Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 35 FÍB telur forsendu try ggingaf élag- anna vafasama BLAÐINU hefur borizt eftirfar- andi yfirlýsing frá Félagi Is- lenzkra bifreiðaeigenda vegna umræðna um hækkunarbeiðni á vátryggingaiðgjöldum ökutækja: Vegna þeirra athugasemda sem fram hafa komið i fjölmiðlum við greinargerð F.Í.B. um hækkunar- beiðni tryggingafélaga vill félagið taka eftirfarandi fram: j Beiðni tryggingafélaganna um 44% hækkun á iðgjöldum er byggð á þeirri forsendu að hraði verðbólgunnar á tímabilinu 1. febr. 1977 — 1. febr. 1978, verði hinn sami og á liðnu ári eða 34,5%. Þessa forsendu telur F.l.B. vafasama og vitnaði því til verðlagsspár Þjóðhagsstofnunar, þar sem félagið taldi Þjóðhags- stofnun tvimælalaust þann aðila hérlendis sem bezt er i stakk búinn til þess að gera verðlags- spár. Jafnframt benti félagið á að Námskeið um fyrirtæki í óstöð- ugu umhverfi NÝLEGA kom út 3. tbl. Stjórnunarfrétta, sem Stjórn- unarfélag tslands gefur út. í þessu tölublaði eru upplýsingar um starf félagsins á s.l. ári og greint frá eðli og til- gangi Stjórnunarfélagsins. Þá er i ritinu grein um meðferð starfs- umsókna og ennfremur er lýsing á námskeiði á vegum Stjórnunar- félagsins, sem John Winkler framkvæmdastjóri leiðbeinir á. Námskeið John Winkler, sem verður dagana 28.—30. marz, fjallar um fyrirtækið í óstöðugu umhverfi og hvernig það getur komist af á umbrotatímum. yfirlýst stefna rikisstjórnarinnar væri, að dregið skuli úr verð- bólgu. Þessari stefnu tókst rikis- stjórninni að framfylgja á liðnu ári með þvi að draga verulega úr hraða verðbólgunnar. Er þvi eng- in ástæða til að ætla annað en að rikisstjórninni takist á þessu ári að draga enn frekar úr hraða verðbólgunnar, og ná þvi marki að verðbólgan verði 18% eins og Þjóðhagsstofnun spáir fyrir um. 2 1 einu dagblaðanna i dag lýsa Bjarni Þórðarson trygginga- fræðingur og Erlendur Lárusson forstöðumaður tryggingaeftirlits- ins því yfir, að verðlagsspá Þjóð- hagsstofnunar væri mjög óraun- hæf. Þessi verðlagsspá var gerð í nóvember á síðastliðnu ári, og að sögn Ólafs Daviðssonar hjá Þjóð- hagsstofnun stenst spá þessi í öll- um aðalatriðum ef litið er á þróunina þar sem af er árinu. Að mati hagdeildar F.lB. er verðlags- spá Þjóðhagsstofnunar byggð á beztu forsendum sem fræðilega er hægt að grundvalla verðlags- spá á. Ef menn sjá ástæðu til þess að rengja verðlagsspá Þjóðhags- stofnunar eins og gert hefur ver- ið, verður Þjóðhagsstofnun að svara þeim ásökunum. 3 Vegna ummæla Erlends Lárus- sonar í einu dagblaðanna i dag þess efnis að „réttara væri að miða (hækkanir) við verðlags- þróun ársins á undan, og ef svo væri ávallt gert, myndi hækkunin leiðréttast þegar til lengdar léti“, skal bent á að slik ráðstöfun leiddi að mati félagsins til þess að áhrifa verðbólgu gætti lengur á tímum eins og nú, þegar Verð- bólga fer minnkandi. 4 Að lokum vill F.l.B. benda á, að það væri ákaflega einkennileg stjórnun á verðlagsmálum ef aðil- ar eins og tryggingafélögin í þessu tilfelli, gætu rökstutt hækkunarbeiðni með því að slá fram eigin hugmyndum um vænt- anlega verðþróun, og að slíkur rökstuðningur væri tekinn fram yfir spá sem unnin er af Þjóð- hagsstofnun, en hún hefur á að skipa hæfustu mönnum hérlendis til verkefna sem þess að gera veð- lagsspá. Heilbrigðiseft- irlitið mótmælir VEGNA' yfirlýsinga fulltrúa þeirra launþegafélaga sem aðild eiga að kjarasamningum við tslenska álfélagið I Straumsvfk og fram komu á fundi með frétta- mönnum 10. þessa mánaðar vill Heilbrigðiseftirlit rfkisins vekja athygli á 38. gr. 4 f heilbrigðis- reglugerð fyrir tsland frá 1972, en þar segir svo: Sérstakur fulltrúi verkafólks, „umsjónarmaður vinnustaða" eða varamaður hans, tilnefndur af fulltrúaráði eða fjórðungssam- bandi, skal eiga þess kost að sitja heilbrigðisnefndarfundi með málfrelsi og tillögurétti. Þar sem ekki starfa sérstakir heilbrigðis- fulltrúar, skal „umsjónarmaður vinnustaða" í heilbrigðisnefnd hafa með höndum eftirlit vinnu- staða undir yfirumsjón héraðs- læknis. Jafnan skal hann hafa samráð við trúnaðarmann verka- manna um allt sem að bættum aðbúnaði og hollustu lýtur og gefa honum kost á að fylgjast með því hvað umbótum liður. Heilbrigðiseftirliti ríkisins er ekki kunnugt um að fyrrnefnd launþegasambönd hafi notfært sér þessi réttindi sín til þess að hafa áhrif á og fylgjast meó fram- kvæmd heilbrigðis- og hollustu- mála við álverið í Straumsvik. Heilbrigðisyfirvöld hafa ætið gert allt sem í þeirra valdi hefur staðið til að fá fram bætta vinnu- aóstöðu og heilbrigðiseftirlit við álverið í Straumsvík. Heilbrigðisyfirvöld hafa ætið gert allt sem í þeirra valdi hefur staóið til að fá fram bætta vinnu- aðstöðu og heilbrigðiseftirlit við álverið í Straumsvík og mótmæla alfarið fullyrðingum um að þau hafi verið „dragbítar á þvi sem þurft hefur að bæta í Straums- vik“ sem ábyrgðarlausum og órökstuddum og ekki til þess föllnum að bæta samvinnu þeirra aðila sem mál þessi varða. (fréttatilkynning) ENN EITT TÆKNIUNDUR FRA CASIO SKEIÐKLUKKA 1 / 10 sek , millitímar DIGITALKLUKKA/ DAGATAL Quartz krist a11 nákvæmni + - 1 5 sek/mán. sjálfvirk dagatalsleiðrétting um mánaðamót þ.m.t. hlaupár TÖLVA allar grunnreiknisaðferðir ásamt konstant o.fl. VEKJARAKLUKKA unnt er að stilla 4 mis- munandi tíma á sólarhring. ÞYNGD 148 gr. smellur í vasann. kr. 20.850 - CASIO umboðið STÁLTÆKI, Vesturveri, S. 27510 RÁÐSTEFNA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS UM SJÁLFSFORRÆÐI SVEITARFÉLAGA í VALHÖLL BOLHOLTI 7 19.-20. MARZ 1977 DAGSKRÁ. 19. marz, laugardagur kl. 9.30-12.00. Framsögur um. Verka- og tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga og um: svæðaskiptingu og samstarf sveitarfélaga. Framsögumenn: Árni Grétar Finnsson, Páll Líndal, Sigurgeir Sigurðsson. Kl. 13.30-15.30. Panelumræður. Fyrir svörum sitja: Birgir ísl. Gunnarsson, Gunnar Thoroddsen, Kristinn G. Jóhannsson, Matthías Bjarnason, Matthías Á. Mathiesen, Ólafur B. Thors og Steinþór Gestsson. Kl. 16.15-18.30. Umræðuhópar starfa. Umræðustjórar: Halldór Þ. Jónsson, Markús örn Antonsson og Ólafur G. Einarsson. 20. marz, sunnudagur kl. 13.30-16.00. Álit umræðuhópa — umræður um: Stefnumörkun — sveitarstjórnarmál. Kl. 16.30-18.00. Framhald almennra umræðna. Ráðstefnuslit: Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins. Ráðstefna um sjálfsforræði sveitarfélaga, laugardag— sunnudag 19. og 20. marz. Til ráðstefnunnar hefur verið sérstaklega boðað. Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Bolholti 7, Reykjavík, sími 82900. Ráðstefnan verður sett, laugardaginn 19. marz ki. 9.30 með ávarpi Gunnars Thoroddsen féiagsmálaráðherra varaformanns Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.