Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 31
í' MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977 31 Fredericia KFUM væntanlegt í heimsókn MIKLAR líkur eru á því að danska meistaraliðið í handknattleik, Fredrecia KFUM, komi senn hingað í heimsókn og leiki a.m.k. þrjá leiki við íslenzk lið. Hafa Danirnir sýnt mikinn áhuga á að koma hingað, en þeir eru nú að búa lið sitt undir þátttöku í und- anúrslitum Evrópubikar- keppninnar í handknatt- leik. Er álitið að liðið eigi góða möguleik á að komast í úrslit, eða jafnvel sigra í þeirri keppni. Ef af heimsókninni verður mun það verða handknattleiksdeild Fylkis, sem stendur að henni, en Fyikir er nú það Reykjavíkurfé- lag sem á rétt á vorheimsókn. Að sögn Þórhalls Bjarnasonar, vara- formanns handknattleiksdeildar Fylkis, er verið að vinna að þessu máli núna. Danirnir óskuðu eftir því að koma hingað um páskana, en það er talinn óheppilegur timi, vegna aðsóknar, og þvi verið að kanna hvort liðið getur komið annað hvort rétt fyrir páska, eða rétt eftir þá. Fredricia KFUM, er nú lang sterkasta félagslið i Danmörku, og þykir leika mjög skemmtilegan handknattleik. Nokkrir landsliðs- Blakkeppni skólanna SKÓLAMÓT Blaksambands Islands hófst í byrjun febrúar. 24 skólar me8 samtals 40 keppnislið tóku þátt I mótinu og fór keppnin fram I fjórum flokkum, og lauk keppni i þremur flokkum um siSustu helgi. í grunnskólaflokki karla var8 Gagnfræðaskólinn á Húsavik sigur vegari, Vighólaskóli i Kópavogi varð i öðru sæti og Ármúlaskólinn i Reykjavik i þriðja sæti. í grunnskólaflokki kvenna sigraði Gagnfræðaskólinn á Húsavik, Vig- hólaskóli varð i öðru sæti og Gagn- fræðaskóli Garðabæjar i þriðja sæti. Í framhaldsskólaflokki kvenna sigraði Menntaskólinn á Akureyri, íþróttakennaraskóli islands varð i öðru sæti og Kennaraháskóli islands i þriðja sæti. Keppt verður til úrslita f fram- haldsskólaflokki karla á laugardag (26. marz) og sunnudag (27. marz). Á laugardag verður keppt i iþrótta- húsinu á Akranesi og hefst keppni kl. 14.30. Á sunnudag verður keppt I Íþróttahúsi Háskóla íslands og hefst keppni þar kl. 1 7.00. í þessum flokki komust fjögur lið f úrslit og eru þau frá Samvinnuskólanum að Bifröst, Bændaskólanum á Hvanneyri, Menntaskólanum á Akureyri og Menntaskólanum að Laugarvatni. menn eru í liðinu, m.a. Flemming Hansen, Sören Andersen og Anders Dahl-Nielsen. Er ekki tal- ið ólíklegt að kjarni danska lands- liðsins í heimsmeistarakeppninni næsta vetur verði úr Fredricia- liðinu. Dönsku 1. deildar keppninni lauk um síðustu helgi og hlaut Fredricia KFUM 41 stig. Nýlið- arnir, Holte, urðu í öðru sæti með 37 stig, en síðan komu Saga með 29 stig, Arhus KFUM með 26 stig. Helsingör með 23 stig Skovbakken með 23 stig, FIF me> 22 stig, Nr. Nissum með 19 stig Efterslægten með 17 stig, Stjern en með 16 stig, Lynge með 9 stip og Vilby með 2 stig. Tvö síðast nefndu liðin falla í 2. deild, er ekki er enn séð hvaða lið koma þeirra stað. Janus Guðlaugsson skorar eitt marka sinna I leiknum I fyrrakvöld. JANUS i SERFLOKKI ÁN JANUSAR Guðlaugssonar hefði ekki verið mikil reisn yfir leik FH og Fram í 1. deildinni I fyrrakvöld. Janus átti stórleik með FH-ingunum, skoraði mikið, fékk nokkur vftaköst, var virkur f spilinu og gaf sig hvergi I vörn- inni. Hefur Janus ekki leikið bet- ur með FH I annan tíma. FH- ingar unnu þennan leik með 26 mörkum gegn 22 og verðskulduðu fyllilega sigurinn í leiknum, en hins vegar gerðu mistækir dómar- ar leiksins þeim sigurinn auð- veldari en ella og fór það ekki á milli mála að FH-ingar högnuðust á dómum þeirra. Fyrri hálfleikur þessara gömlu erkióvina úr íslenzkum hand- knattleik var nokkuð jafn, en í leikhléi leiddi FH með 13 mörk- um gegn 11. Höfðu Framarar lengst af fyrri hálfleiknum haft forystu í leiknum, en 9 mörk FH gegn 4 mörkum Fram síðustu 10 mínútur hálfleiksins breyttu stöð- unni fyrir hlé. í seinni hálfleikn- um munaði ekki nema einu marki á liðunum þar til um 15 mínútur voru eftir af leiknum. Náðu þá FH-ingar mjög góðum kafla, sem í rauninni gerði út um leikinn. Gáf- ust Framarar hálf partinn upp er hér var komið sögu, en munurinn Nystárlep fjáröflunarleið: FARAA SKAK varð þó ekki nema fjögur mörk, 26:22. Af FH-ingunum hefur Janus Guðlaugsson þegar verið nefndur og þessi 23 ára gamli kennari á íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni hefur ekki áður stað- ið sig betur með félögum sínum i FH. Viðar Símonarson stóð fyrir sínu í leiknum og Guðmundur Magnússon átti einnig góðan leik. Af leikmönnum Fram voru þrir menn áberandi beztir. Andrés Bridde verður stöðugt atkvæða- meiri og hefur sýnt það i síðustu leikjum Fram að nauðsynlegt er fyrir varnarmenn annarra liða að hafa vakandi auga á honum. Sig- urbergur Sigsteinsson stóð sig mjög vel í þessum leik og Einar Birgisson, hinn efnilegi mark- vörður liðsins, varði vel meðan vörnin var á verði. —áij. I STIITTU MAI.l: islandsmótið 1. deild. íþróttahúsió I Hafnarfirði 23. marz. FH — FRAM 26:22 (13:11) gangur leiksins: Mín. FH Staðan Fram 3. 0:1 Andrés 3. Janus 1:1 4. 1:2 Pálmi 6. Viðar(v) 2:2 2:3 Andrés 9. 2:4 Pálmi (v) 10. 2:5 Sigurbergur 12. Vióar (v) 3:5 14. 3:6 Ragnar 15. Geir 4:6 16. 4:7 Andrés 17. Sæmundur 5:7 18. Janus(v) 6:7 20. Janus 7:7 21. 7:8 Guðmundur 21. Janus 8:8 23. Guómundur S. 9:8 23. 9:9 Sigurbergur 25. Viðar (v) 10:9 25. Viðar 11:9 27. 11:10 Guðmundur 28. Janus(v) 12:10 30. Viðar (v) 13:10 30. 13:11 Sigurbergur i.kíkiii.e 32. 13:12 Andrés 33. (■uðmundur M.14:12 35. 14:13 Árni 37. Viðar 15:13 39. 15:14 Sigurhergur 40. Guðmundur M.16:14 42. 16:15 Andrés 43. Janus 17:15 44. 17:16 Pálmi 45. Viðar 18:16 46. Sæmundur 19:16 48. Janus 20:16 49. 20:17 | a. 51. Janus (v) 21:17 51. Geir 22:17 52. 22:18 Pálmi (v) 52. Viðar (v) 23:18 54. 23:19 (■uðniundur 55. (iuðmundur M.24:19 56. 24:20 Pálmi (v) 58. 24:21 Pétur 59. Geir 25:21 60. 25:22 Andrés 60. Janus 26:22 MÖKK FH: Janus Uuólaugsson 9, Vióar Slmonarson 8. tiuó- mundur Magnússon 3, Geir Hallsteins- son 3, Gudmundur Arni Stefánsson I, Ssemundur Stefánsson 2. MÖRK FRAM: Andrés Bridde 7, Pálmi Pálmason 6, Sigurbergur Sigsteinsson 4. (íuðmundur Þorbjörnsson 3, Ragnar Hilmarsson 1, Arni Sverrisson 1. Misheppnuð vftaköst: Einar Birgisson vardi vítakast frá Vidari Sfmonarsyni, Birgir Finnbogason varði vftakast frá Andrési Bridde og Pálmi Pálmason gerði vftakast ógilt. BROTTVÍSANIR AF LEIKVELI (iuðmundi Árna Stefánssyni, Pétri Jóhannssyni, (iuðmundi Þorbjörnssyni og (íústaf Björnssyni var vikið af leik- velli í 2 mínútur hverjum. DOMARAR: (íunnar Kjartansson og Olafur Steingrfmsson da‘indu þennan leik og ekki verður annað sagt en FII- ingar hafi hagnazt á dómum þeirra. ÓHÆTT er að fullyrða að rtæsta fjár- öflunarleið Frjálsíþróttasambands (s- lands sé allsérstæð. Hafa stjórnar- menn sambandsins ákveðið með sér að fara á „skak", og þannig draga Frjálsiþróttasambandinu, sem er mjög fjárvana, gull úr greipum Ægis. Að sögn Arnar Eiðssonar, for- manns FRÍ, var þessi hugmynd rædd ýtarlega á 900. fundi Frjálsfþrótta- sambandsins, og þar ákveðið að reyna þessa fjáröflunarleið með vor- inu, eða sennilega í maimánuði. Örn Eiðsson sagði að stjórnarmenn sam- bandsins hefðu reynt margar og mis- munandi fjáröflunarleiðir á undan- förnum árum. Hefðu þær flestar byggst upp á „sama gamla betlinu" eins og Örn orðaði það, en nú væri hugmyndin að reyna að breyta örlitið út af þvi. Aðspurður sagði Örn Eiðsson að þeir FRl-menn væru ekki búnir að verða sér úti um bát, en það vær von hans að einhver formaður eða út- gerðarmaður mundi setja sig i sam- band við FRÍ eftir að málið hefði verið kynnt eða reifað i fjölmiðlum. Örn Eiðsson sagði þessa fjáröflunar- leið kannski vekja athygli meðal fólks. „En hún er nauðsynleg, þvi mjög illa er staðið að islenzkri fþróttahreyfingu af hinu opinbera, og á Frjálsiþróttasambandið i gifurlega miklum fjárhagserfiðleikum. Höfum við varla hugmynd um hvernig okkur muni takast að kosta og leysa það verkefni, sem við teljum Frjáls- íþróttasambandinu skylt að inna af hendi. Það er svo aukalegur ávinn- ingur af þessari fjáröflunarleið, þvi hún mun einnig afla þjóðarbúinu nokkurs erlends gjaldeyris, sem sjaldan er til nema af mjög skornum skammti," sagði Órn Eiðsson. FH: Birgir Finnbogason 2, Magnús Ólafsson 1, Sæmundur Stefánsson 2, Geir Hallsteinsson 2, Vióar Símonarson 3, Janus Guðlaugsson 4, Guðmundur Magnússon 3, Guðmundur Árni Stefánsson 1, Þðrarinn Ragnarsson 1, Auðunn Óskarsson 1. FRAM: Einar Birgisson 3, Árni Sverrisson 1, Pálmi Pálmason 2, Pétur Jóhannesson 2, Jðn Árni Rúnarsson 1, Andrés Bridde 3, Sigurbergur Sigsteinsson 3, Gústaf Björnsson 1, Ragnar Hilmarsson 1, Guðmundur Þorbjörnsson 2, Arnar Guðlaugsson 1, Jðn Sigurðsson 1. IIAUKAR: Gunnar Einarsson 2, Þorlákur Kjartansson 3, Þorgeir Haraldsson 1, Sigurgeir Marteinsson 2, Ólafur Ólafsson 2, Stefán Jðnsson 1, Ingimar Haraldsson 3, Hörður Sigmarsson 2, Jón Hauksson 2, Elfas Jðnasson 2, Svavar Geirsson 1, Guðmundur Haraldsson 2. VALUR: Jðn Breiðfjörð 2, Jðn Karlsson 3, Steindór Gunnarsson 2, Bjarni Guðmundsson 2, Jðn Pétur Jónsson 3, Stefán Gunnars- son 2, Þorbjörn Guðmundsson 4, Björn Björnsson 1, Glsli Blöndal 1, Jóhannes Stefánsson 1, Garðar Kjartansson 1. YIÐ VEKJUM ATHYGLI A: ótrúlega góðum kjörum á ÚTSÖLUMARKAÐI okkar ••'d$K • ? i*5’aveoi 66 s==- m Wbsl' 2. hæö. rp 25oo- ".Mfwv 40 — 70% afsláttur Kr. Ullardomujakkar 2500.~ Terylenepilsdragtir 7 500.- Gallaskyrtur 1590.— Dömupils alls konar frá 2500 - Stakar terylenebuxur 3500 — Jakkaföt m / vesti 15 900 — Stakir herrajakkar 6500.— Herraskyrtur 1790.— koflóttar domublússur 1790.— Gallavesti 1990.— f -M Skór í miklu úrvali. Mjög gott verö Oglp IP* Laugavegi 66, sími 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.