Morgunblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1977 r Alþýðubanda- lag, BSRB og ASÍ Talsmenn Alþýdu- bandalagsins og mál- gögn þess flokks hafa lýst yfir eindregnum stuðningi við þá afstöðu BSRI? að hafna sfðasta tilhoði ríkisstjórnarinn- ar. Þessi afstaða Al- þýðubandalagsins getur ekki þýtt nema tvennt: annað hvort er það skoðun flokksins að svo mjög hafi opinherir starfsmenn dregizt aft- ur úr launakjörum al- mennra launþega að nauðsynlegt sé að gera enn betur til þess að leiðrétta þann mun eða Alþýðubandalagið teiur að embættismenn eigi að búa við mun betri kjör en meðlimir al- mennu verkalýðsfélag- anna. í málflutningi Al- þýðubandalagsins hef- ur ekki komið skýrt fram, hvor ástæðan liggur að baki afstöðu flokksins til kröfugerð- ar BSRB. Hins vegar þ.vkir Morgunblaðinu heldur ólíklegt, að AI- þýðubandalagið telji embættismenn eiga rétt á betri kjörum en með- limi almennu verka- lýðsfélaganna. Líklegri skýring er sú, að Al- þýðubandalagið telji ekki nægilegar hækkan- ir komnar fram til þess að leiðrétta þann mun, sem talin var orðin á launakjörum opinberra starfsmanna og al- mennra launþega. Útaf fyrir sig getur það verið málefnaleg afstaða. Það kann að vera umdeilan- legt, hvort þessi munur hafi verið brúaður með síðasta tilboði ríkisins. Morgunbiaðinu hefur virzt, sem þetta bil hafi verið brúað. Alþýðu- bandalagið kann að vera annarrar skoðun- ar. Fróðlegt væri að fá mat Alþýðusambands Islands og t.d. helztu verkalýðsforingja Al- þýðubandalagsins á þessu máli. Telja þeir Eðvarð Sigurðsson, Guðmundur J. Guð- mundsson og fleiri, að betur þurfi að bjóða til þess að leiðrétta kjör opinberra starfs- manna? Ef það er skoð- un þeirra er afstaða AI- þýðubandalagsins skilj- anleg. Og þá mundu bæði þeir og flokkur þeirra væntanlega líta svo á, að hér væri ein- ungis um leiðréttingu að ræða og hún þess vegna ekki grundvöllur til frekari kröfugerðar almennu verkalýðsfél- aganna. Telji þeir hins vegar, að opinberir starfsmenn eigi ekki rétt á frekari leiðrétt- ingu en búið er að bjóða, er ekki önnur skýring á afstöðu Al- þýðubandalagsins en að það telji að opinberir starfsmenn eigi heimt- ingu á meiri kauphækk- unum en aðrir. Eru þeir Eðvarð og Guðmundur J. sömu skoðunar eða er kamiski ágreiningur um þetta mál innan AI- þýðubandalagsins? Þetta er svo fróðlegt íhugunarefni, bæði fyr- ir opinbera starfsmenn og verkafólk, að það er höfuðnauðsyn, að verkalýðsforingjar Al- þýðuhandalagsins láti til sín heyra. Reykjavíkur- framboð Alþýðuflokksins Gylfi Þ. Gislason, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins og nú- verandi formaður þing- flokks hans, ákvað, í kjölfar kröfu Benedikts Gröndals um framboð í Reykjavík, að hverfa frá þingstörfum, efalít- ið til að tryggja frið og einingu í flokki sínum. Þessi ákvörðun Gylfa -------------------------r auðveldaði Benedikt að ná marki sínu — en veikir jafnframt fram- boð Alþþýðuflokksins, þar erð dr. Gylfi naut almanna trausts, út fyr- ir þrengstu flokksmörk. Nú er hinsvegar Ijóst að a.m.k. þrír frammá- menn flokksins keppa um fyrsta sæti fram- boðslistans f væntan- legu prófkjöri. Auk Benedikts Gröndal: Eggert G. Þorsteinsson alþingismaður og Sig- urður E. Guðmundsson, sem segir í viðlali við Mbl. í gær: „Ég reikna fastlega með því að gefa kost á ntér í 1.—3. sæti og verða þannig við heiðni fjölmargra flokkssystkina minna. Þá er rætt um hugsan- lega þátttöku Vilmund- ar Gylfasonar í próf- kjörinu, þótt þar um hafi fátt spurst. Eggert G. Þorsteins- son, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra, var í öðru sæti listans, og telur sig sjálfsagt eiga „uppfærslurétt" nú, þegar G.vlfi hefur ákveðið að draga sig í hlé. Benedikt Gröndal styður vilja sinn um toppsætið m.a. með nú- verandi formennsku sinni í flokknum. Sig- urður E. með áskorun flokksmanna í Reykja- vík. Framundan eru því söguleg átök um fram- boð Alþýðuflokksins í Reykjavík, sem enn er ekki séð fyrir endann á. Gerið Leyft verð Emmess ís ' ' súkkul, — nougat — vanilla — dúett 1 litr...... 310.- Ritz kex 1 pk .................................. 1 74.- Bananar 1 kg ................................... 222,- Nýreyktir hangiframpartar 1 kg ............... 1.018,- Cocoa puffs 1 pk................................ 318 - Rúsínur 1 kg ................................... 835.- Svali appelsínusafi 1/2 gallon ................. 715.- Gunnars Mayonaise 400 gr. ds..................... 247,- Okkar verð 279.- 156.- 200.- 829.- 284.- 750.- 640.- 217.- Ath.: Þetta eru aðeins fáein verðsýnishorn. Ath.: einnig verðsamanburð sem sést á tvöföldum verðmerkimiðum er sýóir leyft verð og okkar verð Opið til kl. 10 föstudag lokað laugardag Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1A. Sími 86111 Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skírteini Svipmyndir sf. Hverfisgötu 18 • Gegnt Þjódleikhúsinu Fornbílaklúbbur íslands Fundur verður haldinn fimmtudaginn 13 október í Templarahöllinni við Eiríksgötu, klukkan 20.30. Fundarefni: Geymsla og viðgerðaraðstaða á bílunum Samstarfið í vetur og fleira. Stjórn FBI. Bréfasafn Torfa Bjarnasonar Nokkurt úrval af bréfum til og Torfa í Ólafsdal, ásamt blaðagreinum, verður gefið út fyrir árslok 1 980: I bindi : Bréf eldri en 1 880 II bindi : Bréffrá 1880—1896 III bindi : Bréf yngrienfrá 1896 Kunnar minningargreinar um Ólafsdalshjónin verða i viðauka III. bindis. Möguleiki er fyrir IV. bindi síðar, bréf frá vesturförum Bréfin verða offset-fjölrituð, og þannig heft, að auðvelt er að setja inn viðbætur eða leiðréttingar Áskrift er hægt að tryggja sér með greiðslu inná póstgiró 29200-1 fyrir 112 n.k. Miðað við verðupplýsingar 1 ág. s.l. er áætlað verð I. bindis kr. 4.632. — án söluskatts, og verður samsvarandi 1000 siðum í venjulegu broti, og kemur út fyrra hluta 1978. Bréfasafn Torfa Bjarnasonar Pósthólf 141, 121 Reykjavík. eldhúsviftur eru ísenn kröftugar, hljóðlátarog fallegar. Eigum fyrirliggjandi tvær gerðir, SANIM AR með þremur hröðum og Ijósi og ELECTRONIC með elektrónískri hraðastillingu og innbyggðu Ijósi. Báðar gerðir er hægt að stilla á inn - eða útblástur Verðfrákr. 44.500,- ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR I MORGUNBLAÐINU Verzlunin PFAFF sími 26788

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.