Morgunblaðið - 27.03.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.03.1977, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 70.tbl.64.árg. SUNNUDAGUR 27.MARZ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Thailand: Uppreisn fór út um þúfur Bangkok 26. marz — Reuter. THAILENZKA stjórnin skýrði frá þvi í dag, að hópur upp- reisnarmanna i hernum hefði reynt að taka völdin i landinu, en hefði verið yfirbugaður. Upp- reisnarhópurinn, sem kallar sig „byltingarráðið“, varðist í niu klukkustundir eftir að hafa tekið thailenzka útvarpið og tilkynnt að stjórn Thanin Kraivichien hefði verið steypt af stóli. I opinberri yfirlýsingu sagði að uppreisnarmenn hefðu gefizt upp og hermenn, sem studdu þá, voru hvattir til að leggja niður vopn. Sjónarvottar segja, að bylt- ingarhermenn, sem stóðu vörð um byggingar sem uppreisnar- menn höfðu náð á sitt vald, hefðu sumir lagt frá sér vopnin. Ekki segir í yfirlýsingunni hvort leið- togar uppreisnarmanna hefðu gefizt upp. Ríkisstjórnin sagði fyrr i dag, að þeir sem stæðu á bak við upp- reisnartilraunina, væru fyrrver- andi hershöfðingi, Chalard Hiran- yasiri, og næst æðsti maður hers- ins, Prasert Thammasiri, hers- höfðingi, sem sagður er hafa verið neyddur til þátttöku. Stuttu áður en uppreisnarmenn gáfust upp sagði Chaloryoo, varn- armálaráðherra, þeim að leggja frá sér vopnin og þeir sem áttu byssur sem ekki hefði verið skotið úr yrðu álitnir saklausir. Ekkert mannfall virðist hafa orðið í at- burðum næturinnar. Callaghan hafði hvort eð er ekki mikil völd — segir Daily Telegraph London 26. marz AP BREZKU blöðin hafa undanfarna daga eðlilega fjallað mikið um samkomulag Verkamannaflokks- ins og frjálslyndra, sem varð til að bjarga stjórn Callaghans frá falli á miðvikudag. The Times sagði ( leiðara um málið ( fyrra- dag, að það væru einkum þrjú atriði, sem mikilvæg væru ( þessu samkomulagi. I fyrsta lagi, að þessi rfkisstjórn gengi frá þriðja áfanga launamálaáætlunarinnar, ( öðru lagi, að ekki yrðu á þessu þingi lögð fram fleiri róttæk frumvörp, sem deilum gætu vald- ið meðal þjóðarinnar, og ( þriðja lagi, að nú yrði lagt fyrir frum- varp um beinar hlutfallskosning- ar til Evrópuþingsins á næsta ári. Times segir, að augljóst sé, að þessi atriði og önnur, sem Verka- mannaflokkurinn verði að fara milli-veginn í, muni valda deilum innan hans, einkum við vinstri- menn í þingflokknum og aukinn þrýstingur verði á leiðtoga hans. Daily Telegraph segir, að Callaghan hafi fórnað svolitlum grundvallaratriðum og svolitlum völdum, sem hann hvort eð er hafi ekki haft mikið af, til þess að vinna sér svolítið meiri tíma í embætti. Frjálslyndir hafi nú orð- ið hluti af Verkamannaflokknum og muni í framtiðinni fljóta eða sökkva með honum, en þeir hafi einnig í hendi sér örlög stjórnar- innar. The Guardian segir, að frjáls- lyndir hafa velt lengi fyrir sér hvað gerðist ef þeir notuðu at- kvæði sín til að sökkva Callaghan og hafi komizt að þeirri niður- stöðu, að mun vænlegra væri að halda skútunni á floti. Þeir hefðu að vísu sett nokkur skilyrði, en það væri ágætt, því að þau hefóu öll verið réttlætanleg. Nu væri sýningin hafin og enginn gæti sagt fyrir um hve lengi hún stæði, en liklegt væri að allar deilur og gagnrýni á Steel og Cállaghan hjöðnuðu fljótlega ef þeir sýndu, að Bretar hefðu hag af þessu sér- stæða samkomulagi. Stjórn Indlands: Hátíðarmessa í Dómkirkjunni í DAG verður þv( fagnað með hátíðarmessu, að hinni miklu og gagngeru viðgerð á Dóm- kirkjunni er lokið. Messan hefst kl. 11 f.h. Sr. Þórir Stephensen prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Hjalta Guðmundsyni, sóknarnefndar- menn flytja bæn og ritningar- orð. Dómkórinn syngur undir stjórn Ragnars Björnssonar og Svala Nielsen syngur einsöng. Kl. 2 sfðdegis verður svo föstu- messa, sem sr. Hjalti Guðmundsson annast. Morgunblaðið sagði nokkuð frá viðgerðinni i gær. Á með- fylgjandi mynd Ólafs K. Magnússonar er málarameist- ari Dómkirkjunnar, Sighvatur Bjarnason, að leggja siðustu hönd á gyllingu rammans um altaristöfluna, en Frank Ponzi hefur nú lokið viðgerð á henni. Sighvatur hefur stundað sér- nám og lisnám i Danmörku í sambandi við iðngrein sína, og hann vann með námi sinu ekki síst að viðhaldi eldri bygginga. Hann hefur m.a. lært gyllingu, og gyllingarvinnan í Dómkirkj- unni er fyrst og fremst hans verk, og hann hefur stjórnað málningarvinnunni allri, en að henni hafa unnið um 11 manns undanfarna mánuði. Yfissmiður og verkstjóri ann- arra framkvæmda hefur verið Ólafur Ólafsson húsasmiða- meistari. Hver borgar brúsann ? Brtissel, 26. marz Reuter LlTIÐ miðaði I gær í um- ræðum varnarmálaráðherra NATO um skiptingu kostnaðar við kaup á 22 Boeing 707 rat- sjárþotum, sem samþykkt voru í fyrradag. Er kostnaðurinn áætlaður um 2,4 milljarðar dollara. Þotufloti þessi á að fylgjast með allri þróun mála í A-Evrópu og vara við hugsan- legri árás Sovétríkjanna á V- Evrópu úr lofti. Er að klofna á fyrsta degi Nýju -Delhi 26. marz. Reuter Samsteypustjórn Janataflokksins ( Indlandi virtist vera að þv( komin að klofna þegar Jagjivan Ram, fyrrverandi matvælaráð- herra, var ekki viðstaddur þegar Morarji Desai, forsætisráðherra, sór embættiseið fyrir sig og 20 manna rfkistjórn sfna. Ram, sem er 68 ára gamall leiðtogi 80 milljóna manna „hinna óhreinu", ( Indlandi, var á ráðherralista Desais, sem lagður var fram f gærkvöldi. En hvorki hann né náinn sam- starfsmaður hans, Hemwati Nandan Bahuguna, sem einnig var á ráðherralistanum, komu til athafnarinnar. Tveir sósíalistar i ríkisstjórninni voru einnig fjar- verandi, þeir George Fernandes og Raj Narain, sem vann þingsæti sitt af Indiru Gandhi. Heimildir innan stjórnarinnar herma að þeir hafi verið að reyna að fá Ram til að láta af afstöðu sinni. Ekki hefur verið tilkynnt um skiptingu ráðuneyta en talið er að Ram verði boðið embætti aðstoðarforsætisráðherra. Tals- maður flokks Rams, Lýðræðisráð- stefnunnar, er sagður hafa sagt i morgun að tilkynning um að Ram og Bahuguna hefðu tekið sæti i stjóninni hefði komið mjög á óvart og að hún hlyti að vera röng. Ram var helzti keppinautur Desais um forsætisráðherratign. L.K. Advani, aðalritari Janata, sem sæti á I nýju ríkisstjórninni, sagði fréttamönnum, að Ram hefði hringt til Desai og sagt honum að hann væri reiðubúinn til að taka sæti I ríkisstjórninni. Átján þjóðir á fiski- ráðstefnu Björgvin, 26. marz. NTB. FULLTRUAR þeirra þjóða sem stunda veiðar á norðvestanverðu Atlantshafi hafa orðið ásáttir um að koma saman til ráðstefnu í júnf til að ræða nýjan samning um eftirlit með veiðum á þeim slóðum. Þetta er niðurstaða undirbún- ingsfundar sem hefur verið hald- inn í Ottawa. Ákveðið hefur verið að endurskoða samninginn þar sem fiskveiðilögsaga ýmissa ríkja hefur verið færð út í 200 mílur. Jafnframt er ætlunin að endur- skipuleggja nefndina sem hefur umsjón með samningnum (ICNAF). Átján lönd áttu fulltrúa á fund- inum í Ottawa: ísland, Bretland, Noregur, Bandarikin, Vestur- Þýzkaland, Danmörk, Kanada, Frakkland, ítalia, Spánn, Portúgal, Rúmenía, Pólland, Kúba, Austur-Þýzkaland, Búlgar- ía, Japan og Sovétríkin. Fulltrúar landanna voru sam- mála um það í grundvallaratrið-- um að þörf væri á nýjum samn- itigi. En þeir voru ósammála um skiptingu kvóta og réttinda strandrikja til að hafa eftirlit með veiðum utan 200 mílna. Podgorny í Zambíu Dar Es Salaam, 26. marz Reuter NIKOLAI Podgorny, forseti Sovétríkjanna. kom i dag til Zambíu á ferð sinni um Afríku er hefur vakið ugg á Vesturlöndum um að áhrif Rússa geti aukizt i sunnanverðri álfunni. Hann vildi ekki ræða nánar af hverju Ram hefði snúizt hugur. Ram hefur ekki gefið út neina yfirlýsingu um málið. Podgorny kemur frá Tanzaniu þar sem Julius Nyerere hrósaði Rússum fyrir stuðning við skæru- liða blökkumanna í Rhódesíu og Suðvestur-Afriku en gagnrýndi þá fyrir ónógan stuðning við blökkumannaríki Afríku. Vance býdur ný jan samning Washington, 26. marz. Reuter. Cyrus Vance utanrfkisráðherra mun bjóða Rússum til samninga um verulegan niðurskurð kjar- orkuvopna þegar hann kemur til Moskvu á mánudag til þriggja daga viðræðna við sovézka leið- toga að þvf er bandarfskir em- bættismenn skýrðu frá f dag. Vance kom í dag til Brtissel ásamt Paul Warnke, samninga- manni Bandaríkjamanna í vig- búnaðarmálum. Þeir munu leggja til við Rússa að samingurinn sem var gerður í Vladivostok 1974 verði staðfestur og hafnar verði nýjar viðræður um takmörkun kjarnorkuvopna (Salt).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.