Morgunblaðið - 12.07.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.07.1977, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐ 151 tbl. 64. árg. ÞRIÐJUDAGUR 12 JÚLÍ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. # Sovézka Tu-134 þot- an frá Aeroflot á flug- vellinum í Helsinki f gærdag. Fjölmennt lögreglulið umkringdi vélina þegar eftir að hún var lent. Mennirnir tveir, sem vopnaðir eru vélbyssum og handsprengj- um, rændu flugvélinni þegar hún var á ferð frá Petrozavodsk i Norður-Rússlandi til Leningrad. Flugvélin er í eigu Aeroflot- flugfélagsins og er fremur litil þota af gerðinni Tu-134. Hafði vélin ekki flugþol til að fljúga til Stokkhólms, en þangað munu ræningjarnir hafa ætlað. Þegar vélin var lent i Helsinki vildu þeir í fyrstu fá aðra vél til að fljúga til Stokkhólms en þegar sænsk yfir- völd tilkynntu þegar í stað að þau mundu ekki taka við ræningjun- um kröfðust þeir þess að fá að fara til einhvers annars vestræns ríkis, og hótuðu að sprengja vél- 0 Lögreglumaður aðstoð- ar konur sem sleppt var úr sovézku flugvélinni í gær. Flugræningjarnir slepptu úr haldi áhöfn vélarinnar og stðrum hluta farþeg- anna snemma dags í gær og fimm farþegum tókst að flýja út um bakdyr vélar- innar. ina i loft upp og drepa gíslana ella Framhald á bls. 30. Síðustu fréttir Seint f gærkvöldi bárust þær 'fréttir frá Helsinki ,að slitnað hefði upp úr samningaviðræð- um flugvélarrættingjanna við finnsk yfirvöld. Sovétríkin líkleg til að fallast á málamiðlun Belgrad, 11. júlf. Reuter. SOVÉTRlKIN gáfu í dag til kynna að þau kynnu að geta fellt sig við dagskrár- tillögu sem níu óháð ríki hafa lagt fram til undir- búnings Belgradráðstefn- unni í haust um fram- kvæmd Helsinkisáttmál- ans frá 1975. Áður hafa Atlantshafsbandalagsrfkin sagzt geta fallizt á þá til- lögu sem málamiðlun. Um helgina áttu fulltrúar úr hinum fjölmörgu sendinefndum með sér marga óformlega fundi þar sem ýtarlega var rætt um hvernig leysa mætti hnút þann sem kominn var á viðræður á undirbúningsfundinum. 1 dag gaf síðan aðalfulltrúi Sovétríkjanna, Yuli Vorontsov, í skyn að Sovét- ríkin gætu fallizt á ofangreinda málamiðlun. Áður hefur Sovét- fulltrúinn tvisvar sagt að verði ekki fallizt á dagskrártillögu Sovétmanna fari ráðstefnan út um þúfur. Aðallega hefur verið um það deilt í umræðum um dagskrá fyrir haustráðstefnuna i Belgrad hversu ýtarlega skuli fjallað um það hve vel ákvæði Helsinkisátt- málans um mannréttindi hafa verið haldin. Hafa hin vestrænu riki lagt áherzlu á að þetta sé aðalhlutverk ráðstefnunnar, en Sovétrikin og bandamenn þeirra i Austur-Evrópu hafa viljað fjalla Framhald á bls. 30. Franskur togari tekinn ad veiðum í brezkri landhelgi Lowestoft, Englandi, 11. júlf. AP. BREZKA varðskipið HMS Brinton færði í dag til hafnar í Lowestoft franska togarann Ailiy frá Dieppe, svo hægt væri að ganga úr skugga urn hve mikill síldarafli er í skipinu, að því er brezka landbúnaðar- ráðuneytið tilkynnti í dag. Ailly var tekinn um 20 milur frá landi, þar sem skipið var að lýsuveiðum og var aflinn enn á dekki, þegar skipið kom til hafn- ar. Landbúnaðarráðuneytið sagði að góð ástæða væri til að ætla að Ailly hefði verið með of mikinn síldarafla innan um lýsuna, en skipum á lýsuveiðum er heimilt að taka inn síld með, að þvi marki þó að hún verði aldrei meira en 20% aflamagnsins. Líkur benda til að mál skipstjórans á Ailly verði sett fyrir dómstóla. Ef talið verður sannað, að of mikil síld hafi verið i aflanum, á Mannréttindahópurinn 77: Rithöfundum í Tékkóslóvakíu meinað að gefa út verk sín Vfnarhorg 11. júlf. Reuter. BARÁTTUMENN fyrir mannréttindum f Tékkó- slóvakíu sökuðu í dag stjórnina í Prag um að hafa 400 rithöfunda á svörtum lista og meina þeim að gefa út verk sín í Tékkóslóvakíu. Samtök manna sem fyrr á ár- inu gáfu úr „Mannréttindayfir- lýsinguna 77“ segja i skjali sem birt var i Vín í dag að „þess finnist ekki dæmi í nútímasögu að ríkið hafi bannað svo stórum hópi manna að skrifa“. Undir skjalið ritar Jiri Hajek, fyrrver- andi utanríkisráðherra Tékkó- slóvakiu, en i skjalinu eru nefndir með nafni 130 rithöf- undar sem sagt er að hafi orðið sérstaklega fyrir barðinu á stefnu stjórnarinnar. Ekki var skýrt frá því á hvern hátt þessir rithöfundar hefðu verið hindr- aðir við störf sín. Skjal þetta er hið fjórtánda i röð ásakana gegn tékknesku Framhald á bls. 30. skipstjórinn á Ailly yfir höfði sér sektir, sem geta numið allt að 50 þúsund sterlingspundum og upptöku afla og veiðarfæra. Eins og kunnugt er lýstu Bretar yfir einhliða síldveiðibanni innan 200 milna lögsögu sinnar fyrir 10 dögum eftir að Efnahagsbanda- lagi Evrópu hafði mistekizt að ná Framhald á bls. 30. Stjómin held- ur velli í kosn- ingum í Japan Tokyo, 11. júlí. Reuter, AP. VONIH stjórnarandstöðunnar i Japan um að koma stjórn Fukuda og frjálslynda flokksins frá völd- um í kosningunum til efri deildar þingsins brustu í kvöld þegar ljóst varð að stjórnin mundi halda hinum nauma meirihluta sínum i deildinni. Kosið var um helming hinna 252 þingsæta og í kvöld var Ijóst, að stjórnin hafði hlotið 63 af 126 þingsætum sem kosið var um og að auki höfðu tveir óflokksbundnir íhaldsmenn náð kjöri, en búizt er við að þeir muni styðja stjórnina. Er þvf sýnt að stjórn Fukuda muni halda eins atkvæðis meirihluta í þingdeild- inni, en kosið er í helming sæta í efri deildinni þriðja hvert ár. Þvi hafði almennt verið spáð fyrir kosningarnar að stjórn Fukuda tapaði meirihlutanum i framhaldi af fylgistapi flokksins i kosningum til neðri deildar þingsins i desember sl. Fukuda forsætisráðherra sagði i kvöld, að úrslitin sýndu að almenningur i Japan vildi áfram búa við pólitiskan stöðugleika Framhald á bls. 30. Fimm gíslar eftir í haldi í Helsinki í gærkvöldi Helsinki. 11. júlf. AP, Reuter MENNIRNIR tveir, sem á sunnudag rændu sovézkri farþegaflugvél í innanlandsflugi og neyddu flugmann- inn til að fljúga til Helsinki, héldu í gækvöldi aðeins eftir fimm af gfslum sfnum en alls höfðu þeir 72 gísla á valdi sfnu fyrst í stað. Höfðu þeir sleppt flestum þeirra sjálfviljugir, en nokkrum gfslanna hafði tekizt að flýja út um bakdyr vélarinnar. Var búizt við að endalok þessra atburða í Helsinki væru skammt undan. Finnsk stjórnvöld buðust í gær til að láta ræningjun- um í té litla flugvél af gerðinni Cessna og láta fljúga þeim þangað sem þeir vildu fara, en mennirnir höfnuðu boðinu. Ekki lá f gærkvöldi Ijóst fyrir hvers vegna þeir vildu ekki skipta um vél, en það hafði einmitt verið ein krafa þeirra í upphafi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.