Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 2
* % MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGOST 1977 Flugleiðir bjóða 180 og 330 dollara New Y ork-Luxemburg ■— og aukið frjálsræði í sambandi við farpöntun „ÞETTA er auðvitað enn eitt skrefið í áttina að harðnandi sam- keppni við okkur, þar sem þessi tilboð höfða til þeirra farþega, sem við höfum verið að flytja undanfarin ár,“ sagði Martin Petersen, framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum, er Mbl. spurði hann álits á niðurstöðum IATA- fundarins, sem skýrt var frá í blaðinu ( gær. „Hins vegar má segja, að við höfðum séð þetta fyrir. Laker út af fyrir sig var engin ögrun, en við vorum hrædd- ari við afleiðingarnar af Laker, ef svo má segja, en þær afleiðingar koma nú fram í samþykkt IATA- fundarins. Hins vegar vorum við búnir að ákveða okkar svar og þetta breytir engu hjá okkur. Við höfum ákveðið að taka upp gjöld sem hafa svipaða eiginleika og Laker og aðrir bjóða, en okkar fargjöld eru hærri, þar sem við erum ekki reiðubúnir til að ganga Jengra í lækkunarátt." Þegar Mbl. spurði Martin nánar um þessi nýju gjöld Flugleiða, sagði hann, að þeim fylgdi meira frjálsræði i sambandi við farpönt- un. I vetur munu Flugleiðir bjóða lægstu fargjöld á leiðinni New York — Luxemburg 180 dollara aðra leiðina og 330 dollara fram og aftur. Fargjöldin, sem sam- þykkt voru á IATA-fundinum eru 146 dollarar og 256 fram og til baka, sem eru örlítið hærri far- gjöld en Laker býður. Hjá Flug- leiðum sem IATA-félögunum verður haldið uppi eðlilegri þjón- ustu fyrir farþegana. Martin sagði að þessi nýju fargjöld Flugleiða væru smávægileg lækkun í doll- urum taiið, en áherzla er lögð á aukið frjálsræði í sambandi við pöntun fars og fargjald aðra leið- ina, en á fargjöld fram og aftur hefur megináherzlan alltaf verið Framhald á bls 18. Sjúkur skipverji sóttur 420 sjómílur á haf út ÞYRLA varnarliðsins sótti sjuk- an mann um borð í flutningaskip- ið Eldvík í gærkvöldi, en skipið var þá statt um 420 sjómílur suð- ur af Vestmannaeyjum. Þetta er lengsta björgunar- eða sjúkraflug varnarliðsins, en lengsta flug áð- ur voru flug til að sækja sjúkling um borð í brezkan togara 50 sjó- mílur norðaustur af Langanesi og flug eftir sjúklingi um borð í þýzku rannsóknarskipi 270 sjó- mílur vestur af Garðskaga. Aætl- aður komutími þyrlunnar til Reykjavíkur með skipverjann af Eldvík var um miðnætti í nótt. Það var klukkan 15:20 í gær að Slysavarnáfélagi Islands bárust boð gegnum Vestmannaeyjaradió frá Eldvík um að þar um borð væri veikur maður og samkvæmt læknisgreiningu í Vestmannaeyj- um væri maðurinn með bráða botnlangabólgu og þyrfti að kom- ast í sjúkrahús sem fyrst. SVFl hafði strax samband við varnar- liðið, en þar sem Eldvík var stödd utan þess svæðis var haft sam- band við stöðvar i Englandi og Skotlandi vegna málsins. Þaðan komu þau svör, að bezt væri að varnarliðið á Keflavíkurflugvelli aðstoðaði í þessu tilfelli og fóru þyrla og Hercules björgunar- og eldsneytisvél frá Keflavíkurflug- Framhald á bls 18. „Benedikt Gröndal býð- ur sig fram í Reykjavík” „Horfum eftir mönnum til framboðs á Vestur- landi” segir form. kjördæmisráðs Alþýðuflokks „ÞAÐ er ekkert farið að ákveða um prófkjör hjá Alþýðuflokknum í Vesturlandskjördæmi ennþá,“ sagði Sveinn Guðmundsson bankastjóri á Akranesi, formaður kjördæmisráðs flokksíns, i sam- tali við Mbl. í gærkvöldi, en hann kvað kjördæmisráð miða að þvi að taka ákvarðanir þar að lútandi ií byrjun október. Sveinn var spurð- ur að því hvort Benedikt Gröndal formaður Alþýðuflokksins og þingmaður Vesturlandskjördæm- is hefði tilkynnt kjördæmisráðinu um það að hann yrði ekki í próf- kjörinu á Vesturlandi. „Benedikt hefur nýlega til- kynnt okkur, „sagði Sveinn,“ að hann muni verða í Reykjavík, og við þurfum þvi að fara að horfa eftir mönnum til framboðs fyrir Alþýðuflokkinn á Vesturlandi". Benedikt Gröndal. Strax ( gær var komiS tim- bur að Geysishúsinu við Aðalstræti og átti endur- byggingin að hefjast í dag. Ljósm. Mbl: Rax. í rústum eldsins. Tugmillj- ónatjón í Geysis- brunanum „ÞETTA ER tugmilljónatjón. Svo mikið er víst," sagði Helgi Eysteinsson, fram- kvæmdastjóri Geysis, í sam- tali við Mbl í gær. „Risið er alveg ónýtt eftir brunann inn- viðir á efri hæð eru ónýtir, og miklar skemmdir urðu af reyk og vatni á neðstu hæðinni. Við erum einmitt núna að flokka fatalagerinn, sem bjargað var, en hann er að verðmæti 40—50 milljónir króna. Og hann er mjög illa farinn af völdum reyks og vatns." Helgi sagði að húsið yrði byggt upp aftur eins og það var fyrir brunann og hefst endurbyggingin I dag. Þegar Mbl spurði Helga, hvenær hann reiknaði með að fata- deildin opnaði aftur, sagði hann vonir standa til að það yrði eftir um tvo mánuði. Sagði Helgi að til stæði að gera einhverjar breytingar á verzlunarhúsnæðinu á neð- stu hæð samfara endurbygg- ingunni. „Gerði þetta af ráðnum hug” Einar Hjörtur Gústafeson skaut þrem skotum í háls og höfuð Halldóru Ástvaldsdóttur EINAR Hjörtur Gústafsson, sá er gær urskurðaður í 60 daga gæzlu- myrti unnustu sfna á vegarspotta varðhaid og geðrannsókn. Við skammt frá Norðlingabraut, sem yfirheyrslur í gær kvaðst hann liggur f átt að Elliðavatni, var í. hafa framið morðið af ráðnum I þessu sæti sat Einar Hjörtur þegar komið var að og Ifk Halldóru var við hlið hans. Ljósm. Mbl.: Emilfa hug, og ætlað að stytta sér aldur á eftir. Þar sem Einar Hjörtur var enn mjög máttfarinn í gær var ekki hægt að yfirheyra hann lengi. Þó er Ijóst að hann skaut Halldóru þremur skotum, eitt fór f gegnum háls hennar og tvö f gegnum höfuðið. Það var laust fyrir kl. 17.30 i fyrrakvöld, sem hjón úr Reykja- vík komu að ljósblárri Peugeot- bifreið með sænsku skrásetning- arnúmeri, sem stóð í fjárhliði á veginum að Rauðhólum. Sat Einar Hjörtur þá i bílstjórasætinu og var mjög af honum dregið og stúlkan var við hlið hans, en yfir hana hafði hann breitt teppi. Fólkið fór að ræða við ökumann- inn, sem kvaðst þá hafa skotið sig og sagðist ekki getað ekið lengra. I sömu svifum bar að Reyni Sveinsson bónda á Elliðavatni og skömmu siðar fleira fólk. Var þá sent til að gera lögreglu og sjúkra- liði viðvart, en fólkið sem fyrst kom á staðinn ásamt Reyni reyndi Peugoet-bifreiðin stóð vinstra megin f þessu fjárhliði er komið var að henni. Ljósm. Mbl. RAX. A þessu svæði skaut Einar Hjörtur Gústafson unnustu sfna Halidóru Astvaldsdóttur og reyndi sfðan að stytta sér aldur á eftir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.