Morgunblaðið - 04.09.1977, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1977
41
Frá hinum gömlu, góðu
dögum I Reykjavlkur- .
höln. Margt hefur
breytzt í nágrenni
hafnarinnar og mörg
þeirra skipa. sem á
myndinni sjást, hafa týnt
tölunni, svo sem Akra
borgin neðst til vinstri á
myndinni. og strand-
ferðaskipin Herðubreið
og Skjaldbreið hinu meg-
in. Á mi8ri mynd er
Lagarfoss yzt. þá Katla.
skip Eimskipafélags
Reykjavikur, og Gullfoss
innst i krikanum.
(Ljósm Ól. K.M.)
LAGARFOSS gamli hélt úr
heimahöfn sinni, Reykjavík, í
sfðasta sinn nú f vikunni og
eftir stuttan stanz f nokkrum
höfnum úti á landi kveður
þetta elzta skip Eimskipafélags
tslands landið að flullu. Fer
það sfðan á vit nýrra eigenda f
Hamborg og með afhendingu
skipsins þar lýkur töluvert
merkilegum þætti f siglinga-
sögu okkar.
Lagarfoss kom til landsins f
fyrsta sinn hinn 18. maf 1949.
Það var systurskip Dettifoss og
Goðafoss, er höfðu komið til
landsins nokkru áður, en öll
þessi skip voru smfðuð sérstak-
lega fyrir Eimskipafélag ts-
lands hjá Burmeister & Wein f
Danmörku á dögum ný-
sköpunarstjórnarinnar og voru
gjarnan kölluð „þrfburarnir".
Gullfoss kom sfðan litlu sfðar
og varð þá sjálfkjörið flaggskip
Eimskips.
Það var töluvert um dýrðir
hér f Reykjavfk, þegar skipið
lagðist að bryggju, að þvf er
lesa má f Morgunblaðinu frá
þessum tfma — blaðamönnum
og gestum boðið til veizluhalds
um borð, þar sem Guðmundur
Vilhjálmsson, þáverandi for-
stjðri Eimskips, bauð skipið
velkomið og gesti um borð.
atriði sem mun festa tilkomu
„þrlburanna" á spjöld sigl-
ingarsögu lslendinga. Það var
véiabúnaðurinn, þvf að Detti-
foss, Goðafoss og Lagarfoss
voru fyrstu skip Eimskipa-
félagsins sem ekki voru knúin
gufuvélum heldur voru mótor-
skip, eins og það kallaðist svo
virðuleg f þá daga og hefur
raunar festst f málinu f
skammstöfunni m.s. — saman-
ber M.s. Lagarfoss.
Það kom f hlut Jóns Aðal-
steins Sveinssonar vélstjóra að
bera ábyrgð á nýju vélunum f
Lagarfoss, en annar meistari á
honum var Albert Þorgeirsson,
sem enn er f fullu fjöri, þótt f
landi starfi nú orðið, og feng-
um við hann til að segja okkur
lftillega frá veru sinni á Lagar-
fossi.
„Já, ég var á Lagarfossi f
f jögur ár og var annar meistari
þegar skipið var sótt,“ sagði
Albert. „Lagarfoss var grfðar-
lega gott skip og mannskapur-
inn um borð var öll árin sem ég
var þar samstilltur og skemmti-
legur hópur, svo að þarna var
gott að vera. Ef ég mann rétt
sigldum við aðallega til
Evrópu, einkum Hamborgar og
Hull.“
Albert var 38 ár f siglinum
hjá Eimskip en fór f land fyrir
11 árum. „Eg er þannig búinn
að reyna mörg skipin um dag-
ana, var t.d. yfirkyndari á
gamla Goðafossi, sem sökk
hérna f bugtinni, f nærri sex ár,
og sfðar var ég f nfu ár yfirvél-
stjóri á Tungufossi og sfðustu
þrjú árin yfirvélstjóri á Sel-
fossi auk þess sem ég var f
afleysingum og annar meistari
á mörgum skipum, sagði
Albert. „Já, þetta var ágætis
tfmi þarna á Lagarfossi, enda
alltaf skemmtilegt að vera á
nýjum skipum, þetta er alveg
eins og flytjast f nýtt hús.
Mesta breytingin var samt, að
þetta höfðu áður allt verið
gufuvélar f skipunum en með
þessum þremur skipum kom
mótorinn og það var mikið
LAGARFOSS
KVEÐUR:
1,2 milljónir
sjómílna í págu
og þjóðar
Vistarverur farþega í „þrí-
burunum."
Lagarfoss kemur til landsins í
fyrsta sinn i mai 1949
■
,dcísp>*. ■ • x • -
3* >«££* - ~ ~
Skipstjóri f þessari fyrstu ferð
var Sigurður Gfslason, sem enn
er á Iffi og dvelst nú á Hrafn-
istu, og þakkaði hann mót-
tökurnar.
Svo sem systurskipin tvö,
sem áður voru komin, gat
Lagarfoss tekið 12 farþega og
voru vistarverur þeirra hinar
ágætustu. Pétur Guðmundsson,
forstjóri, var meðal farþega f
fyrstu reisu skipsins hingað til
lands og f hófinu við komu
skipsins þakkaði hann fyrir
hönd farþega einstaklega
góðan aðbúnað á leiðinni, að
þvf er Morgunblaðið skýrir frá.
„Um borð f Eimskipafélags-
skipunum nýju, er farþegum
séð fyrir þeim beztu þægind-
um, sem fáanleg eru á sjó og
fyrir það erum vér farþegar f
þessari ferð þakklátir," sagði
Pétur við þetta tækifæri, og var
þar að kveða f kútinn raddir
sem heyrzt höfðu um að of mik-
ið væri lagt til þarfa farþega.
En þótt viðurgjörningurinn
við farþega væri betri en áður
hefði þekkzt f siglingum héðan
til útlanda, var það þó annað
stökk — allt annað.“
Ekki fylltust menn þó minni-
máttarkennd frammi fyrir
nýju vélunum, enda höfðu vél-
stjórarnir fengið kennslu f
meðferð þeirra f skólunum áð-
ur auk þess sem þeir voru ein-
att sendir út meðan skipin voru
f smfðum til að fylgjast með
niðursetningu vélanna og verða
þannig öllum hnútum kunnug-
ir. Albert kvaðst t.d. hafa verið
úti f Danmörku f 2 mánuði áður
en Lagarfoss var afhentur og
yfirvélst jórinn mun lengur, og
sjálfur kvaðst Albert hafa verið
hálft ár úti áður en Tungufoss
var sóttur, en þar var hann yfir-
vélstjóri, eins og áður segir.
Nú hafa „þrfburarnir" allir
lokið sfnu hlutverki f þjónustu
Eimskips — Goðafoss var seld-
ur fyrstur og sfðan Dettifoss en
lengst allra gegndi Lagarfoss
hlutverki sfnu og samkvæmt út-
reikningum Eimskipafélags-
manna á hann að baki rétt tæp-
lega 1.2 milljónir sjómflna f
þjónustu landsmanna nú þegar
hann kveður Island f sfðasta