Morgunblaðið - 26.03.1977, Blaðsíða 1
40 SIÐUR
69. tbl. 64. árg.
LAUGARDAGUR 26. IVIARZ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
milli
Rams
Tassfréttastofan:
Bandaríkjamanna
að taka af skarið
Simamynd-AP
EBE 20 ÁRA — Giscard D’Estaing Frakklandsforseti, Leo Tindemann, forsætis-
ráðherra Belgíu, Helmut Schmidt, kanslari V-Þýzkalands, Joop den Uyl, forsætis-
ráðherra Hollands, og James Callaghan, forsætisráðherra Bretlands rabba saman
skömmu fyrir 20 ára afmælisfund EBE í Róm ígær. Sjá frétt á bls. 19.
Moskvu, 25. marz. AP-Reuter.
ÞAÐ er Bandaríkjamanna að taka
af skarið um framgang bættrar
sambúðar Sovétríkjanna og
Bandarfkjanna á næstunni segir f
grein, sem einn helzti fréttaskýr-
Jákvæðar
viðræður
Evensens
í Moskvu
andi Sovétríkjanna, Yuri
Kornilov, ritaði og Tass-
fréttastofan birti í kvöfd, daginn
fyrir komu Cyrus Vance, utan-
rfkisráðherra Bandarfkjanna, til
Moskvu til viðræðna við sovézka
ráðamenn.
í greininni er lögð áherzla á
möguleika á samkomulagi um
SALT II og einnig í Miðaustur-
löndum. Einnig er fjallað um auk-
ið samstarf á sviði efnahags- og
viðskiptamála, sem sagt er að ým-
is bandarisk lög komi i veg fyrir
og sameiginlegar aðgerðir til
að banna og eyða eiturefnavopn-
um.
Kornilov segir að þjóðir heims
séu sannfærðar um að viljinn til
að halda frið muni að lokum ráða
og að samskipti Bandaríkjanna og
Sovétrikjanna muni komast i eðli-
legt horf. Hins vegar segir
Kornilov að margir stjórnmála-
Framhald á bls 22.
Deilur
Moskvu, 25. mar/. NTB.
FYRSTI viðræðufundur Jens
Evensens, hafréttarmálaráð-
herra Noregs, og Alexanders
Ishkovs, sjávarútvegsráðherra
Sovétrfkjanna, í 5. umferð
fiskveiðisamninga landanna
var í Moskvu í morgun og sagði
Evensen að honum loknum að
þeir hefðu einbeitt sér að þvf
að reyna að komast að sam-
komulagi um miðlínu á hinu
umdeilda 60 þúsund fermflna
svæði í Barentshafi. Evensen
sagði að viðræðurnar hefðu
verið mjög jákvæðar „enda
ekki vanþörf á, þvf að mörg
erfið vandamál eru óleyst."
I þessum viðræðum verður
ekkert fjallað um skiptingu
fiskikvóta, en það verkefni
hefur verið falið sérstakri
nefnd norskra og sovézkra
embættismanna, sem mun
koma saman til fundar eftir
páska i Ósló.
Evensen sagði í dag að
ógerningur væri að segja um
hvort tækist að leysa öll vanda-
Framhald á bls 22.
og Desias leystar
Gengið frá stjórnarmyndun í dag
Nýju Delhí, 25. marz. AP.
Seint f kvöld virtist sem tekist hefði að leysa deilurnar milli Morarji
Desaí, forsætisráðherra Indlands, og Jagjivans Rams, leiðtoga
Kongresslýðræðisflokksins, og að endanlega yrði gengið frá stjðrnar-
myndun á morgun, laugardag. Desai birti f kvöld, eftir fund með Ram,
lista með nöfnum 19 væntanlegra ráðherra f stjórninni og var nafn
Rams þar næstefst á blaði. Ekkert var tilkynnt um verkaskiptingu
ráðherranna.
Stjórnmyndunin hefur nú tafist
I tvo sólarhringa vegna deilna
Desais og Rams, en Ram var mjög
óánægður er Desai var útnefndur
forsætisráðherra og sagði að ekki
hefði verið ráðgast við sig og
stuðningsmenn Rams sögðu sumir
hverjir að einræðisskipulag hefði
verið á valinu, en engin formleg
atkvæðagreiðsla fór frarn. Þess f
stað tilkynnti J.P. Narayan, einn
af leiðtogum Janataflokksins, eft-'
ir að hafa ráðgast við flokksmenn,
að Desai væri hinn nýi leiðtogi
Janataflokksins og 4. forsætisráð-
herra Indlands frá því að það
hlaut sjálfstæði.
Deilurnar leystust siðan i kvöld.
eftir að Desai hafði farið heint til
Framhald á bls 22.
Kúbumenn og Bandaríkja-
menn á fyrsta fundi í 16 ár
Washington 25. marz. Reuter AP
FULLTRUAR Bandarfkjanna og
Kúbu komu saman til fundar f
New York í dag til að ra‘ða gagn-
Er ógnaröld í upp-
siglingu í Pakistan?
Jslamabad, 25. marz. AP-Reuter.
RlKISSTJÓRN Pakistans lét I dag handtaka alla leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar I landinu og tilkynning var gefin út um að hver sá sem tæki
þátt I mótmælaaðgerðum, yrði staðinn að hermdarverkum og öðrum
andófsaðgerðum á götum úti yrði skotinn. Handtökurnar og viðvörun-
in eru gerðar skv. heimild f neyðar* tandslögum, sem enn gilda I
landinu frá þvl að strfðið við Indverja stóð yfir árið 1971.
Greip Zulfikar Ali Buttho, for-
sætisráðherra landsins, til þess-
ara aðgerða til að koma í veg fyrir
allsherjarverkfall í landinu, sem
stjórnarandstaðan hafði boðað á
morgun til að leggja áherzlu á
fjölþættar kröfur sínar á hendur
forsetanum. Margir stjórnmála-
fréttaritarar telja hugsaniegt að
ógnaröld sé i uppsiglingu f land-
inu.
Miklar deilur og óeirðir hafa
verið í landinu frá þvf að úrslit
voru kunn í þingkosningunum,
sem fram fóru 7. þessa mánaðar,
en f þeim fékk þjóðarflokkur
Bhuttos 155 þingsæti af 200, en
stjórnarandstaðan aðeins 36. Hafa
leiðtogar stjórnarandstöðuflokks-
ins, Þjóðarbandalagsins, sem er
samsteypa 9 flokka, sakað Bhutto
um kosningasvik. Krefst hún þess
að forsætisráðherrann segi af sér,
öllum pólitískum föngum verði
sleppt, neyðarástandinu aflýst og
kosningarnar 7. marz ógiltar.
Boðað allsherjarverkfall
átti að koma til framkvæmda á
morgun á sama tíma og nýkjörið
þing kæmi saman f fyrsta skipti.
Bhutto leysti þingið upp 9. janúar
sl. og boðaði til nýrra kosninga.
Bhutto hefur árangurslaust reynt
að koma á viðræðufundi með
stjórnarandstöðuleiðtogunum til
að reyna að leysa vandamálin að
þvf er stjórnmálafréttaritarar
segja, en leiðtogarnir hafa sagt að
ekki væri um neitt að semja.
80 manns hafa látið lífið í óeirð-
unum í Karachi, Lahore, Multan
og Hyderobad á si. 18 dögum og
gífurlegt eignatjón orðið af völd-
um fkveikju og sprengjutilræða.
kvæm fiskvciðiréttindi og mið-
línu í kjölfar þess að báðar þjóðir
færðu fiskveiðilögsögu sína út í
200 mflur 1. marz sl. Er þetta
fyrsti fundur fulltrúa þjóðanna í
16 ár. Ekki var skýrt frá fundar-
staðnum f New York í öryggis-
skyni og talsmaður bandaríska
utanrfkisráðuneytisins neiaði að
segja hvort önnur mál en fisk-
veiðimál hefðu verið ra*dd á fund-
inum i dag.
8 fulltrúar frá báðum þjóðum
tóku þátt í viðræðunum og gerðu
grein fyrir afstöðu rfkisstjórna
sinna og svöruðu spurningum.
Fleiri slikir fundir eru ráðgerðir
á næstu vikum, en ekki verður
skýrt frá þeim fyrirfram.
Svæðið, sem þarf að skipta er
um 200 þúsund fermílur og er
talið hugsanlegt að miðlinan verði
dregin mitt á milli strandar S-
Flórida og norðurodda Kúbu.
Bandarikjamenn hafa gengið frá
fiskveiðisamningum við margar
þjóðir og hafa sérfræðingar á þvi
sviði jafnan verið í forsvari fyrir
samninganefndunum. í dag var
það hins vegar Terence A.
Todman aðstoðarutanríkisráð-
herra, sein var formaður nefndar-
innar og því er talið að rætt hafi
verið um önnum mál en fiskveiði-
mál.