Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÖBER 1977
5
Birgir ísleifur Gunnarsson:
„Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins nota kjaradeilu á við-
kvæmu stigi í pólitískum tilgangi”
Launadeila opinberra starfs-
manna varð umræðuefni á fundi
borgarstjðrnar 6. október. Upp-
hafið var, að Sigurjón Péturssón
(Abl) kvaddi ser hljóðs utan dag-
skrár og flutti tillögu frá borgar-
fulltrúum Alþýðubandalagsins
FRA
BORGAR-
STJÓRN
um eftirfarandi þrjú atriði varð-
andi kjarasamninga opinberra
'starfsmanna. 1. Hækka laun i
lægstu launaflokkum. 2. Leiðrétta
laun um miðbik launastigans. 3.
Tryggja rétt starfsmannafélags-
ins til uppsagnar með verkfalls-
heimild, ef forsendur samnings
breytast. Borgarstjóri Birgir Is-
leifur Gunnarsson (S) tók næst
til máls á eftir Sigurjóni og sagði
það öllum ljóst að nú þessa stund-
ina væri kjaradeilan á afar
viðkvæmu stigi. Þessi deila sner-
ist um mjög mörg atriði og málið
væri því víðfeðmt. Þessi mörgu
atriði vægju ef til vill mismikið
en ljóst mætti vera að rangt væri
að taka út einhver sér-atriði það
Næsta lóðaúthlutun
væntanlega í janúar
A fundi borgarstjórnar 6.
október spurði Alfreð Þorsteins-
son (F) hvenær og hvar mætti
vænta næstu lóðaúthlutunar fyrir
íbúðarhúsnæði og atvinnu-
húsnæði. Borgarstjóri Birgir ís-
leifur Gunnarsson svaraði og
sagði að samvæmt venju væri
stefnt að úthlutun íbúðar-
húsnæðis í janúarmánuði næst-
komandi. Það væri þó komið und-
ir fjárhagsgetu samkvæmt fjár-
hagsáætlun borgarinnar fyrir
næsta ár. Ef sá möguleiki sem nú
væri reiknað með yrði fullnýttur
yrði úthlutað lóðum undir 580
íbúðir (í blandaðri byggð) i Selja-
hverfi, á Eiðsgrandayrði úthlutað
lóðum undir 110 íbúðir í fjölbýli, í
Breiðholti III, austurdeild, lóðum
undir 13 einbýlishús.
Borgarstjóri sagði, að stefnt
væri að úthlutun iðnaðarlóða við
Krummahóla nú á næstunni og
væru það 12.600 fm. A vori
komanda verður væntanlega út-
hlutað lóðum undir atvinnuhús-
næði í miðhverfi Seljahverfis um
12.000 fm.
Þá er unnið að athugun nú
þessa dagana á úthlutun og mögu-
leikum á Artúnshöfða og í nýja
miðbænum. Auk fyrrgreindra
íbúðalóðaúthlutana væri áætlað
að úthluta lóðum undir 280 ibúðir
í Selási og því væru mögulegar
úthlutanir undir íbúðir alls 983.
Þá kom fram hjá borgarstjóra að
siðan 1972 hefur verið úthlutað
lóðum undir iðnaðarhúsnæði að
flatarmáli 830.400 fm og þar
mætti byggja á 353.300 fm.
Borgarstjóri bætti því við að
sífellt bættist við hlutfallslega
aukið magn ófullgerðra húsa og
væri það miður.
Iðunn:
ATÓMSTÖÐIN í
SKÓLAÚTGÁFU
IÐUNN hefur sent á markað
ATOMSTÖÐINA eftir Halldór
Laxness í bókaflokknum
ISLENZK URVALSRIT í skólaút-
gáfum, en ritin í þeim flokki eru
nú orðin ellefu talsins og haldast
þar í hendur bæði fornar og nýjar
bókmenntir Islendinga.
Njörður P. Njarðvik lektor
annaðist þessa skólaútgáfu Atóm-
stöðvarinnar. Ritar hann formála
fyrir sögunni sem skiptist í eftir-
talda kafla: 1. Sögulegt baksvið, 2.
Frásagnaraðferð, stíll, bygging. 3.
Persónur, 4. Tilraun til túlkunar.
Einnig hefur hann tekið saman
athugunarefni fyrir nemendur og
kennara og samið orðaskýringar.
Nú eru liðin þrjátíu ár síðan
Atómstöðin kom fyrst á prent.
Hún vakti þá ærinn úlfaþyt, enda
fjallað um samtímaviðburði sem
miklar deilur stóðu um og
höfundinum var heitt í hamsi.
Þessi nýja útgáfa Atómstöðvar-
innar er 220 bls. að stærð, prentuð
í Prentsmiðjunni Odda hf. A kápu
eru myndir úr leikritsgerð
sögunnar.
Sextugsafmæli
SEXTUGSAFMÆLI á í dag, 8.
okt., frú María Magnúsdóttir,
Aðalstræti 13, Akureyri.
Afmælisbarnið er í dag statt á
heimili dóttur sinnar að Háaleit-
isbraut 54, Rvík.
kynni að leiða til erfiðleika á
lausn annars staðar i málinu.
Borgarstjóri sagði að deila þessi
væri svo flókin og vandmeðfarin
sér i lagi á þvi viðkvæma stigi sem
hún væri nú á, að þessi fyrrgreind
þrjú atriði segðu ef til vill ekki
mikið ef litið væri á heildina.
Hins vegar væri það augljóst mál,
að við lausn deilunnar yrði að
hafa hliðsjón af hinum almenna
launamarkaði og reyndar gilti það
ekki bara um þessa deilu nú held-
ur einnig aðrar deilur. Því yrði
líka að hafa í huga vinnubrögð og
afskipti hins opinbera þar sem
hér. Borgarstjóri sagði að borgar-
fulltrúi Sígurjón Pétursson ætti
sæti í launamálanefnd borgarinn-
ar og hann hefði sér vitanlega
ekki beitt sér þar sérstaklega fyr-
ir lausn fyrrgreindra þriggja at-
riða sem þó borgarfulltrúinn
hefði getað gert, en hins vegar
væru viðbrögð borgarfulltrúa Al-
þýðubandalagsins hin undarleg-
ustu. Nú snerust þeir upp til
handa og fóta og ætluðu að slá sig
til riddara i pólitiskum tilgangi.
Það sem hér er einfaldlega að
gerast sagði borgarstjóri, er að
borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins ætla sér og eru að nota
kjaradeilu sem er á mjög við-
kvæmu stigi i pólitískum tilgangi,
en slíkt athæfi fordæmi ég og
harma sagði borgarstjóri að lok-
um. Kristján Benediktsson (F)
sagðist harma að tillaga þessi
hefði komið hér á þessu stigi
málsins. Málið væri mjög flókið.
Hér væri ekki um tugi heldur
hundruði vandmeðfarinna atriða
að ræða. Hann sagðist þess full-
viss, að þeir Sigurjón gætu verið
sammála um að deilu þessa þyrfti
að leysa fljótt og vel. Hins vegar
væri þessi tillöguflutningur fjarri
því að vera rétta leiðin, enda bæri
að harma hann. Að lokum sagði
Kristján: „Allir skynsamir menn
munu sjá að þetta er ekki leiðin
til lausnar deilu sem þessari."
Björgvin Guðmundsson (A) sagð-
ist vilja lýsa stuðningi sínum við
tillöguna enda væri hún til að
jafna misréttið og því siður en svo
ólík því sem Alþýðuflokkurinn
vildi. Björgvin sagðist allsendis
ósammála því að ekki mætti ræða
þessi mál í borgarstjórn nú. Ekk-
ert væri sjálfsagðara. Sigurjón
Pétursson sagði að ekki hefði ver-
ið haldinn fundur í launamála-
nefnd eftir að atkvæðagreiðslu
BSRB lauk og þvi hefði hann ekki
getað komið þessari tillögu þar
fram. Alfreð Þorsteinsson (F)
lýsti sig fylgjandi efnisþáttum til-
lögunnar en hins vegar teldi hann
mjög óæskilegt, að borgarstjórn
Birgir tsl. Gunnarsson.
ræddi málin á því viðkvæma stigi
sem nú væri. Einnig tók Adda
Bára Sigfúsdóttir til máls og vitn-
aði m.a. í leiðara Morgunblaðsins
frá þessum fimmtudegi.
Borgarstjóri Birgir Isleifur
Gunnarsson flutti tillögu um, að
þessu máli yrði visað til borgar-
ráðs og launamálanefndar og var
það samþykkt með tíu atkvæðum;
já sögðu: Birgir Isleifur Gunnars-
son, Davið Oddsson, Elín Pálma-
dóttir, Kristján Benediktsson,
Magnús L. Sveinsson, Páll Gísla-
son, Ragnar Júlíusson, Valgarð
Briem, Ólafur B. Thors og Alfreð
Þorsteinsson. Nei sögðu, Björgvin
Guðmundsson, Sigurjón Péturs-
son, Þorbjörn Broddason og Adda
Bára Sigfúsdóttir.
Haustiauka-
KYNNING
íBlómaval
Túiípanar
50 tegundir
Afmælisfagn-
adur Hvatar
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt er
40 ára á þessu ári. Föstudaginn
14. október verður af þvi tilefni
efnt til afmælisfagnaðar á Hótel
Sögu, sem hefst með borðhaldi.
Flutt verða ávörp, skemmti-
atriði fara fram og dans. Þátttöku
þarf að tilkynna fyrir
fimmtudagskvöld í Sjálfstæðis-
húsið Valhöll við Háaleitisbraut.
Verði aðgöngumiða er still mjög í
hóf.
Nú er rétti tíminn
tH að planta haustlaukunum ot í tilefm af
þvi höfum við kynnmgu á meðferð haust
lauka
ÞEIR
SEM
KYNNA
....... _ ERU
Bjarni Finnsson og Sævar Jóhannsson og munu
. þeir vera á staðnum laugardag og sunnudag.
| Auk hinna vinsælu lauka Túlipana, páskalilka,
Hýasintna og Corcus þá kynnum við einnig Iris,
I Schiondoxa, Fritillaria, Perluhyacinta, Vetrar-
I gosa, Siberiulilja, Vorboða.
Nú fjölmennum vid í
Blómaval þar sem úrvalid
og þjónustan er best og mest