Morgunblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 1
44SÍÐUR
135. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Amin í síðbúinni
brúdkaupsferð
Nairobí, Kenya, 22. júní. AP.
FLEST bendir nú til að Idi
Amin forseti Uganda sé á
lífi og við beztu heilsu þótt
enn hafi enginn séð forset-
ann, en stjórnmálafrétta-
ritarar telja líklegt að
Amin hafi enn einu sinni
verið að leika með um-
heiminn.
Fréttamaður bandarísku frétta-
stofunnar CBS, June Taylor, sem
er á ferðalagi í Uganda sagði að
hún hefði talað við Amin í síma i
gær og hefði hann þá verið í bezta
skapi, hlegið og gert að gamni
sínu sagt: „Ég er að eyða síðbún-
um hveitibrauðsdögum með Söru
eiginkonu minni, og ég hef það
stórfínt, ég veit ekki út af hverju
öll þessi læti eru.“ Sagði Taylor
að Amin hefði sagt við sig að hann
hefði haft mjög gaman af öllu
fjaðrafokinu.
Taylor, sem áður hefur hitt
Amin og rætt við hann, sagði að
Amin hefði í símtalinu aldrei
minnst á banatilræði. Sagði hún
greinilegt að stjórnvöld hefðu
viljað sanna að Amin væri á lífi,
því að embættismenn Uganda
hefðu boðið sér samtalið og komið
sér í samband við Amin í gær.
Amin giftist Söru 1975 og sagði
10. júní, að hann myndi bráðlega
geta gefið sér tíma til að eyða með
Vance
til Kína
í ágúst
Washington, 22. júnf AP.
FÖR CYRUS Vance, utanríkis-
ráðherra Bandarfkjanna, til Kfna
22.—26. ágúst nk. er farin f þeirri
von að hægt verði að bæta stjórn-
málaleg samskipti þjóðanna að
þvf er sagði f tilkynningu banda-
rfska utanríkisráðuneytisins f
dag. Er ferðin farin f samræmi
við Shanghaiyfirlýsinguna frá
1972 um að koma á eðlilegum
stjórnmálasamskiptum, en sem
fyrr er það staða Taiwans, sem er
helzta ágreiningsefnið.
henni hveitibrauðsdögunum
tveimur árum eftir brúðkaupið.
Ekki er vitað hvar Amin heldur
sig.
Yfirmaður flóttamannastofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna sagði í
dag að fregnir frá Kenya um
gífurlegan fjölda flóttamanna frá
Uganda síðustu daga vegna
hryðjuverka hermanna Amins
væru ósannar, kannanir hefðu
sýnt að engin aukning hefði orðið
á flóttamannastraumnum. Fregn-
ir frá Kenya herma hins vegar
eftir áreiðanlegum heimildum að
komist hafi upp um samsæri um
að ráða Amin af dögum, en sam-
særismennirnir, herforingjar í
Ugandaher, hefi veriðteknir áður
en þeir komust í færi við forset-
ann.
Simamynd AP.
Mitchell og
Haldeman í
fangelsi
JOHN Mitchell fyrrum dóms-
málaráðherra Bandarfkjanna
hóf f dag að afplána 2'A—8 ára
fangelsisdóm fyrir aðild sfna
að Watergatemálinu. Bob
Haldeman, fyrrum ráðgjafi
Nixons forseta, hóf einnig að
afplána sömu refsingu, en hann
gaf sig fram við fangelsisyfir-
völd degi fyrr til að forðast
ljósmyndara og fréttamenn.
John Erlichman annar helzti
ráðgjafi Nixons hefur þegar
setið f fangelsi f tæpt ár.
Mitchell situr f fangelsi við
Maxwellherflugvöllinn í
Alabama, Haldeman í Lompoc f
Kalifornfu og Erlichman í
Framhald á bls. 24.
Úrslit Histadrut kosn-
inganna áfall fyrir Begin
Tel-Aviv, 22. júnl. Reuter—AP.
SIGUR Verkamanna-
flokksins í ísrael í kosning-
unum innan verkalýðs-
hreyfingarinnar Histadrut
er mikið og alvarlegt áfall
fyrir Begin forsætisráð-
herra og hina nýju stjórn
Begin
hans, sem tók við völdum í
iandinu i gær. Ekki verður
vitað fyrr en á morgun í
fyrsta lagi hver endanleg
úrslit urðu, en í kvöld var
ljóst að Verkamannaflokk-
urinn hefði fengið að
minnsta kosti 52% at-
kvæða. Þá var einnig ljóst
að um 200 þúsund manns,
sem kusu Likud í þing-
kosningunum i siðasta
mánuði kusu nú Verka-
mannaflokkinn.
Stjórnmálafréttaritarar í Tel-
Aviv segja að Begin forsætisráð-
herra hafi verið mjög brugðið er
hann heyrði úrslitin. Hin hægri-
sinnaða stjórn hans hafði uppi
áætlanir um að koma frjálsri
verzlun á í landinu f ríkara mæli
innan efnahagskerfis sem að
mestu leyti er undir opinberri
stjórn. Histadrut stjórnar eða á
Framhald á bls. 24.
Miklar öryggisráðstaf anir
við brottför Brezhnevs
París, 22. júní. AP—Reuter.
GtFURLEGAR öryggisráðstafan-
ir voru gerðar í Parfs f morgun er
Leonid Brezhnev, forseti Sovét-
ríkjanna, hélt þaðan eftir 3 daga
opinbera heimsókn. M.a. fór
Brezhnev ekki heim aftur með
sömu Illiutsynþotunni og hann
kom með, heldur annarri þotu,
sem lenti í Parfs skömmu fyrir
áætlaða brotför forsetans. Lög-
regluyfirvöld f Parfs segja að þar
hafi aldrei verið gerðar jafnmikl-
ar öryggisráðstafanir frá þvf að
útför Charles de Gaulles var gerð.
Um 3000 lögreglumenn og her-
menn voru á stöðugri vakt meðan
forsetinn dvaldi f Frakklandi, en
nokkrar hótanir um banatilræði
við forsetann bárust og nokkrum
Ætla að hindra hvalveiðar
við Island á næsta ári
Greenpeacestofnunin segir
íslendinga ofveida langreyði
„ÞAÐ ER rétt að við stefnum
að þvf að koma með skip á
tslandsmið á næsta ári til að
reyna að hindra hvalveiðar is-
lendinga" sagði talsmaður
Greenpeacestofnunarinnar,
sem er alþjóðleg umhverfis-
verndarstofnun, f samtali við
Morgunblaðið f gær. Ástæðan
fyrir fyrirspurn Mbl. var frétt f
brezka blaðinu Times sl.
laugardag, þar sem fram-
kvæmdastjóri Lundúnaskrif-
stofu samtakanna, AUan
Thornton sagði að samtökin
hygðust senda menn og báta til
svæða fyrir norðan Skotland,
þar sem fslenzk og norsk hval-
veiðiskip stunda veiðar og
hindra veiðarnar. Samtökin
berjast fyrir þvf að sett verði f
heiminum bann við hvalveið-
um f 10 ár.
Samtökin notuðu í þessu
markmiði gamlan tundurdufla-
slæðara á sl. ári og tókst að sögn
Thorntons að koma í veg fyrir
dráp á 1400 hvölum. Aðferðin,
sem notuð er, er að láta umrætt
skip sigla milli hvalsins og hval-
veiðaskipsins, sem er að elta
hann.
Talsmaður Greenpeace sagði
i samtali við Morgunblaðið að
samtökin vildu koma í veg fyrir
að íslendingar veiddu lang-
reyði, sem væri í mikilli hættu
vegna ofveiði. Aðspurður á
hvaða skýrslum samtökin
byggðu þessa niðurstöðu sína,
er á það væri litið að íslending-
ar hefðu hlotið viðurkenningar
á alþjóðavettvangi fyrir
verndunarsjónarmiði i sam-
bandi við hvalveiðar, sagði tals-
maðurinn, að umhverfisvernd-
armenn væru sammála um að
þessi tegund hvala væri i
hættu. islendingar hefðu feng-
ið kvótaheimild fyrir veiðum á
langreyði, en samtökin litu svo
Framhald á bls. 24.
sinnum kom til átaka milli lög-,
reglu og mótmælendahópa.
Brezhnev og Giscard D’Estaing,
forseti Frakklands, undirrituðu í
morgun samning um að vinna
saman að þvi að draga úr spennu í
heiminum og skoruðu á þjóðir
heims um að taka saman höndum
um hið sama.
1 sameiginlegri yfirlýsingu for-
setanna var einnig lögð áherzla á
rétt Afríkuþjóða til að marka eig-
in framtíðarstefnu án íhlutunar
utanaðkomandi ríkja. Þá var kyn-
þáttastefnan i S-Afríku fordæmd
og hvatt til sjálfsstjórnar fyrir
Rhódesiu og Namibíu. Ekkert var
minnst á Zaire, sem hafði sakað
Sovétmenn og Kúbu um að hafa
þjálfað uppreisnarmennina, sem
réðust inn í Shabahérað Zaire
fyrr á þessu ári. Kúbumenn og
Sovétmenn gagnrýndu Frakka
fyrir að hafa lánað flugvélar til að
fljúga hermönnum Marokkó-
stjórnar til liðs við Zaireher.
Brezhnev réðst i gærkvöldi í
ræðu harkalega á vesturveldin og
sakaði stjórnir sumra þeirra um
að fylgja stefnu, sem ynni gegn
Detente og anda Helsinkisáttmál-
ans. Sagði Brezhnev, að stöðugt
væri verið að kynda undir vígbún-
aðarkapphlaupinu, en ekki draga
úr þvi. Varaði hann við að einn
neisti frá einu óróasvæði gæti
komið af stað heimsstyrjöld ner, a
þvi aðeins að gerðar væru ráðstaf-
anir til að stöðva vigbúnaðarkapp-
hlaupið.