvember — fréttaritari Morgunblaðsins Nigel Robson, AP. BREZKA stjórnin sagði á mánudag að hún væri sann- færð um að Bretar og tslendingar fyndu leiðir til að geta haldið áfram veiðum á miðum hvors annars. Kom það fram hjá David Owen, aðstoðarutanríkisráðherra, sem sagði jafnframt að hann harmaði það að brezkir togarar yrðu að hætta veiðum við tsland á miðvikudag, þegar samkomulag Breta og tslendinga gengur úr gildi. símasamband við formann héraðsstjórnar Humberside, Harry Lewis, og tjáði honum að hann væri vongóður um að tslendingar og Efnahags- bandalagið yrðu búin að ná samkomulagi þann 1. janúar. Viðræður Norð- manna við EBE hafa siglt í strand BrUssel 29. nóvember — NTB SAMNINGAVIÐRÆÐURNAR A MILLI Norðmanna og Efnahags- bandalags Evrópu um fiskveiðar hafa siglt f strand. Er ekki búizt við að skriður komist á þær aftur fyrr en EBE-Iöndin hafa leyst sfn á milli pólitfskt vandamál við til- 72 menn f órust 1 flugslysi Moskvu 29. nóvember — Reuter. SOVÉZK flugvél af gerðinni Tupolev TU-104 fórst skömmu eftir flugtak í gærkvöldi og með henni allir sem um borð voru, eða 72 menn, að þvi er starfsfólk vestrænna flug- félaga hefur skýrt frá. Flugvélin, sem er tveggja hreyfla þota frá sovézka flug- félaginu Aeroflot, skall niður um 30 kílómetrum frá Sehrem- etyevoflugvelli við Moskvu. Neyðarráðstafanir voru gerðar á flugvellinum um það leyti sem slysið varð án þess að ástæður væru gefnar. Slökkvi- bilar stóðu reiðubúnir og sjúkrabílar sáust aka i norður- átt með blikkandi ljós eftir veginum til Leningrad, sem liggur nærri flugvellinum. Veðurskilyrði voru slæm og að minnsta kosti einni sovézkri flugvél hafði verið snúið til annars flugvallar við Moskvu. Talsmenn Aeroflot og flug- málaráðuneytisins neituðu að staðfesta þessar fréttir, en neituðu þeim heldur ekki. Talsmaður ráðuneytisins sagði Framhald á bls. 22 högun fiskveiða aðildarlandanna nfu. Jens Evensen, hafréttarráð- herra Noregs, og Finn Olav Gundelach, sem á sæti í fram- kvæmdanefnd EBE og fer með utanríkismálefni þess, ræddust við á mánudag og voru þeir sam- mala um, að þó að viðræðurnar væru langt komnar þá væru tvö erfið pólitisk vandamál óleyst, sem Gundelach þarf að fá umboð tit að geta leyst. Ákveðið hefur verið að halda nýjar samningaviðræður 16. og 17. desember, eða skömmu eftir að ráðherrafundur bandalagsins kemur saman til að ræða um fisk- veiðistefnu EBE. Evensen sagði á blaðamanna- fundi, að það væri enn ekki ljóst hvort samkomulag gæti náðst fyr- ir áramót. „Mér hefur allan timann verið það ljóst, að á meðan Efnahags- bandalagið hefur ekki ákveðið eigin stefnu i fiskveiðimálum, þá verður það erfitt fyrir okkur að» finna sameiginlega lausn. Ég hafði alltaf búizt við því að samn- ingarnir myndu taka langan tíma.“ Hafréttarráðherrann lagði áherzlu á að ef ekki yrði búið að semja um fiskveiðar í Norðursjó Framhald á bls. 22 Af 17. hæð með börn í fanginu Paris 29. nóvember — Reuter. ÞRJÁTlU og eins árs gömul móð- ir hoppaði i dag af svölum á 17. hæð Ibúðarhúss I París. Hélt hún á tveim ungum börnum sinum í fanginu. Að sögn lögreglunnar létust þau öll. Owen sagði að samninga- maður Efnahagsbandalags- ins, Finn Olav Gundelach, væri sannfærður um að þegar næst yrði setzt við samningaborð yrðu báðir aðilar i aðstöðu til að geta gefið út yfirlýsingu um það fyrirkomulag, sem þeir vildu hafa á fiskveiðum sínum eftir 1. janúar. Sagði Owen þetta vegna fyrirspurnar, sem borin var fram eftir að ráð- herrann hafði gefið skýrslu um málefni Efna- hagsbandalagsins. Þá hafði Gundelach í dag Nýtt verkfall námamanna? Barnsley 29. nóvember. Reuter. LEIÐTOGAR samtaka um helmings allra kolanámamanna í Bretlandi mæltu í dag með því að gripið yrði *'l aðgerða, þar á meðal hugsanlegra verkfallsað- gerða, til stuðnings kröfum um að kolanámumenn fái að ljúka starfsævi sinni sextugir en haldi fullum launum eftir það. Það var Arthur Scargill, leið- togi námamanna í Yorkshire, sem löngum hafa verið herskáir, og leiðtogar skozkra og velskra námamanna, sem hvöttu til þessa. Getur þetta leitt til þess að náma- menn komist í beina andstöðu við stjórn Verkamannaflokksiris, sem reynt hefur að halda í við iauna- hækkanir. Kolanefndin, sem heyrir undir ríkið og rekur brezku kola- námurnar, hefur þegar hafnað Framhald á bls. 23 Ættuð að setjaþak á olíuinnf lutning — segir Giscard d’Estaing á leiðtogafundi EBE Haag 29. nóvember — Reuter VALERY Giscard d’Esteaing, for- seti Frakklands, lagði f dag til að öll lönd Efnahagsbandalagsins færu að dæmi Frakka og settu þak á olfuinnflutning sinn, að LEIÐTOGAFUNDUR. Myndin er frá setningu fundar leiðtoga Efna- hagsbandalagslandanna í gær. símamvnd ap sögn embættismanna EBE. Sagði forsetinn á fundi leiðtoga EBE- landa, að þeir ættu að koma sér saman um áætlun um að spara orku til að draga úr olfu- innflutningskostnaði. Frakkar hafa sett þak á olíuinn- flutning sinn á næsta ári og má hann ekki fara fram yfir 55 milljarði franka. Þetta þýðar að ef verðhækkanir á olíu verða of miklar, verða Frakkar að draga úr oliunotkun sinni til að fara ekki fram úr áætluninni. Frakkar settu einnig þak á oliuinnflutning sinn á þessu ári og mátti hann ekki verða meiri að meiri að verðmæti en 51 milljarður franka. Embættismenn sögðu, að engin viðbrögð hefðu enn orðið við til- lögu forsetans. Framh.á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.