Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 3 Brigitte Bardot í Reykjavík í gær: Bardot f gestamðttökunni á Hðtel Loftieiðum, ðsamt tveimur fylgdarmönnum sfnum. A leið út f einkaþotuna eftir örskamma viðdvöi ð Hðtei Loft- leiðum. Eins og sjð mð er Bardot búin gððum skjðlfötum. • Sf dökkhærði með vindilinn ðsamt tveimur ijðsmyndurum, sem • með f ferðinni voru. brást hinn versti við og sagði: „Viltu gera svo vel að taka ekki myndir af okkur“. Slðan sneri hann sér að blaðamanni og spurði „Hvernig fenguð þér upplýsingar um að Bardot væri stödd hér?“ Blaðamaður sagðist engar upplýsingar hafa fengið um það, en hefði hins vegar þekkt Bardot strax. Við þetta virtust þau blíðkast aðeins. Fylgdarsveinn Bardot var fremur hávaxinn, dökkhærður miðaldra maður með stóran vindil. Hann neitaði að gefa upp hver hann væri eða hvaða hlutverki hann gegndi, hvort hann væri umboðsmaður Bar- dot eða elskhugi, kvikmynda- leikstjóri eða bara kunningi. Þegar blaðamaður hafði reynt að fullvissa Bardot um, að hún liti mjög vel út og hvort ljósmyndari mætti ekki smella einni mynd af henni sagði hún fyrrgreind orð, það er að hún liti ekki nógu vel út og þætti vænt um að við tækjum enga mynd af sér. „Þér eruð vin- gjarnleg að segja þetta,“ sagði Bardot og brosti meira að segja lítið eitt við ljósmyndaranum en sneri jafnskjótt við honum baki, er dökkhærði fylgdar- sveinninn hennar hafði sagt nokkur vel valin orð. „En er ekki allt i lagi að leyfa þeim að taka eina mynd?“, spurði Bar- dot. Hann muldraði: „Kemur ekki til mála“, og við það yppti Bardot öxlum. Aðspurð um hvort þau væru á leiðinni til Ameríku, svöruðu þau játandi. Hvort Bardot væri að fara að leika í einhverri mynd? Hún leit upp brosandi og sagði: „Nei, ég leik aldrei framar í kvikmyndum." Hvort hún ein- beitti sér nú eingöngu að dýra- verndunarmálum? Hún sagði: „Já, frekar." En eins og kunn- ugt er, er Brigitte Bardot mikill dýravinur og dýravernd er að- aláhugamál hennar. Þegar þetta stutta samtal átti Framhald á bls. 39 V t —••—•••••••••••••••••« Farartæki filmstjörnunnar. 0 „NEI, ekki taka mynd af mér, ég er svo illa til höfð,“ sagði Brigitte Bardot um leið og hún strauk hárið frá enninu og lagfærði ljósbláan trefil, sem hún hafði um hálsinn. Þetta átti sér stað í gestamóttöku Hótels Loftleiða um fimmleytið f gærdag. Blaðamaður Morgun- blaðsins stóð við móttökuborðið er hún heyrði fólk tala saman á frönsku við hlið sér. Það kemur svo sem engum úr jafnvægi að heyra erlend tungumál á stað eins og hótel Loftleiðum, en klæðnaður og framkoma fólks- ins vakti athygli blaðamanna og við nánari athugun kom í Ijós kunnuglegt andlit undan ljósu lokkaflóði: hér gat varla verið um neina aðra að ræða en frönsku kvikmyndastjörnuna og kyntáknið Brigitte Bardot. Þegar blaðamaður vék sér að henni og spurði hana hvort þetta væri ekki rétt athugað, leit hún niður þannig að hárið bylgjaðist fram á andlitið og setti þann fræga Bardot-stút á munninn um leið og hún svar- aði: „Non“. En það var um seinan og ljós- myndari Morgunblaðsins, RAX, var ekki seinn á sér að smella nokkrum myndum af Bardot, og fylgdarmanni hennar, sem Ljósmyndir: Rax. „NEI, EKKITAKA MYND, EG ERSVOILLA TIL HÖFÐ..." »•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• •••••••••••••••••••• •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.