Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 30
% 30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2, MARZ 1977 Nú er erfitt að vera spámaður Getraunaþáttur Morgunblaðsins ÞAÐ var ekkr að sökum aö spyrja, aö um leið og viö fórum aftur að spá eftir eigin sann- færingu, þá fór strax að ganga betur (8 réttir af 11). Aldrei þessu vant, erum við ekki ýkja bjartsýnir á snilldarframmi- stöðu að þessu sinni, vegna þess, að við teljum að seðillinn nú sé einn sá erfiðasti i allan vetur. Arsenal — Ipswieh X. Eftir góða frammistöðu fyrr í vetur, hafa bæði þessi lið dalað all-mikið upp á sfðkastið. Því troðum við meðalveginn, jafn- tefli (1—1). Birmingham — Coventry 1. Hér eigast við tvö rétt miðl- ungs lið, en við teljum, að heimavöllurinn skipti hér megin máli og höllumst því að heimasigri (3—1). Bristol C — Everton X. Everton hefur sótt sig nokkuð undanfarið, en varla fá þeir meir en eitt stig í Bristol, því að heimaliðið er afar erfitt heim að sækja. Jafntefli (0—0). Leeds — Middlesbrough X. Hér finnst okkur jafntefli einnig líklegast, vegna þess, að okkur þykir bæði liðin ólíkleg til taps (0—0). Leicester — Aston Villa X. Eitt jafnteflið enn, og ástæð- urnar hinar sömu og f leik Leeds og Middlesbrough fyrir ofan og eins og þau keppa bæði þessi lið að því að hljóta sæti i Evrópukeppninni að ári og er því mikilvægt að tapa ekki að minnstakosti (2—2). Liverpool — Newcastle 1. Newcastle-liðið er eitt heima og annað úti, en á útivöllum er liðið oft æði örlátt á mörk til handa andstæðingum sinum og teljum við að Liverpool vinní öruggan sigur (3—1). Manehester Utd — Manchester C. Tvöfaldur 1 eða X. Óumdeilanlega mjög athyglisverður leikur. City hefur nú tapað tveim leikjum í röð, eftir mikla sigurgöngu fram að þvi, en United vinnur hins vegar hvern leikinn af öðrum um þessar mundir og freistumst við því til að hafa aðalspána heimasigur, (2—1). Norwich —Tottenham I. Árangur Tottenham hefur verið lygilega lélegur i vetur, meira að segja West Ham skor- aði fimm sinnum hjá þeim og annað botnlið, Derby, skoraði átta. Tottenham eiga ekki möguleika gegn all-þokkalegu liði Norwich. Heimasigur (3—0). Stoke — QPR. Tvöfaldur X eða 2. Miðað við hve lið Stoke er slakt, er mesta furða hve vel þvi gengur að hala inn stigin. QPR hefur farið mikið fram undanfarið og auk þess hefur miklu leikjafargi verið létt af þeim undanfarið er þeir voru slegnir út úr bikarkeppnunum ensku. Spá okkar er útisigur eða jafntefli (0—2 eða 1—1). Sunderland — West Ham. Tvö- faldur, 1 eða X. Fram eftir öllum vetri voru lið þessi límd við botninn í fyrstu deild, en nú hefur svo brugðið við að þeim halda engin bönd og vega þau nú á báða bóga hvert liðið af öðru. Einkum hefur Sunderland farið í andlitslyftingu og hefur liðið í þrem síðustu leikjum sínum skorað aðeins tveim mörkum minna en þeir höfðu skorað allan veturinn fram að því. WBA — Derby 1. WBA hefur lítið sýnt af viti á nýja árinu, en Derby er svo lélegt að WBA ætti að kippa þvi i lag á laugardaginn (2—1). Chelsea — Blackpool. Tvöfaldur I eða X. Jafntefli Chelsea við Bolton í siðustu viku bendir til þess, að liðið sé að ná sér aftur á strik eftir hálfslakt tímabil. í sam- ræmi við það tippum við á heimasigur (2—0). Til vara er jafntefli, ef Chelsea-liðið skyldi enn vera eitthvað miður sin (1 — 1). — gg- Knattspyrnufélagið Þróttur Arshátíð í Víkingasal Hótel Loftleiða föstudaginn 4. marz og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Miðasala í Klausturhólum Lækjar- götu og Háteigskjöri, Háteigsvegi 1. Síðast var uppselt. Skemmtine fndin. SAGT EFTIR LEIKINN í LINZ NÚ ÞEGAR segja má að íslendingar séu komnir með annan fótinn í A-heimsmeistarakeppnina í Danmörku að ári, er sjálfsagt sú spurning ofarlega i huga margra hvort Janusz Cerwinski fáist til áframhaldandi starfa með íslenzka landsliðið. Morgunblaðið lagði þá spurningu fyrir Janusz eftir leikinn I gærkvöldi, hvað hann hygðist gera: — Ég hef mikinn áhuga á að starfa áfram að þjálfun íslenzka liðsins, sagði Janusz. — Það hefur verið mjög gaman að vinna með þessum piltum, þeir eru fullir af áhuga og fúsir að leggja mikla vinnu á sig. Þess vegna hef ég áhuga á að starfa að undirbúningi íslenzka liðsins fyrir keppnina í Danmörku, ef það kemst þangað, og stjórn Handknattleikssambands íslands hefur lýst áhuga sínum á að ég haldi áfram með liðið. Verður unnið að því á næstunni að ég geti komið málum mínum þannig fyrir að ég geti verið áfram með liðið — ef það kemst áfram. Sigurður Jónsson, formaður HSÍ, sagði það vera næsta stórmál HSÍ að fá Janusz til áframhaldandi starfa, — það verður að takast sagði Sigurður. íslenzku leikmennirnir eru einnig greinilega á því, að á öllu velti að Janusz verði áfram með liðið, og kom raunar fram, þegar Morgunblaðið ræddi við leikmennina, að það yrði forsenda þess að þeir héldu áfram að leggja eins hart að sér og leika með liðinu, að svo yrði. Um leikinn í gærkvöldi sagði Janusz. — í þessum leik náði íslenzka liðið bezta „taktiska" leiknum sem það hefur leikið undir minni stjórn, sagði Janusz Cerwinski í viðtali við Morgun- blaðið í Linz f gærkvöldi. Strákarnir gerðu nákvæmlega allt sem fyrir þá var lagt. Samvinnan var í fyrirrúmi í leiknum. Menn hugsuðu ekki um sjálfa sig heldur fyrst og fremst og eingöngu um árangur liðsins. Ég er auðvitað í sjöunda himni eftir þennan sigur okkar, þdð var búið að vera mikil pressa á okkur, og hér í Austurríki var greinilegt að allir áttu von á fremur auðveldum sigri Spánverja. Ég sagði áður en við fórum frá íslandi að við yrðum að komast í A keppnina. Eftir þennan sigur eigum við mjög mikla möguleika, og nú stefnum við að sigri í leiknum við Holland og þriðja sætinu í keppninni. Hollenzka liðið leikur fremur einfaldan handknattleik að mínu mati, en þeir geta samt sem áður orðið okkur hættulegir. ÞIÐ VORUÐ EINFALD- LEGA MIKLU BETRI Ánægður jneð Axel og Olaf SIGURÐUR Jónsson, formaöur Handkanttleiksambands tslands, var einn hinna ánægðu íslend- inga i Linz i gærkvöldi: —Það er búið að vinna mjög gott starf að þjálfun íslenzka liðs- ins, sagði Sigurður, — og árangur þess starfs er nú að koma í ljós. Allt þetta starf hefur verið ákaf- Iega ánægjulegt, ekki sízt vegna þess meðbyrs sem við höfum haft heima, og þess almenna áhuga sem virðist ríkjandi á handknatt- leiknum. — Og ég verð að segja það beint frá hjartanu, sagði Sigurður, — að sennilega hefur enginn verið ánægðari með það hvað þeir Ólaf- ur og Axel komu vel frá þessum leik en ég — þeir voru frábærir. ÞURFUM AÐ NA ÞRIÐJA SÆTINU — Auðvitað er ég ánægður með minn hlut í þessum leik, sagði Axel Axelsson, sem í gærkvöldi lék eins og hann gerði bezt i „hina gömlu góðu daga“. — Vörnin var góð hjá okkur i leiknum, og sóknarleikurinn einnig allgóður, sagði Axel, þótt hann dytti reynd- ar niður á köflum. Þá má auðvitað ekki gleyma þvi að markvarzla Ólafs var stórkostlega góð, og kom þar hið gamla fram, að ef við stöndum okkur i vörninni, þá fylgir hann á eftir. Nú er ekkert annað en að hreppa þriðja sætið i keppninni. JOSE Perramon, mark- vörður spánska liðsins og bezti leikmaður þess í leiknum f gærkvöldi sagði f viðtali vð Morgunblaðið, að einföld ástæða hefði verið fyrir ðsigri Spán- verja f leiknum. — Við réð- um einfaldlega ekkert við íslendingana, sagði hann, — þeir voru miklu betri en við, og sá sigur sem þeir un u vvr verððdskuldaður. Við vorum á toppnum fyrir þremur mánuðum, og erum greinilega á niður- leið um þessar mundir. Við höfum oft leikið betur en í kvöld, og það er staðreynd að okkur hefði ekki veitt af okkar bezta til þess að eiga möguleika í íslendingana. Þegar Perramon var spurður álits um beztu leikmenn fslenzka liðsins svaraði hann, að það hefðu verið þeir Viðar Símonar- son, Ólafur H. Jðnsson og Axel Axelsson. FANN MIG VEL í LEIKNUM — ÉG fann mig mjög vel í þessum leik, sagði Ólafur Benediktsson markvörður íslenzka liðsins í gær- kvöldi.'— Það er segín Saga, að ef vörnin stendur sig vel, þá gengúr mér betur í markinu. Þetta var góðurTeikur, sem við getum verið ánægðir með, og sigurinn var okkur mikilvægur. Ekki má þó gleyma því að við eigum Hol- lendinga eftir, og þurfum við auð- vitað að „keyra“ á fullu f þeim leik einnig. BINGO ARSINS I Sigtúni fimmtudaginn 3. marz. Húsiö opnaö kl. 19.30 og bingóiö hefst kl. 20.30. Heildarverðmæti vinninga GÓÐIR AUKAVINNINGAR Spilaðar verða 18 umferðir. Spjaldið kostar 300 kr. og inngangur 200 kr. 750.000 kr. LITASJÓNVARP 2 sólarlandaferðir með Útsýn. 2 mokkajakkar saumaðir af steinari Júliussyni feldskera. Vikudvöl í Kerlingafjöllum. Heimilistæki, ferðaviðtæki og fleira frá Heimilistækjum sf. * Körfuknattleikssamband Islands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.