Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JUNl 1977 Flugsamgöngur á Norðurlandi: FLUGVELLIR OG LENDINGARSTAÐIR Á NORÐURLANDI ©Flugvðllur fyrir raglubundicf áatlunarflug árid 1074. Flugvðllur fyrir óragiulagt atvinnuflug, V-/ ajúkraflug og naudlandingar. Haimild: Handbók flugmanna. (Tafla úr "ÍSamgönguúœtlun ílorðurlonds", Framkv.st. ríkisins - óætlanadeild - 19X») FLUGFÉLAG íslands rekur reglubundið áætlunarflug frá Reykjavfk til Sauðárkrðks, Akureyrar og Húsavfkur, en Flugfélag Norðurlands annast reglubundið flug frá Akureyri til Grímseyjar, Húsavfkur, Kópaskers, Raufararhafnar, Þórshafnar og Vopnaf jarðar. Eru þær flugferðir skipulagðar með tilliti til áætlunarflugs Flugfélags íslands um Akur- eyri. Flugfélagið Vængir annast reglubundið áætiunarflug til Gjögurs, Hólmavfkur, Hvammstanga, Blönduóss, Sigluf jarðar og Mývatnssveitar. Flugfélag Austurlands rekur reglubundið fiug frá Egils- stöðum til Þórshafnar, Bakka- fjarðar og Vopnafjarðar. Auk þessa flýgur Flugfélag islands tvær ferðir f viku milli Akur- eyrar og ísaf jarðar. Flugvellir á norðuriandi Norðurland er þvi dável sett, hvað varðar flugsamband við Reykjavík. Loftferðanet Norðurlands er og komið á góð- an rekspöl, þó enn vanti nokk- uð á tengingu Akureyrar við Hvammstanga, Blönduós, Sauð- árkrók, Siglufjörð og Ölafs- fjörð, sem auka myndi á inn- byrðis tengsl í f jórðungnum. Þá vantar vfða verulega á að flug- vellir séu þann veg úr garði gerðir að viðunandi sé, einkum að því er varðar öryggisbúnað ýmiss konar og aðstöðu fyrir farþega. Hér fer á eftir skrá yfir flug- velli á Norðurlandi, ásamt stærð (efni í yfirborði tilgreint í svigum: Akureyri 1.560x60 (asfalt) Húsavfk 1.560x50 (möl) Kópasker 1.170x50 (sandur-möl) Raufarhöfn 1.200x45 (möl) Sauðárkrókur 1.200x50 (sandur-möl) Þórshöfn 1.140x40 (möl) Gjögur, Árneshr. 600x32 (melur) Hólmavfk 754x50 (gras-melur) Kollafjarðarnes 400x20 (tún) Framkvæmdaþörf vid ffugvelli norðanlands á annan milljarð króna Króksstaðameiur 600x30 (malarborinn) Auðkúluheiði 700x25 (melur) Blönduós 800x30 (sandur) Siglufjörður 700x40 (eyri) Ólafsfjörður 400x25 (melur) Hrísey 400x20 (gras) Grfmsey 1200x50 (möl-gras) Flatey, Skjálfanda 600x35 (gras) Fjöll, Kelduneshr. 450x30 (gras) Ærlækur, öxarfj.hr. 400x35 (melur) Reykjahlfð, Ný- vatn 580x25 (malarborinn) Grfmsstaðir á Fjöllum 642x33 (melur) Bakkafjörður 600x25 (malarborinn) Vopnaf jörður 800x25 (malarborinn). Farþegar og flutningur Ekki eru tiltækar nýrri heild- arupplýsingar um farþega- og vöruflutninga um flugvelli á Norðurlandi en frá árinu 1974. >á voru farþegar alls rúmlega 103.000 og vörur og póstur í tonnum talið 2.163.3 tonn. Lík- ur benda til, að þessar tölur séu verulega hærri nú. Þrír hæstu staðirnir i farþegaflugi (1974) vóru: Akureyri: 71.157 farþeg- ar, Sauðárkrókur 8.657 farþeg- ar og Húsavik 9.925 farþegar. Næstir koma Siglufjörður og Blönduós. Farþegaaukning á timabilinu 1971—1974 virðist mest á Blönduósi og í Siglu- firði. Til samanburðar má geta þess að íslenzk flugfélög flugu á innanlandsleiðum árið 1973 1.868 km. með 183.287 farþega samtals (áætlunarflug) og með 1.287 farþega i leiguflugi. Svipmynd frá Akureyri, höfuðstað Norðurlands. Framkvæmdaþörf, við flugvelli á Norðurlandi Að beiðni Fjórðungssam- bands Norðlendinga hefur Framkvæmdastofnun ríkisins, áætlanadeild, unnið gagnmerkt heimildarit, sem heitir „Sam- lönguáætlun Norðurlands“ og fjallar um alla þættí sam- gangna á Norðurlandi: á sjó, á landi og i lofti; hafnir meðtald- ar. Er þar fjallað um samgöngu- mál fjórðungsins með þeim hætti, að mjög er til leiðbein- ingar um stýringu fjármagns og framkvæmda á næstu árum. Engin tök eru á þvi að gera svo yfirgripsmiklu riti verðug skil I stuttri fréttafrásögn. Hér verð- ur látið nægja að benda á það helzta, sem framkvæmdaþörf í flugvallarmálum spannar, að dómi ritsins, eftir faglega at- hugun sérhæfðra manna. • Gjögur: Verkefni næstu 10 ára: Styrk- ing núverandi brautar, bygging farþegaskýlis (með sima), girð- ing flugbrautar, lenging henn- ar í 800 m og kaup á fjarskipta- tækjum. 0 Hólmavfk: Bygging farþegaskýlis með síma, föst lýsing á flugbraut, girðing flugbrautar, kaup sand- dreifara og fjarskiptitækja. 0 Hvammstangi: Bygging nýrrar 800 m langr- ar malarflugbrautar, bygging farþegaskýlis, föst lýsing á flugbraut, girðing flugbrautar. 0 Blönduós Bygging 800 m þverbrautar á núverandi braut, föst lýsing, laus lýsing á þverbraut, tal- stöðvarbúnaður og vindmælir, slökkvivagn, brautarbíll, sand- dreifari, valti, tækjageymsla. 0 Sauðárurókur: Lenging flugbrautar í 2.000 m. flugbrautar- og aðflugshalla- ljós, aðflugskerfi, byggð flug- stöð, brautarbíll, tækjageymsla, sandgeymsla, sanddreifari, snjóblásari, malbikun og vara- aflstöð. 0 Siglufjörður Uppsetning stefnuvita á Siglunesi, uppfylling á hlaði og aðkeyrslu að flugskýli (far- þegaskýli), brautarbill, slökkvi- vagn, sanddreifari, sand- geymsla, tækjageymsla, snjó- blásari, valti. 0 Ólafsfjörður: Bygging nýrrar 800 m. langr- ar flugbrautar (upphækkaðr- ar), laus flugbrautarlýsing, bygging farþegaskýlis, talstöð, vindmælir. 0 Akureyri: Lenging flugbrautar í 2.300 m, malbikuð lenging, hemlun- armælir, sandgeymsla, dráttar- vél með ámokstursskóflu, tækjageymsla, snjósópur, að- flugskerfi. 0 Grfmsey: Hækka flugbrautina og styrkja og setja upp fasta lýs- ingu. 0 Húsavfk: Lengja flugbraut i 2.000 m. bygging flugstöðvar, aðflugs- kerfi, snjóblásari, malbikun brautar og hlaðs, sandgeymsla, aðflugskerfi. flugi til Hólmavíkur og Hvammstanga. Framkvæmda- þörfin í heild við flugvelli á Norðurlandi er í tilvitnuðu riti talin um 1.100 m.kr., miðað við verðlag liðins árs á næstu 10 árum. í skýrslu þessari er ekki fjallað um svokallaða sjúkra- velli, sem heyra frekar til heil- brigðis- og öryggismála en sam- göngumála, þótt taka verði tillit til þeirra, er fjallað er um leigu- flug minni véla. í tilvitnaðri samgönguáætlun Norðurlands er ekki slegið föstu framkvæmdaröð við flug- velli. Þó má telja líkur á því, eftir þeim gögnum sem fram koma, að hún verði þessi: 1. 0 Kópasker: Bæta burðarþol og yfirlag flugbrautar, tengja saman brautir (aðalbraut og þver- braut), farþegaskýli, girða flug- völl, radióviti. 0 Raufarhöfn: Hækka núverandi flugbraut, talstöð og stefnuviti, ný þver- braut 800 m. föst iýsing, sand- dreifari, sandgeymsla, farþega- skýli. 0 Þórshöfn: Bygging flugbrautar, 1.200x30 m. bygging farþega- skýlis, föst lýsing flugbrautar og heimtaug, stefnuviti og tal- stöð, snjóplógur, tækjageymsla, byggð 800 m. þverbraut. 0 Vopnafjörður: Bygging 800 m. þverbrautar, lýsing flugbrautar, girðing, radíóviti. Forgangsverkefni Auk framangreinds þarf að setja upp radióvita við Reykja- skóla í Hrútafirði, sem þjónar Akureyri, 2. Sauðárkrókur og Húsavík. Siglufjörður og Þórs- höfn. 4. Gjögur, Grimsey, Blönduós, Raufarhöfn, Vopna- fjörður, 5. Nývatnssveit. 6. Hólmavík, Hvammstangi, Kópa- sker. Samhliða framkvæmdum við flugvellina sjálfa þarf að bæta farþegaaðstöðu mjög víða. i því efni hefur verið talað um þann möguleika að staðla byggingu farþegaskýla, a.m.k. við hina minni flugvelli og hefja verk- smiðjuframleiðslu þeirra. Er talið að á þann hátt megi lækka byggingarkostnað um allt að 30%. Að sjálfsögðu verður sú hönnun að taka tillit til breyti- legra þarfa og hugsanlegrar síð- ari stækkunar. Hér gæti verið um að ræða verkefni fyrir hús- einingafyrirtækið i Siglufirði, ef það félli að annarri fram- leióslu þess. ^ (Heimild: Samgönguáætlun Norður- lands.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.