Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 32
 MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977 Óvíst hvort nýr að- ili gengur inn í ÍSAL Álmarkaðurinn á uppleið eft- ir verðfallið í fyrrahaust SAMKVÆMT upplýsingum Ragnars S. Halldórssonar, for- sf jóra íslenzka álfélagsins h.f., er enn ekki Ijóst, hvaóa erlent fyrir- tæki Alusuisse tekur meó sér til þess að fjármagna stækkun á ker- skála II f Straumsvfk. Ragnar kvaó ekki einu sinni Ijóst, hvort af stækkun skálans verður strax og eins gæti svo farió aó sviss- neska álfélagið kysi aó standa eitt að stækkuninni. Samkvæmt viðbótarsamningi milli Alusuisse og íslenzku rfkis- stjórnarinnar er fyrir hendi heim- ild til stækkunar kerskálans 1979. Ákveðnar óskir hafa svo komið fram frá rikisstjórninni um að stækkuninni yrði flýtt og skálinn yrði stækkaður á næsta ári. Stækkunin nemur 40 kerjum og þegar þau verða komin í gagnið verða i álverinu i Straumsvík 320 ker. Ragnar Halldórsson sagði að al- maikaðurinn væri heldur á upp- leið og kæmi fram greinileg hreyfing til hækkunar. Sagði hann að svo virtist sem álmarkað- urinn væri að ná sér nú upp úr þeim öldudal, sem hann féll niður í f fyrrahaust. Er ástandið því nú að verða sem það var í ágústmán- uði f fyrra. Ef svo fer sem horfir getur því komið til þess að Alu- suisse kjósi helzt að fjármagna sjálft frekari fjárfestingu í Straumsvík. Sjóprófin í Eyjum: Legubreyting kapals- ins var ekki tilkynnt Hins vegar var ekki ætlazt til að skip vörpuðu akkerum á þessum stað SJÓPRÓF vegna þess óhapps varðskipsins Týs, er skipið krækti akkeri f rafstreng Vestmannaey- inga við Yzta-Klett sfðastiiðinn sunnudag, fóru fram f Vest- mannaeyjum f fyrradag. Við sjó- prófin kom fram, að skipherra varðskipsins taldi að strengurinn væri allmiklu vestar, en legu hans hafði verið breytt í janúar- mánuði sfðastliðnum. Hafði láðst að tilkynna breytta legu strengs- ins til sjómælinganna og þvf hafði sjófarendum ekki verið til- kynnt hún. Þá kom einnig fram að f hafnarreglugerð frá 1975 er ekki ætlazt til að akkerum sé varpað á þessu svæði, en skip- herrann sagði við sjóprófin að honum hefði ekki verið kunnugt um þá reglugerð. Samkvæmt upplýsingum Ang- antýs Elíassonar, meðdómanda við sjóprófin, kom fram við þau, að þegar er varðskipsmenn urðu varið við að strengurinn var á akkerinu, hleyptu þeir honum niður aftur, en hann skemmdist við þessi átök. Skipherrann taldi að f Iagi væri að varpa akkerum á þessum stað, þar sem sjókort hans sýndu að strengurinn lægi tölu- vert miklu austar og því ætti að vera óhætt að varpa akkerum á þessum stað. Hins vegar fór fram viðgerð á strengnum í janúarmán- uði og var legu hans þá breytt. Lá Varðskipið Týr hann áður í talsverðri bugðu fyrir austan Klettinn en beygði síðan inn í Klettsvíkina. Við viðgerðina var strengurinn sfðan lagður mun beinni leið og því færðist hann nær Klettinum eða þar sem skipið lá. Svarar það til um það bil 400 metra frá fyrri legustað kapals- Framhald á bls. 18 Einn af mörgum fögrum febrúardögum við Faxa- flóa. Ljósmynd Ól.K.M. Ákvörðun Norðmanna um að hcfja síldveiðan „Vægast sagtmjög varhuga- verð...” — segir sjávarút- vegsráðherra „ÁKVÖRÐUN norska sjávarút- vegsráðherrans um að leyfa 10 þúsund tonna veiði kemur okkur tslendingum mjög á óvart, þvf að eftir þvf sem fiskifræðingar — og þá ekki síður norskir en aðrir — hafa sagt, telja þeir að ekki eigi að leyfa veiðar á fslenzk-norska sfldarstofninum. Þetta getur haft afleiðingar fyrir okkur f framtfð- inni, þótt ekki sé hér um mikið magn að ræða og við munum hafa samband við norsk stjórnvöld út af þessari ákvörðun og láta f Ijós okkar skoðanir. Við teljum væg- ast sagt mjög varhugavert að taka slfka ákvörðun." Þetta sagði Matthías Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, í samtal'i við Morgunblaðið i gær, en á Al- þingi var þetta mál sérstaklega til umræðu. Þar vakti Jón Skaftason alþingismaður athygli á frétt Morgunblaðsins, sem birtist í gær, þess efnis að norsk stjórn- völd hygðust leyfa á ný veiðar á norsk-íslenzka síldarstofninum. Sagði hann að eyðing þessa gjöf- ula fiskstofns og hvarf hans af miðunum úti af Austurlandi og Norðurlandi ætti ekki sízt rætur að rekja til smásíldardráps inni á norskum fjörðum fyrr á tíð. Framhald á bls. 18 Skoðun heilbrigðiseftirlitsins á vinnuaðstöðu í ÍSAL: Andrúmsloft ekki viðunandi fyrr en hreinsitæki koma „ÞAÐ er skoðun Heilbrigðiseftirlitsins að viðunandi andrúmsloft á vinnustað f álverinu í Straumsvík verði ekki til staðar fyrr en uppsetning og starfræksla fullkomins hreinsiútbúnaðar til hreinsunar á ræstilofti verksmiðjunnar er komin f gang,“ sagði Matthfas Bjarna- son, heilbrigðisráðherra, á Alþingi í gær, er hann svaraði fyrirspurn um þetta. Sérstaklega er vakin athygli á hættu, sem stafað getur af asbest- ryki á vinnustað, en erlendar rannsóknir leiða líkur að því, að það geti leitt til bandvefsmyndun- ar í lungum, sem er talinn jafn alvarlegur sjúkdómur og kísil- veiki, er stafar af innöndun kísil- ryks. Verulega hefur verið dregið úr notkun þessa efnis í álbræðsl- unni. Þá kemur fram í svari ráðherra, að nokkuð hafi borið á óþægind- um hjá starfsmönnum í kerskál- um álversins, einkum frá slímhúð nefs og öndunarfæra. Niðurstöð- ur rannsókna, sem framkvæmdar hafa verið, hafa m.a. leitt í ljós: 1. Að nokkurt ryk var á vinnu- stöðum álversins, sem leitt getur til óþæginda i öndunarfærum. 2. 7 menn af 8, sem veikzt höfðu hjá álverinu, og kallaðir voru til viðtals, þjáðust af einkennum frá öndunarfærum, sem í sumum til- vikum voru slæm. Einnig kom fram ofnæmi hjá sumum þessara manna, slen og þreyta að lokinni vinnu. Flestir höfðu unnið í ker- skála en einnig við súrálsuppskip- un — og haft mikla eftirvinnu. 3. Talið var að mengun andrúms- lofts, svo og næmi hjá fjórum af þessum sjö mönnum, væri orsök 3a samverkandi orsök sjúkdóms- einkenna — og öll veikindatilfell- in ættu að flokkast undir atvinnu- sjúkdóma. Heilbrigðiseftirlitið tejur því hættu á atvinnusjúk- dómum hjá starfsmönnum álvers- ins, meðan fullkominn hreinsiút- búnaður er enn ekki upp kominn. 4. Þá leiddu rannsóknir i ljós, að af 117 starfsmönnum, sem heyrnarmældir voru, reyndust 97 með skerta heyrn, þar af 30 með verulegt heyrnartap. Er hér um óeðlilega tíðni heyrnartaps að ræða og er talið nauðsynlegt að endurtaka þessa rannsókn hið fyrsta. Svar ráðherra er birt i heild á þingsíðu blaðsins í dag. SVR-gjöld, olía og kaffi hækka VERÐLAGSNEFND ákvað f gær að heimila hækkanir á kaffi, strætisvagnagjöldum og gasolfu, en hún hafnaði hækkunarbeiðni olfufélaganna um verðhækkun á bensíni, en félögin óskuðu eftir 2ja krónu hækkun, f 82 krónur. Taldi nefndin beiðni félaganna ekki nægilega rökstudda. Hækkunin, sem heimiluð er á kaffi, er 26,3%. Hækkar ódýrasta tegund af kaffi úr 293 krónum hvert kg f 370 krónur. Samkvæmt upplýsingum Georgs Ólafssonar verðiagsstjóra er þessi hækkun eingöngu vegna mjög mikilla verðhækkana erlendis, sem stafa af þvi að uppskeran f Brasilfu brást að miklu leyti. Sagði Georg að af þessum sömu sökum mætti búast við enn frekari hækkunum á kaffi síðar. Vegna gifurlegs rekstrarhalla Strætisvagna Reykjavíkur heim- ilaði verðlagsnefnd hækkun á strætisvagnagjöldum fyrirtækis- ins. Hækkun gjaldanna er að meðaltali 23%. Staðgreiðslugjald Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.