Morgunblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OK.TÓBER 1977
m blMAK
ÍO 28810
car renta! 24460
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTUNI 24
LOFTLEIDIR
^BÍLALEIGA
C 2 11 90 2 11 38
® 22 022
RA'IOARÁRSTÍG 31
FERÐABÍLAR hf.
Bílaleíga, sími 81260.
Fólksbilar, stationbílar, sendibíl-
ar, hópferðabílar og jeppar.
Verksmidju f
útsala
Átafoss
Opið þriójudaga 14-19
fimmtudaga 14—18
á útsÖlunm:
Flækjulopi
Hespulopi
Flækjuband
Endaband
Prjónaband
3 ÁLAFOSS HF
i MOSFELLSSVEIT
Vefnaðarbútar
Kílateppabútar
Teppabútar
Teppamottur
■
■
■
■
■
I
Vandervell
vélalegur
Ford 4-6-8 strokka
benzín og díesel vélar
Austln Mini
Bedford
B.M.W.
Buick
Chevrolet
4-6-8 strokka
Chrysler
Citroen
Datsun benzín
og díesel
Dodge — Plymouth
Fiat
Lada — Moskvitch
Landrover
benzin og diesel
Mazda
Mercedes Benz
benzin og díesel
Opel
Peugout
Pontiac
Rambier
Range Rover
Renault
Saab
Scania Vabis
Scout
Simca
Sunbeam
Tékkneskar
bifreiðar
Toyota
Vauxhall
Volga
Volkswagen
Volvo benzín
og díesel
I
Þ JÓNSSON&CO
Skeilan 17 s. 84515 — 84516
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480
JRorBimblaÖiö
ReiMstjaman
MARS
- og furðulegar jarðmynd-
anir á yfir: Trði hennar
i.
Mjög er heillandi á
heiðskírum kvöldum að horfa
til stjarnanna. Hundruðum og
þúsundum saman leiftra þær á
himinhvelfingunni. Langflest-
ar eru þær fjarlægar sólir og
ákaflega mislangt frá okkar
himinsvæði, enda misbjartar að
sjá. — En örfáar þeirra stjarna,
sem við sjáum, eru reikistjörn-
ur þær, sem ganga umhverfis
okkar sól. Breyta þær afstöðu
til annarra stjarna himinsins,
og er því mjög fróðlegt að
fylgjast meðgöngu þeirra.
II.
Ein áhugaverðasta reiki-
stjarnan í sólhverfi okkar er
Mars. Hann er auðkenndur frá
öðrum reikistjörnum á því, hve
rauður hann er að sjá. I sólkerf-
inu er hann næsta stjarna utan
við braut jarðar. Það er því
tiltölulega auðvelt að skoða
hann og fylgjast með göngu
hans, þegar hann er sömu
megin við sól og jörð okkar.
Mars er miklu minni en
jörðin. Þvermál hans er 6760
km (á móts við 12.756 km
jarðarinnar, og efnismagn hans
er aðeins einn tiundi hluti af
efnismagni jarðar.
1 sjónauka er auðvelt að sjá,
að Mars snýst um sjálfan sig, og
tekur hver snúningur 24 klst.
og 37 mín., eða mjög nálægt
snúningstíma jarðar.
Möndulhalii Mars er 25° miðað
við umferðarflöt hans um sölu,
og er þar því um árstiðaskipti
að ræða líkt og á jörðunni, en
árið er lengra, því ein ferð Mars
um sólu tekur 686 daga enda er
meðalfjarlægð Mars frá sólu
228 millj. km (en jarðar 140,5
millj. km).
Marsárið er því nærri
helmingi lengra en jarðarárið.
Hvítir stórir flekkir eru við
bæði heimskautin á Mars og
minnka þeir á sumrum en
stækka á vetrum, til skiptis.
Við miðbaug getur hitinn
komist upp í 25°C á daginn, en
næturkuldinn komist niður i
150°C.
Gufuhvolfið á Mars er ákaf-
'f. - . «...■ .
Yfirborð IVIars sýnir víða hring-
fjöll og gíga líka þeim, sem sjá
má á tunglinu. Myndin sýnir
stóran gíg, sem er um 30 km í
þvermál, og er tekin frá
Mariner 6. í 4000 km fjarlægð.
lega þunnt, og er talið að loft-
þrýstingur við yfirborð stjörn-
unnar sé aðeins 1/100 af loft-
þrýstingi við yfirborð jarðar.
Tvö tungl ganga um Mars og
eru þau bæði mjög smá. Heita
þau Fobos og Deimas (Ótti og
Skelfing). Þau ganga um Mars
á sama veg og hann snýst.
Fobos gengur umhverfis Mars á
Ljósmynd tekin frá ameríska
geiiiiköiniuuiiiuiii munm 7.,
árið 1969, I 500 þús. km fjar-
lægð frá Mars, sýnir hvfta hett-
una á suðurskautinu.
7 klst. og 39 mín. enda er hann
aðeins í 9.500 km fjarlægð frá
stjörnunni, en umferðartími
Deimas um Mars er 30 klst. og
fjarlægðin frá móðurstjörn-
unni er 23.700 km.
Yfirborð Mars minnir að
mörgu leyti á tunglið. Hefur
margt merkilegt komið í ljós,
eftir að tekist hefur að koma
geimflaugum á braut um Mars
en þær hafa sent myndir og
aðrar upplýsingar til jarðar.
Eitt hið sérkennilegasta við
yfirborð Mars éru hin mörgu
hringfjöll, sem sum eru talin
mynduð af falli loftsteina, en
einnig eru þar mörg hringlaga
eldfjöll, og eru sum þeirra
miklu stærri en stærstu eldfjöll
jarðarinnar. Hafa mörg þeirra
verið ljósmynduð og mæld. Eitt
hið stærsta þéssara eldfjalla er
nefnt Nix Olympica. Er hæð
Iðunn:
2 nýjar Bar-
bapapabækur
IÐUNN hefur sent frá sér tvær nýjar
bækur um kynjaveruna Barbapapa,
sem mörg börn kannast við. Bæk-
urnar heita SKÓLINN HANS BARBA-
PAPA og BARBAPAPA BÓKIN
1977. Þær eru sjötta og sjöunda
bókin sem út koma á islenzku.
BARBAPAPA BÓKIN 1977 er sú
stærsta sem út hefur komið, 61 bls.
Efni hennar er mjög fjölbreytt, s.s.
spil, íþróttagetraun, kökuuppskriftir
o.m.fl. SKÓLINN HANS BARBA
PAPA segir frá mjög nýstárlegum
skóla sem Barbapapafjölskyldan set-
ur á laggirnar.
Vinsældir Barbapapa hafa farið
vaxandi um allan heim og fjölmargir
sjónvarpsþættir og kvikmyndir
myndir verið gerðar um hann. Þuríð-
ur Baxter íslenskaði bækurnar, sem
eru prentaðar og bundnar i Hollandi.
Ljósm. Mbl. Ol. K.M.
Tarnús með eina mynda sinna hjá fjórum börnum sínum
Tarnús sýnir í Lindarbœ
SÍÐASTLIÐINN laugardag opnaði listamaðurinn Tarnús myndlistar-
sýningu í vinnustofu í Lindarbæ, 4. hæð. Þar sýnir hann 25 olíumál-
verk og skúlptúr. Er þetta þriðja einkasýning Tarnúsar, en einnig
hefur hann tekið þátt í samsýningum. Sýningin í vinnustofunni í
Lindarbæ er sölusýning og er aðgangur ókeypis. Hún er opin daglega
frá klukkan 14 til 22.
Útvarp Reykjavík
VEÐURFREGNUM verður útvarpað frá Veðurstof- vitamálastjóra, almannavörnum, Slysavarnafélagi ls-
unni kl. 01.00, 07.00, 08.15, 10.10, 12.25, 16.15, 18.55 og lands björgunarsveitum, svo og nauðsynlegar tilkynn-
22.15 verkfallsdagana. A sömu tímum verður útvarpað ingar stjórnvalda varðandi öryggisvörslu og heilsu-
tilkvnningum frá tilkynningaskyldunni, lögreglu, gæslu.