Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1977 19 HÞróltlrl Viðar Hörður Viðar og Hörður til Svíþjóðar? MIKLAR líkur eru á því að handknattleiksmennirnir Viðar Símonarson, FH, og Hörður Harðarson, Ármanni, leiki með Víkingur og IBK í kvöld EINN leikur fer fram f 1. deild íslandsmótsins i knattspyrnu i kvöld. Víkingur og Keflavík leika á Laugardalsvellinum og hefst leikurinn klukkan 20. í athugun er að setja leik KR og Breiðabliks á annað kvöld, en óvíst er hvort af því getur orðið vegna kastlands- keppni íslendinga og Dana, sem fram fer á vellinum á sama tíma. sænska 3. deikdarleiðinu Hammerby næsta keppnis- tímabil, en eins og fram hefur komið í fréttum, má nær fullvíst telja að Hilmar Björnsson þjálfi þetta lið næsta ár. Þeir Viðar og Hörður fóru með Hilmari til Svíþjóðar fyrir skömmu og léku þá tvo leiki með félaginu. Stendur þeim báðum til boða að keppa með félaginu næsta vetur og hafa þeir Viðar og Hörður báðir mikinn hug á því að taka boðinu. Ef úr verður, getur Viðar ekki keppt með íslenzka landsliðinu í HM í Danmörku í byrjun næsta árs. Eins og áður hefur komið fram í Mbl. eru keppnislið Hammerby i boltaíþróttum öll í 1. deildunum sænsku nema handknattleiksliðið og á nú að bæta úr því með því að fá til liðsins nýja menn, þjálfara og leikmenn. —SS. KAhefurfor- ystu í2. deild KNATTSPYRNUFÉLAG Akur- eyrar hefur nú forystu í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. KA sigraði Selfoss á Selfossvelli á laugardaginn 2:1 og hefur félagið nú hlotið 7 stig úr 4 fyrstu leikj- um sínum. Allir leikirnir hafa verið á útivöllum og fyrsti heima- leikur KA verður ekki fyrr en í 5. umferð 10. júní, en þá mætast tvö efstu liðjn, KA og Ármann, á Akureyri. Er þetta vægast sagt skrítin niðurröðun, en KA stend- ur óneitanlega vel að vígi eftir fyrstu leikina. Leikið var á malarvellinum á Staðan í 2. deild Staðan er þessi í leiki helgarinnar: 2. deild eftir KA 4 3 1 0 7:3 7 Ármann 4 3 0 1 10:3 6 Haukar 4 2 2 0 6:2 6 Þróttur R 4 2 1 1 5:3 5 Selfoss 4 2 0 2 4:4 4 Reynir S 4 2 0 2 6:6 4 Þróttur N 4 1 1 2 3:4 3 Völsungur 4 1 1 2 3:6 3 ÍBÍ 4 1 1 2 2:6 3 Reynir Á 4 0 1 3 2:8 1 Selfossi og kom það mörgum á óvart, þvi grasvöllurinn við hlið- ina virtist í góðu standi. Sterkur vindur var á annað markið og hafði KA vindinn i bakið og skor- aði þá tvö mörk. Fyrra markið skoraði Ármann Sverrisson af stuttu færi eftir að skotið hafði verið í þverslá og boltinn hrokkið út á völlinn aftur. Á 35. mínútu bætti Eyjólfur Ágústsson við marki eftir langt innkast. í seinni hálfleik snerist dæmið við, Selfoss sótti meira án þess þó að skapa sér verulega göð tæki- færi. Eina mark Selfyssinga kom þegar korter var eftir af leiknum og skoraði Guðjón Arngrímsson markið eftir varnarmistök KA- manna. Á siðustu sekúndunum fékk KA hornspyrnu sem Sig- björn Gunnarsson tók. Boltinn fór í mark Selfoss en góður dómari leiksins, Einar Hjartarson, hafði flautað leikinn af áður. Hjá KA átti Jóhann Jakobsson einna beztan leik en í liði Selfoss var Tryggvi Gunnarsson lang- beztur. —Sigb.G/SS. Sjá nánar um leiki 2. deildar um helgina á bak- síðu íþróttablaðsins. Guðgeir til IBV ef hann hættir í atvinnumennsku íþróttabandalag Vest- mannaeyja hefur til- kynnt félagaskipti Guð- geirs Leifssonar úr belg- fska liðinu Sporting Charleroi í ÍBV. Mun Guðgeir því leika með Vestmannaeyingum seinna í sumar að öllu óbreyttu, en það gæti breytzt ef Guðgeir fær á næstunni tilboð frá ‘er- lendum atvinnumanna- liðum. Eins og fram kom í Mbl. fyrir helgina er Guðgeir Leifsson nú á sölulista hjá belgíska félaginu Charleroi. Hafa 5—6 félög i Belgíu, Frakklandi og Þýzka- landi spurzt fyrir um hann og eitt þeirra, 1. deildarliðið Rot Weiss Essen í Þýzkalandi, hefur átt viðræður við Guðgeir. Morgunblaðið gat hins vegar ekki skýrt frá því i sömu frétt, að Guðgeir hefur haldið þeim möguleika opnum að koma heim ef hann fær ekki viðun- andi tilboð. Hefur Guðgeir átt viðræður við Vestmannaeyinga vegna þessa og sendi ÍBV til- kynningu um félagaskipti Guð- geirs til KSÍ síðdegis á föstu- daginn og opinberaði þar með málið. Með tilkynningunni fylgdu nauðsynlegir pappírar frá Charleroi, en þá pappira kom Ásgeir Sigurvinsson með til landsins í siðustu viku. Áður en Guðgeir hélt í at- vinnumennskuna til Belgíu lék hann með Víkingi tvívegis og Fram hér heima. —SS. Þrjú félög hafa haft samband við Guðmund GUÐMUNDUR Þorbjörnsson, miðherjinn ungi f Val, virðist vera í miklu áliti hjá belgfskum knattspyrnufélögum. Þrjú félög þar f landi hafa haft samband við Guðmund á sfðustu dögum og spurzt fyrir um það, hvort hann væri tilleiðanlegur til að koma utan, leika æfingaleiki og ræða um hugsanlegan atvinnu- samning. Danski þjálfarinn Jaek John- son, sem þjálfaði Akureyringa á sfnum tfma, var milligöngumaður fyrir eitt félagið, og hafði Guð- mundur ekki áhuga á tilboði hans. Ekki lá Ijóst fyrir frá hvaða félagi það tilboð var, en hin tvö tilboðin munu vera frá félögum f 1. deildinni belgfsku. — SS. KRISTJAN ÍVÍKING KRISTJÁN Sigmunds- son, Iandsliðsmarkvörð- ur í handknattleik, hefur tilkynnt félagaskipti úr Þrótti í Vfking. Var til- kynningin um félaga- skiptin send HKRR f gær. Kristján Sigmundsson er tæplega tvítugur að aldri. Hann vakti athugli fyrir góða mark- vörzlu fljótlega eftir að hann byrjaði að leika með meistara- flokki Þróttar, og hefur hann verið ein traustasta stoð meist- araflokks félagsins siðastliðin ár. Þegar pólski þjálfarinn Janusz Cherwinsky tók við þjálfun landsliðsins valdi hann Kristján einn af þremur mark- vörðum landsliðshópsins. Hefur Kristján siðan verið i hópnum og tók hann m.a. þátt í hinni frækilegu för landsliðsins til Austurríkis sl. vetur. Kom hann inn á í leiknum við Tékka um 3. sætið og varði þá m.a. tvö vftaköst. Ekki er vafi á þvf að Kristján mun styrkja Víkingsliðið veru- lega, en markvarzlan hefur verið höfuðverkur þessa annars sterka handknattleiksliðs. —SS. Útlendingar í íslenzkan handbolta? ÁRSÞING Ilandknattleikssam- bands íslands verður haldið í félagsheimirinu á Seltjarnarnesi um næstu helgi. Fjölmargar til- lögur liggja fyrir þinginu og má þar nefna tillögu frá Víkingi, um að erlendum leikmönnum verði leyft að Ieika með íslenzkum lið- um, en þó aldrei fleiri en fjórum mönnum með hverju liði. Bergur Guðnason formaður Vals AÐALFUNDUR Knattspyrnufé- lagsins Vals var haldinn s.I. föstu- dag.Ægir Ferdinandsson kaup- maður lét nú af formennsku í félaginu og var Bergur Guðnason lögfræðingur kjörinn formaður I félagsins i hans stað. 22 menn valdir í leikinn við N-íra LANDSLIÐSNEFND KSÍ, Jens Sumarliðason, Árni Þorgríinsson og Tony Knapp hefur valið 22 manna hóp fyrir landsleikinn gegn Norður-írlandi á Laugar- dalsvelli n.k. laugardag, en leikur þessi er sem kunnugt er liður í heimsmeistarakeppninni f knatt- spyrnu. Í hópnum cru allir 16 leikmennirnir, sem þátt tóku f leiknum gegn stjörnuliði Bobby Charltons í sfðustu viku og að auki 6 leikmenn, þar af 6 atvinnu- menn, sem leika með erlendum liðum. Í vikunni verður fækkað f hópnum niður f 16 leikmenn. Leikmennirnir 22 eru þessir: Markverðir: Árni Stefánsson I'ram Diðrik Olafsson Víkingi Sigurður Dagsson Val Varnarleikmenn: Einar Þórhallsson Breiðabliki Gísli Torfason ÍBK Janus Guðlaugsson FH Jóhannes Eðvaldsson Celtic Jón Gunnlaugsson ÍA Marteinn Geirsson Royal Union Viðar Halldórsson FH Tengiliðir: Albert Guðmundsson Val Árni Sveinsson ÍA Ásgeir Sigurvinsson Standard Liege Atli Eðvaldsson Val Guðgeir Leifsson Charleroi Hörður Hilmarsson Val Karl Þórðarson ÍA Framlínumenn: Guðmundur Þorbjörnsson Val Ingi Björn Albertsson Val Ólafur Danivalsson FH Kristinn Björnsson ÍA Teitur Þórðarson Jönköping. Sjá einnig íþróttir á bls. 38

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.