Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.10.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1977 19 Grænland og EBE: Landsstjómin óskar viðræðna við Dani um endurskoðun LANDSSTJÓRNIN í Grænlandi hefur óskað eftir því við ríkisstjórn Danmerkur að hafnar verði viðræður til að end- urskoða stöðu Grænlands innan Efnahagsbandalags- ins, sérstaklega með tilliti til stefnunnar í fiskveiði- málurn. í þessu sambandi hefur forseti landsstjórn- arinnar, Chemnitz, lýst því yfir að frá sjónarmiði Grænlendinga sé fiskveiði- stefnan „misheppnuð". Fram til 1. maí 1979 hefur landsstjórnin takmörkuð áhrif og ákvörðunarvald, en þá fær Græn- land sjálfsstjórn. Grænlendingar hyggjast efna til þjóðaratkvæða- greiðslu um aðildina að EBE er þeir hafa fengið sjálfsstjórnar- réttindi. Hefur Chemitz látið hafa eftir sér að Grænlendingar muni án efa hafna EBE-aðild ef Danir og þó einkum Efnahagsbandalag- ið breyti ekki um afstöðu varð- andi Grænland. Kína og Sovét: Samkomulag um fjarskipti í „ýms- um atriðum” Tokýó — 7. október — AP. SAMKOMULAG um „ýmis áriði" náðist á 20. ráðstefnu Kínverja og Sovétmanna um fjarskipti á fljót- um og skipaskurðum á landamær- um rfkjanna, að því er hin opin- bera fréttastofa Kínverja, Hshin- hua, skýrði frá í dag. Ráðstefnan var haldin i Heido, sem er í Norður-Kína, frá 27. júlí til 6. október. 1 frásögn Hshinhua kemur ekk- ert fram um efnisatriði samkomu- lagsins, en skýrt er frá því að næsta ráðstefna um sama mál verði haldin i Sovétríkjunum og muni nánari viðræður fara fram um fundartíma. Ráðstefnan nú er hin fyrsta sem haidin er í þrjú og hálft ár. Östaðfestar heimildir herma að það hafi verið Kínverjar sem stað- ið hafi fyrir því að svo langt hlé varð á viðræðum um málið, en alll frá árinu 1951 þegar Kínverjar og Sovétmenn gerðu með sér samn- ing um skipulag fjarskiptamála á iandamærunum, var þingað ár- lega fram til ársins 1974, með þeim undantekningum að viðræð- um var aflýst þegar menningar- byltingin hófst i Kina árið 1968 og þegar blóðug átök urðu milli herja ríkjanna við Ússúri-fljót ár- ið 1969. Owen til Sovét Lundúnum — 7. októbcr — Rcutcr. UM HELGINA leggur David Owen, utanríkisráðherra Breta, af stað í fyrstu heimsókn sína til Moskvu eftir að hann tók sæti í brezku stjórninni. Tilgangur hans með ferðinni er að kynna W/ ERLENT, sér afstöðu sovézku stjórnarinnar til alþjóðamála, eins og þau horfa við um þessar mundir. Búizt er við þvi að Owen færi i tal við sovézka ráðamenn málefni fólks, sem á undanförnum árum hefur árangurslaust farið þess á leit við Sovétstjórnina að fá að fara til Bretlands til ættingja sinna. Fyrir skömmu lagði brezka sendiráðið fram lista yfir viðkom- andi fjölskyldur fyrir sovézk stjórnvöld. Areiðanlegar heimildir herma að Owen hafi huga á þvi að ræða þróun mála í Afríku sunnan- verðri við Sovétstjórnina. Hann mun eiga fundi með Andrei Gromyko utanríkisráðherra og er búizt vð þvi að viðræður þeirra muni ekki sízt snúast um mann- réttindi og slökunarstefnu. Grubbs vill halda áfram að fljúga Griffin, Georgíu — 7. október — AP VICTOR Grubbs, flugstjóri Pan American breiðþotunnar, sem rakst á aðra breiðþotu á Tenerife-flugvelli í vor, með þeim afleiðingum að 580 manns létu Iffið, heful- lýst því yfir að hann langi til að byrja að fljúga á ný. Grubbs kvaðst ekki vita hvenær læknar teldu hann færan um að hefja störf að nýju, en frá því að sl.vsið átti sér stað í marz hefur hann að niestu náð sér eftir alvarlegan bruna á baki og handlegg. 1 fréttaviðtali vildi Giubbs ekki ræða slysið sem slíkt, en það var hið mannskæðasta i flugsögunni. Grubbs skýrði frá þvi hvernig honum tókst að komast út úr brennandi þot- unni. 1 fyrstu ætlaði hann að komast út um hliðarglugga flugstjórnarklefans, en glerið reyndist of þykkt til aó hann gæti mölvað það. Þá fór hann aftur í farþegarýmið þar sem allt var i björtu báli. Hann minnist þess þá að hafa látið sér til hugar koma að stökkva niður á jörðina en hafa gert sér grein fyrir því að fallið yrði of hátt. Það næsta sem Grubbs getur rifjað upp frá björgun- inni er að skyndilega lá hann á hnjánum á jörðinni. Þegar hann haföi svo áttaó sig sneri hann sér að því að aðstoða far- þega við að komast frá brennandi flakinu. Brókin af Viktoríu drottningu slegin á upp- boði fyrir 160 pund Lundúnum — 7. okt. — AP. NÆRSKJOL, sem á sínum tíma var f eigu Viktórfu Englands- drottningar var selt á uppboði í Lundúnum í dag fyrir 160 sterl- ingspund, eða sem svarar tæp- um 60 þúsund krónum fslenzk- um. Kaupandinn, frú Edone Adderley, kvaðst hafa keypt flíkina sem nokkurs konar minjagrip um drottninguna. Við nánari umfjöllun kom í Ijós að henni leizt ekki á þá hugmynd að hafa brókina sem veggskraut á heimiii sínu, held- ur bjóst hún við að sýna hana aðeins útvöldum vinum, en geyma hana sfðan sveipaða silkipappfr. „Kannski ég bregði mér ein- hverntima i buxurnar," sagði frúin en mittismál hennar er um hálfum metra minna en um- mál buxnastrengsins — 115 sentimetrar — gefur til kynna um mittismál drottningarinnar. Samkvæmt því má ætla að pær- skjólið hafi drottning átt þegar aldurinn var farinn að færast yfir hana því að á sokkabands- árunum var til þess tekið hve mitti hennar var grannt. Eitt er vist. Þeim, sem uppi voru á Viktoriutimunum, hefði ekki dámað við þessi tíðindi, þvi að þeir voru svo blygðunar- samir að þeir þoldu ekki einu Frú Edone Boughton Adderlay, sem keypti brækur hennar hátignar sinni að sjá stólfætur i nekt Viktorfu drottningar Englands, sýnir hér fréttamönnum tfzkuna f sinni, heldur huldu þá með undirfatnaði kvenna á þeim tfmum. simamynd ap. dúkum. Pillan fimmfaldar hættu á æða- sjúkdómum í konum yfir 35 ára samkvæmt brezkri könnun KONUR yfir 35 ára aldri, sem taka eða hafa tekið getnaðar- varnapillur, eru fimm sinnum líklegri til að deyja af völdum æðasjúkdóma en þær sem aldrei hafa tekið pilluna, að þvf er fram kemur f niðurstöðum könnunar. sem tók til 63 þúsund brezkra kvenna á nfu ára tímabili. Niður- stöðurnar hafa nú birzt í brezka læknaritinu Lancet. Könnun sú, sem hér um ræðir, fór fram á vegum tveggja háskóla- stofnana, og bar niðurstöóum þeirra saman. Af pilluneytendum á aldrinum 35 til 44 ára deyr ein kona af hverjum 3 þúsund af völdum æða- Victor Grubbs á sjúkrabörum eftir slysið. Eftir slysið var Grubbs í sjúkrahúsi um sjö vikna skeið, illa haldinn af brunasárum, sem nú eru að mestu gróin. Flugstjóri KLM-þotunnar, sem rakst á Pan Am-þotuna, lét lífið að þvi að talið er samstundis og þoturnar skullu saman. sjúkdóma, og er reykingakonum eða þeim sem tekið hafa pilluna i fimm ár eða lengur mun hættara en öðrum. Eftir að konur, sem taka pilluna, eru orðnar 44 ára, hækkar hlutfallið til muna, en þá deyr ein af hverjum 700 úr æða- sjúkdómum. Þeim, sem eru undir 35 ára markinu, er siður hætt, en þá deyr aðeins ein af hverjum 20 þúsundum. í greininni í Lancet þar sem grein er gerð fyrir niðurstöðum þessara rannsókna kemur fram að ætla megi að hætta á æðasjúk- dómum sé áfram fyrir hendi þótt konur hætti að taka inn pilluna, en ekki liggur ljóst fyrir hversu lengi. Tveir virtir læknar, Ekjé Kuenssberg og Sir John Dew- harst, sem beðnir voru um að segja skoóun sina á niðurstöðum rannsóknanna, ráðleggja konum yfir 35 ára aldri eindregið að íhuga hvort þær eigi að halda áfram að taka pilluna, en um leið töldu þeir ekki ástæðu til að kon- ur hættu aó taka þetta getnaðar- varnalyf fyrr en þær hefðu orðið sér úti um annað betra. Þeim bar saman um að engin ástæða væri til þess að konur undir þritugu hættu pillutöku. Blökkumannaleiðtoginn Steve Biko, sem lézt í fangelsi í síðasta niánuði, hafði greinilega skadd- azt á heila og skrámazt áður en Samkvæmt niðurstöðum líða nokkur ár fra þvi að konur taka að neyta pillunnar þar til hætta eykst á æðasjúkdómum. Trudeau friðmælist við Levesque Oltawa — 7. októhcr — Rcutcr. PIERRE Trudeau, forsætisráö- herra Kanada, lýsti í dag yfir breyttri afstöðu sinni til deilu, sem staðið hefur um hvort franska skuli vera hið opinbera tungumál Quebec-búa. Trudeau kvaðst ekki mundu beita neitun- arvaldi sinu gegn frumvarpi Quebec-stjórnar um aö franska skuli verða hið opinbera tungu- mál. Hann skoraði á forsætisráð- herra Quebec, René Levesque, sem er mjög eindreginn aðskiln- aðarsinni. að hefja samvinnu við Kanada-stjórn urn að jafna ágreining þann, sem ríkt hefur um hvaða mál skuli rétthæst i Quebee, um leið og hann kvaðst þvi ekki meðmæltur að málið yrði útkljáð fyrir æðsta dömstóli Kanada. andlátið bar að, að þ\I er lilaðiö Rand Daily Mail í Jóhannesar- borg skýrir frá í dag. Blaðið byggir frásögn sina á við- Franihald á bls. 22. Sex s-afrískir læknar: Biko með heilaskemmd og skrámur fyrir andlátið JóhanncsarhorK. 7. okt. — AP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.