Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 47 Jarðskjálfta- hrinan í rénun JARÐSKJÁLFTAHRINA sú, sem undanfarið hefur staðið yfir við Kröflu, virðist nú mjög í rénun og mældust aðeins 100 skjálftar frá þvi klukkan 15 á sunnudag til jafnlengdar i gær. Sólarhringana þar á undan mældust skjálftarnir 136 og 121. A laugardagskvöld um klukkan 21 mældust tveir snörp- ustu skjálftarnir i þessari hrinu og voru þeir 3.5 og 3.6 stig á Bilaður rafmagns- rofi orsök ketil- sprengingarinnar Þorlákshöfn 14. marz. NU ER ljóst orðið, að ástæðan fyrir ketilsprengingunni, sem varð í húsi þeirra hjóna EUenar Ölafsdóttur og Guðmundar Guð- finnssonar, Klébergi 4 hér í bæ, var sú að rafmagnsrofi bilaði og Fellt að fækka útlend- ingum í Sviss Genf — 14. marz — NTB SVISSNESKIR kjósendur höfn- uðu í gær i þriðja sinn á sjö árum, að hundruðum þúsunda erlendra verkamanna yrði vísað úr landi. Tillaga þar um kom frá hægri sinnuðum stjórnmálaflokkum og var ráð fyrir gert, að á næstu tíu árum yrði útlendingum fækkað um 650 þúsund. Þeir eru um þess- ar mundir tæplea 960 þúsund tals- ins. Þátttakan i þessari þjóðarat- kvæðagreiðslu var um 46 af hundraði og þar af greiddi meira en helmingur atkvæði gegn tillög- unni. Þegar síðast var gengið til þjóðaratkvæðis um sama mál, árið 1974, tóku yfir 70 af hundraði kjósenda þátt. Leiðrétting SU villa slæddist í Mbl. fyrir helg- ina, að vélbáturinn Arni Magnús- son var sagður frá Eyrarbakka. Það er ekki rétt, báturinn er gerður út frá Stokkseyri. Fjölteflin blómstra ALSTER, aðstoðarmaður Horts, fór um helgina til Húsa- víkur og Hrfseyjar og tefldi þar fjöltefli við heimamenn. A Húsavík tefldi hann 25 skákir, vann 20, gerði 4 jafn- tefli og tapaði einni, fyrir Brynjari Sigtryggssyni. 1 Hrísey tefldi hann 23 skákir og vann allar. í Hrisey hitti Alster landa sinn sr. Kára Valsson, en hann er Tékki, sem flutti hingað árið 1931. Þá er staddur hér á landi vegna einvígisins kanadískur blaðamaður, Camil Coldari að nafni. Skrifar hann um ein- vígið f kanadísk blöð. Coldari er allsterkur skákmaður, hef- ur 2270 Elo-stig. Hann tefldi fjöltefli við unglinga í Tafl- félagi Reykjavfkur á laugar- daginn. Var teflt á 40 borðum og vann Kanadamaðurinn 38 skákir, ein varð jafntefli og einni skák tapaði Coldari. Sá sem lagði hann að velli var Egill Þorsteins, 13 ára, en Lárus Axelsson gerði jafntefli við Kanadamanninn. Að fjöl- teflinu loknu sagði Coldari, að islenzkir unglingar væru mjög efnilegir í skák og 2 — 3 úr þessum hópi ættu möguleika á því að verða mjög góðir skák- menn. Coldari hefur áhuga á þvf að tefla fjöltefli vfðar. Richterskvarða. Fundust þeir við Kröflu og víða í Mývatnssveit og fylgdi þeim allmikill hvinur. Landrisið hætti á mánudag og landið byrjaði að sfga á ný. Mæld- ist sigið 0.2 mm í stöðvarhúsinu við Kröflu. Telja jarðvísinda- menn að þessari hrinu sé nú lokið og eru margir þeirra, sem voru við Kröflu, ýmist farnir eða á förum þaðan. sló ekki út. Enginn öryggisrofi var á vatnslögninni, en hann á að koma í veg fyrir að svona lagað geti gerzt. Það er óskaplegt, þegar fólk heldur sig vera að kaupa það bezta sem völ er á, að það skuli geta átt von á slfkri útreið. Von- andi þarf ekki fleiri óhöpp af þessu tagi til að opna augu manna fyrir þvf Öryggis- og eftirlitsleysi, sem er á kynditækjum húsa yfir- leitt. Þessi hjón flýðu jarðeldana f Vestmannaeyjum og keyptu húsið að Klébergi 4 fokhelt, og hafa sfðan verið að vinna að þvi að gera sér þarna fallegt heimili. Höfðu sem sagt lagt sfðustu hönd að þvi v kaupa húsgögn og fleira sem til þurfti og þá er allt þetta meira og minna eyðilagt á einu augnabliki fyrir þekkingar- eða ábyrgðarleysi einhvers. Hér þarf sannarlega að taka til hendinni, setja lög hér um og herða eftirlit með þvf að þeir sem fást við slikar lagnir viti nákvæm- lega hvað þeir eru að gera. Tjón þessara hjóna er gffurlegt, en engan mann sakaði, þvi má ekki gleyma, þó það væri einfaldlega vegna þess að húsið var mann- laust þegar þetta gerðist. Það var svo sannarlega lán f óláni. — Ragnheiður. — Skák Framhald af bls. 18 vetfangi) 32. Rg5 — Hf4, 33. Rxh7 — Ke7, 34. Rg5 — (Polugaevsky hefur e.t.v. hald- ið að hann gæti króað þennan riddara inni. Það reynist algjör tálsýn.) — Bg4, 35. h3 — Bh5, 36. Hgl — g6, 37. d4! — Kf6, 38. Rh7+ — Kg7, 39. Rg5 — Kh6, 40. d5 —Hf8, 41. Hg2 — Hfl, 42. Kd3 — Hér fór skákin i bið. Hvítur stendur greinilega betur eftir fyrrgreind mistök svarts Rádstefna sjálfstæð- iskvenna á Vesturlandi Sjálfstæðiskvennafélögin f Vesturlandskjördæmi efna til ráðstefnu um áfengis- og ffkni- efnamál, skatta- og atvinnumál í Borgarnesi sunnudaginn 20. marz. Ráðstefnan hefst klukkan 9.30 fyrir hádegi. Nánar verður skýrt frá henni í auglýsingu síðar. — Herlög Framhald af bls. 1. áfall fyrir alla stjórnmálaflokka ekki sízt kommúnistaflokkinn, sem stúdentar hafa ásakað um að hafa gengið í lið með kerfinu með stuðningi sínum vió minnihluta- stjórn kristilegra demókrata. ORÐ í EYRA Opin- berun? Ekki er það daglegur við- burður á þessum siðustu og verstu tfmum að fjandmenn sameinist undir merkjum göf- ugra hugsjóna. Þau gerast ekki mörg dæmi þess á vorri tíð að hávaðamenn fallist í faðma upp úr miðju aurkasti. Það er ekki á hvurjum degi sem menn verða vitni að þvf að áhugi á háleitu viðfangsefni geri organdi skjaldbíta á vígvelli að auð- sveipum lambgimbrum í gróðursælum bithaga. — Þvf meiri undrun vekur það. Og því meiri fögnuð. Vopnabrak hljóðnar; illyrði kafna á tungu; svigurmæli falla dauð og ómerk. Og fjendur tengjast í einingu andans og bandi friðar- ins. — Nú titra menn ékki leng- ur af heift. Nú öskra menn ekki lengur í ofsa. Nú stökkva menn ekki framar upp á nef sér út af smámunum. Hugsjón er sem sagt fundin sem ofar stendur samanlögðum kröflumálum heimsbyggðar- innar: Við þurfum sterkt öl til að bjarga með þvi menningu þjóðarinnar. Við þurfum ölkrár i tugatali svo íslenzk æska megi öðlast þann þroska sem henni er fyrirmunaður án slfkra dá- semda. A sama tíma og svenskir þykjast hafa þá reynslu af upp- eldisáhrifum áfengs öls að sala slíks varnings verður bönnuð innan nokkurra vikna þar í landi hafa Vilmundur og Sól- nes uppgötvað að drukkur sá sé sérdeilislega heilsusamlegur. Einkum þó f þá veru að hér mætti stofnsetjast menningar- samfélag kennt við kunnáttu- semi í áfengisdrykkju. Slíkt samfélag yrði einsdæmi um gjörvalla heimsbyggðina, að Kröflubúðum ekki undanskild- um. Það er jafnan fagnaðarefni þegar menn verða fyrir vitun- um. Að vísu eru opinberanir sálufélaganna, Vilmundar og Sólness, af öllu jarðneskari toga en þær sem frægastar hafa orðið f kristnum sið. Sumir ger- ast jafnvel það ósvífnir að kenna þær við svo jarðbundin gróðafyrirtæki sem Túborg og Heineken sem nú hafi eignast rökhelda krossriddara hér norður í höfum i baráttu sinni gegn heilbrigðri skynsemi og fyrir dulitlu meiri ágóða af hlutabréfunum. Allt um það stendur í helgri bók: „Á þessum sama degi urðu þeir Pílatus og Heródes vinir.“ Svæðismót Austurlands í skák hafið SVÆÐISMÓT Austurlands I skák hófst I barnaskólanum á Reyðarfirði nú um helgina og verður þvf haldið áfram um næstu helgi. Á mótinu verða tefldar sjö umferðir eftir Mon- rad-kerfi og lýkur mótinu með hraðskák. í frétt frá Skáksambandi Austurlands segir, að skákmót skólanna á Austurlandi fari fram í apríl á Seyðisfirði. Þá er ákveðið að sveitakeppni Aust- urlands í skák verði haldin á Borgarfirði eystra f maf. Marijuana- innflutning- ur upplýstur Um helgina ar sleppt úr gæzlu- varðhaldi hálfþrftugum Reyk- vfkingi, sem setið hefur inni sfð- an f janúar vegna rannsóknar á ffkniefnamálinu mikla, sem upp komst á sfðastliðnu hausti. Maður þessi reyndist hafa verið einn stærsti innflytjandi fíkni- efna til landsins, og við yfir- heyrslur upplýstist sá þáttur málsins, sem sneri að innflutningi á marijuana. Þegar Morgunblaðið ræddi i gærkvöldi við Arnar Guðmundsson, fulltrúa við Fikni- efnadómstólinn, kvaðst hann ekki geta á þessu stigi gefið nákvæm- lega upp það magn, sem maður- inn hefði flutt inn. Þá hefur Fíkniefnadómstóllinn að undanförnu rannsakað annað fíkniefnamál, sem einnig mun vera umfangsmikið. Er rannsókn þess máls að ljúka, og situr nú aðeins einn maður í gæzluvarð- haldi vegna þess. — Loðnuaflinn Framhald af bls. 48 bæði til Siglufjarðar og eins til Austfjarðahafna. Eftirtalin skip höfðu tilkynnt um afla til loðnunefndar frá því kl. 24 á laugardagskvöld til kl. 19 i gær.: Grindvikingur GK 600 lestir, Faxi GK 210, Gunnar Jónsson VE 220, Bjarni Ólafsson AK 400, Þór- katla 2. GK 210, Kap 2. VE 350, Hrafn GK 400, Helga RE 270, Eld- borg GK 500, Helga 2. RE 350, Náttfari ÞH 330, Hamravik KE 90, Staðavik SI 500, Freyja RE 240, Albert GK 200, Magnús NK 270, Árni Sigurður AK 330, Arnarnes GK 220, örn KE 500, Hringur GK 90, Guðmundur Jóns- son GK 620, Rauðsey AK 500, Súlan EA 630, Gullberg VE 540, Asberg RE 380, Vörður ÞH 250, Fifill GK 560, Skógey SA 200, Sandafell GK 300, Víkurberg GK 250, Helga Guðmundsdóttir BA 450, Bára GK 200, Sæberg SU 240, Gunnar Jónsson VE 280, ísleifur VE 420, Guðmundur RE 740, And- vari VE 200, Sæbjörg VE 290, Hilmir KE 200, Þórður Jónasson EA 360, Kap 2. VE 520, GIsli Árni RE 450, Loftur Baldvinsson EA 750, Árni Sigurður AK 400, Öskar Halldórsson RE 370, Huginn VE 550, Steinunn RE 150, Magnús NK 250, Hilmir SU 500, Skógey SF 230, Sigurbjörg ÖF 240, Árni Magnússon GK 200, Flosi ÍS 280, Ársæll Sigurðsson GK 170, Svan- ur RE 310, Víkurberg GK 230, Kári Sólmundarson RE 250, Ás- borg RE 200, Pétur Jónsson RE 500, Hamravik KE 100, og Geir goði RE 150 lestir. — Starfsleyfi Framhald af bls. 2 og Mjöls hafa ekki verið efnd, en rétt er þó einnig að geta þess, að á sinum tima greiddi fyrirtækið talsvert fé inn á kaup á reykháf úr plasti, sem kaupa. átti frá brezku fyrirtæki. Þetta fyrirtæki mun hins vegar hafa ofðið gjald- þrota og Lýsi og Mjöl tapað þann- ig þeim peningum. — Árið 1975 var boðin út smíði 60 metra hás reykháfs úr stein- steypu fyrir Lýsi og Mjöl ig fleiri fyrirtæki og var áætlað að hann kostaði 42—62 milljónir króna. Ekkert hefur sézt af þeim reyk- háfum ennþá. Það er mikið kvart- að yfir þeim ódauni, sem leggur yfir bæinn og svo sannarlega er fólk hér orðið þreytt á því að yfirvöld skulu endalaust dauf- heyrast við þessum sjálfsögðu kröfum um hollustuhætti og þrifnað, sagði Sveinn Guðbjarts- son að lokum. Heilbrigðiseftirlit ríkisins sendi frá sér í maí á siðasta ári mikla „greinargerð um varnir gegn mengum og óþef frá fiski- mjölsverksmiðjum". Er þar bent á ýmsar leiðir til úrbóta, auk þess að reisa háa turna við verksmiðj- urnar. Segir þar i ágripi, að það sé skoðun Heilbrigðiseftirlits ríkis- ins að í sumum tilfellum verði íbúarnir fyrir verulegum óþæg- indum við að búa eða stunda vinnu i umhverfi, sem mengað er af „peningalykt". Það sé sjálfsögð krafa, að verksmiðjurnar geri við- unandi ráðstafanir til úrbóta. t lokaorðum segir Eyjólfur Sæ- mundsson verkfræðingur, sem samdi þessa greinargerð: „Ljóst má vera, að kröfur þær, sem gerð- ar eru í Noregi til þarlendra verk- smiðja, eru miklum mun yfir- gripsmeiri og kostnaðarsamari en þær kröfur, sem Heilbrigðiseftir- lit ríkisins leggur til i greinargerð þessari, að gerðar verði til ís- lenzkra verksmiðja. — Viðgerð á rafstreng... Framhald af bls. 48 henni seint I fyrrakvöld. Þótti mannskapurinn vinna sérlega gott verk við viðgerðina og tók hún hálfum sólarhring skemmri tima en áætlað hafði verið. Gaf ekki til viðgerðarinnar 14 fyrstu dagana eftir að stengurinn slitn- aði, en á laugardaginn var veður gott við Vestmannaeyjar. Hófust þá viðgerðir á stengnum, en hann slitnaði austur af Klettsnefi. Þar sem austanátt var spáð og versn- andi veðri var unnið án hvíldar þar til viðgerð var lokið og mátti í rauninni ekki tæpara standa, þvi í gær var vindur af austri við Eyjar og hefði þá ekki verið unnt að vinna að viðgerðinni. Kári Einarsson hjá Rafmagns- veitum rikisins tjáði Morgunblað- inu í gær að kostnaður vegna við- gerðarinnar væri sennilega um 20 milljónir króna. Endanlegt upp- gjör lægi þó enn ekki fyrir og gæti þessi upphæð hækkað nokk- uð. I viðtali við Mbl. i gær sagði Páll bæjarstjóri i Vestmanna- eyjum að brýna nauðsyn bæri til að lagður yrði annar rafstrengur milli lands og Eyja. — Það er ekki forsvaranlegt að staðurinn verði rafmagnslaus á háannatímanum hér eins og nú varð, sagði Páll. — Viðgerð er öll kostnaðarsamari á þessum tima árs og getur tekið miklu lengri tíma en yfir sumar- timann, við megum i rauninni þakka fyrir hversu fljótt gaf til viðgerðarinnar nú. Það kostar að vísu mikið fé að leggja nýjan raf- steng, en það mundi örugglega borga sig, sagði Páll Zóphanías- son. — Málverka- uppboð... Framhald af bls. 2 siðustu verka i skrá fyrirtækisins eru tvær Þingvallamyndir eftir Gunnlaug Blöndal. Að lokum verður boðin upp stór olíumynd: Hekla séð úr Þjórsár- dal, 86x78 cm að stærð. Aðilar nákomnir Ásgrími Jónssyni telja listaverkið geta verið eftir hann. Um uppruna myndarinnar er það eitt vitað, að hún var keypt hér- lendis skömmu fyrir 1920 og hef- ur verið í eigu sömu aðila siðan. Myndin er ekki merkt, en mörg- um sem skoðað hafa málverkið i sýningarsal Klausturhóla telja það minna um margt á myndir Ásgrims Jónssonar frá þessum tíma. Málverkin og myndirnar verða til sýnis að Hótel Sögu í dag klukkan 10—15, en uppboðið hefst siðan kl. 17.00. — Færeyingar... Framhald af bls. 1. Hafa Færeyingar, sem ekki eru aðilar að EBE, tilkynnt að vernd- unarreglurnar gangi i gildi á þriðjudag, sama dag og EBE hafði samkvæmt áætlun ætlað að undir- rita rammasamning við Færey- inga um gagnkvæmar fiskveiðar. Samkvæmt brezka Skotlands- málaráðherranum, Bruce Millan, vilja Færeyingar takmarka þorsk- og ýsuveiðar útlendinga við 1.000 lestir næstu sex vikur, miðað við 7.000 lestir á sama límabili i fyrra. Millan sagði, að aðgerðir Færeyinga yllu erfiðum vanda- málum fyrir togaraútgerð í Bret- landi, Vestur Þýzkalandi og Frakklandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.