Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JtJNl 1977 3 Aðalritari FIDE í einka- heimsókn INEKE Bakker, aðalrit- ari Alþjóðaskáksam- bandsins, kom hingað til lands í gær í boði Skák- sambands íslands. Þessi heimsókn Bakker til Islands er einkaheim- sókn, en hún mun gefa skáksambandsmönnum og Friðrik Ólafssyni upp- lýsingar um starfsemi FIDE og þeir á móti kynna henni aðstöðuna hérlendis. Þeir Einar S. Einarsson, for- seti S.Í., og Friðrik Ölafsson tóku á móti Ineke Bakker og tók Rax þessa mynd af þeim Bakker og Friðrik á Hótel Loft- leiðum í gær. Fjórdungsmót austfirzkra hestamanna hefst i dag FJÓRÐUNGSMÓT hestamanna á Austurlandi hefst I dag á nýjum skeiSvelli Hestamannafélagsins HomfirSings hjé Fornustekkum, skammt fyrir innan Höfn. AS sögn GuSmundar Jónssonar, formanns HornfirSings er búizt viS aS allt aS 2000 manns komi til mótsins en hópar rlSandi manna eru nú á lei 8 til mótsins. Lengst aS kemur hópur manna úr Reykjavlk og eru meSal þeirra Þorlákur Ottesen og Gunnar Tryggvason en þeir koma á móts- svœSiS I kvöld og eiga þá aS baki vikuferS. Þá koma einnig hópar hestamanna rtSandi úr Mýrdal. frá Akureyri og Húsavlk. Hestamannafélagið Hornfirðingur tekur á mótinu til afnota nýtt móts- svæpi og verður það formlega vlgt af sóknarprestinum á staðnum, sr Gylfa Jónssyni, á sunnudag. í dag hefst mótið með dómum kynbótahrossa og jieim verður framhaldið á morgun auk þess sem annað kvöld fara fram und- Framhald á bls. 24. Pólýfónkórinn fœr frábærar - undirtektir á Italíu: Þurfti að endurtaka „ Halelú j akórinn, ’ PÓLVFÓNKÓRINN hefur nú haldið þrenna hljómleika á söng- ferð sinni um ítalfu og hafa við- tökur áheyrenda verið mjög góð- ar. Alls verða haldnir átta tón- leikar I jafnmörgum borgum og lokatónleikarnir verða í kirkj- unni I Pineta 4. júlf. Flytjendur ásamt Pólyfónkórnum eru kammersveit og einsöngvararnir Katheleen Livingstone, Rut Magnússon, Neil MacKie og Michael Rippon undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar. Efnisskrár eru tvær, annars vegar Messías eftir HSndel sem flutt hefur verið i Siena og í Vicenza, og hins vegar konsert fyrir tvær einleiksfiðlur og Magnificat eftir Bach og Gloria eftir Vivaldi, sem flutt var í Santa Croce i Flórenz að viðstöddum mörg þúsund áheyrendum. Aðsókn hefur verið mjög góð að þessum tónleikum þremur, og er talið að alls hafi um 6 þúsund manns sótt þá. Viðtökur hafa ver- ið frábærar og hefur listafólkinu verið fagnað vel og innilega. Á Messíasartónleikunum hefur þurft að endurtaka halelújakór- inn, þar sem fagnaðarlátum ætl- aði aldrei að linna. Næstu tónleik- ar verða i Markúsarkirkjunni i Feneyjum en siðan haldið til Lignano, þar sem dvalist verður síðustu daga ferðarinnar og haldnir hljómleikar í nálægum borgum. Svefnlyfjum er ávísað mest hér á Norðurlöndum ÍSLENDINGAR neyta Noróur- landaþjóða mest svefnlyfja eru niðurstöður rannsókna á sölu geð- lyfja á Norðurlöndum. 1 grein í Timariti um lyfjafræði, sem þeir Almar Grimsson og Ólafur Ólafs- son skrifa, setja þeir fram þær tilgátur til skýringa á þessu, að hér á landi sé ekki jafn ötullega unnið að upplýsingum til lækna og almennings og á öðrum Norð- urlöndum, vinnutfmi hér á landi er almennt mun lengri en tiðkast f öðrum Norðurlöndum og að hér- lendis er ekki á boðstólum meðal- sterkur eða sterkur bjór. Að öðru leyti virðist sala geð- og róandi lyf ja svipuð hér og á öðrum Norð- urlöndum, en fslenzkir læknar ávisa verulega minna en starfs- bræður þeirra af eftirritunar- skyldum lyfjum; morffni, ópfum og pethedin. í grein, sem Ölafur Ólafsson, landlæknir, ritar í Mbl. í dag og birt er á bls. 25, kemur fram, að í ákveðnum hjúskaparstéttum hér á landi er neyzla róandi lyfja miklu meiri en almennt gerist. Hins vegar er neyzla svefnlyfja svipuð f sömu hjúskaparstéttum, en fólk 60 ára og eldra neytir um 60% af heildarmagni svefnlyfja, sem ávfsað er hér á landi og neyzl- an eykst með aldrinum. Vélstjórar ekki med i stóru nefndinni gegn ríkisverksmiðjunum SÁTTAFUNDUR var f gær með rfkisverksmiðjunum og Kfsiliðj- unni og þeim 13 félögum, sem eru umbjóðendur starfsmanna verk- smiðjanna. Félögin voru áður 14, en eitt þeirra, Vélstjórafélag íslands, hefur hætt samvinnu við hin félögin 13 og sendir sérstaka samninganefnd til fundar við fulltrúa verksmiðjanna. Þá hefur sáttasemjari rfkisins, Torfi Hjartarson, boðað fulltrúa farmanna og fulltrúa skipafélag- anna til fundar i dag og næstkom- andi mánudag er boðaður sátta- fundur með fiskimönnum og út- vegsmönnum. Fleiri sáttafundir eru enn ekki bókaðir, en fyrir liggur að á næstunni verður ákveðinn fundur með blaðamönn- um og viðsemjendum þeirra, Félagi blaðaútgefenda f Reykja- vfk. Þá mun hafa tekizt samkomulag með rafiðnaðarmönnum og Reykjavfkurborg fyrir nokkru og er þvf verkfalli rafvirkja hjá borginni aflétt. Sambyggt Stereo Magnari Plötuspilari Kassettutæki Útvarp Tveir hátalarar fylgja PHItlPS Árgerð 1977 Fjölmargir kostir í vönduðu tæki á hagstæðu verði 1. (Jtvarp fyrir LW, MW, SW ogFM (stereo) 2. Innbyggt loftnet. 3. Magnari 2x17 wött (music). 4. Stenst kröfur DIN 45 500 um Hi Fi. 5. Kassettutækið tekur Chromium kassettur. 6. Sjálfvirk upptökustilling. 7. 3ja tölu teljari á kassettutæki. 8. 2ja hraða Hi Fi plötuspilari. 9. Plötuspilaraarmur á lyftu. 10. Auðveld stilling á arm- þyngd og hliðarrásun. 11. Heyrnartól og hljóðnema- innstungur að framan. 12. O.fl. o.fl. o.fí. o.fl. Philips kann tökin á tækninni heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.