Morgunblaðið - 05.06.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.06.1977, Blaðsíða 1
48 SIÐUR 123. tbl. 64. árg. SUNNUDAGUR 5. JUNÍ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. James Earl Ray: Skaut ekki banaskotinu JAMES Earl Ray segist enn einu sinni geta játaö á sig morðið á dr. Martin Luther King, þó svo að hann hafi ekki skotið kúlunni, sem varð bandaríska mannrétt- indaleiðtoganum að bana. „Ég var í klemmu,“ segir hann í viðtali við bandaríska dagblaðið The Nashville Tennesean. Rey, sem afplánar nú 99 ára fangelsisdóm fyrir morðið á King, heldur því fram að þáver- andi lögfræðingur sinn, Percy Foreman, hafi neytt sig til að játa sekt í málinu 1969. „Ég er ekki sekur, að minnsta kosti ekki lagalega," segir Ray. „Með öðrum orðum, ég skaut hann ekki... En það má vera að ég eigi hlutdeild i málinu... Ég kevpti vopnið og ýmislegt annað.“ Ray segir að dularfullur maður, nefndur ,,Raoul“, hafi útvegað Framhald á bls. 17 Albanir segja ekki f ráf uglum London (Al’) VALDHAFARNIR í Albaníu eru svo tortryggn- ir að meira að segja fugla- skoðaðar verða að vara sig, segir ritstjóri nýrrar bókar um fugla Evrópu. Stórvirk byggðastefna í Vietnam STJÓRN Vietnam hefur flutt tugi þúsunda manna úr borgum í Suður Vietnam til sveita á þessu ári, til þess að „dreifa vinnuaflinu", að því er ríkisútvarpiö f Hanoi skýrir frá. Segir útvarpið að bara f maí hafi þúsundir manna farið frá IIo Chi Minhborg (áður Saigon) til þess að setjast að f sveitum vestan og norð-vestan borgarinnar Fréttamenn segja að þetta sé berorðasta yfirlýsing vietnamskra yfirvalda um víðtæka byggðastefnu sína, sem miðar að þvi að fækka fólki í borgum suðurhlutans og auka landbúnaðarframleiösluna. Útvarpið bætti þvi við að 13.000 manns hefðu verið flutt frá strandhéruðunum Thuan Hai og að áætlanir væru um að flytja þaðan 50.000 manns til viðbótar á þessu ári. Upplýsingar frá Albaníu verða af skornum skammti i bókinni þar sem fugla- skoðarar þar fara með þær eins og mannsmorð og þora ekki að útvega skrá um fugla í landinu og kort sem sýna útbreiðslu þeirra, seg- ir ritstjórinn, Stanley Cramp. „Einu upplýsingarnir frá Albaníu hafa borizt frá fuglaskoðurum sem ferða- menn hafa einstöku sinnum haft samband við,“ segir hann. „Albanir þora helzt ekki að taka sér penna í hönd þar sem leyni- lögreglan gæti haldið að skrá þeirra og kort væru einhvers konar dulmálssendingar til manna á Vesturlöndum, “ segir Cramp enn fremur. Fuglabók Cramps er eitthvert nákvæmasta yfirlitsrit sem gefið hefur verið út um fugla Evrópu. Fuglaskoðaðar frá rúmlega 40 löndum hafa útvegað Cramp og öðrum ritstjórum bókarinnar í London og Amsterdam upplýsing- ar i bókina um 750 fuglategundir í Evrópu austurtil Úralfjalla. Cramp er í gamni kallaður opin- ber fuglaskoðari drottningar. Hann hefur þann starfa að skrá nöfn fugla sem sjást í görðum Buckingham-hallar i miðri Lundúnarborg. - ■ < '*-v «r .— vU- -Cr <• ' . '*e 'ní, .< '’l *** . *' * ” >i*- ■ 'jð&c*r,> * ■ -, >• y<- ■ Iin ■ .. <WIuii». ~ •*■<• » ■ _ 'W « TwT- n>; A V ' »>, i “ . *■«♦< > Gamli og nýi tfminn — sfðutogarinn og skuttogarinn — mætast f húminu sudvestur af Surtsey. í dag er sjómannadagur — sá fertugasti f röðinni. (Mótíf-myndir, Kr. Ben.) Tvísýnar kosningar í írska lýðveldinu I)yflinni, Reuter. LIAM Cosgrave forsætisráðherra hefur boðað til þingkosninga í irska lýðveldinu 16. júní í von um að stjórnarflokkarnir, ihalds- flokkurinn Fine Gael og Verka- mannaflokkurinn, fái traustsyfir- lýsingu kjósenda vegna stefnu sinnar í efnahagsmálum og harðrar afstöðu gegn skæruliðum írska lýðveldishersins (IRA). Stjórnarandstöðuflokkurinn Fi- anna Fail, sem var við völd í 16 ár unz núverandi samsteypustjórn var mynduð 1973, notar verö- hækkanir og atvinnuleysi sér til Urmull af austur-þýzkum n jósnurum í V-Þýzkalandi NÝJASTA njósnamálið, sem komizt hefur upp um I Vestur- Þýzkalandi, og handtökur sem fylgdu í kjölfar þess, hafa vakið upp spurningar meðal ráðamanna annarra um það, hvort Vestur-Þýzkaland sé að verða veikur hlekkur innan bandalagsins vegna þess að þar virðast njósnarar kommúnista vera á hverju strái. Þekkist ekki 1 öðru NATO-rfki jafn- mikil iðja kommúnista sem þar, segir 1 brezka blaðinu Observer. Njósnari frá Austur- Þýzkalandi, sem gekk í lið með Vestur-Þýzkalandi fyrir nokkru, sagði að um sextán þúsund útsendarar Ausur- Þýzkalands væru f Vestur- Þýzkalandi. Yfirmaður gagn- njósnaþjónustu Vestur- Þýzkalands taldi tölu milli þrjú og f jögur þúsund nær lagi. Samkvæmt upplýsingum vestur-þýzka innanríkisráðu- neytisins eiga þrír fjórðu allra njósnamála, sem upp komst um á sl. ári, upptök sín i Austur- Þýzkalandi. Af 33 mönnum, sem dóma hlutu fyrir þær sak- ir, höfðu 23 unnið fyrir öryggis- málaráðuneytið i Austur- Berlin. Siðan Giinter Guillaume var handtekinn í apríl 1974 hefur vestur-þýzku gagnnjósnaþjón- ustan komið upp um fimmtíu njósnamál og þau eiga það sam- eiginlegt, að Austur-Þjóðverjar eru undantekningarlitið við- riðnir þau. Svo virðist sem austur-þýzka stjórnin leggi á það aukið kapp að koma þjálfuðu fólki inn i sambandslýðveldið og láta það vinna fulla vinnu sem tengiliðir eða sendiboðar. Handtaka rit- arans nú á dögunum var tengd uppljóstrun um njósnaiðju Austur-Þjóðverja í DUsseldorf. Voru þar um að ræða karl og konu og höfðu þau það verk að fylgjast með störfum ritarans og veita aðstoð við að koma gögnum úr skrifstofu kanzlar- ans rétta boðleið til Austur- Berlínar, þar sem yfirmenn þeirra hafa aðsetur. Fólk þetta er um þritugt að aldri og fætt í AusturÞýzkalandi. í Dussel- dorf höfðu þau tekið sér fölsk I ramhald á bls. 37 framdráttar í kosningabaráttunni og ilrekar kröfu sina um brott- flutning brezka herliðsins frá Norður-Irlandi. Margir stuðningsmenn Verka- mannaflokksins hafa gagnrýnt samvinnu flokksins við ihalds- flokkinn Fine Gael, sem hefur á undanförnum mánuðum staðið í vegi fyrir bréytingum eitis og þeim að leyfa getnaöarvarnir. en samvinnan hefur reynzt hag- kvæm og ekkért hefur bent til þess að stjórnarsamstarfiö hafi verið i hættu. Búizt hafði verið við því að efnt yrði til nýrra kosninga og stjórn- málaflokkarnir voru við þvi búnir að hefja kosningabaráttuna i þrjár vikur. Kosningarnar verða tvísýnar i Dyflinni, þar sem þorri rúmlega 2,1 milljónar kjösenda býr, og mikil óvissa ríkir unt afstöðu 440.000 nýrra kjósenda. Gert er ráð fyrir því að Verkamanna- flokknunt veitist erfitl að halda fylgisaukningu sinni úr siðustu kosningum. Staða flokkanna er þessi. Fine Gael 55 þingsæti. Verkamanna- flokkurinn 19, Fianna Fail 66 og óháðir þrjú þar við ba'tist þing- forseti. Vegna kjörda*niabreyt- inga verður kosið um 148 þing- sa'ti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.