Morgunblaðið - 05.10.1977, Blaðsíða 1
32SÍÐUR
220. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
W atergate-
dómar mildaðir
Washington. 4. okt. Reuter.
JOHN Siri'ca dómari mild-
aði í dag dómana yfir
þremur helztu sakborning-
unum í Watergatemálinu,
þeim John Mitcheil fyrr-
verandi dómsmálaráð-
herra, John Ehrlichmann
og H. R. Haldemann. Þeir
eru nú að afplána dóma
sem hljóðuðu upp á fang-
elsi frá 30 mánuðum og
upp í átta ár fyrir aðild
sína að hneykslismálinu er
kennt hefur verið við Wat-
ergate. Sirica dómari kvað
upp fyrri dómana. Hann
breytti nú dómunum svo
að þeir geta sótt um náðun
langtum fyrr. Ehriich-
mann hóf að afplána refs-
Forsætis-
ráðherra á
blaðamanna-
fimdi um ferð
sína til
Sovétríkjanna
GEIR Hallgrimsson forsætisráð
herra hélt i gær blaðamannafund,
þar sem hann skýrði frá ferð sinni
til Sovétrikjanna og skýrði frá þvi
sem hann hefði sagt i viðræðum
sinum við Alexei Kosygin forsæt-
isráðherra. en það hefur ekki
komið fram áður.
Geir sagðist hafa sagt. að ís-
lendingar teldu það mikinn feng
að Vladimir Ashkenazy hefði
setzt að á íslandi og hefði hann
blásið góðu lifi í islenzkt menn-
ingarlif. og að foreldrar hans
hefðu fengið leyfi til að koma til
íslands. Um afvopnunarmál og
varnir islands sagðist forsætis-
ráðherra hafa skýrt frá þvi að rök
fyrir veru islands I varnarbanda-
lagi væru m.a. að Sovétrikin
hefðu afvopnazt seint og með
tilstyrk sinum hafi þau stutt hlið-
hollar rikisstjórnir i löndum ná-
lægum Sovétrikjunum. i þvi sam-
bandi hafi hann minnt á ýmsar
yfirlýsingar sovézkra forystu-
manna um óbrúandi bil milli sov-
ézks og vestræns þjóðskipulags.
sem lesa mætti úr að sovézkir
valdhafar litu svo á að hagsmun-
um allra væri bezt borgið i komm-
únisku þjóðskipulagi.
Sjá frásögn af blaðamanna-
fundi Geirs Hallgrimssonar á mið-
siðu Morgunblaðsins i dag.
ingu sína í lok október í
fyrra og samkvæmt dóms-
niðurstöðu nú mun hann
geta sótt um náðun 28. okt.
n.k. Haldemann hefur ver-
ið í fangelsi í 105 daga og
Mitchell í 104 daga og geta
þeir sótt um náðun 21. og
22. júní á næsta ári.
Ehrlichmann situr í fangelsi í
Arizona, Haldeman i Kaliforníu
og Mitchell í herstöðinni Maxwell.
Sirica hlustaði í morgun á rök
lögfræðinga mannanna þriggja
sem byggðu þau á þvi að öllum
mönnunum þremur væri það i
sjálfu sér næg refsing að fangels-
ishliðin hefðu lokast að baki þeim
og þeir hefðu þegar tekið út nægi-
lega mikla refsingu til að lögum
væri fullnægt. Lögfræðingur
Mitchells benti og á að skjólstæð-
ingur sinn væri bæði roskinn og
heilsuveill og þyrfti nauðsynlega
að gangast undir mikla skurðað-
gerð hió fyrsta.
Indira Gandhi sést hér ásamt Sanjay syni sfnum eftir að úrskurðað var
að henni skvldi sleppt úr haldi. Geysilegur mannfjöldi fagnaði henni
og fylgdi henni síðan til flugvallarins, en hún hélt f gærkvöldi til
Bombay.
Schleyermálið:
Er y-þýzka
stjómin að
láta undan
kröfunum?
Beirut 4. okt. Reuter.
ARABtSKT blað Al Watan A1
Arabi sem er gefið út í París
sagði í dag að palestínskur sátta-
semjari hefði skýrt frá því að
vestur-þýzka stjórnin hefði fallizt
á að sleppa ellefu Baader Mein-
hof hryðjuverkamönnum og
flytja þá flugleiðis til Aden í
skiptum fyrir Hans Martin
Schleyer, formann vestur-þýzka
vinnuveitendasambandsins.
Engin staðfesting fékkst á frá-
sögn blaðsins í Bonn en þar ríkir
algert fréttabann á allt sem gerist
í Sehleyer-málinu.
Heimildir Palestínumanna í
Beirut sögðust heldur ekki vita
neitt um þetta mál. En i blaðinu
sagði aó Lufthansa-flugvél stæði
Framhald á bls. 30.
Þjóðin stendur með þér”
— hrópaði fólMð þegar Indiru Gandhi var sleppt úr fangelsi
99
Nýju Delhi. 4. okt. Reuter.
INDVERSKA stjórnin lýsti í dag
gremju sinni með ákvörðun dóm-
ara um að sleppa Indiru Gandhi,
fyrrverandi forsætisráðherra,
skilmálalaust úr haldi, en hún
var handtekin í gær og sökuð um
spillingu og valdníðslu. Afstaða
ríkisstjórnarinnar var birt eftir
að dómarinn R. Dayal sagði að
„engar haldbærar ástæður væri
fyrir að trúa þvi að ákæruatriðin
væru á rökum reist... og því ekki
raunhæf ástæða fyrir að hafa
hana í haldi.“
Ríkisstjórnin sem fyrirskipaði
handtökuna í gær sagði í áfrýjun
til hæstaréttar að dómarinn hefði
ekki haft neitt vald til að gefa
fyrirmæii um að Gandhi yrði iát-
in laus. Verður málið væntanlega
tekið fyrir í hæstarétti á morgun,
miðvikudag.
Franska fyrirtækið CFP sendi í
dag frá sér yfirlýsingu þar sem
því. var neitað afdráttarlaust að
nokkuð hefði verið bogið við
Belgradráð-
stefnan hafin
Belgrad. 4. okt. Reutcr.
FULLTRÚAR þrjátfu og fimm
rfkja frá Evrópu og Bandarfkjun-
um hófu fund f Belgrad í dag til
að freista þess að ná alþjóðlegri
og mjög vfðtækri samstöðu um
þróun samvinnu Evrópu. Fulltrú-
ar austurs og vesturs hafa fyrir
ráðstefnuna og lýst því margsinn-
is yfir að þeir vilja fyrir alla
muni forðast að til vopnaðra
átaka komi. Undirbúningur að
ráðstefnunni hefur staðið lengi
og undirbúningsfundur var hald-
inn f Júgóslavíu í vor.
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, og
Tito Júgóslavíuforseti voru meðal
þeirra sem fluttu ávörp á fyrsta
degi ráðstefnunnar. Lögðu þeir
báðir áherzlu á nauðsyn þess að
Framhald á bls. 18
samningsgerð þess við indversku
stjórnina. í tilkynningu fyrir-
tækisins sagði að samningurinn
hefði ekki verið undirritaður fyrr
en 6. aprfi á þessu ári, þ.e. eftir
stjórnarskiptin í landinu. Ein
helzta ástæðan fyrir handtöku
Gandhi í gær var sögð að hún
hefði samið um olíu og gassölu til
þessa fyrirtækis og hefði það ver-
ið gifurlegt fjárhagslegt tjón fyrir
indverska rikið.
í tilkynningu þeirri sem rikis-
stjórnin birti eftir að Indira
Gandhi var látin laus sagði að hún
hefði annað tveggja átt að vera
kyrr i haldi eða sleppt gegn trygg-
ingu, unz rannsókn hefði farið
fram á ákærunum gegn henni.
Litið er á það sem meiriháttar
álitsauka fyrir Indiru Gandhi að
henni skyldi hafa verið sleppt úr
haldi gegn vilja ríkisstjórnarinn-
ar og gegn vilja forsætisráðherra
landsins, Morai Desai.
Þúsundir stuðningsmanna
hennar höfðu uppi háreysti úti
fyrir dómhúsinu meðan málið var
tekið fyrir. Lögreglan kastaði
táragasi til að dreifa mannfjöld-
anum og einnig öðrum mótmæla-
fundi sem haldinn var við heimili
Morai Desai. Voru rösklega
hundrað manns handteknir þar.
Indira Gandhi sagði fagnandi
Carter hjá S.Þ.:
aðdáendum sinum er hún var Iaus
úr haldi að skilmálalaus lausn
hennar væri eina niðurstaðan
sem hægt hefði verið að komast
að. Hún sagðist hafa verið hand-
tekin af pólitískum ástæðum og
það vissu allir. Fólksfjöldinn
hyllti Indiru og hrópaði: „Þjóðin
stendur með þér,“ er henni var
rudd braut gegnum hópinn ásamt
syni sínum Sanjay Gandhi. Stjórn-
málafréttaritarar voru yfirleitt
sammála um að niðurstaða dómar-
ans i dag væri meiriháttar hnekk-
ir fyrir stjórn Desai og gæti orðið
til að efla áhrif Indiru Gandhi og
draga úr trú á getu stjórnarinnar
hins vegar. Segja sérfræðingar að
margt bendi til að handtakan hafi
Framhald á bls. 30.
Greenpeace hefur
augastað á togara
Hyggjast safna 74 þús. pundum til aðgerða
gegn hvalveiðum Islendinga og Norðmanna
BREZKA blaðið Guardian skýrði frá þvf á sunnudag, að Green-
peacesamtökin væru nú að hrinda af stað fjársöfnun og ætluðu að
safna 74 þúsund sterlingspundum til kaupa, viðgerða og reksturs
á brezka togaranum Sir William Hardy vegna áætlunar samtak-
anna um að hindra hvalveiðar Norðmanna og tslendinga á næsta
sumri. Er gert ráð fyrir að greiða 44 þúsund pund fyrir skipið, en
að viðgerðir og rekstur kosti 30 þúsund pund. Uthaldstfmi er
áætlaður 10—11 vikur.
I áætluninni er gert ráð fyrir 20 sjálfboðaliðum auk áhafnar á
togaranum og verða sjálfboðaliðarnir að geta talað norsku eða
íslenzku. Þá er einnig gert ráð fyrir tveimur vísindamönnum um
borð til að kanna stærð hvalastofnanna. Auk óska eftir beinum
framlögum er ætlun samtakanna að halda ýmsar fjáröflunarsam-
komur og biðja þekkta listamenn um að gefa málverk til að selja á
uppboði.
Beitum ekki kjarnorku-
vopnum nema í varnarskyni
4. okl. AP. Reutcr.
CARTER Bandarfkjaforseti lýsti
því yfir f ræðu sinni á Allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna í
kvöld, að Bandaríkin nivndu ekki
beita kjarnorkuvopnum nerna í
varnarskyni. Sagði blaðafulltrúi
forsetans, Jody Powell, að liér
væri um að ræða stefnubreytingu
hjá Bandarfkjastjórn.þar sem
forseti landsins hefði nú í fyrsta
skipti opinbcrlega tilkynnt að
Bandarfkjainenn myndu ekki
beita kjarnorkuvopnum að fyrra
bragði. Vildi blaðafulltrúinn ekki
fjalla nánar um niálið, er frétta-
menn óskuðu eftir frekari skýr-
ingum.
I ræðunni, sem hlaut fremur
daufar og misjafnar undirtektir
hjá þingfulltrúum lýsti Carter þvi
yfir að engin skyldi efast um
stuðning Bandaríkjanna við Isra-
el, en endurtók ummæli úr sam-
eiginlegri yfirlýsingu Bandaríkj-
anna og Sovétrikjanna, þar sem
Framhald á bls. 18