Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976 19 Val ’76 — sýning á vegum myndlistargagnrýnenda Atli Heimir Sveinsson tekur við minnispeningunum frá Thor Vil- hjálmssyni. Olafur Jóhann Sigurðsson gat ekki verið viðstaddur af- hendinguna. Samfagna verðlaunahöf- um Norðurlandaráðs 1975 „BANDALAG íslenzkra listamanna lét gera þessa minnispeninga til að sam- fagna þeim Ólafi Jóhanni og Atla Heimi og til að sýna, hversu mikill fengur það er fyrir íslenzka menn- ingu, að þeim skuli hafa hlotnazt þessi heiður.“ Svo fórust formanni BÍL, Thor Vilhjálmssyni, orð á blaða- mannafundi, sem haldinn var vegna afhendingar minnispeninganna að Kjar- valsstöðum í dag. Ólafur Jóhann Sigurðsson og Atli Heimir Sveinsson hlutu bókmennta- og tónlistar- verðlaun Norðurlandaráðs 1975 og er þetta í fyrsta skipti sem Islendingur hlýtur listverðlaun ráðsins. Verðlaunaljóð Ölafs Jóhanns hafa nýlega verið endurútgefin i einu bindi af Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs og þá kom fram á blaðamannafundinum, að flautu- konsertinn, sem Atli Heimir hlaut sin verðlaun fyrir, er nú væntan- legur á hljómplötu. Minnispeningarnir, sem BÍL lét gera þeim til heiðurs eru úr gulli, silfri og bronsi og voru slegnir 40 gullpeningar, 330 silfur- og 400 bronspeningar. Á annarri hlið þeirra eru táknmyndir fyrir tón- list og bókmenntir. Á hinni hlið- inni eru nöfn listamannanna I eig- an hönd. Snorri Sveinn Friðriks- son listmálari hannaði myntina, sem er til sölu. Allur ágóði af sölunni rennur til styrktar starf- semi Bandalags islenzkra lista- manna — eða eins og formaður bandalagsins orðaði það „til þjóð- arinnar allrar". En efst á stefnu- skrá bandalagsins er húsnæði og / TÓNUST BÓKMENNTIR & AUGLÝSINGASÍMINN F.R: 22480 listdreifingarmiðstöð og verður sá f járhagslegi ávinningur, sem fæst með sölu myntarinnar, nýttur til að ná þeim takmörkum. í DAG verður opnuð sýning á Kjar- valsstöðum á vegum gagnrýnenda. Á sýningunni sem er hin fyrsta sinnar tegundar á íslandi eru listaverk eftir þá islenzka listamenn. er þykja mesta athygli hafa vakið ’ þessu ári. Eru það allt listamenn, sem haldið hafa einkasýningar eða tekið þátt i samsýningum á árinu. Að sögn Valtýs Péturssonar, eins gagnrýnendanna. var öllum þeim lista- mönnum boðin þátttaka, en siðan skáru atkvæði þeirra fimm gagn- rýnenda, sem að sýningunni standa. úr um. hverjir endanlega tækju þátt i henni Þurftu listamennirnir að fá fjögur atkvæði af fimm. Listaverkin voru siðan valin I samráði við lista- mennina af hálfu gagnrýnenda. Eftirtaldir gagnrýnendur standa að þessari sýningu: Frá Morgunblaðinu, Valtýr Pétursson og Bragi Ásgeirsson, Aðalsteinn Ingólfsson frá Dagblaðinu. Jónas Guðmundsson frá Timanum og og Ólafur Kvaran frá Þjóðviljanum. Listaráð Kjarvalsstaða lánaði sýningar- salinn og mun allur afgangur af því fé er inn kemur á sýningunni, ganga upp í húsaleigu Valtýr Pétursson sagði i samtali við Morgunblaðið i gær — að þessi sýning væri svipuð og tiðkast hefði víða erlendis. t.d. i P.rís, en þar er árlega haldin gagnrýnendasýning af þessu tagi — Prix de la critique. Sagðist hann vona að héðan í frá, yrði þetta árviss viðburður i islenzku menninga rlifi. Á sýningunni eru oliumálverk, vatns- lita- og pastelmyndir, grafik, skúlptúr og svokallaðar klippimyndir Sýningin er opin á venjulegum sýningartíma Kjarvalsstaða og stendur til 21 desember Ljósm. FriSþjófur. Valtýr Pétursson, einn gagnrýnendanna fimm, á KjarvalsstöSum f gær. bakaóá hseöum Juno eldavél meö hverfiloftsofni gerir þér kleift aó baka á 4 hœóum - sem sagt - þú getur bakaó á 4 plötum í einu - athyglisvert, ekki satt? Aó sjálfsögðu er Juno meö grilli og klukkurofa -já klukkurofa, sem ekki baraertengdurofni-hann er líkatengdur 2 hellum - þetta erdagsatt, hann er tengdur tveim hellum - þaó œtti aö geta komió sér vel. JunO hverfiloftsofninn er sjálfhreynsandi-hvað annaó? þessa frábæru vél ætlum viö aó sýna þér í notkun - á milii klukkan 2 og 5 í dag. Já,vió œtlum aó baka fyrir þig á milli klukkan 2 og 5- þar fyrir utan,sýnum vió þér rafmagns-heimilis- tœki frá KRUPS - maóur sleppir ekki svona tœkifœri-er þaó?-auóvitaóekki-þá sjáumst vió í sýningarsalnum aó Skúlagötu 30 í dag PS. þaó ferekki ámilli mála aó okkar lausnerbetri lausn PJ J. ÞORLAKSSON & NORÐMANN H.F Skúlagötu30 -Sími 11280 JUNOog KRUPS Einkaumboö á íslandi JÓN JÓHANNESSON & Co

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.