Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977
27
Helgi og hinir Völsung-
arnir ætla sér sigur í 1
deid á 50 ára afmælinu
17 ára piltur, Helgi Helgason, frá Húsavík hefur nú
haldið til Bandarfkjanna og mun æfa þar með hinu
fræga atvinnumannaliði í knattspyrnu Cosmos, með
þvf liði leikur einn mesti knattspyrnusnillingur allra
tíma, Edson Pele, auk margra annarra atvinnumanna
frá Bretlandseyjum og fleiri iöndum.
Helgi Helgason, hinn efnilegi leikmaður Völsungs, sem nú æfir
með New York Cosmos f Bandarfkjunum en þar er hinn heimsfrægi
Pele meðal leikmanna og nokkrir fyrrverandi leikmenn f enskum 1.
deildarliðum.
McKernan, sem verður þjálfari Völsungs annað árið I roð.
Helgi Helgason er einn af
beztu leikmönnum Völsungs
frá Húsavík og hefur einnig
verið valinn í unglingalands-
liðið. Hann mun verða hjá
Cosmos að minnsta kosti f einn
mánuð, en nú er liðið að búa sig
undir keppnistímabilið, sem
hefst í maí og er þetta eins
konar reynslu tími fyrir hann
og greiðir félagið allan kostnað
af dvöl hans þarna svo og allan
ferðakostnað. Forráðamenn
Völsungs telja fremur ólíklegt
að Helgi ílengist í Bandaríkj-
unum þó að honum muni ganga
vel og búast þeir við því að
hann komi tvíelfdur heim til að
taka þátt í íslandmótinu í 2.
deild sem Völsungar eru nú
ákveðnir í að vinna í tilefni af
50 ára afmæli félagsins auk
þess sem Helgi hefur verið val-
inn f unglinga landsliðið og á að
leika með því i Belgíu í sumar.
Það var þjálfari Völsungs,
John McKernan, sem kom
þessu í kring fyrir Helga, en
hann er mjög hagvanur i
Bandaríkjunum og hefur hann
meðal annars leikið þar með
atvinnumannaliðum. John
McKernan hefur nú verið
endurráðinn þjálfari Völsungs,
en hann þjálfaði liðið einnig
síðasta kepnnistímabil og mun
hann koma til landsins i byrjun
marz, en æfingar eru nú hafnar
hjá liðinu og munu flestallir
þeir leikmenn sem með liðinu
voru á síðasta keppnistímabili
verða með áfram auk þess sem
nokkrir ungir og efnilegir pilt-
ar munu koma upp í 2. flokk-
inn, en i sumar mun hann í
fyrsta sinn taka þátt í islands-
mótinu.
Það er vissulega gaman að
vita til þess að íslenzkir knatt-
spyrnumenn hafi náð svo langt
sem raun ber vitni og það að 17
ára piltur skuli hafa náð svo
langt að vera tekinn til reynslu
hjá þekktasta og dýrasta knatt-
spyrnuliði Bandaríkjanna þar
sem frægustu knattspyrnu-
menn heimsins hafa leikið og
munu líklega enn leik mcð.
Þetta undirstrikar það að við
erum stöðugt að ná lengra á
þessu sviði, því eins og við vit-
um er þeim íslendingum alltaf
að fjölga sem gerast atvinnu
menn hjá erlendum félögum og
áður en langt um lfður verður
liklega komið svo að allir okkar
beztu leikmenn verða orðnir at-
vinnumenn erlendis ef ekki
verður búið betur að þeim hér
heima. Það sjá allir að þegar
leikmenn þurfa að æfa allt að
þvi 3 tíma 5 daga vikunnar og
leika svo þann 6. verður vinnu-
taj) geysimikið auk þess sem
leikmönnum gefst ekkert tæki-
færi til að eyða fristundunum
með fjölskvldu sinni.
Að lokum óskum við Helga til
hamingju með þennan merka
áfanga sem hann hefur náð og
Völsungi óskum við til
hamingju með 50 ára afmælið
og vonandi gengur félaginu vel
I mótum sumarsins. HG.
ÝMSAR hræringar eru f knatt-
spyrnunni þessa dagana. Félög-
in eru að Ijúka við að ráða
þjálfara og þeir leikmenn, sem
ætla sér að skipta um félög
hafa annað hvort gert það eða
eru að þvf um þessar mundir.
Af þjálfaramálum liðanna f 1.
deildinni er það nýjast að
frétta að Meldrum þjálfari KR-
inga hætti við að koma eftir að
hann var þó búinn að skrifa
undir samning. Tókst KR-
ingum að fá annan enskan
þjálfara í stað hans og telja sig
heppna að Meldrum skyldi
ekki hafa tekið við starfinu hjá
þeim. Sá sem nú hefur verið
ráðinn til KR heitir Tom Cazie
og hefur m.a. leikið með New-
castle og verið þjálfari hjá
Everton.
Vfkingar og Billy Haydock
hafa að undanförnu staðið í
samningum og lyktir mála urðu
þær að Billy hefur verið ráðinn
til félagsins til tveggja ára.
Hafa þá öll Iiðin i 1. deild ráðið
þjálfara. Youri Ilitchev verður
hjá Val. Kirby verður með
Skagamennina, Anton Bjarna-
son með Fram, Þorsteinn Frið-
þjófsson með Breiðablik,
Skinnear með ÍBV, Ferguson
með Þór, Hólmbert Friðjónsson
með ÍBK, Þórir Jónsson með
FH og þeir Billy Haydock og
Tom Cazie með Víking og KR.
Gengið frá ráðningu bjálfara
- hræríngar meðal leikrnanna
Af félagskiptum leikmanna
úr 1. deildinni má nefna að Örn
Óskarsson úr ÍBV er genginn f
KR og Kristinn Björnsson Vals-
maður verður með Skagamönn-
um f sumar. Þorsteinn Ölafsson
markvörður ÍBK stundar nám í
Sviþjóð og hyggst leika með
þriðjudeildarliði þar. Teitur
Þórðarson, Matthías Hallgríms-
son og Davíð Kristjánsson —
allir af Akranesi — eru einnig í
Svíþjóð og leika með þarlend-
um liðum eins og kunnugt er.
Alitaf eru það einhverjir leik-
menn, sem leggja skóna á hill-
una á hverju haust, aldurs eða
annarra ástæðna vegna. Virðist
þetta bitna harðast á Keflvík-
ingum f ár, þar sem margir af
máttarstóipum liðsins hafa lagt
skóna á hilluna, t.d. Einar
Gunnarsson og Ástráður
Gunnarsson og óvfst er hvað
þeir gera Guðni Kjartansson og
Karl Hermannsson, en báðir
hafa þeir átt viíi meiðsli að
stríða.
I þriðju deildinni eru hreyf-
ingar á mönnum eins og annars
staðar og nefna má að Atli
Helgason, sem verið hefur
unglingaþjálfari hjá KR og Vík-
ingi undanfarinn áratug með
^góðum árangri hefur nú tekið
við þriðjudeildarliði Aftureld-
ingar. Þá mun Hreiðar Ársæls-
son hafa hug á að taka að sér
þjálfun á nýjan leik og hefur
heyrst að hann ætli austur á
Firði.
KR-ingarnir Halldór Björns-
son og Gunnar Gunnarsson fara
báðir út á land til þjálfunar i
sumar. Halldór verður í Siglu-
firði, en Gunnar á tsafirði. Gisli
Magnússon, sem hafði verið
orðaður-við ísafjarðarliðið, fer
á nýjan leik til Færeyja, en
þarlendum likaði vel við Vest-
mannaeyinginn sfðastliðið sum-
ar og náði hann mjög athyglis-
verðum árangri.
Magnús Jónatansson frá
Eskifirði verður með Þrótt á
Neskaupstað eins og í fyrra-
sumar, en þá kom hann liðinu
upp i 2. deild. Nafni hans
Jónatansson frá Akureyri verð-
ur hins vegar með lið Reynis
frá Árskógsströnd. Með
Magnúsi Eskfirðingi verða
a.m.k. þrir leikmenn, sem leikið
hafa í 1. deildinni. Það eru þeir
Þórhallur Jónasson, sem áður
lék með Víkingi, en hefur
undanfarin ár verið við há-
skólanám f Svfþjóð, Halldór
Árnason frá Eskifirði lék
nokkra Ieiki rpeð meistara-
flokki Fram í fyrra, en ætlar nú
að skipta um félag og leika með
Þrótti í 2. deildinni. Siðast en
ekki sizt hefur svo Valsmaður-
inn Helgi Benediktsson ákveðið
að skipta um félag og bætast f
hóp Norðfjarðar-Þróttara.
Vissulega búbót fyrir Þróttara
að fá þá þrjá f liðið. ,*
—áij
DANIR OG SVIAR MEÐ
SAMEIGINLEGT „KERFI'
DANSKA og sænska handknatt-
leikssamböndin gerðu nýlega
samkomulag sfn á milli um upp-
lýsingamiðlun og er ætlun sam-
bandanna að koma sér upp á
næstunni safni myndsegulbanda
af landsleikjum sem allra flestra
þjóða í handknattleik. Telja
landsliðsþjálfarar beggja þjóð-
anna mikið fengið með þessu
samkomulagi, og eru sammála
um að slfkt myndasafn af leikjum
hinna ýmsu landsliða geti orðið
veigamikil aðstoð við undirbún-
ing landsliðanna.
Leif Mikkelsen, þjálfari danska
handknattleikssambandsins,
sagði nýlega f blaðaviðtali, að
þetta samkomulag myndi nánast
tryggja það að alltaf væru til
myndir af þeim andstæðingum
sem keppa ætti við — a.m.k. þeim
andstæðingum sem máli skiptu.
Þannig ættu t.d. Svfar nú fyrir-
liggjandi kvikmyndir af vestur-
þýzka landsliðinu, en við það eiga
Danir að keppa á næstunni. Sagði
Mikkelsen, að kvikmyndasafnið
myndi hafa enn meiri þýðinu þeg-
ar nær drægi heimsmeistara-
keppninni í Danmörku. Er ætlun
Svía og Dana að kosta sameigin-
lega ferð kvikmyndatökumanns
til keppninnar í Austurrfki, og
munu þeir þar einkum taka
myndir af þeim liðum sem búizt
er við að komist i A-keppnina, en
mat þessara þjóða er það að þau
lið verði: Austur-Þýzkaland,
Tékkóslóvakía, Sviþjóð, Noregur,
Spánn og Austurríki. — Auðvitað
breytast leikaðfeðir liðanna alltaf
eitthvað, en þegar myndir eru
skoðaðar af liðum, er alltaf hægt
að fá þannig nokkrar upplýsingar
um hvernig einstakir leikmenn
leika, bæði í sókn og vörn, sagði
Mikkelsen.
Danskir handknattleiksmenn með eftirvæntingu f svipntim. Þeir
gera sér vonir um góða frammistöðu f heimsmeistarakeppninni
og spara ekkert til þess að árangur náist.