Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977 7 „Af því leiðir___”, segir mann- vitsbrekkan Jón Sigurðsson gengur „mannvits- brekkuna" á sfðum Tfmans í gær og eys úr nægtabrunni vizku sinnar. Viðfangsefni hans er einhvers konar „fræðileg" úttekt, væntanlega f þágu Framsóknarflokksins, á samstarfsflokknum f rfkisstjórn. Tvennt er það sem mannvits- brekkan tínir til, að þvf er virðist til skýringar á stjórnarsamvinnunni. 1) „Sjálfstæðis- flokkurinn er flokkur rfkisins, báknsins, kerf- isins. Af þessu leiðir einnig að innan flokks- ins eru raunsæir menn, sem sjá hina „Réttu“ hagsmuni og geta tekið ábyrga afstöðu.. . Þetta gerðist 1974.“ 2) „En Sjálfstæðis- flokkurinn er lfka alit of fjölmennur flokkur. Af þvf leiðir að innan hans — ekki sfður en annarra flokka — starfar fjöldi valin- kunnra sæmdarmanna, sem vilja hag almenn- ings sem beztan. Hvor tveggja hvötin, um- hyggjan fyrir kerfinu og ekki sfður viljinn til að vinna þjóðinni gagn, varð til þess að Sjálf- stæðismenn gegndu Framsóknarkallinu, og núverandi rfkisstjórn var mynduð." — Fleiri blóm í vizku- brekkunni Sfðan lætur þessi mannvitsbrekka að þvf liggja að Sjálfstæðis- flokkurinn sem „rfkis- flokkur" verði að „umskiptingi" f stjórn- arandstöðu. Hann fari jafnvel að „skammast út í sitt eigið kerfi". Öðru máli gegni þegar hann sé f stjórn. Og þvf hafi „maddaman" kallað hann til stjórnar- samstarfs. En vizka Framsóknar- flokksins nær ekki að- eins þvf góða út úr sam- starfsflokknum, Sjálf- stæðisflokknum, að dómi þessa sjáanda allra hluta, sei, sei nei. Hún kemur og til góða stjórnarandstöðu- flokkunum. Hann segir blátt áfram: „Það er gott fyrir umbótamenn að vera f stjórnarand- stöðu. Hún styrkir þá.“ Þannig er einnig vel séð fyrir þeim. Framsókn- arflokkurinn heldur sum sé „umbótamönn- um“ f stjórnarandstöðu sökum þess, að hún virkar sem lýsisgjöf á þrótt þeirra. Svo einfalt er málið f augum hins bernska flokksmanns. Verðbólgan helzti mein- vætturinn Þótt nokkuð hafi mið- að f rétta átt í efnahags- málum þjóðarinnar: hallalaus rfkisbúskapur náðst, viðskiptajöfnuð- ur út á við skanað og verðbólguvöxtur hægt á sér, má Iftið fara úr- skeiðis, svo ekki sfgi á ógæfuhliðina á ný. Verðbólgan hér á landi er enn rúmlega tvöföld miðað við það Evrópu- land, sem þó er næst okkur f verðbólguvexti. Hallinn á viðskiptajöfn- uði er enn verulegur og skuldabyrgðin fer enn vaxandi. Meðan málum er svo háttað, er at- vinnuöryggi f tvfsýnu og grundvöllur auk- innar velmegunar þröngur. Á næstu misserum verður að beina öllum kröftum að þvf að draga úr verð- bólgunni og útrýma við- skiptahalla þjóðar- innar. Velgegni þjóðar- innar um langa framtfð er undir þvf komin að þetta takist. Hversu oft hafa ekki svokallaðar „kjarabæt- ur“ brunnið á verð- bólgubálinu svo að segja samhliða þvf sem um þær var samið? Og hveru lengi þola fslenzkir atvinnuvegir tvö- og jafnvel þrefald- an verðbólguvöxt á við það sem gengur og ger- ist f nágranna- og við- skiptalöndumm okkar? Þolir nokkurt þjóðfélag 30—50% verðbólgu ár- um saman? Er ekki kominn tfmi til að miða kjarasamninga sem og efnahagsaðgerðir við það, að verðbólgan hægi á sér og kjarabætur verði raunhæf kaup- máttaraukning? Leggja verður áherzlu á, að á þann veg verði staðið að gerð næstu kjarasamninga, að þeir treysti sem bezt atvinnuöryggið fland- inu, varanlegar kjara- bætur til láglaunafólks og Iffeyrisþega og frið á vinnumarkaðinum; þann veg, að verðmæta- sköpunin f þjóðfélag- inu, sem afkoma þjóðar- heildarinnar byggist á, geti haldið óhindruð áfram. Til þess að ná því markmiði er nauð- synlegt, að heildar- sjónarmið ráði meiru við samningsgerð en verið hefur hingað til. Að þvf þurfa öll ábyrg þjóðfélagsöfl að vinna. Eins og fram kemur f þættinum hefst undankeppni fyrir íslands- mótið f tvfmenningi f Reykjavfk f kvöld. Örn Arnþórsson og Guðlaugur R. Jóhannsson eru núverandi Íslandsmeistarar í tvf- menningi og þeir eru einnig f sveit Hjalta Elfassonar sem varð Reykjavíkurmeistari f sveitakeppni um helgina. Sveit Hjalta bætir skraut- fjöður í hatt sinn Sl. sunnudag lauk Reykjavikur- mótinu i sveitakeppni. Lauk þeirri viðureign með sigri sveitar Hjalta Elfassonar, en ásamt honum eru i sveitinni Ásmundur Pálsson, Einar Þor- finnsson, Guðlaugur R. Jóhannsson og örn Arnþórsson. I mótinu fór fyrst fram undankeppni og var spilað f þremur riðlum. Tvær efstu sveitirnar í hverjum riðli spil- uðu svo til úrslita um Reykja- víkurmeistatatitilinn. Að fjór- um umferðum loknum i úrslita- keppninni hafði sveit Hjalta náð afgerandi forystu, hlotið 18 stig, og átti að spila við sveitina sem var I neðsta sæti sveit Skafta Jónssonar, sem aðeins hafði hlotið 4 stig á móti 73 stigum Hjalta. Það kom þó á daginn að sveit Hjalta hafði ekki efni á að slaka neitt á. Ungu piltarnir komu enn á óvart og höfðu yfir i hálfleik 47 stig gegn 14. En í sfðari hálfleik réðu þeir ekki við meistarana og urðu úrslit leiksins þau að sveit Hjalta vann 12—8. Lokastaðan í úrslitakeppn- inni varð þessi: Sveit stig Hjalta Eliassonar 85 Stefans Guðjohnsens 75 Guðmundar T. Gíslasonar 55 Þóris Sigurðssonar 50 Ólafs H. Ólafssonar 15 Skafta Jónssonar 12 Undankeppni Reykjavíkur- mótsins var jafnframt undan- keppni fyrir íslandsmót og spil- uðu sveitirnar sem urðu nr. 3—4 í riðlunum þremur um fjögur sæti sem var óráðstafað. Þ.e.a.s. 6 sveitir spiluðu um 4 sæti í íslandsmótinu. Röð sveitanna varð þessi: Jóns Hjaltasonar 83 Ríkarðs Sveinbergssonar 73 Ólafs Lárussonar 54 Esterar Jakobsdóttur 34 Baldurs Kristjánssonar 29 Guðrúnar Bergsdóttur 20 Sveit Esterar sigraði sveit Baldurs f sfðasta leiknum og verður því ein sveit f íslands- mótinu sem eingöngu er skipuð kvenfólki. —0—0—0—0— Undankeppni fyrir íslands- mótið í tvímenningi fyrir Reykjavík hefst í kvöld og verð- ur fram haldið 14. og 15. marz. í þættinum nýlega var sagt að spilað yrði í Hreyfilshúsinu en það er ekki rétt, það er í Domus Medica. Þetta leiðréttjst hér með þó að seint sé. Bridge Umsjón ARNÓR RAGNARSSON Olafur og Rósmund- ur langefstir hjá Breiðfirðingum 20. umferðum af 35 er lokið í barometerkeppni Bridgedeild- ar Breiðfirðingafélagsins. Staða efstu para er þessi: Ólafur — Rósmundur 316 J akob — Hilmar 224 Guðjón — Þorvaldur 182 Ólafur — Halldór 149 Kristján — Ellert 138 Hans — Sveinn 138 Magnús — Magnús 112 Guðrún — Guðrún 109 Meðalskor er 0 Næstu fimm umferðir verða spilaðar á morgun. Spilað er í Hreyfilshúsinu við Grensásveg. Lánamál og vinnuaðstoð til umræðu Á FUNDI Búnaðarþings f gær- morgun voru fimm mál tekin til fyrri umræðu en það voru erindi um skyldutryggingar útihúsa f sveitum, útflutningsmál land búnaðarins, lánamál bænda- stéttarinnar, upplýsingar frá BÍ til héraðsráðunauta og frumvarp til laga um vinnuaðstoð f sveitum. Tillögum að ályktunum þingsins f fyrrnefndum málum hefur öllum verið lýst á áður f blaðinu og komu þær tillögur að mestu óbreyttar frá nefndum nema hvað verðar lánamál og frumvarp um vinnuað- stoð f sveitum. Allsherjarnefnd gerir það að til- lögu sinni að ályktun Búnaðar- þings um lánamálin verði með þeim hætti að þeim eindregnu til- mælum verði beint til land- búnaðarráðherra, að hann hlutist til um að nefnd sú, er vinnur að athugun á málefnum Stofnlána deildar landbunaðarins, Ijúki stöf- um svo fljótt sem við verði komið. Þá verði á þvf Alþingi, sem nú situr, lögfest ákvæði um verð- jöfnunargjald af heildsöluverði bú- vara, ásamt jafnháu mótframlagi frá rfkissjóði og verði fé þessu varið til að mæta þeim mismun á verðtryggingu og vaxtakjörum, sem er á lánveitinum til deildar- innar og útlánum hennar. Varðandi lán til jarðakaupa leggur nefndin til að þau verði hækkuð f allt að 70% af matsverði jarðanna en þessi lán eru nú 1600 þúsund en f tillögu, sem lögð var fyrir þingið, var gert ráð fyrir að jarðakaupalánin hækkuðu upp f 80% af matsverðinu. Allherjar- nefnd leggur til að bústofnskaupa- lán verði veitt þrjú fyrstu bú- skaparárin og þau verði ekki lægri en 60% af skattmati vísitölubús á hverjum tfma og lánstfminn verði lengdur f 8 ár. Bústofnskaupalán eru nú 50% af skattmati bústofns og lánstfminn 6 ár en lánin eru aðeins veitt tvö fyrstu ár búskap- ar. Nokkrar umræður urðu um frumvarp til laga um vinnuaðstoð i sveitum en þær breytingar, sem Búfjárræktarnefnd leggur til að gerðar verði á frumvarpinu, eru þær, að jafnframt því, sem heimilt sé að ráða einn starfsmann fyrir 150 bændur, þá sé búnaðarsam- böndunum heimilt að ráða aðstoðamenn að hluta fyrir smærri hóp bænda, ef sérstök landfræðileg skilyrði gera það hagkvæmt enda samþykki Búnaðarfélagið þá ráðstöfun. Það eru ákvæði um ráðstöfun fjár, sem starfsmenn vinnuaðstoðarinnar afla utan starfs í hennar þágu, skýrð nánar. í ályktuninni er minnt á að óleyst sé að mestu orlofsmál bænda og auk þess fæðingarorlof bændakvenna. í umræðum um frumvarpið vakti Gunnar Guðbjartsson (Bsb. Snæf.) athygli á að þrátt fyrir að þetta frumvarp næði fram að ganga þyrfti að huga að vissum atriðum í sambandi vð réttindamál Framhald á bls. 19 Knúið verði á um úrbætur í öryggismálum dráttar- véla og annarra búvéla ÖRYGGISRÁÐSTAFANIR við notk un dráttarvéla og annarra búvinnu- véla eru meðal þeirra mála, sem Búnaðarþing það.sem nú situr, fjall- ar um Snæþór Sigurbjörnsson (Bsb Austurl.) hefur lagt fram á þinginu erindi um þessi mál og segir þar meðal annars, að á Búnað- arþingi 1972 hafi stjórn Búnaðarfé- lagsins lagt fram tillögur um örygg- isráðstafanir við notkun dráttarvéla og annarra búvinnuvéla Þá segir að þingið hafi samþykkt ályktun þar sem farið var fram á að allar dráttar- vélar og véltæki væri skoðuð reglu- lega af þar til skipuðum skoðunar- mönnum og lagt var til að skylt yrði að hafa öryggisgrindur á öllum dráttarvélum. í erindi Snæþórs segir. að mál þetta hafi of lengi legið í láginni og ekki fengið þá úrlausn. er Búnaðar þing vænti Hörmuleg slys hefðu orðið vegna illa búinna tækja og þess vegna væri þess óskað að Bún- aðarþing tæki mál þetta til umfjöll- unar og knýði á um úrbætur. Heimilt verði að taka fitu úr neyzlumjólk Jósep Rósinkarsson (Bsb Strand ) hefur lagt fram á Búnaðar þingi ályktun þess efnis að Búnaðar- félag íslands beiti sér fyrir, að sett verði lagaákvæði sem heimili að taka fitu úr neyzlumjólk, svo hægt sé að hafa á markaði mjólk með mismunandi fituinnihaldi og koma þannig til móts við óskir neytenda Þeir Snæþór Sigurbjörnsson (Bsb Austurl ), Þórarinn Kristjáns- son (Bsb N -Þing ) og Sigurjón Frið- riksson (Bsb Austurl ) hafa lagt fyrir Búnaðarþing erindi varðandi garna- veiki i lömbum Segir þar, að með aukinni haustbeit lamba á grænfóð- ur og annað ræktað land hafi komið i Ijós kvillar, sem valdið hafi nokkru tjóni á ýmsum stöðum á landinu Tilraunabóluefni frá Keldum hafi verið reynt en án þess að gefa viðhlitandi árangur Telja flutnings- menn að tilraunastöðin á Keldum þurfi að geta aukið og hraðað rann- sóknum á þessum kvilla og leggja þeir til að Tilraunastöðin verði studd nægilega til þess, að hún geti unnið að áðurnefndu verkefni. Er hægt að auka atvinnu í sveitum? Á fundi Búnaðarþings i gær voru lögð fram tvö mál frá Búnaðarsam- bandi Suðurlands. Það fyrra er um að Búnaðarfélagið gefi út hentugar handbækur fyrir forða- og fóður- skoðunarmenn, þar sem þeir gætu skráð mat fóður forðans. fóður- ástand fénaðarins, umsögn um að- stöðu til hýsingar og umönnun bú- fjárins Hugmyndin er sú. að forða- gæzlumennirnir létu afrit af þessari skráningu i hendur bænda að skoð- un lokinni, en frumritið afhentist oddvita hreppsnefndar Siðara málið fjallar um könnun á þvi að auka atvinnu i sveitum landsins Lagt er til að gerð verði könnun.á því, með hvaða móti megi gera atvinnulif sveitanna fjölbreyttara, ef það gæti orðið til þess að stöðva fólksflóttann úr sveitum, eins og segir i tillög- unni Bent er á að hagnýta mætti jarðhita. nytja hlunnindi til sjós og lands, stunda aukabúgreinar. ^yQQÍ3 UPP byggðakjarna með smá- iðnaði og almennri þjónustustarf semi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.